Vísir - 02.08.1968, Blaðsíða 16
VONGÓÐUR UM AÐ SÍLDIN FARI
AÐ ÞOKAST NÆR LANDI
— segir Jakob Jakobsson, leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni
— skipin fá ekki sild nema i tuttugasta hverju kasti
Síldin virðist ekki vera ákveðin í göngu sinni suður á bóg-
inn. Hins vegar er veiðisvæðið um 100 mílum sunnar en það
var fyrr i sumar. Ég er vongóður um að hún fari að þoka
sér suður og vestur á bóginn... Þeft? sagði Jakob Jakobs-
son, leiðangursstjóri, sem er staddu.- um borð í síldarleitar-
skipinu Árna Friðrikssyni.
VISIR
Föstudagur 2. ágúst 1968.
Tvær innbrots-
tilrnunir í Lídó
í nótt
Tvær tilraunir til innbrots voru
gerðar í nótt í veitingahúsið Lídó.
í fyrra tilfellinu vildi svo heppi-
lega til, að forstjóri veitingastað-
arins var að vinnu í húsinu, er
hann var innþrotsþjófsins var, og
var hann þvi handsamaöur á staðn
um.
Forstjórinn fór síðan heim, en
ekki hafði verið fullgengið frá
verksummerkjum fyrri þjófsins, er
sá síðari kom, en sá hafði ekkert
upp úr krafsinu, frekar en sá fyrri.
Brotnar voru tvær hurðir og
skemmdar, en annað tjón varð
ekki.
— Síldin hefur verið ákaf-
lega stygg, sagði Jakob. Síöustu
nótt kastaði hvert einasta skip,
sem var á miöunum og sum
oftar en einu sinni, en aðeins
fjögur eða fimm skip náðu góð-
um köstum. Ástandið er þann-
ig aö skipin fá ekki síld nema
í einu kasti af tuttugu að meðal-
tali. Hér áður fyrr fékkst síld
venjulega svona í öðru hverju
kasti.
Árni Friöriksson var staddur
75° 40’ N br. og 13° A 1., þegar
Vísir ræddi viö Jakob f gær og
sagöi hann að þeir hefðu land-
sýn af Svalbarða i NA f góðu
skyggni. Síldarbátarnir voru þá
allt vestur á 10° 30’ A 1. eða um
iy2 gráðu vestar en áöur og
virðist sfldin því heldur þokast í
áttina. Jakob sagði að áta væri
aö aukast á þessu svæöi og væri
hún meiri eftir því sem vestar
drægi.
I-Iins vegar hefði síldarganga
farið allt suður á 74. gráðu fyrir
nokkru, en staðnæmzt þar og
snúið við. Önnur grein af síldar
breiðunni hefði hins vegar hald
iö sig norðar og sú sfld virtist
nú vera að þokast vestur á bóg
inn um 75. breiddarbaug.
Jakob sagði að mikiö síldar-
magn væri á miðunum, en sfld-
in væri mjög erfið viðureignar
vegna þess sve stygg hún væri.
Leiöangri Árna Friðrikssonar
lýkur eftir um þaö bil viku.
— Viö höfum þó skamma við
dvöl á íslandi, sagöi Jakob, og
höldum líklega fljótlega út hing
að aftur. Þó kvað hann ekki ólík
legt að skipið skryppi norður
fyrir land til þess að athuga
síld'..a, sem fengizt hefur að
undanförnu í troll úti á Skaga-
grunninu.
Unnið er nú af kappi í Laugardalshöll að undirbúningi sýn-
ingarinnar. Þessar ungu stúlkur voru að inála sýningarbás.
#1
Gróður er gulli betri
— kjörorð landbúnaðarsýningarinnar
• Þorsteinn Sigurðsson, bóndi
á Vatnsleysu, mun hafa átt
hugmyndina um kjörorð land-
búnaðarsýningarinnar, „gróður
er gulli betri“. Höfnuðu menn
ýmsum gömlum slagorðum, svo
sem „bú er landsstólpi“ og öðr
um lfkum, Einkunnarorðið er
ekki endanlega ákveðið, en hug
mynd Þorsteins mun ríkjandi.
Erlend stórmenni munu sækja
sýninguna heim. Þar munu
verða allir landbúnaðarráðherr
ar Noröurlanda. Þór h.f. flytur
inn Ford dráttarvélar, og af
þeim sökum munu Fordverk-
smiðjurnar bjóða til sýningarinn
ar 12 blaðamönnum stærstu
landbúnaðarblaða i Evrópu. —
Koma þeir með þotu, gagngert
til að skoða sýninguna. Mun
einkum um að ræða menn frá
Bretlandi, Þýzkalandi og Dan-
mörku. Væntanlega munu þeir
skrifa fallega um landbúnað nkk
ar, er heim kemur.
