Vísir - 09.07.1968, Side 16
Þriðjudagur 9. júlí 1968.
Bjargað úr sjávarháska
1 síðustu viku bjargaði áhöfn
vélbátsins Geirfugls frá Grindavík
skipi og áhöfn á ánni Humber við
Grimsby. Á bátnum voru faðir og
tveir synir hans, og höfðu þeír
verið að koma úr veiðiferð og voru
að leggjast að, er snörp vindhviða
rak bátinn stjórnlaust út á fljótiö.
Mörg skip sigldu framhjá og sáu
ekki merkjagjafir skipsmanna,
bangað til Geirfuglsmenn komu
auga á hina nauðstöddu menn.
Drógu þeir bátinn til hafnar í
Grimsby.
Aukin eítirspurn eftír kennara-
stöðam útí á landsbyggðinni
Auðvelt oð fá kennara á barnafræðslu-
stigið, en erfiðara á gagnfræðastigið
80 umsóknir.bárust Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur um 10
lausar kennarastöður á barna
fræðslustigi en 35 um
) kennslu við gagnfræðastigið
i eftir því sem Jónas B. Jóns-
^ son fræðslustjóri tjáði blað-
inu í morgun. Kennsla við
gagnfræðastigið skiptist nið-
ur í sérkennslugreinar og
kva'ð fræðslustjóri mjög erf-
itt að fá kennara með full
réttindi í þær. „Það hefur
verið og er fyrirsjáanlegur
skortur á sérmenntuöum
kennurum á gagnfræðastig-
inu.“
Hins vegar má gera ráð fyrir
eftir hinum mikla umsókna-
fjöida, sem barst um stöður
við barnafræðsluna, að einhverj
ir þeir sem sóttu um muni leita
út á landsbyggðina.
Talaði blaðið við Berg Felix-
son hjá fræðslumálastjóra, sem
sagði að enn væri ekki hægt að
segja neitt um umsóknafjölda
í stööur þær, sem Fræöslumála-
skrifstofan hefði auglýst þar
sem umsóknir berast fyrst til
skólanefnda. Um 100 stöður
voru auglýstar viö barnafræðsF
una en 50—60 við gagnfræðá-
stigið. Er minna um lausar stöð
ur en venjulega og taldi Bergur,
B->- 10. síða
'i
s
\
\
s
\
\
\
\
\
\
Þrír hópor erlendra sjón-
varpsmanna hér á landi nú
Harður árekstur v-rð við Miðfell í Þingvallasveit um helgina, þegar tvær bifreiðir á leið suður
stönzuðu, en sú þriðja lenti aftan á þeim. Höggið við áreksturinn var svo mikið að aftari billinn
kastaðist á þann fremri og urðu miklar skemmdir á bílunum, en þessi mynd var tekin af tveim
ur þeirra.
H-umferðin gengur enn vel:
Landkynningarstarfsemi hefur
færzt i vöxt hérlendis á undan-
förnum árum. Ekki eru bað þó
alltaf innlendir, sem standa fyrir
henni sjálfir. Hefur auklzt að er-
lendir frétta- og sjónvarpsmenn
komi hingað til dvalar og viði að
sér fréttaefni í máli og myndum.
Núna eru t.d. staddir þérna þrír
hópar sjónvarpsmanna frá ýmsum
Evrópuiöndum. Eru það starfsmenn
suður-þýzka sjónvarpsins og svissn
eskir og ítalskir sjónvarpsmenn. —
Eru sex menn starfandi í fyrst-
nefnda hópnum, sem nú er staddur
norður í landi við myndatöku en
2—4 f hinum.
Ökumönnum verður stundum um of starsýnt á
eins og þeim, sem ók Moskwitchinum eftir Hrafnagilsstræti á
Akureyri í gær. Hann var svo upptekinn af brunarústunum,
sem þar voru eftir húsbrunann i gær, að hann veitti ekki
strætisvagnlnum eftirtekt, fyrr en hann hafði ekið á hann
miðjan. Engin slys urðu á mönnum. ,
Færrí slys í þéttbýli en
búast mátti við
■ Ekkert bendir enn til þess að
tala umferðarslysa fári vaxandi eft-
ir' H-breytinguna. Umferöarörygg-
ið er bví enn sem komið er ekki
minna en verið hefur í vinstri um-
ferð. Umferðaröryggiö i þéttbýli er
m. a. s. betra en verið hefur, en
í dreifbýli er það eins og búast
Húsbruni ú Akureyri:
MISSTU ALLT INNBU EN
i BJÖRGUÐU PENINGUM
• Tugum þúsunda króna i
penlngum tðkst að bjarga
úr húsbruna, sem varð á Akur
eyri f Hrafnagilsstræti í gær,
en í honum misstu 12 manns
heimili sín.
