Vísir - 10.05.1968, Page 10
10
V í SIR . Föstudagur 10. maí 1968.
Þama er telpnakórinn úr I
I Hafnarfiröi aö syngja fyrir sjón-
varpsstöövar Norðurlanda, en
útsendlngin var belnt til allra
stööva Noröurlanda, nema Is-
i lands, en hér mun þátturinn
I verða sýndar innan skamms. —
I Stúlkumar sungu 3 íslenzk Iög
og aö auki 2 erlend sem allir 1
, kóramir sungu saman.
ie Vestur-þýzkur snikkari kveðst
hafa siglt kringum jörðina í 7 metra
snekkju, Kathene. Hann segist hafa
verið 605 daga á leiðinni, en þar
af aðeins 145 á sjó. Margir eru
vantrúaðir á sögu hans og er til
athugunar umsókn hans um viður-
kenningu á afrekinu. Eitt er víst:
Ýmsir fengu kort og bréf frá hon-
um frá þeim stöðum, þar sem hann
segir að Kathene hafi verið í höfn
á leiðinni.
Prentaririn
kominn út
Prentarinn, blað Hins íslenzka
prentarafélags, kom út nýlega og
er blaöið sérlega vandaö að öllum
frágangi. Fjölda margar greinar eru
í blaöinu, m.a. „í skriftastóli hjá
prentmeistaranum frá Mainz á 500.
ártíö hans“ eftir Hafstein Guö-
mundsson, grein um Iönskólann eft
ir Ólaf Björnsson, prentnema, „Á
slóðum Vestur-íslendinga“ eftir Á-
gúst Guömundsson, þá er sagt frá
ráðstefnu norrænna prentarasam-
taka, Héidelberg verksmiöjunúm,
sjöunda aiþjóöa bingi bókargeröar-
manna og viðtal er viö Ólaf Inga
Jónsson, vélsetjara er nefnist „I
skóla hiá Intertype.“ Margt annað
efni er í blaðinu en ritstiórar þess
eru nú þeir Guömundur K. Eiríks-
son og Guöjón Sveinbjörnsson. —
Olíufýring
Olíufýring, með blásara og dælu, til sölu á
góðu verði. Uppl. í síma 23457 og 37398
Flugfragt
FRAGTAFGREIÐSLA félaganna við Sölvhóls-
götu verður lokuð á laugardaga frá 11. maí til
septemberloka.
Flugfélug íslands
— Loftleiðir
Prentsmiöjan Hólar hf. prentar
blaðiö.
Með fulla tösku —
1. síöu.
Ekkert var að græða á svörum
mannsins, sem öll voru út í hött,
en hins vegar reyndist ferðataskan
vera full af 10 króna-peningunum
nýju. Var það svo stór hrúga, að
lögregluþjónarnir iögðu ekki einu
sinni í það verk að telja það allt.
Maðurinn var hafður í varðhaldi
í nótt og hefur verið yfirheyrður í
allan morgun, en þegar blaðið fór
í prentun hafði ekkert hafzt upp úr
honum.
Lögreglunni hafa ekki borizt
neinar tilkynningar um hvarf pen-
inga, eða að minnsta kosti ekki
þar sem um svo mikið fé er að
ræða, eins og í ferðatöskunni var.
Brúðubirgðulög —
1. síðu
beri til að gera ráðstafanir til
framleiðslu sjósaltaðrar sumar-
síldar til þess að koma í veg
fvrir yfirvofandi rýrnun mark-
aða fyrir saltsíldarframleiðslu
Iandsmanna svo og til að bæta
hag þeirra, sem eiga hlut að
saltsíldarframleiðslu á sjó og
í landi.
Bráðabirgðalögin voru undir-
skrifuð í Reykiavfk í morgun og
skrifa forseti Islands, herra
Ásgeir Ásgeirsson og sjávarút-
vegsmálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson, undir lögin.
Nefnd sú, sem skipuð var á
sl. vetri til að gera tillögur um
hagnýtingu síldar á fjarlægum
miöum hefur sett fram bráða
birgðaálit og eru lögin byggð á
áliti nefndarinnar. — Engin tök
eru á því að birta alla greinar-
gerðina, en niðurstöður nefndar-
innar koma að mestu leyti fram
í bráðabirgðalögunum,
Auk flutnings á sjósaltaðri
síld, sem nefndin gerir ráð fyr-
ir að verði söltuð um borð f
veiðiskipunum sjálfum, leggur
nefndin til að flutningaskipum
fyrir bræðslusíld verði fjölgað
úr tveimur skipum eins og var
í fyrra, þ. e. Haferninum
Síidinni, um eitt eða tvö
skip. — Þetta er meðfram nauö
synlegt til þess að hægt verði
að salta á miðunum eins mikið
og æskilegt er, en einnig myndu
fleiri bræðsluflutningaskip mjög
auka veiðitíma síldveiðiskip-
anna, en dæmi voru til þess í
fyrrasumar, að skipin væru frá
veiðum allt að 10 sólarhringa,
meðan siglt var með aflann.
