Vísir - 15.07.1968, Page 2
2
V í SIR . Mánudagur 15. júlí 1968.
r
Frábær frammistaða Isleadinga:
Islendingar og Svíar skildu /afnir
eftir framlengingu
— en Svíar sigruðu í vítaspyrnukeppni
■ Þeir komu sannarlega á óvart íslenzku piltarnir í
úrslitakeppninni við Svía á laugardag. Eftir venju-
legan leiktíma var staðan tvö mörk gegn tveimur og
var þá framlengt, en hvorugu liðinu tókst að skora.
Varð því að fara fram vítaspyrnukeppni og sigruðu þá
Svíar, fyrsta íslendingnum mistókst sín spyma, en
Svíarnir skoruðu úr öllum þremur spyrnum sínum.
Sigruðu Svíar því í þessu norræna unglingamóti i
knattspyrnu, sem fram hefur farið hér að undanförnu.
íslendingar hlutu annað sætið og má það teljast mjög
góður árangur, þar sem við harðskeyttar þjóðir var
að etja. Er óhætt að segja, að Svíar sigruðu fyrst og
fremst vegna óheppni íslendinganna, sem voru síður
en svo lakari aðilinn í þessari viðureign. Barátta og
leikgleði hefur einkennt leiki íslendinganna og er það
spor í rétta átt, því að ávallt hefur baráttuleysið háð
knattspymumönnum okkar til þessa.
um í sínar hendur, virtust Svíar,
sem áöur höfðu haft undirtökin
ekki fyllilega sætta sig við það.
Þeir bættu verulega við sig og er 5
mínútur voru til leiksloka kom
árangurinn. íslenzka vörnin sem
hafði staðið sig mjög vej, gleymdi
eitt augnablik að fylgjast með mið
herja Svíanna, Gustavsson, og fékk
hann boltann til sín og var ekki
iengi að afgreiða hann í netið.
Töldu nú flestir áhorfendur að
leikurinn væri tapaður, en virtust
sætta sig við það, þar sem íslend
ingarnir höfðu staðið sig mjög vel,
en ... Á síðustu minútu leiksins
-> io. í(ða Úr leiknum ísland - Svíþjóð. Ágúst á f höggi við einn Svíanna.
Boltinn sprakk og Norðmenn
Landsliðið okkar í knattspyrnu
er ungt og á eflaust margt ólært,
en með árangri þessum hjá ungling
unum hljótum við að sjá, að efni
viðurinn er góður og hann verður
að virkja. Eru það tilmæli til for-
ystumanna knattspyrnunnar, að
þeir reyni að sinna meira þessum
efnilegu unglingum, en gert hefur
verið. Öðruvfsi er ekki árangurs
að vænta f samkeppninni við erlend
ar þjóðir.
Það var stutt gaman fyrir hina
mörgu áhorfendur, sem settust nið
ur í rennblatita stúku Laugardals
vallar til að sjá hina frísku leik-
menn hita sig upp fyrir úrslitabar-
áttuna því að eftir nákvæml. 35 sek
hafnaði knötturinn í íslenzka mark
inu. lslendingarnir höfðu farið of
geyst af stað og Svíar brunuðu upp
völlinn og endaði upphlaupið með
stórglæsilegu marki, sem Sigfús
markvörður fékk ekkí við ráðið.
Islendingarnir létu markið ekki
hafa nein áhrif á sig, heldur börð
ust sem ljón það sem eftir var
leiksins. Skiptust liðin nokkuð á
um að sækja, en lítið var um hættu
leg tækifæri. Þó komst Ágúst Guð-
mundsson einn inn fyrir, en var
greinilega brugðið, en dómaranum
Hannesi Þ. Sigurðssyni, fannst
ekkert athugavert, en margir töldu
dómarann tólfta mann í liði Svfa.
Á síðustu mfnútu hálfleiksins gaf
Ólafur bakvörður háan bolta fyrir
markið og skapaðist mikil þvaga,
I en að lokum tókst Ágústi að ýta
knettinum yfir marklínuna.
I síöari hálfleik jókst harkan að
| mun og gáfu fslendingarnir ekkert
1 eftir. Var því minna um spil hjá
' báðum liðum, en er liða tók á hálf
leikinn sóttu fslendingarnir sig
mjög og tóku aðalhlutverkið í leikn
I
3. sæti
— NorBmenn sigruðu Pólverja 2-0
Áður en íslendingar mættu Sví-
I um sigruðu Norðmenn Pólverja
| nokkuð óvænt, en það var ekkf
i fyrirhafnarlaust. Fyrir mótið voru
| Pólverjarnir álitnir nokkuð sigur-
stranglegir, en það fór á annan veg.
Bæði liðin börðust vel og lengi,
en sókn Norðmannanna var murr
sterkari og það reiö baggamun-
inn.
Fyrri hluta leiksins sóttu báðir
aðilar af fullum krafti án þess að
fá skorað. Um miöjan fyrri hálf-
leik skallaði framvörður Pólverj-
anna, Biarda föstum bolta að
norska markinu, en Halvorsen
markvörður varði glæsilega. Á síð
ustu mínútu hálfleiksins sóttu Norð
menn skemmtilega upp hægra meg
in, sem endaði með skoti frá Kord
en og stefndi knötturinn í markiö
en á síðustu stundu tókst Gionna
að koma höndum fyrir knöttinn
og var þá vítaspyrna ekki umflú-
in. Miðherji Norðmannanna Lund
skoraði svo örugglega úr spym-
unni.
