Vísir - 07.09.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 07.09.1968, Blaðsíða 1
Rússar kaupa síld á hærra verði — Som/ð um fyrirframsölu á 100 f)ús. tunnum i gær 58. árg. - Laugardagur 7. september 1968. - 200. tbl. Samið hefur verlð við Rússa um, sölu 100 þúsund tunna af %Itsild. Samningurinn var undirritaður f Reykjavík í gær. Samið var um hækkun á söluverði, sem svarar geng- isfellingu íslenzku krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar f fyrrahaust. Söluverðið er nú reiknað í Bandaríkjadollurum. Hraðfrystihúsin taka til- boði ríkisstjórnarinnar — Fá 7S°Jo verðtryggingu og 25 millj. kr. aðstoð en var áður ákveðið 1 sterl- ingspundum. Alls hefur þá verið samið um fyrirframsölu á 347 þúsund tunnum af salt- síld. — Ekkl hefur verið salt- að nema f 35 þúsund tunnur ennþá. — 1 fyrra var saltað í 325 þúsund tunnur alls. Þá hafði ekkert verið saltað um þetta leyti. Samningurinn milli Síldarút- vegsnefndar og V/O Prodintorg í Moskvu gerir ráð fyrir að sfld- in sé framleidd á tímabilinu september—desember. 40 þús- und eiga að afgreiðast fyrir ára- mót, en 60 þúsund tunnur á tímabilinu janúar—marz. Heim- ilt er að salta upp í samningana við Suður- og Vesturland, ef á þarf að halda. Samningurinn skiptist þannig eftir tegimdum: Allt að 80.000 tunnur venjul. sfld Allt að 10.000 t. sykursöltuð sfld AHt að 10.000 t. kryddsfld. VerSur framkvæmdum við álverksmiðjunu Iðnaðarmálaráðherra athugar möguleika á jbví • Iðnaðarmálaráðherra, Jóhann Hafstein, er farinn utan til Sviss til að kanna möguleika til þess að hraða framhaldsbygg- ingu álbræðslunnar í Straums- vík, eftir að fyrsta byggingaá- fanga verður náð, haustið 1969, og verksmiðjan hef ji þá rekstur. Yrði það í tengslum við aukinn hraða á virkjunarframkvæmdum við Búrfell. Næstkomandi mánudag verður haldinn í Ziirich stjórnarfundur Is- lenzka álfélagsins, ISALS h.f., og mun ráðherra verða þar um það Rakst á húsvegg og braut kjallaraglugga — eftir árekstur við sendibil — Var ég ekki í fullkomn- um rétti? — spurði ökumaöur inn, sem ók amerískri fólksbif- reið sinni yfir gatnamót Njáls- götu og Vitastígs, en vék ekki fyrir sendibíl sem kom frá hægri upp Vitastíginn. Lenti sendibíllinn á hliöina á fólksbílnum, aftarlega, en fólks- bíllinn kastaðist við þaö f hálf- hring og .hafnaði á húsvegg. Þar stanzaði hann með vinstra fram- brettið inni í kjallaraglugga. Þegar lögreglan kom á stað- inn. var ökumaðurinn á bak og burt, og vissi enginn,' hvað af honum varð. Sá, sem ók sendi- bílnum, skýrði lögreglunni svo frá, að hann hefði ekið upp Vita- stig, þegar fólksbilinn bar að ,,á syífandi ferð“ (eins og hann komst að orði) á leið vestur Njálsgötu. Við áreksturinn virtist, sem hi.n.n hefði misst stiórn á bif- reið sinni. Fór hún næstum heilan hring á götunni, hálf upp leyti. Hann hyggst einnig ræða viö aðalforstjóra og framkvæmdastjóra svissneska álfélagsins, „Alusuisse" um þessa hröðun framkvæmda. í sambandi við dvölina í Sviss mun ráðherra einnig stofna til sér- fræðingafundar um möguleika til byggingar vítissótaverksmiðju 