Vísir - 12.09.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 12.09.1968, Blaðsíða 5
VlSIR . Fimmtudagur 12. september 1968, iSEEES Hollur matur ferskt loft og hreyfing — hjálpa til að láta langan vetur iða jbægilega JJToll fæða þarf ekki að vera bragðvond. Við þurfum ekki að útiloka marga rétti af matseðlinum ef viö viljum lifa heilbrigðu lífi og um leið auka möguleikana á því að veröa fall- egri grennri og fjörmeiri. Listin er að borða sem flestar fæðu- tegundir og fæðan innihaldi helztu nauðsynleg efni. Daglega ætti maður að hugsa um það að neyti ávaxta og græn metis, kartaflna eöa annars rót argrænmetis, mjólkur, og osts, fisks og eggja, grófs brauðs, smjörs, smjörlíkis eða olíu. Þeg ar maður er í megrun ætti mað ur jafnvel ekki að sleppa kar- töflum og brauði, heíldur borða aðeins minna af þeim fæðutegundum, sem innihalda flestar hitaeiningar. Verstu óvinir fegurðar og heilsu eru sykur og feiti og rétt ir, sem innihalda mikiö af mjöli. Mikill sykur í fæðuteg- undum getur orðið til þess að hárvöxturinn minnki og húðin verður grá og grófgerð af sykur neyzlu og feiti. Neikvætt fyrir húðina er því sykur og fyrst og fremst kökur og sælgæti. Og ekki skulum við gleyma fitu- hringjunum sem myndast í mitt inu og stafa af af miklu vínar brauðsáti og kökuneyzlu í ó- hófi. Athugið það einnig að grillað- ur matur er betri en steiktur, þegar um fisk eða kjöt er að ræða, og ferskir ávextir og græn meti er betra nýtt en soðið. Fegurðarböð eru þær mínútur, sem maður eyöir í baðkerinu og ver þeim vel. Liggið ekki tímunum saman alveg dasaðar í of heitu vatni án þess að fá ykkur kalt steypibað á eftir. Þannig bað þurrkar húðina og þreytir í stað þess að endur- næra. Þá er betra að sápa sig og fá sér steypibað á eftir. Það er gaman að fá sér gott bað í bað- keri, en þá ætti maöur að fara þannig að: Rúlla upp hárið, þurrbursta allan líkamann áður en maður fer í baöið, hreinsa andlitið vel og setja á það raka- krem. Fyrir baðið er gott að taka alla þurra, harða og dauða húð af fótunum meö fótaþjöl, eyöa öllu naglalakki og nota nokkrar mínútur í baðinu til þess að laga naglböndin. Maður notar í baðið olíu eða baðsalt eða það sem fellur manni bezt og fylgist með tímanum — stundarfjórð- » 'i ungur er nægilegur til þess að sápa sig, bursta, fá sér heita og ka'lda sturtu og þurrka sér vel áður en maður smyr allan líkamann með ,,bodylotion“ eða kremi. Þannig bað hefur góö áhrif, því megið þið trúa. Bezt er, ef maður hefur tíma til, að. fara svona rækilega í. sakirnar einu sinni í viku — .ninnst. Andlitsbað er líka nauðsynlegt annað veifið. Takið stórt baðhandklæði og setjiö yfir fat með rjúkandi heitu og angandi vatni og hafið höfuöið inni í „tjaldinu", vel hreinsað — ekki gleyma því. Eftir að andlitið hefur verið þerrað er það klappað með köldu vatni og húðin verður rósrauð og mjúk. Svo er það sundiö, sem held- ur líkamanum liðugum og stæl- ir 'alla vöðva. Þótt vetur gangi í garð er engin ástæöa til að vanrækja þessa heilsulind. Ferskt loft bæði nótt sem dag heldur húðinni ungri. Það hefur mikið að segja fyrir vel- líðanina að draga djúpt að sér andann 8 sinnum fyrir framan opinn glugga, þegar dagurinn hefst. Og það er betra aö ganga til vinnu í stað þess að taka bíl- inn eða strætó. Hádegismatar- tímann er hægt að gera að feg- urðarkúr meö því að ganga rösklega smáhring í hverfinu, sem vinnustaðurinn er