Vísir - 12.09.1968, Side 7
VÍSIR . Fimmtudagur 12. september 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í raorgun
útlönd
morgun
útlönd^
Nixon segir hernámið tefia í hættu
staðfestingu sáttmálans um útbreiðslu
kjarnorkuvopna
■ Richard Nixon, forsetaefni repúblikana í Banda-
ríkjunum, sagði í gærkvöldi, að vegna hemáms-
ins í Tékkóslóvakíu, hefði staðfestingu öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings á sáttmálanum til þess að hindra
útbreiðslu kjarnorkuvopna verði teflt í hættu og kvaðst
hann vona, að deildin hraðaði sér ekki um of í málinu.
Hann kvað ýmsa helztu menn repúblikana sér sammála
í þessu máli.
Belgíustjórn vill fund utan-
ríkisrábherra um stöðu Norð-
ur-Atlantshafsbandalagsins
— með tilliti til hernámsins i Tékkóslóvakiu
Nýstalínisminn
gagnrýndur i
Júgóslavíu
Einn af helztu leiðtogum
kommúnista í Júgóslavíu hefir gagn
rýnt hinn kaldrifjaða ný-stalinisma,
sem nú sé kominn fram í Sovétríkj-
unum og menn hafi fengiö for-
smekk af í Tékkóslóvakíu.
Hann kvað nú svo komið, eftir
hernámið í Tékkóslóvakíu, að
Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna
væri nú í fyrsta sinn i minnihiuta
í alþjóða kommúnistahreyfingunni
og sýndi það aö öfl umbóta og
frjálslyndis hefðu tekið þar fo>--
ustuna.
Richard Nixon.
Frönsk Caravellehota með
95 manns fórst í gær
Fregn síðdegis í gær frá Nizza,
Frakklandi, hermir að saknað sé
Carvelleþotu með 89 farþegum
og 6 manna áhöfn.
Skeyti hafði borizt frá flugstjóra
flugvélarinnar að við erfiðleika
væri að etja og að því er virtist
hafði kviknað í flugvélinni. Sam-
bandið rofnaði við flugvélina tíu
mínútum áður en hún átti að lenda.
Leit var hafin þegar.
Flugvélin var á leið frá Ajaccio
og lagði af stað þaðan kl. 10.05
og átti að lenda í Nizza 40 mín-
Brussel: Talsmaður belgíska utan-
ríkisráðuneytisins lýsti yfir í gær
að æskilegt væri, að utanríkisráð
herrafundur Norður-Atlantshafs-
bandalagsins yrði haldinn eins fljótt
og við verður komið.
Umræðuefni veröi staöa banda-
lagsins með tilliti til hernáms
Tékkóslóvakíu.
Þá verði reynt aö ná samkomu
Iagi um auka-ráðherrafund um
þessi mál ig verði hann haldinn í
næsta mánuði.
Samtímis skýrði utanríkisráðu-
neytið frá því að ástandið í Aust-
ur-Evrópu yröi aðalviðræðuefni á
fundum Harmels o Manescus í
■ Búkarest 'sjá og aðra frétt hér á
síðunni).
Vietnam-róð-
stefnan — 21.
fundur í gær
í París
Víetnamráðstefnan í París kom
saman til 21. fundar síns í gær.
Fundurinn hófst nokkrum mínút-
um eftir að Johnson Bandaríkjafor
seti hafði sagt í ræðu sinni í New
Orleans, að loftárásum á Norður-
Víetnam yröi ekki hætt fyrr en
sambærilegar tilslakanir kæmu frá
stjórninni í Norður-Víetnam (sbr.
skeyti í blaðinu í gær).
Hernámsliðiö fór ekki langt
— úr miðhluta Prag í útjaðra
1 útum síðar.
■ Sovézka herliöið í Prag byrjaði
í gær að flytja sig úr mið'hluta Prag
til nýrra stöðva við útjaðra borg-1
arinnar. Svipaðir flutningar herliðs
kunna að standa fyrir dyrum í Brat-
islava, Brno og fleiri borgum. Getr
gátur eru uppi um að þetta eigi að
sýna að Sovétríkin vilji fyrir sitt
leyti halda gerða samninga.