Síðari hálfleikur var ekki eins
fjörlegur, en þó brá fyrir skemmti
legu spili hjá báðum aðilum. Hættu
legasta tækifæri Pólverja kom á
4. mínútu, er Koniclk komst einn
inn fyrir norsku vörnina, en Hal-
vorsen bjargaði af mikilli snilld. Er
1 10 mínútur voru til leiksloka brun
, aði hinn snjalli miðherji Norö-
10. síða
Lesendur VISIS velja landslið:
Finnar fundu ekki
leiðina í markið
— og Danir sigruðu óverðskuldað 1-0
Vilja gera fjórar breytingar
Visir hefur efnt til könnunar
lesenda fþróttasíðunnar á því
hvernig þeir vilja iáta skipa
landsliðiö f landsleiknum viö
Norðmenn hinn 18. júli á Laug
ardalsveilinum. Ekki virðast
lesendur vera alveg sammála
um hverjir skuli skipa landslið
ið, sem ckki er nema von. Alls
hlutu 48 knattspymumenn at-_
kvæði f könnuninni. Flest at*
kvæði hlaut Hermann Gunnars
son Val í stöðu miöherja, 94 at
kvæði alls, næst flest atkvæði
hlaut Elmar Geirsson Fram í
stöðu v-útherja alls 84 atkvæði
Nafn Hermanns Gunnarssonar
var á flestum atkvæðaseðlum,,
aðelns 12—14 seðlar bárust, þar
sem ekki var gert ráð fyrir hon
um f sttíðu miðherja.
Annars lítur lið lesenda þann-
ig út:
Markvörður: Þorbergur Atla-
son, Fram 36 atkvæði. (næstir
komu: Guðm. Péturson KR 30
atkv. og Sigurður Dagsson, Val
með 26 atkv.)
Fjórir öftustu varnarmenn
verða Jóhannes Atlason, Fram
(42) Anton Bjarnason Fram (42)
Jón Stefánsson iBA (44) Guðni
Kjartansson, iBK (78). (Næstir
komu Ársæll Kjartansson KR 40
Þorsteinn Friðþjófsson Val 38,
Ellert Schram KR 26 og Samúel
Erlingsson, Val, 16).
1 stööu tengiliöa voru valdir:
Eyleifur Hafsteinsson KR 68,
Halldór Bjömsson KR 44,, og
Þórólfur Beck 78, (Nsestir komu:
Magnús Jónatansson ÍBA 24,
Magnús Torfason 12 og Baldur
Scheving 10)
Framlínumenn verða Hörður
Markan, KR 44, Hermann Gunn
arsson Val 94 og Elmar Geirs-
son Fram 84 (Næstir komu
Kári Árnason iBA 30, Reynir
Jónsson, Val 26 og Helgi Núma
son, Fram 22.)
Þannig lítur liðið sem sé út,
4 Framarar, 4 KR-ingar, I
Valsmaður, 1 Akureyringur og
1 Keflvíkfnaur. Nú er aðeins eft-
ir að vita hvort landsliðsnefnd
•in lítdr sömu augum á leikmenn
ina og lesendur síðunnar.'Þegar
hefur heyrzt að endanlega veröi
gengið frá vali landsliðsins í
,kvöld, eftir leik Fram og KR
og það þvi kunngert á þriðju- <
dag,
{
; í leiðinlegasta leik unglingamóts
ins í knattspyrnu sem fram fór á
laugardalsvellinum á laugardags-
í morgun, sigruöu Danir Finna með
: einu marki gegn engu. Fátt var um
i fína drætti og veröskulduðu Danir
: engan veginn að fara með sigur af i
: hólmi. Leikurinn var úrslitaleikur- '
: inn um 5. sætið og má segja, að '
i þessi lélega frammistaða dönsku |
piltanna hafi valdið talsverðum von
brigðum a.m.k. í Danmörku, en al j
mennt var talið að þeir myndu j
sigra í kenpninni. En þar hafa
nir legið í bví“.
j Leikurinn einkenndist mest af i
i baráttuleysi beggja aðila, þó sér- i
! staklega Dana og undantekningar- !
! lítið spörkum beint til mótherja. !
; Var leikurinn dæmigerð sönnun :
þess, að fleiri geta leikið lélega
j knattspyrnu, en við Islendingar. j
í Framan af sóttu Finnar fast að :
danska markinu, en fundu ekki
réttu leiðina til að skora, en skutu !
í bæði skiptin hátt vfir.
í síðari hálfleik sóttu Danir nokk
uð f sig veðrið og töldu þá ýmsir j
að hin góða danska knattspyrna'
færi að láta til sín taka. En sú I
bið varö nokkuð löpg eða þar til
á 25. mínútu. Léku þeir þá fallega
upp hægra megin og' Lynge Jakob
sen gaf góðan bolta fyrir markið,
Og Torben Rasmussen kom aðvíf-
andi og hamraði knöttinn í netiö,
þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir
finnska markvarðarins til að verja.
Á síðustu mínútu áttu Finnar stór
kostlegt tækifæri til að jafna met
in, er innherji þeirra komst einn
inn fyrir, en skaut í stöng og fram
hjá.
Um liðsmenn er það að segja að
enginn sýndi neitt, sem vert er
að geta um. Allir virtust vera sam
taka um að gera sem minnst og
reyna helzt ekkert til að gera þetta
að knattspyrnuleik.
Dómari var Róbert Jónsson og
sannaði hann, að betri úthaldsdóm
ara eigum við ekki. Einn ljóður
var þó á nokkrum dómum hans,
sem hann getur hæglega bætt úr
þ.e. að stöðva ekki leikinn, ef það
er brotið á einhverjum, en hann
heldur áfram með boltann. Annars
græða þeir brotlegu, en það er ekki
þróun knattspyrr.unnar, eða hvað?
H.g.