Vísir - 05.07.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 05.07.1968, Blaðsíða 1
ISIR Eitt síldarskipanna, Ásberg RE, siglir út úr Reykjavíkurhöfn, - flest skipanna verða komin á Ieið á miðin fyrir helgi. Allur síldarflotinn á austur- urleið fyrir — Fáir salta um borð. — Fljótandi söltunarstöð á leið á miðin háfuð beint úr nótum skipanna á miðunum og um borð I söltunar- skipið. Þetta er nýmæli hér á landi og verða trúlega fleiri slík skip á miðunum, auk þess sem saltað verð ur um borð f fáeinum veiðiskipum á miöunum. — Færri skip hafa þó sótt um Ieyfi til söltunar en búizt var við. SAS með fullar vélar hing- að. en tómar til baka — hefur flutt 795 farþega á einum mánuði. — Virkar örvandi á starfsemi Fl, segja SAS-menn • Á þeim rúma mánuði, sem liðinn er, frá því að SAS hóf reglubundið áætlunarflug rnilli Kaupmannahafnar og Reykjavik ur, hefur félagið flutt 795 far- þega á þessari leið i fimm ferð- um. Þessar upplýsingar fékk VÍSIR í morgun hjá Karsten Lund, starfsmánni söluskrif- stofu SAS í Reykiavík. Sagði hann ennfremur, að flug SAS hingað hefði haft þau áhrif hingað til, að flutningar Flug- félagsins til Kaupmannahafnar hlytu aö aukazt, því að vélar SAS hefðu verið fullsetnar hing- að frá Kaupmannahöfn, en mjög fáir hefðu farið með félaglnu til Kaupmannahafnar. Sagði hann ennfremur, að flug SAS hingað til lands hefði eng- in áhrif á starfsemi Loftleiða, en virkaði örvandi á flug Flug- m-*- 10. síða Fyrsta stereo-upp- takan á íslandi — Lúðrasveitin Svanur leikur inn á fyrstu islenzku stereo-hljómplötuna Fyrir skömmu lék lúðrasveitin Svanur inn á hljómplötu. Þykja það eflaust engin sérstök tíðindi, en öðru máli gegnir meö það, aö plata þessi er sú fyrsta sinnar tegundar, sem hljóörituð er f stereo á Islandi, ef undan er skilin „stereo“ upptaka Karlakórs Reykja víkur fyrir fimm árum . Það eru fimm lög á plötunni og eru tvö þeirra eftir heiðursfélaga lúðrasveitarinnar, Karl Ó. Runólfs- son. Hann var stjórnandi hennar í 20 ár og er jafnan kallaður ,,mað- ur hljómsveitarinnar". 28 menn skipa hljómsveitina en stjórnandi er hinn kunni trompetleikari, Jón Sigurðsson. Lúðrasveitin hefur nú starfað í _38 ár og má segja að síðasta starfsár hennar hafi verið það glæsilegasta. Nú eru þeir farn- ir að halda árlega tónleika og safna styrktarfélögum og gengið vel. Eitt af verkefnum sveitarinn- ar er að taka á móti þeim ungl- ingum sem koma úr drengjalúðra- sveitunum, þvf einhvers staðar veröur sá efniviður að vera. Upptakan fór fram i húsakynn- um lúðrasveitarinnar og eru þar nokkuð frumstæð skilyrði til stereo upptöku. Það var Pétur Steingrims- son, sem sá um upptökuna og tókst honum það vel. fikti ■ Samningarnir um síldveiðikjör- in voru samþykktir með yfir- gnæfandi meirihluta í trúnaöar- mannaráðum sjómannafélaganna hér sunnanlands i gær og gátu skip- in þvf haldiö úr höfn í nótt. Munu bau verða að tinast út næstu daga, en nokkur fóru þegar snemma í morgun. ■ Nokkrir bátar tóku nætur sín- ar um borð í gær og kostur var borinn í bátana til þess að hafa Stórtjón í bruna, sem hlnuzt uf íi óvitu Þrír litlir drengir — sjö til tíu ára gamlir — urðu valdir að milljónatjóni í gærkvöldi, þegar þeir i óvitaskap voru að fikta með j eldspýtur. Kveiktu þeir í rusli á geymslu- j svæði Slippfélagsins vestur á Eiðs- granda, en eldurinn barst i mikla tlmburhlaða, sem brunnu tii ösku. Talið er, að tjónið hafi numiö hátt á aðra milljón króna. Það tók heila vakt slökkviliös- manna meö