Vísir - 02.08.1968, Blaðsíða 13

Vísir - 02.08.1968, Blaðsíða 13
VÍSIR . Föstudagur 2. ágúst 1968. 13 Bjarru Bjömsson, forstjóri Dúks h.f., viö ofninn merkilega, þar sem fötin fá „minnið“. „Efninu er gefið rnimii ' Buxur, sem aldrei þarf að pressa, komnar á markaðinn □ Nú er hafin framleiðsla hér á ytri klæðnaði, sem ekki þarf að pressa og þvo má í þvottavél. Verð hans og ending mun svipað og venjulegra fata. Framleiðandi er Dúkur h.f., og er einkum um að ræða buxur fyrst um sinn. í þessu tilefni höfðum við stutt tal af Bjarna Bjömssyni, forstjóra Dúks og báðum hann að gera nokkra grein fyrir því, í hverju þessi nýjung væri fólgin, og hvernig fram- leiðslunni væri hagað. — Hvemig er þessari nýjung farið, Bjami? — Vörumerkið, sem hér um ræðir, kallast Koratron. Það byggist á því að efnin fá kem- fska meðhöndiun, áður en þau eru sniðin og fara í fatnaöar- framleiðsluna. Við köllum það, að „gefa efninu minni“. Þetta felst í því, að efnið er 1 upphaf- legu ástandi, á meðan framleiðsi an fer fram, en síðan er það pressað í sérstökum pressum við meiri hita og þrýsting en ger- ist' í algengum fatapressum. Síð- ast en ekki sízt, er flíkin þegar þessu er lokið, sett inn i ofn, þar sem bökun fer fram við allt að 155 stiga hita. Á þessu stigi kemur „minnið“ fram, og flíkin breytir sér ekki, eftir að hún kemur út úr þessum ofni. — Hvemig efni era þetta? — Að mestu leyti, eða um 67% terylene. Þau eru mjög endingargóð. Við verðum að nota sérstakan tvinna, rennilása, tölur og þess háttar. Allt tillegg verður að vera úr sérstaklega gerðum efnum vegna hitans í ofninum. Efnin eru keypt frá Englandi, Þýzkalandi, Bandaríkj unum og víðar. — Hvað er sérstætt við press- unina? — Pressurnar eru sjálfvirkar með potti, sem ákveður hitastig, þrýsting og hve lengi þrýsting- urinn er á. Þær opna og loka sér sjálfar, baka, opna svo og kæla. Þrýstingurinn er um 80 pund á pressu. Brotið, 'sem þær „muna“, fer ekki úr aftur. — Hvað er það, sem þú kallar „minni“? — Það er átt við, að flíkin breytir sér ekki, man ekki ann- að. Tilgangurinn er sá að flíkin haldi brotunum á meðan hún endist. Hún krumpast ekki . Á fyrsta stigi erum við ein- göngu með buxur, en þetta er líka til í frökkum og karlmanna- fatnaði, en það er enn fyrir utan okkar verkahring. Við munum ekki annast þá framleiðslu sjálf ir að minnsta kosti. — Hafið þið samstarf við erlenda aðila? — Koratron mun upprunnið í Bandaríkjunum, en við skiptum mest við England. Áður en við hefjum framleiðslu á nýrri flík er hún send til Englands, þar sem hún gengur í gegnum eld- raun í rannsóknarstofum Koratr on. Gefinn er úrskurður, hvort hún standist þær kröfur, sem gerðar eru. Kröfumar eru helzt þær, að flíkin komi óbreytt út úr sex þvottum í venjulegri heim ilisþvottavél. Okkar framleiðsla hefur fengið ágætar einkunnir hjá Koratron, eða um 4 plús, sem er með því allra hæsta, en fimm er hæst. Með þessu eftirliti fæst miklu meira öryggi en ella. Fyrsta framleiðsla okk ar hefur því tekizt ágætlega. Með hinum nýju vélum tel ég, að við séum orðnir vélvæddasti fataframleiðandi hérlendis. Ég álít þetta eina merkustu nýjung í fatnaði, síðan nælon kom á markaðinn í stríðslok. — Hvemig er verðið á fram- leiðslunni? — Ef til vi-H verða kvenbux- urnar 5—10% dýrari en venju- legar kvenbuxur. Karlmanna- buxur verða um 1000-1100 kr. Kvenbuxur verða þó ódýrari en ,,stretch“buxur. Segja má að verðið verði mjög svipað. — Hversu margt fólk vinnur hérna og hvað kostar þessi nýj- ung ykkur? — I verksmiðjunni vinna 40 manns. Þetta er þó rétt að byrja hjá okkur, og ekki unnt að full- yrða hvernig það veröur í fram- tíðinni, Þetta hefur orðið geysi- dýrt, kostað töluvert á aðra milljón króna. Við höfum vilyrði fyrir láni úr Iönlánasjóði. Við kveðjum Bjarna Bjöms- son og yfirgefum Iðngarða. Tak- ist vel til um framleiðslu hans, munu konur fagna því að strit þeirra við buxnapressun minnk- ar, óg karlarnir geta fett sig og brett á allar lundir, án þess að krumpur komi í buxurnar. Frá Fóstruskóla Sumargjafar Umsóknir um forskóla að Fóstruskóla Sumar gjafar, sem hefst 16. sept. n.k., skulu sendar skólanum í pósthólf 202. