Vísir - 02.08.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 02.08.1968, Blaðsíða 8
V í SIR . Föstudagur 2. ágúst 1968. Utgefandi Reykjaprent ti.t Framkvæmdastjóri Sveinn R. eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axal Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastióri ■ Bergþór Oifarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: I tugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands I lausasölj kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. . ;•••" •*í»‘ S i íf i Verzlunarmannahelg in Akið heilum vagni heim Ilino rm ovinníinlm’n f mi í Uiim aa«v» ! ■ ' ’V’erzlunarmannahelgin fer nú í hönd. Hún er sem kunnugt er mesta ferðahelgi ársins. Þá vill fólk leita burt úr þéttbýlinu, lyfta sér upp og sjá sig um úti á landsbyggðinni. Umferð á þjóðvegunum er gífurlega mikil, og því gott að flestir ökumenn hafa nú fengið nokkra æfingu í hægri umferðinni, enda var H-dagur- inn m. a. ákveðinn með hliðsjón af því. Oft er sagt að Reykjavík sé eins og mannlaus bær um þessa helgi, enda sjást þá sárafáir á ferli, einkum ef vel viðrar til ferðalaga. Sumir leggja af stað strax á föstudags- kvöldi eða snemma á laugardegi, og þeir sem það kjósa, geta komizt yfir býsna stórt svæði, ef þeir vilja leggja á sig langan akstur. Aðrir vilja fara stutt, velja sér kyrrlátan stað og hvíla sig, enda þurfa marg- ir þess með. Náttúruverndin er ofarlega í hugum margra um þessar mundir, og því er ekki úr vegi að minna ferða- fólkið á að ganga snyrtilega um þar sem það áir. Því miður vill oft verða misbrestur á því, að þessa sé gætt sem skyldi. Það er ömurlegt að koma á fagra staði þar sem allt er útbíað af rusli, svo sem umbúðapappír, tómum matarpökkum, dósum og jafnvel flöskubrot- um. Allt slíkt á að urða svo að þess sjáist hvergi merki. Það má ekki „saurga völlinn“ í neinum skilningi. Það skildu forfeður okkar á Þórsnesi forðum, og við með alla okkar siðmenningu á 20. öld ættum ekki að vera eftirbátar þeirra. En það er eins og of margir íslend- ingar geri sér það ekki enn ljóst, að sóðaleg umgengni úti í náttúrunni er skortur á siðmenningu. Þetta sama fólk mundi ekki dreifa rusli og óhreinindum á blett- inn heima við húsið sitt eða um stofugólfið hjá séb. Hvers vegna þá að gera það úti á landsbyggðinni? Á þessu er enginn eðlismunur, þótt sumir kunni að líta svo á. Sem betur fer eiga ekki allir ferðamenn hér óskilið mál. Þvert á móti munu langflestir ganga hreinlega um þar sem þeir koma. En ekki þarf nema einn gikk í hverri veiðistöð, eins og máltækið segir. Tvær eða þrjár manneskjur geta breytt fallegum stað í svína- stíu, þótt allir, sem komu þar á undan, hafi gætt fyllsta hreinlætis. Því miður skortir hér allt eftirlit með umgengni ferðafólks, en jafnvel þótt einhverjir væru staðnir að verki um óþrifnað á almannafæri, mundu þeir sleppa við allt nema skcmnrina. Vel mætti þó hugsa sér að lögleiða sektir við slíku framferði og að löggæzlumenn á eftirlitsferðum hefðu vald til að taka þar í taumana. Loks má svo ekki gleyma skemmdarfýsninni, sem kemur m. a. fram í því, áð vegaskilti eru skotin, beygl- uð og brotin víða við þjóðvegina. Þannig veitti sannar- í&ga ekki af einhverju eftirliti og viðurlögum. 'í - nokkrar ábendingar til ferðafólks vegna verzlunarmannahelgarinnar lyFikill viðbúnaður er hjá þeim 1 fjölmörgu aðilum, sem ann- ast umferðarmál, vegna helgar- innar, verzlunarmannahelgarinn ar, mestu ferðahelgar ársins. Félag fsl. bifreiðaeigenda ann- ast umfangsmikla þjónustu- starfsemi á vegum úti við þá bifreiðaeigendur, sem þurfa að fá aðstoð vegna bilana í bifreiö um. Umferðamefnd R-víkur og lögreglan i Reykjavík munu annast rekstur upplýsingamið- stöðvar um umferöarmál i lög- reglustöðinni í Reykiavík við Snorrabraut, og baðan verður útvarpað bdnt áminningum og upplýsingum um umferð og á- stand vega á laugardag, sunnu dag og mánudag. Er sá þáttur mjög þýðingarmikill og ómetan legur ferðamönnum, en í útvarpi frá upplýsingamiðstöðinni verð- ur einnig skýrt frá stað- setningu vegaþjónustubifreiða FÍB. Þrátt fyrir hina miklu þjón- ustu, sem verður við vegfar- endur um helgina, ætti enginn að leggja úr höfn illa undir- búinn. Alltaf er bezt heilum vagni heim að aka, og menn ættu ekki að leggja í langferö á bílum sínum, nema meö al- gengustu og nauösynlegustu varahluti