Vísir - 05.09.1968, Side 3

Vísir - 05.09.1968, Side 3
V1SIR . Fimmtudagur 5. september 1968. 3 MYNDSJ //'/' '/ \ Igpil Það er margt amstrið í flutningum vegagerðarmanna, eins og þessi mynd úr Austurárdal í Dölum sýnir. Einn trukkurinn er kominn út af veginum og lestin bíður meðan verið er að ná honum upp. Ljósmyndimar tók Þ. Gestsson. Slitlag undir skemmtireisur fólksins Jslenzku þjóövegirnir eru jafna til umræöu manna á meöal. Ekki sízt þegaj? haustrigningarn ar byrja og slitlag veganna verö ur að aurbieytu, slörk myndast í vegum og lækjarsprænur ryðja sér braut inn á miöja vegi. Menn spyrja gjáma feröalang sem ekið hefur langan veg: — Hvemig var færöin? Er vegúr in sæmilegur? — Ferðalög em „hálfa Iff“ fólks yfir sumartím- ann og fram á haustið. Það er eölilegt að spurt sé þannig. Og sjaldan falla hrósyrði i*m þjóövegina okkar. Fólk' fjarg- viðrast yfir þeim á sumarleyfis- ferðum sínum. Þeir spilla stór- lega feröagleðinni oft á tíðum. Samt feröast líklega fáir jafn mikið í bílum, stefnulaust um vegi landsins, eins og íslending ar. — Þúsundir manna streyma úr þéttbýlinu um sumarhelgar, eitthvað út á land, hossast tvo þrjá daga á þjóðvegunum og bölva þeim svo rækilega á leiö arenda. Á vori hverju fara vegavinnu flokkar út um landið til þess að dytta aö þjóðvegunum fyrir sumarið. Slík vinna hefur verið mörgum skólastráknum kærkom in, enda hollt erfiði og skemmt- legt á stundum. Þessar myndir eru teknar af einum slíkum flokki i Dölum og á Snæfells- nesi en hann gegndi því hlut- verki að sigta möl ívegina þar vestra. Hundruð manna vinna við vegi landsins yfir sumar- tímann, viö ofaníburð, við vega lagningu, brúasmíði og sitthvað annað. Á þessu ári var áætlaö að verja 555 milljónum króna til vegagerðar og viðhalds vega. — Þar er meðtalin brúasmíði fyrir 52 milljónir og lagning nýrra vega fyrir 107,4 milljón- ir. Þrátt fyrir þessar miklu fram kvæmdir, virðast menn seint ætla að gera sig ángggða með vegina. Þeir batna að vísu, en ekki jafn hratt og kröfur vegfar enda. Og nú eru vegavinnustrákam- ir að koma í bæinn. Þeir setja skúrana sína aftan í trukk, setja verkfærin niður í kistur, þar sem þau bíða næsta sum- ars. Þeir skreppa kannski svo lítið ber á heim á sveitabæ til þess aö kveðja heimasætuna, sem varð vina þeirra á sveita- böllunum £ sumar. — Kannski koma þeir aftur í vor, — hver veit. —En þessar myndir fékk Vísir frá einum vegavinnu- mannanna £ Dölunum . — Og þær sýna hvemig þeir vinna slitlagið á vegina undir skemmti reisur fólksins. Mulningurinn rennur eins og foss úr vélinni. Fáeinir vegavinnuflokkar ferðast um landið með slíkar vélar sem sigta möiina og þessi flokk- ur var lengst af í sumar á Vesturlandi, á Snæf ellsnesi og í Dölum. - Myndin er tekin við Drápuhlíðarfjall og sést það i baksýn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.