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Sumargjafar, Fornhaga 8. Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini .(landspróf eða gagnfræðapróf), meðmæli frá vinnuveitanda, kennara eða skólastjóra, og mynd. Viðtalstími skólastjóra er á þriðjudög- um og fimmtudögum frá kl. 5—6, á Fríkirkju- vegi 11, sími 21688. Skólastjóri. AUGLÝSING um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Síðari hluti aðalskoöunar bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavlkur fer fram 6. ágúst til 31. október nk., að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Þriðjudag 6. ágúst R-11551 til R-11700 Miðvikudag 7. — R-11701 — R-11850 Fimmtudag 8. — R-11851 — R-12000 Föstudag 9. — R-12001 — R-12150 Mánudag 12. — R-12151 — R-12300 Þriðjudag 13. — R-12301 — R-12450 Miðvikudag 14. — R-12451 — R-12600 Fimmtudag 15. — R-12601 — R-12750 Föstudag 16. — R-12751 — R-12900 Mánudag 19. — R-12901 — R-13050 Þriðjudag 20. — R-13051 — R-13200 Miðvikudag 21. — R-13201 — R-13350 Fimmtudag 22. — R-13351 — R-13500 Föstudag 23. — R-13501 — R-13650 Mánudag 26. — R-13651 — R-13800 Þriðjudag 27. — R-13801 ■ R13950 Miðvikudag 28. — R-13951 — R-14100 Fimmtudag 29. — R-14101 — R-14250 Föstudag 30. — R-14251 — R-14400 Mánudag 2. september R-14401 — R-14550 Þriðjudag 3. — R-14551 — R-14700 Miðvikudag 4. — R-14701 — R-14850 Fimmtudag 5. — R-14851 — R-15000 Föistudag 6. — R-15001 — R-15150 Mánudag 9. — R-15151 — R-15300 Þriðjudag 10. — R-15301 — R-15450 Miðvikudag 11. — R-15451 — R-15600 Fimmtudag 12. — R-15601 — R-15750 Föstudag 13. — R-15751 — R-15900 Mánudag 16. — R-15901 — R-16050 Þriðjudag 17. — R-16051 — R-16200 Miðvikudag 18. — R-16201 — R-16350 Fimmtud. 19. — R-16351 — R-16500 Föstudag 20. — R-16501 — R-16650 Mánudag 23. — R-16651 — R-16800 Þriðjudag 24. — R-16801 — R-16950 Miðvikudag 25. — R-16951 — R17100 Fimmtud. 26. — R-17101 — R-17250 Föstudag 27. — R-17251 — R-17400 Mánudag 30. — R-17401 — R-17550 Þriðjudag 1. október R-17551 — R-17775 Miðvikudag 2. — R-17776 — R-18000 Fimmtud. 3. — R-18001 — R-18225 Föstudag 4. — R-18226 — R-18450 Mánudag 7. — R-18451 — R-18675 Þriðjudag 8. — R-18676 — R-18900 Miðvikudag 9. — R-18901 — R-19125 Fimmtudag 10. — R-19126 — R-19340 Föstudag 11. — R-19341 — R-19565 Mánudag 14. — R-19566 — R-19790 Þriðjudag 15. — R-19791 — R-20015 Miðvikudag 16. — R-20016 — R-20240 Fimmtud. 17. — R-20241 — R-20465 Föstudag 18. — R-20466 — R-20690 Mánudag 21. — R-20691 — R-20915 Þriðjudag 22. — R-20916 — R-21140 Miðvikudag 23. — R-21141 — R-21365 Fimmtud. 24. — R-21366 — R-21590 Föstudag 25. — R-21591 — R-21815 Mánudag 28. r— R-21816 — R-22040 Þriðjudag 29. ’— R-22041 — R-22265 Miðvikudag 30. — R-22266 — R-22490 Fimmtudag 31. — R-22491 — R-22650 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sinar til Bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7 og verður skoðun fram- kvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—17 mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, fimmtudaga til kl. 18.30 og föstudaga til kl. 16.30, f ágúst og september. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Skoðun á bifreiðum, sem era í notkun hér í borg, en skráðar eru annars staðar fer fram í ágústmánuði. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- gild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiða- skattur og vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1968 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreiö sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sínum, skulu sýna kvittun fyrir greiöslu afnoAagjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1968. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðv- uð, þar til gjöldin eru greidd. Ennfremur ber að framvísa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að ljós bifreiðarinnar hafi verið stillt. Vanræki einhver að koma bifrelð sinni til skoöunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin úr um- ferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavik, 1. ágúst 1968. Sigurjón Sigurðsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.