meöfc öis. Áður en lagt er af stað, væri mjög gott aö yfirfara nokkra þýðingarmestu hluti bifreiðar- innar, og athuga, hvort nokkuð finnst þar, sem betur mætti fara. Sú skoöun tekur aðeins stutta stund, en getur sparað mikið erfiði og létt skapiö, ef eitthvaö kæmi fyrir, er í fríiö er komiö. Athugið vel Ioftið í hjólbörö unum og hafið það í samræmi við að ekið er á malarvegum. Hafiö með ykkur viftureim, vara slöngu, kveikjulok, platínur, þétti, kveikjuhamar, lyftara, bæt ur, og heilt varadekk. Þetta eru hlutir, sem verða að vera með- feröis, og svo auðvitaö nauðsyn legustu verkfæri. Akið með jöfnum hraða, þaö er boöorð, sem vel á viö. Nú liggur engum á, og munið, aö óþarfa framúrakstur, þar sem telft er í tvísýnu skapar alltaf hættu. Akið því ekki of hægt, en hafið ökuhraðann í samræmi við aðstæður. Dragið vel úr ferð inni, er þið kom"' í beygjur eða á blindhæöir, og verið vel á hægri vegarbrún. Alltaf getur komiö bifreið á móti, sem ekið er á röngum vegarhelmingi, og þá er betra að stilla ökuhraðan- um í hóf. Náttúruskoðun og akstur fer ekki saman, og athugið að dýr við veginn eru oft hættumerki, og kindur geta hlaupið þvert vf- ir veginn þegar minnst varir. Að lokum viljum við óska öll um ferðai.-gum góðrar ferðar og ánægjulegrar og heillar heim komu. Við lirtum hér lista yfir stað setningu vegaþjónustubifreiða FÍB, og aó auki lista yfir verk- stæði víðs vegar um landið, sem opin veröa um helgina. Klippið þennan lista út, og hafið hann við höndina, það getur komiö sér vel og sparað óþarfa fyrir- höfn: Nr. Svæði staðsetning FÍB-1 Rangárvallasýsla FlÐ- 2 Dalir — Bjarkarlundur. FÍB- 3 Akureyri — Mývatn. FÍB- 4 Borgarfjörður — Mýr- ar — Snæfellsnes. FlB- 5 Borgarfjörður — Húsa- fellsskógur. FÍB- 6 Út frá Reykjavík. FÍB-7 Hellisheiöi — Ölfus — Grimsnes. FfB- 8 Norðurland. FÍB- 9 Borgarfjörður — Noröurárdalur. FÍB-10 Út frá Höfn í Horna firði. FÍB-11 Hvalfjörður — Borg- arfj. — Reykholtsdalur. FÍB-12 Neskaupst. — Fagridal- ur -- Fljótsdalshérað. FlB-13 Þingvellir — Laugar- vatn. FÍB-14 Egilsstaðir — Fljóts- dalshérað. FÍB-16 ísafjörður — Arnar- fjörður. FÍB-17 Út frá Húsavík. FÍB-18 Bfldudalur -~ Vatns fjörður. FÍB-19 Blönduós -- Skaga- fjöröur. FÍB-20 Víðidalur — Hrúta- fjörður — Holtavörðuheiöi. FfB-21 ' Ólafsfjörður - Fljót — Öxnadalsheiði. FÍB-30 Út frá Kerlingarfjöllum Eftirtaldar hjólbaröaviðgerð- arbifreiðir starfa í samvinnu við Félag ísl. bifreiöaeigenda. G-1054 Húsafellsskógur. G-4436 Þingvellir. Vegaþjónustubifreiðir F.Í.B. gefa upplýsingar um hjólbarða viðgeröarbifreiöirnar. i samvinnu viö Félag ísl. bif- reiðaeigenda munu eftirtalin þjónustuverkstæöi hafa opið um verzlunarmannahelgina: Borgarnes: Bifreiðaþjónustan Hjólbaröaviðgerðir. Reykholt: Bifreiöaverkstæði Guö mundar Kerúlf. Vegamót Snæfellsnesi: Bílaverk stæði Einars Halldórssonar. Borðeyri: Bílaverkstæði Þorvald ar Helgasonar. Víðigerði, Víðidal: Bílaverkstæð- ið Víðir. Akureyri: Hjólbarðaviðgerðas. Arthurs Benedikts. Hafnar- stræti 7. Yzta-Fell, Köldukinn: Bílaverk- stæði Ingólfs Kristjánssonar Reykjahlíð, Mývatnssveit. Bíla- verkstæði Björns Snorra- sonar og Sigurðar Sigur- laugssonar. Vopnafjörður: Bílaverkstæði Björns Vilmundarsonar. Reyöarfjörður: Bílaverkstæðið . Lykill. Hvolsvöllur: Bifreiðaverkst. Kaupfélags Rangæinga. Selfoss: Gúmmívinnust. Selfoss, Austurvegi 58. Laugarvatn: Bílaverkstæðið Laugarvatni. Þeim sem óska eftir aðstoð vegaþjónustubifreiða skal bent á Gufunesradíó, sími 22384, sem aðstoðar við aö koma skilaboö- um til vegaþjónustubifreiða. Einnig munu Þingeyrar- ísa- fjarðar- Brúar- Akureyrar- og Seyöisfjarðarradíó aðstoða til aö koma skilaboðum. Ennfremur geta hinir fjölmörgu talstöðvar bílar, er um veginn fara, náð sambandi við vegaþjónustubif- reiðir FÍB. Verða veitt verðlaun fyrir fallegasta garðinn? Fegrunarnefndin mun koma sam an í þessum mánuði og hafa fund um það hvaöa aðilum ber viöúrkenning eöa verðlaun fyrir góða umgengni í borgarlandinu. Sem kunnugt er veitti Fegrunar félagið á sínum tíma verðlaun fyrir fallegasta garöinn, en síð- ustu ár lá starfsemi þess niðri eða allt frá árinu 1958 eöa 1959 Ekki er ennþá ákveðið hvort eða hvemig verðlaunaveitingu eða viðurkenningu verður Jv«gao af hálfu Fegrunamefnd.trln**!*'. . . *.. ETTr’-tQEBí

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.