Hrafnagilsstræti nr. 21, sem
var tveggja hæða timburhús,
brann svo það er talið nálega
ónýtt og með því allt innbú
tveggja fjölskyldna.
Á neðri hæðinni bjuggu hjón,
Jón Þorláksson, fisksali, og Ár-
veig Kristinsdóttir, með fimm
börn. Frúin varð vör við eldinn,
sem kom upp í svefnherbergi
hennar, og gerði hún fólkinu á
efri hæðinni viðvart. Þar bjuggu
Ármann Þorgrímsson og Krist-
veig Jónsdóttir með þrem
börnum sínum. Þau fluttu í hús-
ið í síðasta mánuði.
Húsið varð alelda á auga-
bragði, en frá því lagði mikinn
reyk, sem var slökkviliðinu til
nokkurs trafala. Tókst þó að
ráða niðurlögum eldsins á tveim
klukkustundum, en tveir
slökkviliðsmenn slösuðust við
starfið, þó ekki ajvarlega.
Engu varð bjargað, sem heit-
ið gat, utan veski annarrar
húsmóðurinnar með fimm þús-
und krónum í peningum og pen-
ingum húsbændanna. Báðir eru
þeir viðskiptamenn og stóð
þannig á hjá þeim þessa helgi.
að báðir áttu mikla peninga
heima, sem tókst þó að bjarga.
Báðir höfðu vátryggt innbú
sitt.
Ifimmtu viku H-umferðar. Slysin í
þéttbýli urðu hins vegar aðeins 54
og eru þvf fyrir neðan neðri mörk,
sem þýðir að færri slys urðu en
búast mátti við.
j hefði mátt við, ef slysatölur und- j deifbýli mátti búast viö 10 ti)
• "nfarinna ára eru haföar í huga. j 32 siysum. Lögreglumenn gerðu
! Samkvæmt reynslu frá 1966 og ^ skýrslur um 16 slys á vegum i
1967 voru 90% lfkur á, að slvsa- ' dreifbýli og er slysatalan því innan
tala f þéttbýli, yrði 58 til 92 í i þeirra marka, sem búast mátti við
Hverfur úr landi
eftir 38 ára dvöl
Gunnar Rocksen, sendiráðsritari,
fluttur til Svibióðar
□ Það getur vel verið að ég
noti tómstundirnar til að skrifa
um reynslu mfna af mönnum og
málefnum hér á landi þau 38
ár, sem ég hef nú búið hér, sagði
Gunnar Rocksen, sem hefur ver-
>ð aðalritari f sænska sendiráð-
;nu, en fór alfarinn til Svíbjóðar
>augar(Iapinn með Gullfossi.
Ég hef séð slíka byltingu hér
'•i ykkur.
Þegar ég kom var Reykjavík ekki
stór borg, hafði aðeins 33 þúsund
fbúa, en hún var engu að siður
mjög elskuleg. Ég hef hrifizt mjög
af því hvað þið hafið getað gert
á skömmum tíma og það hefur ver-
ið gott að dvelja hér þennan tíma.
Þaö hefur verið gaman að starfa
með íslendingum og bið ég kær-
lega að heilsa öllu því yndislega
fólki, sem ég hef kynnzt.
Ég held nú til Svíþjóðar þar sem
ég er kominn á eftirlaunaaldur
inn. Ég hef keypt mér hús með
stórum garði og ætla að dunda mér
við að hirða hann og kannski að
skrifa eitthvað. Hér á landi skil éa
eftir mig son okkar hióna. Kar'
Erik og á ég áreiðanlega eftir að
koma hingaö oft aftur.
Heimilisfang Gunnars Rocksen
og konu hans Helgu Jónsdóttur,
verður. Tallásen, Sommen, Svíþjóð.