Vísir - 05.09.1968, Qupperneq 2
V1SIR . Fimmtudagur 5. september 1968.
■mm
'
■ ..
Ellen Ingvadóttir með foreldrum sínum og systrum í gærkvöldi. Frá vinstri systir hennar Gyða, móðir hennar Liv, Ingvi Þor-
steinsson, Kristin og Ellen.
Islenzkir Olympiufarar — Ellen Ingvadóttir
)
KEPPANDINN I MEXIKO!
Sundhöll
Hufnarfjurður
25 óra
25 ár eru liðin síðan Sundhöll
Hafnarfjaröar tók til starfa, en það
var 29. ágúst 1943.
í sumar hafa verið framkvæmd-
ar ýmsar endurbætur á fyrirtæk-
inu, m. a. sett upp ný og fullkom-
in hreinsitæki, laugarþró máluð og
grasflatir settar í sólbaðsskýli.
Sundhöllin er opin alla virka daga
kl. 7.30—12 og 13.30—22, nema
laugardaga tii kl. 19 og sunnudaga
kl. 10-12.
Fjórir starfsmenn vinna við fyr-
irtækið auk forstöðumanns, sem er
Yngvi Rafn Baldvinsson.
íþróttaþing ÍSÍ
um næstu helgi
íþróttaþing verður háð um næstu
helgi í Reykjavík. Þingið hefst á
laugardag kl. 2 og heldur áfram
störfum á sunnudag. Fer það fram
í húsi Slysavarnafélagsins við
Grandagarð.
W---'OILAltlEAM
Um/Lmmn’
nAUPARARSTÍG 31 SiMI 22022
FELAGSLIF
(
Einn yngsti keppandi
Olympíuleikanna í Mexí
kó í næsta mánuði er í
íslenzku sveitinni, sem
mun marséra inn á 01-
ympíuvöllinn með tug-
um annarra þátttöku-
þjóða. Þessi \ kornungi
keppandi er Ellen Ingva-
dóttir, aðeins 15 ára göm
ul sundkona úr Ár-
manni. Saga hennar er
merkileg margra hluta
vegna þótt hún sé enn
ekki ýkja löng, því það
eru ekki nema 3 ár síðan
að F/len mætti á fyrstu
sundæfingarnar hjá Ár-
manni.
Ellen er iðin og samvizkusöm
við það sem hún tekur sér fyrir
hendur, og þegar þetta tvennt
er lagt saman við hæfileika má
búast viö ágætri útkomu úr
dæminu. Ellen sagði í viðtali í
gærkvöldi við mig," þegar ég
spurði hana hvort hún tæki
ekki ■ skólabækurnar með til
Mexíkó, en hún er nú að hefja
landsprófsnám við Réttarholts-
skólann, aö hún hefði' einmitt
verið að hugsa um þaö, hún
hefði heyrt á sundfólkinu, sem
hefði áöur farið á Ólympíuleika,
aö nægur tími mundi til slíks.
Ekki er þvi með öllu útilokað
að eðlisfræöi og íslenzk mál-
fræöi verði „stúderuö" íÓlympíu
þorpinu á síðkvöldum, þegar
íþróttamenn hvíla sig eftir erf-
iðan dag.
Ellen er dóttir hjónanna Liv
Þorsteinsson, sem er norsk, og
Ingva Þorsteinssonar, magister,
Háaleitisbraut 17. Ellen læröi
snemma aö synda og notfærði
sér það hversu stutt var í Sund-
laug Vesturbæjar. En fyrir 3
árum var hún fyrst mætt á
sundæfingu hjá Ármanni. Síðan
hefur margt gerzt, afrekin hafa
komið hvert af öðru, ekki sízt
í bringusundi, sem Ellen skoöar
sem sína aðalgrein, en skrið-
sund og f jórsund eru einnig góð-
ar greinar hjá henni.
— Og hvernig æfir fólk, sem
ætlar á Ólympíuleika?
minna, og ekkert á sunnudög-
um. Alls yfir 30 kílómetra á
viku!
„Þetta verður mikill viðburð-
ur fyrir mig“, sagði Ellen um
ferðina til Mexíkó og það eru
orð að sönnu. Þaö eru ekki allar
15 árá stúlkur sem eiga þess
kost að vera mánuð í Mexíkó,
einmitt þegar þær eiga að vera
að hefja skólastaglið fyrir lands-
próf. Sú stjama, sem Ellen
hlakkar e.t.v. hvað mest til að
sjá er Gatie Ball, sem er banda-
rísk og aðeins 16 ára gömul.
Hún hefur synt 100 m. bringu-
sund á 1.14.8 mín., sem er
heimsmet og stórkostlegur ár-
angur, sem er hreint og beint
sambærilegur við árangur í
karlaflokki.
Þess skal að lokum getið hér
að í gærkvöldi var karlaliö
Bandaríkjamanna fyrir sund-
keppni ÓL í Mexíkó valið. Oft
hafa mjög ungir menn veriö
þar á meðal og er svo enn. Eng-
inn er þó í liðinu eins ungur
og Ellen, sá yngsti er John
Kinsella, 16 ára, sem keppir í
1500 metra skriðsundi, þá eru
tveir 17 ára piltar, en yfirleitt
er liðið um og yfir tvltugt.
— jbp —
Ég haföi raunar heyrt að
bezta aðferðin við að hitta
sundfólkið væri aö halda inn i
Laugardalslaug, þar mundi
þetta fólk örugglega að finna.
F.llen sagði að æft væri tvisvar
á dag, nema á laugardögum, þá
aðeins einu sinni, - en sunnu-| j gærdag var dregiö um það
dagar eru ekki sunddagar. hvaða lið leika saman j næstu um.
Æfingarnar eru því 13 í viku. ferð bikarkeppninnar í knattspyrnu,
Á þessum æfmgum syndir en þá hefst aðalkeppnin.
Ellen 2 kílómetra á morgunæf- Þessi lið leika:
bikarkeppninni
ingunum, sem standa frá hálM,
átta til hálf-níu og 3—4 kíló- j
metra á kvöldæfingunum sem1
KR-a—KR-b eða Akranes,
Fram—Þróttur eða Víkingur,
Akureyri—Valur,
Keflavík — Vestmannaeyjar.
__ Leikur KR-b og Akraness fer
kuómetra á degi hverjum, , . , f, ,, ,
„ , , ,..í . fram a sunnudag kl. 14, en leikur
laugardaga eitthvað 6
standa frá kl. 6 til rúmlega 8.
Þannig syndir hún allt aö 6
nema
^Víkings og Þróttar kl. 17 sama dag.
aHinir leikirnir tveir verða I Kefla-
vik og Akureyri 'á sunnudaginn.
Undarlegt er það að leikir Þrótt-
ar og Víkings og KR-b og Akraness
skyldi ekki vera leiknir fyrr en
þetta, eðlilegt hefði verið, og lík-
lega bezt fyrir mótsaðira, að allir
þessir leikir færu fram sama dag-
inn. Það hefur komið fyrir að úr-
slitaleikir bikarkeppninnar hafa
verið leiknir í nóveipberbyrjun á
ísuðum völlum. Þetta þarf ekki að
koma fyrir aftur, ef eitthvert
skipulag er á mótinu.
ÁRMENNINGAR.
Körfuknattleiksdeild:
Áríðandi fundur í húsi Jóns
Þorsteinssonar föstudaginn 6. sept.
kl. 8. -
Stjómin.
Maðurinn sem annars
aldrei les auglýsingar