1 Straurrisvík, sem mundi vinna vítis- sótann úr salti frá sjóefnaverk- smiðju á hverasvæöinu á Reykja- nesi, ef slíkt iðjuver yröi reist þar. Þá er rætt um hugsanlega vinnslu úr hrááli hér, eftir að álbræðslan hefur starfsemi sína. á gangstétt hægra megin og rakst þar á húsvegginn. Munaöi eiginlega minnstu, að bifreiðin lenti inn f verzlun í kjallar- anum, en rakst í staðinn á glugga bakherbergis verzlunar- innar. Hvart ökumannsins af staðn- um, megn vínþefur í fólksbíln- um og lítil flaska með áfengi f hanzkahólfinu vöktu ýmsar grun semdir hjá lögreglumönnunum, sem undirbjuggu ráðstafanir til leitar að ökumanninum, en til þess kom þó ekki. Hann kom eftir stutta stund á staðinn aft- ur, beint í flasið á lögreglunni. Við yfirheyrslu þverneitaði hann að hafa bragðaö áfengi. Blástur í blöðru og önnur meðul sem lögreglan hefur til þess aö leiða hið sanna í Ijós í slíkum tilfellum, sýndu þó allt annað. Tók blaðran slíkum litbrigðum, að allar efasemdir hurfu úr hug- um lögreglunnar, sem sendi öku 10. síða. Islenzkir flugmenn til Biafra Rauði krossinn hefur óskað eftir íslenzkum flugmönnum til starfa við ferjuflugið frá Femando Poo tll Biafra, sem á að hefjast á næstunni, en þvf hefur nú seinkað vegna á- greinings um lendingarstaðinn í Biafra. Frá íslandi kæmu helzt til greina flugstjórar og aðstoðarflugmenn, sem hafa réttindi á DC-6 flug- vélar, en einnig þarf flugmenn með DC-7 og C-130 réttindi til að starfa við loftbrúna. Rauöi kross íslands^veitir annars allar nár.ari upplýsingar um starf í Biafra. Að undanföjmu hefur veriö flogiö á nætumar, en nú ætlar Rauði krossinn að hefja flutninga á vélum merktum samtöikunum og þá verður íslenzka skreiðin m. a. flutt til þijrfandi manna, kvenna og bama í þessu hrjáða landi. Um 200 tonn af skreið hafa verið send ut- an og bíða þess að komast á áfanga- stað. BíIIinn eftir að hann ók á húsið. ■ Fulltrúar hraðfrystihúsanna samþykktu ein- róma á fundi sínum í gær að taka tilboði ríkisstjórn- arinnar um verðtryggingú og fjárhagsaðstoð vegna verðfalls á freðfiski á erlendum markaði. ■ Samningaumleitanir hafa staðið yfir undan- gengnar vikur milli fulltrúa frystihúsanna og ríkis- stjómarinnar um rekstrargrundvöll frystihúsanna. Tilboð ríkisstjórnarinnar fel- ur í sér 75% verðtryggingu eft- ir 1. ágúst í stað 50% trygg- ingar áður — miðað við verðið síðustu áramót. — Fulltrúar frystihúsanna hafa því slakað aðeins á kröfum sínum, en þeir fóru upphaflega fram á fulla (100%) verðtryggingu. Ennfrem- ur felur tilboðið í sér 25 millj. króna fjárframlag til frystihús- anna. Skiptist sú upphæð í hlut- falli við framleiðslu frystihús- anna á þessu ári. Fundur Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, sem samþykkti þessar tillögur ríkisstjórnarinn- ar í gær, fjallaði einnig um fisk- mat og ráðstafanir til þess að afla betra hráefnis. Var meðal annars bent á nauðsyn þess að ísa fisk í kassa til þess að hann kæmi betur varinn að landi. Vísir í vikulokin fylgir blaðinu i dag #tii áskrifenda

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.