Vísir - 03.07.1968, Qupperneq 1
VISIR
5£. árg. - MiðvíkHdagur 3. jújí 1968. - 144. tbl.
ENN EITT TAPIÐ
■ Enn einu sinni urðu íslendingar að þola tap í knatt-
spyrnulandsleik. Í þetta sinn voru það v-þýzkir áhugamenn,
sem að vísu eru engir áhugamenn á íslenzkan mælikvarða,
sem unnu Íslendingana, 3—1. Íslenzka liðið sýndi ágætan
ieik þar til um miðjan síðari hálfleik, er Þjóðverjarnir jöfnuðu
leikinn, 1 — 1. Hermann Gunnarsson hafði skorað eina mark
íslands á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Segja má, að ísl.
liðið hafi verið betri aðilinn fyrri hálfleik, en Þjóðverjarnir
réðu öllu um gang leiksins í síðari hálfleiknum.
■ Á myndinni sjáum við hinn ágæta markvörð, Schiitz, slá
knöttinn frá markinu, en Matthías Hallgrimsson (lengst ‘il
vlnstri), er við öllu búinn. Sjá nánar um leikinn á iþróttasíðu
blaðsins f dag.
STJÓRNARSLIT ERU
EKKI Á DAGSKRÁ
— sagði Emil Jónsson v/ð Visi i morgun
■ Stjórnarslit eru ekki á
dagskrá, að því er Emil Jóns-
son sagði Vísi í morgun. All-
miklar bollaleggingar urðu
manna á meðal í gær vegna
forystugreinar Alþýðublaðs-
ins í gær, en þar stóð m. a.:
„Kann svo að fara, að meira
reyni á hinn nýja forseta á
næstu vikum en margan hef-
ur grunað“. Settu margir
þessi orð blaðsins f samband
við, að Alþýðuflokkurinn
hefði í hyggju að slíta stjórn-
arsamstarfi við Sjáifstæðis-
flokkinn. M. a. eru skrif um
það í Tímanum og Þjóðviljan-
um í morgun.
Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra sagði vegna skrifa þess-
ara í viðtali við Vísi í morgun:
„Hér hlýtur að vera um mis-
skilning að ræða. Mér er ekki
kunnugt um tilefni til slikrar
túlkunar. Vera má að fyrir höf-
undi Ieiðarans vaki, að ef til
vill geti komið til kasta forset-
ans í haust vegna stjómar-
kreppu, sem gæti hugsanlega
myndazt vegna erfiðleikanna".
Martröð fyrir fólkið
- Öllum búpeningnum lógað — Talað við
Agúst Þorleifsson dýralækni i Eyjafirði
Landlæknir og yfirdýralæknir
hafa lagt til við viðkomandi ráðu-
neyti að niðurskurður búpenings
verði hafinn á Rútsstöðum í Eyja-
; firði og nýbýlinu Akri frá Rúts-
stöðum, þar sem taugaveikibróð-
irinn kom upp í búpeningi bónda.
Talaði Visir við Ágúst Þorleifs-
son dýralækni- á Akureyri í morg-
un. Sagði Ágúst, að lagt hefði verið j
til að öllum búpeningi á báðum
bæjum yrði lógað. Á bæjunum báð-1
um eru um 30 kýr fyrir utan 7,
sem þegar eru dauðar af völdum
pestarinnar. Auk þess er hænsna-
rækt á báöum býlunum eða um
200 hænur. Auk þess má búast
við aö tveim hestum og tveim
hundum verði einnig lógað.
Gerði Ágúst ráð fyrir því, að
úrskurður ráðuneytanna kæmi á
morgun eða næsta dag og yrði þá
hafizt handa,
— Það er bezt fyrir fólkið að
styðja Rockefeller
Eugen McCarthy, sem heldur ó-
trauður áfram baráttu sinni til þess
að verða fyrir valinu sem forseta-
efni demokrata, lét bess getið um
síðastliðna helgi er ýmsir helztu
ríkisstjórar, er fylgja demokrata-
flokknum að málum, sátu á ráð-
stefnu, að hann kynni að styðja
Nelson Rockefeller, svo fremi aö
hann gæti fallizt á stefnu hans
í utanríkis- og innanríkismálum.
Þessi ummæli voru vitanlega
skilin á þann veg, að í þeim fæl-
ist hótun um að styðja Nelson
Rockefeller, ef Hubert Humphrey
með flokksvélina að baki sér yröi
valinn forsetaefni flokksins, en
Humphrey vinnur stöðugt af kappi
að því að tryggja aðstöðu sína
meðal ráðandi manna í flokknum
í hinum ýmsu ríkjum, og m. a.
hefir hann levnt og Ijóst unnið að
því, að tryggja sér eins mikið kjör
mannafylgi og frekast er unnt fyr-
irfram, en geta má þess, að kjör-
menn demokrata í Kaliforníu, þar
sem Robert Kennedy sigraði vilja
ekki binda sig fyrir flokksþingið.
Einn af fyrrnefndum rfkisstjór-
um demokrata sagði út af ummæl-
um McCarthys, að þau gætu reynzt
„góður nagli í hans eigin pólitísku
líkkistu" — en ýmsir benda á, að
Nelson Rockefeller studdur af
McCarthy myndi hafa sterka að-
stöðu í kosningum.