fimm dælubíla rúmar j tvær klukkustundir að ráða niður- i lögum eldsins, sem brann glatt í þurru timbrinu. Þurfti að rífa sund- ! ur timburstaflana tvo með lyftur-1 um. til 'þess aö komast vel að glæðunum með vatnið, en slökkvi- | bill var hafður til taks við bruna- ; staðinn f nótt, ef ske kynni, að ek’ur gysi upp aftur í stöflunum. Þegar lögreglan kom á staðinn, veitti hún eftirtekt litlum dreng, stóð álengdar og horfði á eld- ' hafið. Þegar hann var tekinn tali, ! kom í Ijós, að hann hafði verið upphafsmaður þessa ásamt tveim j f':iíiLmm sínum. sem hann vísaði á. allt tilbúiö. Væntanlega veröur all- ur flotinn lagður af staö á miðin um helgina. Engin veiði var á miðunum norð- austur af landinu í gær, né fyrra- dag og segja sjómenn, að síldin standi djúpt, en komi upp á yfir- borðið, þegar skammt lifir af degi og dreifi sér, svo að erfitt er að ná í góð köst, enda bíða fjögur skip á miðunum og hafa lítinn sem engan afla fengið enn sem komið er, eru það Neskaupstaðarbátarnir Bjartur og Barði, Krossanes og Guðbjö.rg ÍS. Síldarflutningaskip eru nú á leið á miðin, svo og fljótandi söltunar- stöð. Er þar um borð hópur Akur- eyrarstúlkna, sem eiga aö salta síld um borð. Það er Valtýr Þor- steinsson, Akureyri, sem tók þetta skip á leigu frá Færeyjum. Það er 800 tonn að stærð og áhöfnin er 25 karlar og konur. Veröur síldin Faraldur af taugaveikibróð- Eyjafirði ur i — Sjúkdómurinn breiðist út meðal fólks i sveitinni. — 14 manns hafa veikzt 14 manns hafa nú tekið tauga- veikibróður í Eyjafjarðarsýslu. Talaði blaðið við Jóhann Þor- kelsson héraðsiækni kl. rúml. ellefu í morgun. Hafði hann þá fengið niðurstöður rannsókna á saursýnishornum. Kom í ljós, að bóndi á Skáldstöðum hafði tek- ið veikina, 3 bætzt við á Rúts- stöðum og 4 af Akri, nýbýlinu frá Rútsstöðum, þar sem veikinn ar gætti fyrst. Allt þetta fólk liggur á sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem þeir liggja er grunað er, að hafi sýkzt. • Taugaveikibróöurveikin er nú örugglega aö breiöast út í Eyja- fjaðarsýslu. Frá Rútsstöðum höfðu áður þrír tekiö veikina og á Skáld- stöðum i Saurbæjarhreppi haföi ellefu ára drengur tekið veikina. Tveir eldri menn liggja nú einnig á sjúkrahúsinu á Akureyri með taugaveikibróður, er annar þeirra frá Húsavík og hefur legiö á sjúkrahúsinu um nokkum tíma, er því talið að hann hafi fengið veikina Akureyri. 1 dag fer læknir frá landlæknis- embættinu í Reykjavík norður til Akureyrar til aðstoðar héraðslækni »-V 10. =íða Gras af landi Reykjavíkurborgar næg- ir til að fóðra bústofn Húnvetninga — segir Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri ■ Með því að bera áburð á graslendi í landi Reykjavíkur- borgar og slá það má gera ráð fyrir, að unnt verði að fá 20 — 30 þús. hesta af þurrheyi. Þessar upplýsingar fékk VÍSIR frá Hafliða Jónssyni, garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar í gær. Sagðist Hafliði gera ráð fyrir, að heyforði þessi myndi t. d. nægja fyrir bústofn Húnavatnssýslu, meðan bændur þar rækta jörð sína á nýjan leik. Þessi staðreynd, sem að vísu er byggð á lauslegum áætlunum, ætti að vekja okkur borgar- búa til umhugsunar um, nvað við getum gert til að aðstoða bændur í þeirra erfiðleikum, sem sannarlega snerta alla þjóðina. En þetta mál, hvort borgar- búar geta aðstoöað bændur með því að nota graslendi borgarinn- ar til að rækta þar þurrhey, er ekki jafneinfalt og það lítur 10. síða T

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.