Vísir - 10.08.1968, Blaðsíða 1
• •' : :
' '
... ■ :
MiMl
<é>lngólfur Jónsson landbúnaðarráðherra fíytur ræðu sfna við opnun sýningarinnar.
58. árg. - Laugardagilr 10. ágúst 1968. - 176. tbl.
(slenzk skip selja erlend-
um skipum síld ó miðunum
■ Blaðið hefur fregnað, að
talsverð viðskipti hafi átt sér
stað á milli íslenzku veiði-
skipanna á miðunum og
norskra móðurskipa og munu
íslenzku skipin hafa selt eitt-
hvert magn af söltunarsíld í<$>
norsk skip. Ekki er þó vitað
um, hversu mikið magn hér
er um að ræða, né heldur um
verð á þessari síld, en engin
leyfi hafa verið gefin út til
þessara viðskipta enn sem
komið er að minnsta kosti,
og var viðskiptamálaráðu-
neytinu ekki kunnugt um
slíka síldarsölu íslenzkra
skipa, þegar blaðið spurðist
fyrir um hana í morgun.
Hins vegar höfðu fulltrúar
Fiskifélagsins fregnað um slíkar
sölur, en vildu ekkert um máiið
segja að svo stöddu.
Samkvæmt því sem Síldarleit-
in hefur fregnað hafa einnig átt
sér stað síldarsölur til fær-
eyskra skipa, en ekkert hefur
verið tilkynnt beint til Sildar-
leitarinnar um þessar sölur, eða
hve miklar þær kunna að vera.
ísienzku skipin eru að sjálf-
10. síða.
Landbúnaðarsýningin opnui í gær
— Mikið fjólmenni þegar fyrsta daginn
t
VEITINGASALUR Sýningarhallarinnar í Ltugardal var þétt set-
inn þegar setnjngarathöfn Landbúnaðarsýningarinnar hófst klukk-
an tvö í gær. Meðal gesta voru Iandbúnaðarráðherrar Norðurlanda,
sem sitja fund í samvinnunefnd Norðurlanda um landbúnaðarmál
þessa dagana.
SETNINGARATHÖFNIN byrjaði með söng Karlakórs Reykjavík-
ur, en síðan flutti formaður sýningarnefndarinnar, Þorsteinn bóndi
Sigurðsson frá Vatnsleysu, ræðu, og að því loknu sagði Ingólfur
Jónsson landbúnaðarráðherra sýninguna opna.
tíu daga, sem sýningin veröur opin
eða ekki færra en 60 þúsund manns
eins og á síðustu landbúnaðarsýn-
ingu í Vatnsmýrinni árið 1947.
Að sýningunni standa sem kunn
ugt er Búnaðarfélag íslands ásamt
Framleiðsluráði landbúnaðarins. —
1 ræðu sinni gat Þorsteinn Sigurðs
son, formaður sýningarnefndarinn-
ar þess að ýmsar raddir hefðu bor-
izt bæði f.á bændum og úr bæj-
um um að slík sýning væri varla
tímabær, þegar jafnmiklir erfiðleik
ar steðja að landbúnaðinum og nú.
Hins vegar sagði hann ekki hafa
verið aftur snúið, þó að vilji hefði
verið fyrir að fresta sýningunni.
10. síða.
Seðlabankastj. Norðurlanda á fundi á Hornafirði:
„Það er ekki komið að því ennþá,“ sagði Kjarval, þegar hann var
spurður um það, hvort hann flytti í nýja húsið á Seltjarnarnesi.
