Vísir - 10.05.1968, Blaðsíða 7
VlSIR . Föstudagur 10. mai 1968.
7
morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd
Horfurnar í orrustunni um Saigon voru í gær
alvarlegri en í sókninni miklu í janúar
Mark kommúnista er að hertaka borgina fyrir helgi
Hersveitir kommúnista herða
sóknina til þess að reyna að ná
Saifion á sitt vald. Þeir höfðu áð-
ur boðað að markið væri að hertaka
hana f þessari viku. Orrustan um
Saigon blossaði i gær upp á ný og
horfumar voru í gær siðdegis tald
ar eins alvarlegar og í sókninni
miklu í janúar og febrúar, eftir að
stjómarherinn og bandarískt lið
hafði varizt Vietcongliðinu og Norð-
ur-Vietnömum f fjóra daga, en hin
nýja sókn hófst um síðustu helgi,
og hefir verið barizt á nokkrum
stöðum í borginni, en hörðust hafa
átökin verið í Cholon, sem er stund
■ um kölluð tviburabær Saigon, eða
kínverski borgarhlutinn, þar sem
hann er að mestu byggður Kín-
verjum.
Fyrri fréttir greindu frá bardög-
um í aðeins nokkurra kílómetra
fjarlægð suðvestur af forsetahöll-
mni, þar sem 199. bandaríska fót-
gönguliðssveitin átti í höggi við 200
manna Vietcong-herflokk. 1 grennd
við Khanh Hoi brúna urðu tveir
bandarískir herflokkarr að láta und-
an síga eftir að fjandmennirn-
ir hófu skothríð á þá af húsaþök-
um. Flóttamannastraumurinn frá
miðhluta borgarinnar var algerlega
skipulagslaus og jaöraði við að al-
gert öngþveiti ríkti. Flóttamanna-
talan kann að verða orðin um
150.000 í kvöld, var sagt í einni
NTB-fréttinni síðdegis í gær. Rétt
áður en bardagamir blossuðu upp
sögðu talsmenn herstjómarinnar,
að tekizt hefði að hindra framsókn
fjandmannanna.
Khanh-Hoi brúin hefir lykil-
stööu svokallaða í orrustunni um
Saigon, því að nái hersveitir komm-
únista stöövum þar á sitt vald fá
þær aðstöðu til þess að skjóta á mið
hluta borgarinnar af sprengjuvörp-
um. Samkvæmt Reuter-frétt, sem
NTB vitnar til, tókst nokkrum Viet-
conghermönnum að komast og út
í litla eyju í þverá, sem rennur í
Saigonfljót. Bandaríska liðið, sem
ver brúna nýtur stuðnings bryn-
varinna þyrla, og skriðdrekar hafa
verið sendir því til aðstoðar og
annar liðsauki.
Papadopoulos fekur við
æðstu stjórn allrar
íþrótfastarfsemi í landinu
Frétt frá Aþenu í gær hermir, að
Papadopoulus forsætlsráðherra hafi
tekið við formennsku grisku Ólym-
píunefndarinnar og yfirstjóm allra
grískra iþróttastofnana.
Fær hann þannig yfirráð allrar
íþróttastarfsemi í landinu. Þetta
varð kunnugt innan sólarhrings frá
því hann tók við stjórn upplýsinga-
málaráðuneytisins og eftirlitsins
með fréttastarfseminni í landinu.
Rétt áður höfðu fjórir blaðamenn
verið handteknir sakaöir um brot á
reglugerð varðandi fréttaflutning.
Sovétleiðtogar gagnrýna
harðlega bandaríska heims-
valdastefnu og V-Þýzkaland
í NTB-frétt frá Moskvu segir, að
■'msir helztu leiðtogar Sovétríkj-
anna hafi í ýmsum blöðum gagn-
rýnt harðlega „bandaríska heims-
valdastefnu“ og Vestur-Þýzkaland,
— í tilefni þess, að 23 ár eru lið-
in frá sigrinum yfir Þýzkalandi
Hitlers.