24 6IFREIÐAR TEKNAR
ÚR UMFERÐ
Önnur skyndiskoðun lögreglunnar á stuttum tima
varahluti. Hafiö stjórn- og hemlun-
artæki bifreiðarinnar í lagi. Biluð
bifreið á vegarbrún skapar óþarfa
hættu og getur valdið slysi og fjár-
hagslegu tjóni. Á bls. 8 í blaðinu
f dag er rætt um umferöarhelgina
framundan, birt skrá um staðsetn-
ingu vegaþjónustubíla o. fl.
, Lögregian stöðvaöi hundruð öku-
tækja á götum borgarinnar í gær-
kveidi og framkvæmdi skyndi-
skoðun á þeim. 24 bifreiðir voru
við það tækifæri teknar úr umferð
vegna þess, að ýmislegt mátti finna
að öryggisútbúnaði þeirra. Voru
númer tekin af 18 bifreiðanna, en
notkun bönnuð á 6 farartækjum tii
viðbótar. 10 ökumenn fengu frest
til að láta iagfæra bifreiðir sín-
ar.
Þetta er önnur herferö lögregl-
unnar af þessu tagi. Yfirleitt er á-
stand bifreiðanna gott, en þó eru
nokkrar innan um, sem ýmislegt
má að finna. Sérstök áherzla er til
að minna ökumenn á, að fara ekki
út á þjóðvegina, án þess að hafa
yfirfarið bifreiðarnar rækilega áö-
ur, og hafa meðferðis algengustu
Sjónvarpið aftur í kvöld
Tveir nýir þættir i ágúst, en fleiri
þegar vetrardagskráin hefst
Sjónvarpið hefur aftur útsending-.
ar eftir sumarieyfin í kvöld. Mun
mörgum þykja betur en öðrum!
verr. Fyrsta dagskráin er með
venjulcgu sniði, eftir fréttir er
blaðamannaiundur, þá er Öld vís-
indanna, Dýrlingurinn og loks
Norrænir barnakórar. Tveir nýir j
þættir hefja göngu sína í sjónvarp-1
inu í ágúst. i
Myndaflokkurinn Lassie, sem I
ásamt Hróa hetti verður fram í j
október þar til barnaþútturinn ■
..Stundin okkar“ hefst að nýju. Þá j
er það myndaflokkurinn „Grín úr
gömlum myndum" og lýsir nafnið
innihaldi þáttarins. Síðast en ekki
sízt má nefna kvöldtónleika Sin-
fóníuhljómsveitar íslands, sem sjón
varpað verður mánudaginn 5. ágúst.
Flytur hljómsveitin verkiö Shehera-
sade ef ir Rimsky-Kosakoff stjórn
andi er Bodan Wodiczko. Voru
tvennir tónleikar teknir upp með
hljómsveitinni í vor, en óvíst er
hvort um áframhaldandi upptöku
og útsendingu í sjónvarpi á hljóm-
ieikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
verður aö ræöa.
Varðstaða í
gömlu slökkvi-
stöðinni
Slökkviliðið í Reykjavík hef-
ur nú staðsett eina af bifreiðum
sínum í Miðbænum, til þess að
geta komið sem fyrst á bruna
stað í þessu hættulega bæjar-
hverfi. Jafnframt mun bifreið-
inni, sem mun hafa aðsetur við
gömlu slökkviliðsstöðina, verða
faiið aö sjá um Vesturbæinn. Bif
reið þessi sem verið hefur í
Tjarnargötu í vikutíma, hefur
sem betur fer verið verkefna-
Iaus, að því er Gunnar Sigurðs
son, varaslökkviliðsstjóri, tjáði
blaöinu í morgun. Jafnframt
sagði Gunnar, þessa bifreið ef- 1
laust koma aö góðum notum
fyrir slökkviliðið. Annars hef-
ur verið sérstaklega lítið um út-
köll að undanförnu og því ekki
komið til kasta bifreiðarinnar
ennþá. Við munum samt ávallt
senda annan bíl með, héðan af ,
Reykjanesbrautinni, en þessi bif t
reið mun eðlilega gera okkur líf )
ið Iéttara, sagði Gunnar að lok- S
um. i