Vísir - 22.07.1968, Blaðsíða 12
12
13
VlSIR . Mánudagur 22. júlí 1968.
NQTIÐ
CHAMPION
KERTI —
CHAMPION
MEÐ ÞVI VERÐUR:
Ræsing auðveldari
Aflið eykst
Minna véiarslit
Allt að 10%
eidsneytisspamaður
H.I. Egill VÍHifátanssons
Laagavag 118 - Simi 2-22-40
Nú höfum við beðið nógu lengi, krókó-
dílarnir hafa étið báða njósnarana. Tveir
njósnarar. Vektu þrælana, við förum
strax á hættuminni stað.
Ó, sonur minn, þökk sé guði, að þú
ert heiii heilsu. Hvað áttu við? Hlvar er
Tarzan? Tóku fangamir ekki þig og hann
til fanga?
Nei, Korak. Neðanjarðaráin reif okkui
með sér undir fjallið þama... og aðeins
ég kom út aftur.
ANNE LORRAiNE
GÆFA
EÐA
GENGI
— Já, auðvitað, sagöi Mary og
reyndi að tala rólega. — Ég hef
séð áður, að það bráir svona af
sjúklingum stundum. Þaö er ekki
víst, að það haldist þangað til Tony
kemur inn, en þó bezt að reyna
það. Það getur skipt miklu máli
fyrir árangurinn af uppskuröinum.
Viljið þér ná í hann?
Howe fór út og kom aftur eftir
dálitla stund með Tony. Hann leit
á Mary þegar hann kom inn, og
hún fór á móti honum og tók í
báðar hendur hans.
— Það er hugsanlegt, að hún
þekki þig, hvíslaöi hún. — Ég get
engu lofað, en þetta er mögulegt.
Tony, við verðum að gera það sem
við getum fyrir hana, meöan hún
veit að við erum hérna. Hún þarf
á þér að halda til þess aö hugga
sig, held ég.
Hann svaraði ekki strax. Svo
sagði hann henni, að foreldrar
Anne stæðu fyrir utan og væru aö
tala við lækninn, og að þá langaöi
til að sjá stúlkuna. — Það hlýtur
að vera betra að þeir komi inn,
í sagði hann með semingi. — Þeir
standa nær því.
— Þaö ert þú, sem hún er að
! kaila á, sagði Mary. — Komdu!
Hann gekk nær og leit á Anne.
Hún var dreyrrauð í framan og
auðséð, aö hún var með mikinn
hita. Mary gerði sér ekki von um,
að Anne þekkti nokkurn núna, en
hún beygði sig niður að henni og
sagði vingjamlega: — Tony er
héma!
Ljóshærða höifuðið byltist til og
frá og munnurinn vipraðist eins og
á barni, sem ætlar að fara að gráta.
Hún rétti fram höndina, og Mary
kinkaði kolli til Tony, sem tók utan
um sítifandi finguma.
Anne hnyklaði brúnimar og fór
að tala. —"'Vertu héma ... Tony,
vertu hérna... þú veröur að lofa
mér því...
Mary lokaöi augunum og barðist
viö afbrýöina, sem logaði í henni.
Þegar hún opnaði augun aftur, sá
hún, að Tony horfði á hana, meö
augnaráöi, sem hún ekki skildi.
— Jæja, Anne, sagði hann hægt.
— Ég skal vera hjá þér, ég lofa
þér því. Ég skal vera hérna nærri
og koma til þín, þegar þú vilt, góða
mín.
Það var hljótt þama inni. Allir
horfðu á Anne, og Mary hé!t, að
hún hefði ekki skilið það, sem
Tony sagöi, þangað til hún sá hana
allt í einu brosa.
\— Hún heyrði það, sagði Mary.
— Hún heyrði, hvaö þú sagðir,
Tony!
CAREY ER ÓSANNGJARN
Speklan kom hálftima síðar og
fór strax inn til Anne. Hann leit
aðeins til Larchs og Howes og kink-
aði kolli til Mary.
— Nú er bezt að líta á þetta,
sagði hann og byrjaöi rannsóknina.
Hann var svo fljótur og ömggur
um leið, að Mary dáðist að. Eftir
dálitla stund rétti hann úr sér og
leit á læknana á víxl og kinkaði
kolli.
— Ég sker strax, sagöi hann. —
Ég er sammála ykkur um niðurstöð-
una. Búið sjúklinginn undir skurö-
inn undir eins og hafiö allt tilbúiö
í skurðstofunni. Lofið mér að tala
í viö foreldra hennar. Við piegum eng
an tíma missa.
Og svo hófst undirbúningurinn,
og hann gekk sjálfkrafa.
Mary vissi, að hennar hluta af
verkinu var nú lokið, en hún hafði
enga löngun til að fara upp í her-
bergið sitt. Hún hugsaði til Tonys,
sem sat í litla herberginu við gang-
inn, og hana langaöi að fara inn
til hans. Eins og oft áður, er hún
PIRA-SYSTEM
v.v.v.v.v.v.’.y
■1
Tvímælalaust hagkvæmustu og fjölbreyttustu hillu-
húsgögnin á markaönum. Höfum lakkaðar PIRA-hillur,
teak, á mjög hagstæðu verði.