Læknahverfi —
16 síðu
hverju sinni. Fyrirkomulag
þetta, sem er merkilegt nýmæli
hefur gefizt mjög vel.
Á síðast liðnu ári sóttu tveir
læknar um heimild til þess að
starfa saman að heimilislæknis-
störfum, á þann hátt að sjúkling-
ar velji þá sameiginlega en ekki
sem einstaklinga. Til þessa þurfti
frávik frá gildandi samningi lækna
félagsins og Sjúkrasamlagsins um
heimilislæknisstörf og voru báðir
aðilar því samþykkir að leyfa slíkt
frávik.
Á aðalfundi var kosin ný stjórn,
en hana skipa Sigmundur Magnús
son formaður, Stefán Bogason
gjaldkeri og Hannes Finnbogason
ritari. Fyrrverandi stjórn skipuðu
Ámi Bjömsson, formaöur, Magn
ús Ólafsson gjaldkeri og Guðjón
Lárusson ritari. Framkvæmdastjóri
félagsins er Sigfús Gunnlaugsson,
viðskiptafræðingur.
Mölmiðnaður —
8. síðu.
plastvömr framleiddar hér voru
einkum leikföng, en síðar kom
búsáhaldaframleiðsla og svo
annað koll af kolli. Fljótlega
var farið að framleiða hér smá-
hluti úr plasti.
Veigamesta plastframleiðslan
nú eru einangrunarplötur úr
polystyrene-plasti, en sú fram-
leiðsla hófst hér 1956. Bæði er
þessi framleiðsla veigamest aö
magni svo og að verðmæti, enda
eru framleiðendur orðnir marg-
ir.
Um svipað leyti hefst hér
framleiðsla vatnsröra, ýmissa
hluta til húsbygginga og inn-
réttinga úr polyeten-plasti, en
síðan hefst ýmiss konar um-
búðaframleiðsla úr þessu sama
plastefni. Nú orðið er hráefnis-
val fjölbreyttara og umbúða-
framleiðslan, einangrunarefna-
framleiðsla stendur' föstum fót-
um orðið, en auk þessara vöru-
tegunda eru hér framleidd flot-
holt, sokkar og fleira úr plast-
efnum.
1 samanburði við erlendan
plastvöruiönað er sé íslenzki fá-
breyttur, þótt blómlegur sé,
enda þróunarsaga þessa iðnað-
ar hér á landi stutt og markað-
ur lítill. Að gæðum eru þó is-
lenzkar plastvörur fyllilega sam-
bærilegar við erlendar. Tækni-
lega er þessi iðnaður vel búinn
og hann hefur búið við svjpað
verðlag á hráefni og nágranna-
þjóðir okkar. Því hefur sam-
keppni. ekki valdið honum sér-
stökum erfiðleikum í þróun
hans, heldur öllu fremur fjár-
magnsskortur, sem staðið hefur
í vegi fyrir því. að hann væri
kominn enn lengra á veg.
Plastiðnaðurinn stendur því
orðið föstum rótum hér á landi.
enda hafa fáar iðngreinar jafn-
góða aðstöðu til vaxta hérlend-
is af þeim. sem burfa að bvggja
á innfluttu hráefni. Lega lands-
ins, fjarlægð þess frá öðrum
löndum. hefur veitt þessum
iðnaði nokkra vernd, vegna
mikils flutningskostnaðar sem
leggst á innfluttar, tilbúnar
plastvörur. Það hið sama veldur
því hins vegar, að Islendingum
hefur lítt þýtt að hugsa til út-
flutnings á þessum vörum, enda
aðrar þjóðir svo langt á undan
þeim í fjölbreyttu plastvöru-
úrvaíi.
BORGIN
BELLA
Óh, hann er alveg dásamlegut'
læknir. Hann setur stolt sitt í að
finna eitthvað athugavert við
mig f hvert sinn sem ég fer til
hans.
VEÐRIÐ
í DAG
Norðan gola eða
kaldi, léttskýjaö.
Hiti 4:5 stig í
dag, frost 2-4 stig
í nótt.
flÍÍÍSMET
Lengsti vegur í heimi er Kína
múrinn, reistur af Shih Huang-ti
(uppi 246—210 f. Kr.). Múrinn
er 1,684 mílur á lengd og hæð
hans er frá 15 til 39 fet. Múrn-
um var haldiö við með stöðúg-
um viðgerðum allt fram á 16.
öld.
íbúð óskasfi
íbúð óskast. 2. herb. íbúö ósk
ast til leigu nú þegar á góðum
stað, tvennt fullorðið í heimili.
Sími 16052.
Saumavél
Saumavél. — Ný saumavél til
sölu. Uppl. að Rauðarárstíg 36. —
Sími 16092.
f7==a/lAlf/GAM
ImiuyjŒS?
RAUÐARARSTlG 31 SlMI 22022