Vísir - 07.09.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 07.09.1968, Blaðsíða 3
V í SIR . Laugardagur 7. september 1968. 3 TÁNINGA- SÍÐAN „Yið höfum sérstaklega gam- an af því að hneyksla fólk“ — segja fimm siðhærðir unglingar sem kalla sig Ópus 4 • Fyrir skömmu komu í heim- sókn til okkar fimm ungir og stæöilegir menn, sem hafa það markmið að fá alla ungl- inga hérlendis til að heillast af hljóðfæraleik sínum. Síðhærðir eru þeir og nokkuð furðulegir í klæðaburði og sennilega undar- legastir allra hljómsveita hér- lendis í hljóðfæraleik. Þeir eru fremur hógværir f viömóti, en eru sagðir sleppa algjörlega fram af sér beizlinu, er þeir leika fyr- ir unglingana. Hljómsveit þeirra er kölluð Ópus 4 og hefur að- eins leikið f eitt ár undir því nafni. Hverjir eru í hljómsveitinni? — Viö erum aðeins tveir, sem höfum verið frá stofnun hennar, segir trymbillinn Siguröur Karls- son og brosir sannkölluðu tán- ingabrosi. — Hinn er Sævar Árnason, sem leikur á gítar, en hann hafði dregið sig út í horn og hafði hljótt um sig. Síöan komu þeir Jóhann Kristinsson, bassaleikari, og Gunnlaugur' Sveinsson, söngvari, í hljómsveit ina í júnímánuöi síöastliðnum. Eftir verzlunarmannahelgina bættist f hópinn gítarleikari, sem við fengum úr „dýragarðinum", eða hljómsveitinni Zoo, og heit- ir hann Björgvin Gíslason. Þeir félagar segja, að þeim hafi tek- izt að temja Björgvin og þess vegna leiki hann með þeim núna. Af hverju nefnið þið hljóm- sveitina Ópus 4? — Okkur fannst það mjög sniðugt og kunnum allir mjög vel við þaö. Annars var það Sæv ar, sem fann það upp eitt sinn, þegar strengur slitnaði á gít- arnum, en honum fannst gítar- tónarnir „sounda“ (hljóma) eins og atriði úr sinfóníu eftir Bach, sem var einmitt ópus 4. TTvar hafið þiö aðallega leikið? — Viö höfum spilað í Glaum- bæ og á Keflavíkurflugvelli, þar sem okkur finnst langskemmti- legast að spila, segir Jóhann og yfir andlit hans* breiðist breitt bros, sem sannfærði okkur um að svarið kom frá hjartanu. Einn ig spiluðum viö f Þórsmörk og var það mjög skemmtilegt, ef undan er skilið atvik, sem henti Gunnlaug söngvara. Hann er mjög frumlegur í háttum eins og þú sérö, segir Björgvin og Gunnlaugur lagfærir sólgleraug- un af mikilli rósemi, þótt skugg- sýnt sé í herberginu. Gunn- laugur var að syngja eitt lag og auðvitað með miklum tilburð- um, sem hafa fariö I taugarnar á einhverjum, því hann fékk eitt stykki banana í sig og hörmum við mjö.g að hafa ekki getað skil- að honum. Hvaða tegund hljómlistar leik- ið þið og eftir hverjum reynið þið að líkja? — Y‘ö erum allir í „popinu" og hrærumst í því af miklum áhuga. Annars höfum við einnig mikinn áhuga á „so- ul-music“ og ætlum að fara að einbeita okkur að henni. Við reynum ekki að líkja eftir nein- um, heldur förum okkar eigin leiðir. Við reynum að hafa allt sem frumlegast og t. d. er söngv- arinn alltaf í stöðugri „feelingu", ef svo má að orði komast, segir Björgvin. Auk þess höfum viö sérstaklega gaman að því að hneyksla fólk, og ef það tekst erum við í essinu okkar. Af hverju eru allir ungir hljóm Iistarmenn íklæddir einhverjum afbrigðilegum fötum? — Við vitum ekki af hverju aðrir gera það, en okkur finnst mjög þægilegt, að vera £ slíkum fötum. Þannig erum viö miklu frjálslegri en í einhverjum venju legum jakkafötum. Við skyldum leika berir aö ofan. ef við vær- um ekki svona illa vaxnir, eins Ópus 4. Þeir skyldu koma fram berir aö ofan, ef þeir væru ekki svona ilia vaxnir, að eigin sögn. og þú sérö, segir Gunnlaugur og þrýstir á mjósleginn líkamann. TITafið þið æft ykkur saman mikið? — Já, við verðum aö segja það, ef miðað er við þann stutta tíma, sem við höfum verið sam- an. Það eru æfingar á hverju kvöldi og um helgar, ef engin veikindi eru. Annars finnst okk- ur sjálfum að hljómsveitin sé I stanzlausri framför. Hvaö um framtíöina? — Við ætlum að reyna að skapa okkur einhvern sess í dæg urheimi unglinganna og við von- um bara það bezta. Shadows hætta í vetur Áreiðanlegar heimildir eru nú fyrir því, að hljómsveitin Shad- ows leysist upp í vetur. Þeir, sem hverfa úr hljómsveitinni, eru þeir Brian Bennett trommu- leikari og Bruce Welch. Áður munu þeir þó halda 12 vikna hljómleika f Palladium í London ásamt góökunnlngja þeirra, Cliff Richard. Þeir Hank Marvin og John Rostill ætla að reyna að halda áfram með hljómsveitina og hugmyndin er að nota Shad- ows-nafnið, en það er ekki á- kveðið enn. Ef svo verður, mun aðeins einn upprunalegur „skuggi“ lifa, en það er Hank Marvin. Plötur þeirra hafa selzt eins og heitar lummur, þrátt fyr- ir að þeir hafa verið án Cliffs f nokkur ár. Y æntanleg hljómplata með Ríó tríóinu Ríó-tríóið mun koma okkur þannig fyrir sjónir á umslagi væntanlegrar hljómplötu. F. v. Ólaf- ur Þórðarson, Halldór, Fannar og Heigi Pétursson, Ríó tríóið, sem skipað er vinalegu drengjunum úr Kópa- vogi, hefur nú sungið inn á hljómplötu og er hún væntan- leg eftir u.þ.b. eina viku. Flestir kannast við þá félaga, en þeir slógu svo sannarlega f gegn meö sjónvarpsþáttum sínum þremur, sem sýndir voru s.l. vetiy. Þeir hafa þau fjögur ár sem þeir hafa leikiö' saman skemmt um land allt og hlotiö óskipta athygli fyrir sinn skemmtilega söng og góöa sviðsframkomu, sem einkennist af látleysi og léttleika. Lögin á væntanlegri hljómplötu eru fjögur Þau eru: Sagan um upp- trekkta karlinn, sem er banda- rískt og heitir á frummálinu Marvellous Toy, Sumarnótt, fallegt og rólegt lag sem Seek- ers fluttu. Vina mín, og síðasta Iagið er gamanvísa sem heitir alíslenzku nafni eða Tón Péturs- son. Ekki er að efa. að nlstan nái vinsældum, því lengi hefur verið beðið eftir plötu með þess um ungu og efnil'egu drengjum. tJtgefandi plötunnar er Hljóm- plötuútgáfan s.f.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.