Vísir - 01.07.1968, Síða 5
5
VlSIR . Mánudagur L jölí 1968. _
• ■ . ■’•»■--■ • II nW———IITT
TTndanfarin sex ár hefur mitt-
ið nær undantekningarlaust
verið hulið víðum kjólum,, en
nú hefur skyndilega breytt um
og er nú ekki nó'g meö að flest-
ir nýjustu tízkukjólarnir séu
þröngir í mittinu, þeir eru flestir
meö beltum sem undirstrika al-
veg sérstaklega mittislínuna.
Hér áöur fyrr þótti engin
kona fallega vaxin, nema hún
hefði grannt og fallegt mitti, en
undanfarin ár hefur ótrúlega
lítil áherzla verið lögð á þetta
atriöi, enda drengjavöxturinn
þótt hvað fallegastur. Grannar
mjaðmir, lítil brjóst og langir
og grannir útlimir eru helztu
einkenni flestra tízkusýninga-
stúlkna, og eiginlega eru þær
margar hverjar ótrúlega breiðar
í mittið miðað við hversu grann-
ar mjaðmirnar eru.
Með tilkomu bikinitízkunnar
hefur þetta að vísu fariö aö
breytast smátt og smátt, þvi að
eins og allir vita útheimta bik-
inibaðföt fyrst og fremst fallega
mittislín’i. í kjölfar bikinibað-
fatanna, fylgdu svo alls kyns
strandföt og sumarkjólar, með
teygju eða belti i mittinu.
Nú er svo komið að nær allir
nýjustu tízkukjólarnir, pilsin,
dragtirnar og buxurnar, sem
tízkuverzlanir hafa upp á að
bjóða núna, útheimta fyrst og
fremst grannt mitti. Nú er ekki
lengur svo þýðingarmikið aö
mjaðmirnar séu eins og á
drengjum, þar sem vlð, stutt
pils einkenna flesta þessa kjóla,
en í staðinn verður mittið að
vera grannt.
En hyernig eigum við að fá
grannt mitti? — Unglingsstúlkur
hafa yfirleitt ekki mjög grannt
mitti miðaö viö mjaðmirnar, en
þegar stúlkur eru orðnar um
tuttugu ára er vöxturinn venju-
lega fullþroskaður. Hins vegar
er það óumflýjanleg staðreynd,
að margar stúlkur eru þannig
byggðar, að þrátt fyrir að þær
séu mjög grannar, verður mitt-
islínan aldrei reglulega falleg, og
stafar þaö fyrst og fremst áf
mismunandi líkamsbyggingu,
þar eð neðsti hluti brjóstkass-
ans er mismunandi breiður. En
þrátt fyrir það má grenna mittið
um allt að 6—8 cm með því aö
gera daglega góðar æfingar.
Þegar talað er um aö gera
æfingar til að grenna mittið, ber
fyrst að athuga hvernig „holn-
ingin“ er. Langflestar stúlkur
hangan saman f mittinu t og
breikka mittið þannig um 5—8
cm. Með því aö rétta vel úr
bakinu og lyfta efri hluta lík-
amans upp með vöðvunum í
mittinu, má grenna mittið veru-
lega og auk þess hækka f loft-
inu um nokkra sentimetra.
Gætið þess samt að láta axlim-
ar alltaf toga niður á við og
stífna ekki þó að þið réttið úr
ykkur.
Bezta æfingin fyrir mittið er
mjög auöveld fljótt á litið en
það er ekkert gagn að henni ef
hún er ekki gerð rétt. Ef þið
gerið þessa æfingu rétt nokkr-
um sinnum á dag. 'þá munið
þið finna greinilega mun á
mittinu, jafnvel strax eftir
nokkra daga.
Standiö gleitt, örlítið útskeif-
ar. Teygið vinstri höndina niður
á hægri tána og Iátið hægri I
hendina visa beint upp, endur-
takið þetta til skiptis nokkrum
sinnum. Standið beinar og lyftið
ykkur vel upp i mittinu, svo að
maginn og bakið sé eins flatt og
hægt er, efri hluti líkamans á
að vera aðeins framar en mag-
inn þannig, að bið hallið ykkur 1
eiginlega aðeins fram frá mitt- ^
inu. Teygið hendurnar upp en |
látið axlirnar ekki lyftast með, /
snúið ykkúr til skiptis til hægri 1
og vinstri eins langt og þið j
getið. Setjið hendurnar síðan i
beint út og sveiflið ykkur til /
hægri og vinstri fast og ákveð- J
ið, og veriö eins „afslappar" og j
hægt er, án bess að síga saman í
í mittinu. Að lokum hallið þið ?
vkkur beint niður til hliðanna I
til hægri og vinstri með hend- j
urnar beint ut. t
potudagar
Priðjudagar eru SAS dagar
Ápriðjudögumeru
Verið vandlát
Veljið SAS
Ferð yðar með hinum stóra og nýtfzkulegu þotum SAS cr ævintýri líkust.
Þjónusta hins þrautreynda flugliðs verður ógleymanleg. SAS flýgur án
viðkomu tíl Kaupmannahafhar, en þar biður yðar hið óviðja&anlega
Tfvolí, ótal skemmtistaðir og aragrúi verzlana. Óglejnnanlegir dagar i
borginni við Sundið. Þaðan getíð þér flogið til allra heimsálfa með SAS.
Fyrsta Íaiíými - Fcxð rvm anna farrými
Þr. SAS/DC 8 -þota Þr.
aC 15,30 an. 19,20 | Reyltfavik | ÍKaupmannah. | an. 14,30 a£ 12,20
Staðlaðar
TÍELSA og
JP
INNRETTINGAR
□ STAÐLAÐAR
eldhúsinnréttingar henta
í öll eldhús.
□ Með stórinnkaupum og
vinnuhagraeðingu getið þér
nú fengið eldhúsinnréttingar
með öllum raftáekjum
við ótrúlega lágu verði.
Kynnið vður það nýjasta.
— Hagkvæmir greiðsluskilmálar
Söluumboð fyrir Jón Pétursson húsgagna framleiðanda og Tielsa.
ODDUR H.F. umboðs- og fieildverziun
Kirkjuhvoli sími 21718
Fullkomið sýningareldhús Kirkjuhvoli