Vísir - 02.08.1968, Síða 4
Stutfu pilsín
talin barna-
föt!
Stefnumót
Svíar eru sagðir hugleiöa mest
allra þjóða samskipti karls og
konu. Margar bækur eru seldar
þar í landi um sambönd þessi og
þykir það engum mikið. En sagan
er ekki öll. Við rákumst á í
sænsku blaöi þessar teiknimyndir
og fylgdu þeim textar, sem hjálpa
eiga ráöþrota karlmönnum til að
ná sér í stúlku, er þeir eru á
feröalagi. Ekki viljum við dæma
um hvort þessar ráðleggingar
gefa þann árangur, sem eflaust
ætlazt er til, en hér koma þær:
Á skipi. Fyrirgefið, en þér þarfn-
' izt ef til vill einhvers stuðn-
ings. Það er miklu betra út-
sýni úr mínum klefa.
Á veitingastaö. Er þetta sæti upp
tekið. Á fínum hótelum eru
svo margir að maður getur
hvergi verið i næði. Fyrst
þér eruð á sama máli, mætti
ég þá bjóða yður upp á her-
bergi.
í flugvél. Er yður sama þótt þér
haldið í höndina á mér. Ég
Fyrirsætur i Bretlandi voru i
síðustu viku æfar út af skattamál
um, eins og raunar fleiri landar
þeirra. Söluskatturinn þar í landi
nær til klæðnaðar fulloKðinna, og
er hann 12V2%. Bamaföt eru und
anþegin þessum skatti. „Mini“
kjólar og pils, sem ná rétt niður
fyrir landar eru innan við hámark
ið, sem er 12 þumlungar frá mitti
að faldi. Þar liggja mörkin milli
klæðnaðar barna og fullorðinna.
Til þessa hafa þær dömur, er
keypt hafa slíkan klæðnað, ekki
þurft að greiða söluskatt.
Ríkisstjórnin komst fljótt að
því, að á þennan hátt, er hún að
missa ógrynni skatttekna. í síð-
ustu viku tók hún að leita fyrir
sér um skattinn. Er til vill verða
mörkin færð nær naflanum. Þá
kunna dömurnar að stytta pilsin
enn meira. Vera má, að teknanna
verði eftir það aflað með aukn-
ingu ferðajnanna, sem komi til
að „skoða sig um!“
Stuttklæddur Lundúnabúi.
á ferðalagi
er alltaf svo hræddur 1 flug-
taki. — Takið miðju-arminn
upp, það er miklu þægilegra.
og það minnsta væri að hita
yður. Hvemig festuð þér belt-
ið svona illa?
í járnbrautarlest. Þér virðizt vera
of ung til að vera ein á ferð,
eruð þér orðnar sextán. —
Ég er slæmur í augunum,
Má ég ekki slökkva á lampan
um.
í bifreiðinnl. Látið mig laga örygg
isbeltið yðar. Þetta er minn
klaufaskapur að yður er kalt
Á baðströndinni. Má ég kenna þér
að synda? Ég skal halda hand
klæðinu, meöan þér skiptið
um föt.
Ef hún fer með þér heim. Líttu á
útsýnið úr glugganum fyrir
ofan rúmið. Þá getið þér séð
að leigubílar hættu að aka
fyrir einni klukkustund.
Gamansamt
táningabréf.
Það er mikið um táningana
rætt og ritað, enda miklar á-
hyggjur af velferð þeirra og því
er framferði þeirra allt undir
mikill smásjá. Mér barst i hend
ur gamansamt táningabréf, sem
15 ára gamall piltur, sem er í
sveit í sumar, sendi eldri systur
sinni í borginni.
„Hæ, systir.
Ég þakka þér fyrir bréfsnepil-
inn, sem þú myndaöist við að
senda mér. Nú er és loksins
kominn í bæliö, það var sko
nebblega parti hérna í kvöld,
en nú er alit hyskið farið. Já,
meðan ég man, ég óska þér inni
lega til hamingju með afmælið
og vona að þú náir hinu lang-
þráða bilprófi. Þú verður að
koma að i.eimsækja mig ein-
hverja helgina, en ekki um
næstu helgi, því þá fer ég austur
að .... bæ að hellsa upp á
skrilinn. Skellinaðran er beluð
eins og er, en ég er búinn aö fá
in eins og venjulega. Við krakk-
arnir fórum i útilegu um síðustu
helgi og skemmtum okkur djöf-
ulli vel. Við vorum tíu stykki
(5 strákar og 5 stelpur). — Jæja,
nú er ég búinn að ydda blýant-
Það er komin ný stelpa hérna
í koti' Hún er helvíti sæt, en
djöfulli frek og andskoti mont-
in, Lún er 14 ára og á að vaska
upp og passa krakkana.
Ef þú kemur einhvern tima
lánaðan tr-'ktor í leiðangurinn.
Það er bara verst, að hann
kemst svo hægt, að ég verð um
það bil þrjá tíma á leiðinni (á
35 kílómetra hraða að meðaltali)
eftir nákvæmum útreikningi
bóndans.
Það var helvítis fjör hérna meg
inn eins og þú kannski sérð, en
hvað um það, — æi, hvert var
ég nú kominn? — Já, þaö var
alveg geggjað fjör. Ég fór með
plötuspilarann með, og svo
keyptum við okkur tvo kassa af
kók og tvo pakka af kexi og
lifðum á því í tvo daga.
i heimsókn, komdu þá með tjald
og svo geturðu sofið hér ein-
hvers staðar fyrir utan, því nóg
er plássið hér í kringum mann.
Ertu byrjuð að læra á bíl? (Óska
eftir svari í næsta bréfi). Jæja,
nú fer maður að gerast all
skuggalega syf jaður, aaha ...
Góða nótt.
Gutti.
P.s. Bið að heilsa öllum heima
og bakkaðu fyrir súkkulaðlð.
Bless.
Sami syfjaði sveitamaðurinn."
Ég fékk að byrta þetta bréf,
því mér fannst það svo dæmi-
gert fyrir tíðarandann, og á-
hugamálin leyna sér ekki, þrátt
fyrir gáskann. Það er nú svo
með unglingana, aö þó okkur
finnist þeir fuil fyrirferðarmikl-
ir stundum og kæruleysið nokk-
uð, þá er lífsgleðin mikil og at
orkan talsverð og ekki þarf að
efa, að áhu^amálin munu breyt-
ast ört til hins betra með aldr-
inum, þó aldið veröi áfram að
gera að gamni sínu.
Þrándur í Götu.
i