Meðal þessara leiðtoga er Krylov
hershöfðingi, yfirmaður sovézkra
eldflaugasveita og segir raun-
verulega styrjaldarhættu í Evrópu
stafa af Þýzkalandi. Pravda birt
ir einnig langa grein f sama dúr
eftir Gretsjko landvarnaráðherra.
Vestrænir diplomatar f Moskvu
telja, að þetta beri að skoða í
tengslum við breytingarnar í Tékkó
slóvakfu.
í lok vikunnar, sem endaði 4.
maí féllu afyliði Bandaríkjamanna
í Vietnam 383 menn, en af liöi and-
stæöinganna 2264, og frá áramótum
hafa fallið af liði Bandaríkja-
manna 22.389. Mesta mannfall á
einni viku á þessum tíma er 543
menn.
Óttazt er að skæruliðar Vietcong
ha-fi laumazt inn í hópa flótta-
manna, þeirra tugþúsunda, sem
flýja hafnarhverfin, og menn ótt-
ast að bardagar geti blossað upp
hvar sem er í bænum. Talið er, aö
um 200 Vietcongliðar hafi komizt
inn á Khanh-Hoi-svæðinu.
í Saigon hefur aftur dregið úr
bardögum, eftir óvenjulega kyrra
Stúdentaóeirðir
Enn söfnuðust stúdentar saman
í París í fyrradag svo þúsundum
skipti. Hótað haföi veriö árásum
á Sorbonneháskólann, þar sem
fjölmenn lögregla er á verði, en
ekki kom til óeirða, þar sem stúd-
entar fóru að ráöi leiðtoga sinna,
að hverfa frá áforminu.
Áður haföi menntamálaráðherr-
ann látið í það skína, að háskólinn
yrði opnaður aö morgni hins næsta
dags.
Stúdentasambandið ákvað síðar,
að haldið skyldi áfram stúdenta-
verkfallinu, þar til gengið væri
að kröfum stúdenta og aö öllum
handteknum stúdentum yröi sleppt
og lögreglan færi af háskólalóð-
inni. — Fimm franskir Nóbels-
verðlaunaþegar hafa lýst yfir
stuðningi við málstað stúdenta.
nótt, en í gærkvöldi var sagt, að^
2000 manna bandarískt lið hefði
verið sent til borgarinnar, til stuðn
ings því liöi, sem ver hernaðariega
mikilvæga brú, sem mest var ba,r-
izt um í gær, Annars var barizt
mikið á þremur stöðum og minni
bardagar voru á nokkrum stööum
öðrum. M. a. var barizt innan við
2 kílömetra frá forsetahö’.linni.
1 fréttum í morgun segir, að Ho
Ohi Minh hafi hvatt Vietcong til
þess að vinna enn stærri sigra.
Johnson skrifar
Kosygin
Johnson forseti hefir skrifað
Kosygin fors.jtisráðherra og stung-
ið upp á, að þeir skiptust á skoð-
unum um Vietnam og önnur heims-
vandamál.
Frá þessu var sagt í New York
Times í gær.
Blaðið kvaðst hafa þetta eftir
áreiðanlegum heimildum í Wash-
ington, en kvaðst að öðru leyti
litlar uppiýsingar hafa um bréfið.
100.000 núðaðir
í Tékkóslóvakíu
Svoboda, forseti Tékkóslóvakíu,
tilkynnti í gær, að um 100.000
manns mundu njóta góðs af fyrir-
huguðum náðunum.
Blööin í Prag birtu fréttir um
náðunina í gær, sem er i tilefni
þess, að 23 ár eru liöin frá því
Tékkósióvakía var frelsuð undan
oki nazista.
Viðræður hefjast
í dag í Paris
Samningamenn Bandaríkjanna
og Norður-Vietnams voru i gær
komnir til Parisar til þátttöku i
undirbúningsviðræðunum, sem hefj
ast þar í dag, um friö í Vietnam.