Lítið i SÝNINGARGLUGGANN, Laugavegi 178.
STALSTOÐ s/f, Laugavegi 178 (v/Bolholt), sími 31260
'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
hafði orðið fyrir geðshræringu,
þurfti hún aö tala viö einhvem,
sem hún gæti fengið huggun og
hughreystingu hjá. Henni datt faöir
sinn í hug, en þá minntist hún þess,
að bann gat ekki veitt henni þann
styrk, sem hún þurfti. Hann hafði
áhuga á starfi hennar, en gat ekki
skilið kvíða henrnar og óvissu, þrá
hennar eftir hlýrri hendi, sem gat
strokiö henni um hárið. Þegar hún
var í svona sá'arástandi,, varð hún
að sætta sig við einveruna, sem
hlauzt af þvi, að hún mat starf sitt
meir en alit annað. En hvers vegna
— hvers vegna? Það gat ekki verið
guðs vilji, að h.ún ætti að ganga
ævibrautina ein. Nú gat hún farið
íil Tonys og sagt honum ... sagt
honum, að ...
Sagt honum hvað?
Mary gekk hægt gegnum garðinn
í áttina að læknabústaðnum, og
þessi spurning lét hana ekki í friöi.
Hugsum okkur, að hún færi til
Tonys — hvað gat hún þá sagt?
„Ég er einmana, Tony — mig lang-
ar til að þú huggir mig" — var það
sú leið, sem hún vildi fara? En
Tony gat ekki huggað hana núna
— allur hugur hans og huggunar-
löngun hlaut að vera hjá stúlkunni,
sem lá á skurðborðinu. Hafði hún
ekki verið viöstödd sjálf, þegar
Tony lofaði aö vera til taks, hve-
nær sem Anne þyrfti á honum að
halda?
Nú sótti máttleysi á hana, svo
að henni fannst þraut að stiga hvert
spor. Hún þráði að komast í rúmið
og hvíla sig. En hvemig gat hún
hvílzt, þegar hún vissi, aö Tony
sat og beið eftir úrslitum uppskurð-
arins?
Hún rak tæmar í, er hún var
að ganga upp dyraþrepin, en þá
var hurðinni lokið upp innanfrá.
Simon Carey stóð á þröskuldinum
og horföi á hana.
—Þegar ég sagði yður, að þér
skylduð fara út og hvila yður f
kvöld, átti ég ekki við, að þér yrðuö
úti fram á miðja nótt, sagði hann
skætingslega. — Hvemig haldið þér
að fari með sjúklingana yðar á
morgun? Ég hélt, aö jafnvel kven-
fólk vissi betur.
— Þegið þér!
Hann hefði varla orðið meir hissa,
þó að hún hefði rekið honum kjafts-
högg. Hann hvítnaði af vonzku. —
Hvað sögðuð þér?
Hún var orðin jafnnáföl og hann
og starði á hann með fyrirlitningu.
— Þér heyrðuð, hvað ég sagði, sagði
hún. Ég er enginn krakki og sætti
mig ekki við skammir þó ég komi
seint heim, Carey læknir — ég er
læknir alveg eins og þér. Ef yður
þykir það skipta nokkru máli, þá
get ég sagt yður, að ég hef ekki
veriö úti „að skemmta mér“. Ég
hef þurft að annast um sjúfcling.
— Hvaða sjúkling? spurði hann
stutt. — Hefði ekki verið réttara
að taia við mig?
— Nei. Hún reyndi að taia ró-
lega, en tókst efcki að stilla sig. —
Það vill svo til, að þetta var
sjúfclingur föður míns. Það er
stúlka, og ég lét flytja hana hing
að og rannsakaði hana. ásamt lækn-
unum Larch og Howe. Speoklan
læknir er að skera hana núna. Það
er allt og sumt.
— Er það? Hann horfði byrstui
á hana. — Þér athugiö ekki, að þér
vinnið hjá mér núna? Þér verðið
of úrvinda af þreytu til þess að
geta unnið að gagni á morgun.
Nú þraut hana ailt í einu þolin-
mæðina. — Getum við ekki látið
bíða til morguns að segja álit ofck-
ar á, hvort ég sé vinnufær eða ekki?
spurði hún. Ég er þreytt núm og
vil heldur komast upp í herbergið
mitt en standa héma og rfflast við
yður. Mér þykir leitt, ef þér eruð
ekki ánægður með háttalag mitt, ea
ég tel ávallt skyídu mína að hjálpa
sjúklingum, hvort heldur ég S fri
eða ekki.
Maðurinn sem
aídrei les auafaírsinmr
LATIÐ OKKUR INNHEIMTA...
ydur t'ima og óþægindi
USKRIFSTOFAN
J larnargötu 10 — 111 hæö — Vonarstrætismegin — Sími 13175 (3fónur)