Vísir - 15.07.1968, Page 5
PIPPÍ: *í
var einnig keppt í dráttavélarakstri, þar sem mikið reyndi á ökumann-
f! .Éa............
VlSIR . Mánudagur 15. júlí li»o8.
:v-
1 skærlituðum æfingabúningum gengu íþróttaflokkarnir í fylkingu inn á leikvanginn að Eiðum, þar sem mótið var siðan sett.
Gott veður og manngrúi á landsmótiriu að Eiðum
Tjúsundir iþrótta- og æsku-
manna sóttu 13. landsmót
UMFÍ, sem haldiö var aö Eiöum
um helgina í glampandi sól og
sumarveðri. Gott veður, fagurt
umhverfi, íþróttaandi og gott
skipulag mótsins geröi þaö að
verkum, að mótsgestir undu sér
vel og allt fór eins vel fram,
eins og frekast varð á kosiö.
Undirbúningi mótsins var að
mestu lokið, þegar fólk tók að
drífa að ■ á föstjidag úr flestum
landshlutum. Tuttugu héraös-
og ungmennasambönd sendu
þarna fulltrúa sína á mótið og
síðdegis á föstudag hafði hver
hópur slegið upp tjaldbúðum
og komið sér fyrir á sínu af
markaða svæöi, en gesti dreif
að allt fram á sunnudag. Fyrir
öllu hafði verið séð. Keppendur
haföir afsíðis, svo að þeir yröu
fyrir sem minnstu ónæði, bif-
reiðastæöi afmörkuð og þeir, er
komu lítt birgir af mat gátu
keypt sér beina í barnaskólan-
um.
Fólk notaði föstudagskvöld-
iö til þess að rölta um og kynna
sér mótssvæðið, en yngra fólk
ið sem ekki viðurkenndi nein
þreytumerki, brá sér á danspall
inn og fékk sér snúning. Um
miönætti var þó komin ró á
tjaldbúðirnar og flestir lagstir
til svefns, enda veitti ekki af
hvíldinni fyrir áreynsluna á laug
ardag og engum þýddi að bera
því við, ef árangur yröi slæ-
legur, að hann hefði ekki sofið
eða hvílt sig nóg. Þrátt fyrir
góðan ásetning sváfu þó ekki
allir einum blundi, því að nóttin
var köld og setti hroll að mörg
um í tjöldunum.
Klukkan níu á laugardags-
morgun höföu íþróttaflokkarnir
myndað fylkingar á knattspyrnu
vellinum og við undirleik Lúðra
sveitar Neskaupstaðar marsér-
aði fylkingin undir stjórn Þor-
steins Einarsonar, ’ íþróttafull-
trúa, inn á leikvanginn. Fólk var
árrisult þennan morgun og hátt
á annað þúsund manns var sam
an komið á leikvanginum og á
áhorfendahólnum, sem af náttúr
ímnar- og manna höndum var
þannig úr garöi gerður, aö fólk
sat þar á grasi grónum bekkj-
um.
Ungmenna og íþróttasamband
Austurlands hafði veg og vanda
að mótinu og undirbúningi þess
og mælti fyrstur nokkur ávarps
orö formaður þess, Kristján
Ingólfsson, en næstur tók til
máls séra Eiríkur J. Eiríksson
Bauð hann gesti velkomna og
sérstaklega heiðursgest móts-
ins, Bjarna M. Gíslason, skáld
og rithöfund ,en síðan setti hann
mótiö. Fyrir hönd héraðssam-
bandsins, Skarphéöins afhenti
Stefán Jasonarson, Birni Magn-
ússyni, formanni mótsnefndar,
silkifána — Hvítbláin — 'sem
dreginn var að húni.
Síðan hófst keppni í frjálsum
íþróttum, sundi, knattleikjum og
starfsfþróttum, sem stóð allan
daginn fram á kvöld, en þá tóku
við skemmtanir og dans fram
til miönættis. Gestir gengu á
milli og fylgdust með því, sem
hugur þeirra stóð til, en dag-
skráin var svo f jölbreytt, aö eng
um var kleift að fylgjast með
öllu í senn.
inn, ef hann átti aö sleppa árekstralaust í gegnum allar hindranir. Ingvar Jónsson frá
Fnjóskadal ekur traktornum hér á milli hliða.
Sóra Eiríkur J. Eiríksson, setur landsmótið úr grasi grónum
ræðustól.
Milli þess, sem íþróttafólkið keppti í sínum greinum, hvíldi það sig í tjöldunum og lét tím
ann líða við gítarspil og söng. F. v. Inga Hafsteinsdóttir, Jóhanna Hreinsdóttir og MargrSt
Jónsdóttir, allar í handknattleiksflokki Kjalnesinga.