Boðsgestir gengu síðan um sýn
inguna og þáðu að því loknu kaffi
veizlu í veitingasal hallarinnar. En
sýningin var opnuð almenningi
klukkan fimm. Kom fjöldi manns
til þess að sjá sýninguna, seinni
Ánægðir með fundarstaðinn
Þingi norrænna seölabankastjóra
lauk í gær .Stóð þinglð yfir 1 þrjá
partinn í gær, auk boðsgesta og er í daga. Nýlundan við þetta þing var,
búizt við miklu fjölmenni þessa I að bað var haldið f hinu nýja
Sigurður Þórarinsson sett-
ur prófessor i jarðfræði
— ný kennslugrein við Háskólann
Dr. Sigurður Þórarinsson, jarð-
fræðingur hefur nú veriö settur
prófessor í jarð-og landafræði við
verkfræðideild Háskólans. —
Kennsla í jaröfræði verður tekin
upp í fyrsta skipti við Háskól-
ann í haust og sagði Sigurður i
stuttu viðtali við Vísi í gær, að
meiningin væri að landafræðin og
jarðfræðin yröu kenndar samhliða
fyrstu tvö kennslustigin, en síðan
gætu menn valið um aðra hvora
þessara greina á þriðja stigi. —
Þessar greinar verða kenndar til
BA-prófs.
Að öðru leyti kvaðst Sigurður
lítiö geta sagt um hina nýju deild
að svo stöddu, en hann hefur aö
undanförnu verið á ferðalagi með I Fundarmenn, sem voru 22 talsins,
25 norrænum jarðfræðingum. Slik-. voru mjög ánægðir meö fundarstað
ar heimsóknir eru orðnar fastur liö j inn og hrifnir af umhverfinu, en
ur og ferðuðust þeir að þessu sinni j sem kunnugt er eru margir fallegir
vítt um landið. I staðir í Hornafirðinum.
hóteli í Höfn i Hornafirði. Talaði
blaðið við Jóhannes Nordal, seSla-
bankastjóra, sem skýrði frá því, aS
þessir fundir væru haldnir árlega
til skiptis á Norðurlöndunum. Hafi
fundirnir verið haldnir fjórum sinn-
um á ísiandi.
Á þessum fundi væri rætt um
peningamál og gjaldeyrismál og
ekki væri venja að skýra frá um-
ræðum e'tir á. Sagði Jóhannes
ennfremur að ekki hefðu fundirnir
vakið neina eftirtekt áður en nú
hefði sú staðreynd að fundurinn
var haldinn úti á landi vakið at-
hygli. „Okkur fannst það mögu-
leiki“ sagði Jóhannes „aö hafa fund
inn á nýju hóteli“, þegar hann
var spurður að því hvers vegna
Höfn var valin.
„Ég hef beðið fyrir lyklana
á góðum stað"
— spjallað við Kjarval um flutninga i
Kjarvalshúsið nýja
■ Hann kemur á móti okkur niður tröppurnar með Iitadós
og pensil í höndunum og honum er mikið niðri fyrir.
„Láttu ekki ljósmyndarann koma upp.“ Svo kallar hann niður
til ljósmyndarans og bílstjórans: „Drengir mínir, sitjið þið á
tröppunum og gætið þess at enginn komist inn.“
■ Kjarval snýr sér við og gengur upp tröppurnar og inn í
vinnustofuna, — vinnustofuna, sem er á efstu hæð í
Blikksmiðju Breiðfjörðs.
□ „Það er ekki komið að því
ennþá,“ segir Kjarval, þeg-
ar hann er spurður hvenær hann
ætli aö flytja inn í fullbúiö hús-
ið, sem bíður hans í landi Lamba
staða — giæsilegt með viðar-
klæddri vinnustofu, svalir, sem
her manns kæmist fyrir, á og
bátaskýli:
„Það eru aðrir — vinir, sem
segja til um það. Hér er ég
með mína vinnu út' af fyrir mig,
vinir mínir Breiðfjörð hafa leyft
mér að vera hér. Hitt húsið er
annarra manna framkvæmd,
þeir hafa afhent mér það, ég
hef beðið fyrir lyklana á góðum
stað, ég hef ekkert með það að
gera fyrst um sinn.“
Kjarval bendir með litadoll-
unni út um gluggana — Laugar-
nesmegin og segir, „hér er ynd-
isleg birta — fallegt útsýni.“
Þegar gengið er á hann, hvort
hann muni nokkru sinni flytj-
ast inn í nýja húsið, svarar Kjar-
val: „Ég er gamall skútukarl,
»->■ 10. síða.