Vísir - 01.07.1968, Síða 3
Nunnurnar á Lnndakoti kusu í
Miðbæjarskólanum.
. .5,
Yfirkjörstjórnin í Reykjavik kemur tii aðseturs síns í Austurbæjarskólanum. Á myndinni sjáum við
m. a. Pál Líndal, formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík, Sigurð M. Þorsteinsson, aöstoðaryfirlögregiu-
þjón, Jón G. Tómasson, skrifstofustjóra borgarstjóra og fleiri.
Forsetaefnin, dr. Gunnar Thoroddsen og dr. Kristján Eldjám, koma til kjörstaða ásamt konum sinum. Dr. Gunnar kom tii kjörstaöar kl. 9 og kaus í Melaskólanum. —
Dr. Kristján kom til kjörstaðar um hálftíma síðar, en hann kaus í Miðbæjarskólanum.
FORSETA-
öiV «£fil2S
KOSNINGAR
í Myndsjánni í dag birtum við
að sjálfsögðu nokkrar svip-
myndir frá kjördegi í Reykjavík.
Veöur var ágætt í Reykjavík,
að vísu nokkur gola, en rigning-
arlaust og hlýtt. Því miður er
ekki sömu sögu að segja víða
af landinu, þar sem sums stað-
' .............................................
ar gekk á með rigningu og slag-
viðri.
Meðal þeirra fyrstu, sem kusu
í Reykjavík, var dr. Gunnar
Thoroddsen, sem kaus í Mela-
skóla. Kom hann ásamt fjöl-
skyldu sinni rétt fyrir kl. 9 í
gærmorgun tii kjörstaöar. Dr.
Kristján Eldjárn kom til kjör-
staðar um hálf tíu leytið, en
hann kaus i Miðbæjarskólanum.
Að venju haföi myndazt nokk-
ur mannfjöldi, er hinar 9 kjör-
deildir borgarinnar voru opnað-
ar kl. 9, en kiörsókn var víðast
fremur dræm framan af morgni,
en jókst er á daginn ieiö. Auk
hinna níu kiördeilda, voru kjör-
deildir á vistheimilinu Hrafnistu
og Elliheimilinu Grund. Var á-
hugi fólksins þar mikiii á kosn-
ingunum,
Allt bað umstang, sem kosn-
ingum fylgir, var f heiðri
haft í gær, eins og vera bar.
Smölun var f fullum gangi, og
bifreiðir stuðningsmanna fluttu
fólk að og frá kjörstað. Á kosn-
ingaskrifstofum forsetaefnanna
um allt land, var mikið um að
vera, og allir voru fullir bjart-
sýni á úrslitin, áöur en töiur
fóru að berast. Og er leið nálægt
lokun kjörstaðanna kom fólk á
hlaupum til að kiósa, sumt hafði
ekki getað komið fyrr vegna
vinnu, en sumt hafði ekki feng-
izt til að kjósa fyrr en á síð-
ustu stundu. Og nokkrir urðu of
seinir til kjörstaðar, og komu að
læstum dyrum.
Blómasölukonur voru iðnar viö sölu merkja og blóma. Hér sjáum við
eina þeirra að verki.