Averill Harrimann, aðalsamninga
maður Bandaríkjanna, lýsti yfir,
að það væri von Johnsons forseta,
að viöræðurnar leiddu til alvar-
legra íilrauna til þess að koma á
friði. Xao Thouy aðalsamningamað-
ur Norður-Vietnams sagði, að mark-
ið væri aö fá Bandaríkin til þess
að hætta öllum hernaðarlegum að-
gerðum gegn Norður-Vietnam, og
að því marki náðu, mætti ræða
vandamálin frekara.
★ Þrír af hverjum fjórum kjós-
endum á Bretlandi eru óánægðir
með hvernig Wilson stjórnar land-
inu, eftir skoðanakönnun að dæma,
sem blaðið Daily Maii lét fram-
kvæma. Er það nokkur aukning (úr
70 í 71 af hundraði) frá í apríl, 21
af hundraði, var ánægður, en 8
viidu enga skoðun láta í ljós. —
Eftir þessum úrslitum að dæma
myndi íhaldsflokkurinn fá 21.6
af hundraði fleiri atkvæöi en
Verkaiýðsflokkurinn, ef gengið
væri til kosninga nú.
★ Trybuna Ludu, málgagn
kommúnista i Póllandi, gagnrýndi
harðlega í, gær árásir, sem það
segir Pólland og önnur kommún-
istaiönd hafa orðið fyrir í Tékkó-
slóvakíu. Blaðið talaði um „and-
mælaaðgerðir gegn socialismanum.
skipulagðar af heimsvaldasinnum
og Gyðingum". Vér vonum að vonir
tékknesku kommúnistisku félagar
sjái um, aö þessar raddir þagni. en
þær ættu ekki að heyrast i tékkn-
esku samfélagi, og þær eru andvig-
ar Póllandi."
Forsetinn á Fílabeinsströnd-
inni Felix H.-Boigny. sagði á
fundi með fréttamönnum í gær,
að hann mundi ekki hika við að
viðurkenna Biafra sem sjálfstætt
ríki, ef allir stiórnmálaflokkar
landsins kæmust aö þeirri niður-
stöðu, að það skyldi gert, ef þjóðin
samþykkti það. ,,Ef þessir bræður
okkar geta ekki búið saman í sam-
bandsríki. verða þeir að leysa deil-
una friðsamlega“. Hann fór hörð-
um orðum um það sinnuleysi og
tilfinningaleysi út um heim. sem
lýsti sér í því, aö látið væri liggja
í lácinni. að brefalt fleiri menn
hefðu veriö drepnir í Biafra en
í Vietnam.
VORUSKEMMAN
GRETTISGÖTU 2
Inniskór barna kr. 50
Kveninniskór kr. 70
Kvenskór 70 og kr. 250
Kvénnomsur (margar gerðir) kr. 100
Gúmmfstígvél bama kr. 50
Barnaskór kr. 50 og kr. 70
Gúmmfskór . kr 50
Leikfimiskór kr. 20
Karlmannaskór — — kr. 280
HÖFUM TEKIÐ UPP
NÝJAR SENDINGAR AF
SKÓFATNAÐI
Hjá okkur fáiö þér mikið
fyrir litla peninga.
KOMIÐ — SKOÐIÐ
SANNFÆRIZT
Nylonsokkar ...........................’ kr. 25
Hárlakk ............................... kr. 40
Barnasokkar ....................-...... kr. 10
Skólapennar ........................... kr. 25
Bítlavesti (ný gerð) .................. kr. 150
Barnakjólar ................ kr. 65 og kr. 190
Kasmír ullarpeysur margar stærðir 20 litir
Röndóttir kvenkjólar .................. kr. 350
Margar stærðir af barnapeysum ...... kr. 80-140
Bonnie og Clyue kvenkjólar margar gerðir kr. 350
VÖRUSKEMMAN Grettísgötu 2
í HÚSI ÁSBJÖRNS ÓLAFSSONAR.