í. Litla kvöldgangan er annar góður siður, sem áreiðanlega hefur dregið úr með tilkomu sjónvarps ins og er það slæmt. Sunnudag- urinn ætti alltaf að vera „úti- dagur" vikunnar ekki aðeins á sumrin heldur einnig á vetuma þrátt fyrir hálfleiðinlegt veður. Rakt loft er betra fyrir húðina heldur en kalt og þurrt og úti- loft er nauðsyn, þegar heitir miðstöðvarofnarnir innanhúss sjá fyrir því aö skapa eins konar „eyðimerkurloftslag" og kalla fram hrukkumar. Sofið þið ekki vel árið um kring fyrir opnum glugga? Ekki það. Þá ættuð þið strax að byrja á þvf að venja ykkur á það, a. m. k. að hafa litla rifu á glugg- anum og halda þvi áfram — jafnvel, þegar mælirinn er fyr- ir neðan frostmark. Það er nefnilega skemmtilegt að sofa í herbergi þar sem ferskt loft vitnar um heilbrigði og vitandi það, að fegurðin kemur með- an maður sefur. Vítamínin varða miklu fyrir heilsu og útlit. A-vítamín og E eru hin sérstöku vítamín húð- arinnar. A-vítamínin em t. d. í grænkáli,. spínati, tómötum, lifur, apríkósum, mjólk og osti. E-vítamín eru t. d. í grænu sal- ati, brauði, með hveitiklíði, maísolíu. Við þekkjum hvers konar heilsugjafi C-vítamínin em ekki sízt fyrir tennur og, tannhold. Appelsínur, ýmsar tegundir káls og lifur gefa C- vftamín. B-vitamín er frá sjónarhóli útlitsins það vítamín, sem end- umýjar hárið. B-vítamínið er f eggjarauðunni, lifur og grófu brauði. Líkaminn framkallar D-víta- mín, þegar hann er f sól en það vítamín fæst einnig í eggjarauðu o. fl. En vítamíntöflur ættu að vera ónauösynlegar ef maður aðeins borðar skynsamlega og fjöl- breyttar fæðutegundir. >f ÓNSKÓLI 5IGURSVEINS D. KRISTiNSSONAR TILKYNNIR: Dagana 12.—16. september fer fram innritun fyrir tímabilið 1. okt.—30. des., að Óðinsgötu 11 eða í síma 19246, kl. 6—8 síðdegis. SKÓLASTJÓRI. Tilkynning frá Barnamúsíkskála Reykjavíkur , Innritun stendur yfir þessa viku eingöngu (til laugar- dags. Innritað er frá kl. 3-6 í Iönskólahúsinu 5. hæð gengið inn frá Vitastíg. Allir nemendur, sem innritazt hafa í Forskóladeild og 1. bekk skólans og hafa ekki komið með afrit af stunda- skrá sinni enn, geri svo í síðasta lagi mánudaginn 16. september kl. 3-6 e.h. en helzt fyrr. Ógreidd skólagjöld greiðist um leið. Þeir nemendur skólans, sem sóttu um skólavist sl. vor, komi einnig þessa viku kl. 3 - 6 með afrit af stundaskrá sinni og greiði skólagjaldið um leið. Skólagjöld fyrir veturinn: Forskóladeild 1. bekkur barnadeildar 2. bekkur barnadeildar 3. bekkur bamadeildar Framhaldsdeild kr. 1500.- kr. 2200.- kr. 3200.- kr. 3200.- kr. 4000.- SKÓLASTJÓRI. Tilkynning Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að samkvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðu- neytisins dags. 9. janúar 1968, sem birtist í 4. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1968, fer þriðja úthlutun gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1968 fyrir þeim innflutningskvótum sem taldir eru í auglýsingunni, fram í október 1968. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka íslands eða Útvegsbanka íslands fyrir 10. október næst komandi. Landsbanki íslands Útvegsbanki íslands. Forstöðukonustaðan við leikskóla Sumargjafar, Staðarborg, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. des. n.k. Umsóknir sendist skrifstofu Sumargjafar Fornhaga 8, fyrir 25. þessa mánaðar. Stjóm Sumargjafar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.