SÍIDVIIBIDIIUN LEYST
Fyrstn sumarsíldín kom á land um hádegið. Síldarflotinn
heldur út i kvöld og nótt. Síldarverðið ákveðið í morgun
SÍLDVEIÐIDEILAN LEYSTIST í nótt eftir tólf tíma samn-
lngaviðræður. Útgerðarmenn og sjómenn hafa setið á Iöngum
fimdum með sáttasemjara ríkisins að undanförnu, en samn-
ingar tókust loks í morgun um klukkan sjö. — Yfirnefnd verð-
lagsráðs, sem skipuð er fulltrúum útgerðarmanna, sjómanna,
fulltrúum síldarkaupenda og oddamanni ríkisstjórnarinnar,
kom saman i morgun xlukkan tíu til þess að fjalla um síldar-
verðið og náðist samkomulag um það. Yfirlýsing frá yfir-
nefnd er væntanleg.í dag.
Búast má við að hreyfing kom
ist á síldveiðiflotann strax
næstu daga, en skipin hafa flest
legið í höfn vikum saman. Skip-
in eru flest tilbúin til veiða og
hafa aðeins beðið eftir að deil-
ari leystist. — Hins vegar hefur
gengiö erfiðlega að manna flot-
ann.
Búizt er viö fundi í sjómanna-
félaginu I kvöld og munu samn-
ingarnir verða bornir undir at-
kvæði á þeim fundi, en Jón Sig-
urðsson, formaður félagsins vildi
ekkert um samningana segja í
morgun að svo stöddu.
Sex skip eru komin til veiða
austur í haf og hafa fjögur
þeirra þegar fengið afla, eitt
skipanna, Guðbjörg, landaöi í
Færeyjum í morgun, og Hilmir
átti að koma til Stöðvarfjarðar
laust fyrir tólf í morgun meö
450 tonn og er það fyrsta síldin,
sem berst á land fyrir austan í
sumar.
Sagði Guðmundur Björnsson
framkvæmdastjóri á Stöðvar-
firði í viðtali við Vísi í morgun,
að þegar yrði byrjað að bræða
þessa síld í verksmiðjunni á
Stöövarfirði. Hér væri um fall-
ega og feita síld að ræða, sem
væri söltunarhæf, ef hún kæm-
ist ný í tunnurnar.
Guðmundur var bjartsýnn á
síldveiðihorfurnar og sagðist
vonast til þess að fá næga síld
til Stöðvarfjarðar í sumar.
hafizt verði handa sem allra fyrst.
Það er hreinasta martröð fyrir
fólkiö að hafa kýrnar inni á fóðr-
um og þurfa að hella niður allri
mjólkinni. Nú þegar hafa kýmar
verið hafðar inni í hálfan mánua
Það er ekki hægt að bjóða fólkinu
upp á meira, þegar auðsýnt er að
allt starf þess er unnið fyrir gýg.
Ágúst sagði ennfremur, að hann
mundi hafa yfirumsjón með drápi
búpenings og myndi fá 5—6 menn
með sér til verksins. Ennfremur
yröu fengnar jarðýtur til þess að
grafa eina allsherjar stóra gröf
fyrir búpeninginn. Nú eru þau
þrjú, sem fengu veikina að hress-
ast, en eru ennþá á sjúkrahúsinu
á Akureyri. Voru það fjósameist-
ari, móðir bændanna á Rútsstöð-
um og ungur sonur bóndans á
Akri.
Þór Hjaltason, bóndinn á Akri
sagði Vísi í morgun, að heimilis-
fólkið væri fegið því að ákvörðun
hefði verið tekin í málinu og lóg-
un búpeningsins færi fram. „Við
erum fegin því og vonum, að það
verði sem allra fyrst."
Þeir bræður á Rútsstöðum munu
1M>- 10. síða
Hamingjuóskirnar
streyma til heimilis
hinna nýkjörnu
forsetahjóna
Viðtal Visis við frú
Halldóru Eldjárn
Síðan það varð lióst, að dr.
Kristján Eldjárn hafði borið slgur
úr býtum í forsetakosningunum,
hefur að sjálfsögðu verið mikið á
seyði á heimili hans.
Vísir hafði i morgun tal af frú
Halldóru Eldiárn, og spurði hana
eftir þvi, hvort ekki hefði verið
í mörgu að snúast undangengna
daga.
Frú Halklóra sagði, að heilla-
óskaskeyti hefðu borizt í hundr-
aða ef ekki þúsundatali. Gestagang-
ur hefur að sjálfsögðu verið gífur-
legur, og síminn hefur ekki linnt
á látunum. Fólk' sem ekki er
persónulega kunnugt þeim hjónum
hefur hringt og borið fram ham-
ingjuóskir sínar. Blóm hafa streymt
að, og yfirleitt hafa þeim hjónum
borizt hamingjuóskir af öllu tagi.
Frú Halldóra sagði, að þau hjón-
in hefðu í hyggju að taka sér ein-
hverja hvíld á næstu dögum, en
hún kvaðst samt ekki geta sagt
um, hvort þau mundu fara eitthvað
út úr borginni eða vera hér kyrr.
Að lokum kvaðst frú Halldóra
vilja þakka öllum þeim fjölmörgu,
sem hafa sent þeim hamingjuóskir
eða vottað þeim ánægju sína á ann-
an hátt.