Meðal bygginga í Prag, sem her-
námsliðiö hefur skyndilega yfirgef-
ið, er húsiö, þar sem Rithöfunda-
sambandið hefur skrifstofu sína.
Leiðtojrar Tékkóslóvakíu hafa end
urtekið aðvaranir til blaðanna um
að birta ekki neitt, sem gæti styggt
Sovétríkin. Austurrískir embættis-
menn segja, að sovézkir hermenn
taki þátt í landamæragæziu gegnt
Austurríki og jafnvel i tollaeftir-
liti.
Dubcek, flokksleiðtogi, og Smir-
Dr. Husak samfylkti leiðtogumsem
undirrituðu yfirlýsingu um aðfylgja
áfram frjálsræðisstefnunni
l kovsky, þjóðþingsforseti, ræddu í
gær við Kusnetzov.
Ríkisstjórn Tékkóslóvakíu hefur
j staðfest efnahagsáætlun, sem Kosy-
I gin og Cernik undirrituðu, en sam-
kvæmt honum fær Tékkósióvakía
náttúrugas, olíu og fleira frá Sov-
étríkjunum.
Tass-fréttastofan segir, aö Sovét-
ríkin séu ekki ábyrg fyrir efnahags-
tjóni af vöidum hernámsins, og
segir gagnbyltingamenn ábyrga fyr-
ir því, aö tékkneska þjóðin ætti að
sjá um, að þeir yrðu látnir greiða
kostnaðinn.
Maiik, aöalfuiitrúi Sovétríkjanna
á vettvangi Sameinuðu þjóöanna,
varaði í gær við því, aö viðburðirnir
í Tékkóslóvakíu yrðu ræddir á ný
í Öryggisráöi. Hann kvað afleiöing-
ar þess geta orðið, að starfsemi
stofnunarinnar biði alvarlegan
hnekki viö það, en útskýrði ekki
nánara hvað hann ætti við með
þessu.
Afsfaða Frakka
varðandi aðildir
að EBi algerlega
óbreytt
Fregnir frá Briissel'í gær herma,
að bölsýni gæti uni útvfkkun
Efnahagsbandalagsins (EBE).
Debré utanríkisráðherra Frakk-
lands er sagður hafa skýrt hinum
utanríkisráðherrum EBE-landanna,
að Frakklgnd hafi ekki breytt að
neinu leyti afstöðu sinin til um-
sókna Bretlands. frlands. Noregs
og Danmerkur að EBE.
Pierre Harmel utanríkisráðherra
Belgíu fer til London um miðbik
næstu viku til viðræðna við
Michael Stewart utanríkisráðherra
um markaðsmál.
Stewart kom
heim í gær
Michael Stewart utanríkisráöherra
Bretlands kom heim ‘ gær að af-
lokinni heimsókninni ' Bukarest
j Hann sagöi við komuna, að et
: hugsunin um beitingu valds yröi
| upprætt, mundi það leiða til auk-
in= skilnings þjóðanna í vestri og
i austri.
í NTB-frétt frá Prag í gær segir,
að dr. Husak, Ieiðtogi Kommúnsta-
flokks Slóvakiu, en hann er vara-
forsætisráðherra Tékkóslóvakíu,
hafi samfylkt öðrum leiðtogum
iandsins, og undirritað með þeim yf
irlýsingu, sem lesin var í útvarpi
frá Prag.
í henni er heitið að fylgt skuli
áfram frjálslyndis og umbótastefn-
unni, sem boðið var í janúar.
Talið er, að yfirlýsingin hafi ver-
ið birt til þess að minna Sovétríkin
á að halda samkomulagið sem gert
var á fundi leiðtoganna i Mo^kvu.
Reyndir menn, sem vel fylgjast
með gangi mála, ' ‘lja að dr. Husak
hafi undirritaö yfirlýsinguna til
þess að draga úr beiskju manna
yfir, að hann gagnrýndi einstök
atriði hinnar frjálslyndu stefnu
Dubceks. Hann hefir einni.H vakið
| óánægju með þvi að boða tak-
markanir á ferðalögum til útlanda.
Aðrir,1 sem skrifuðu undir yfir-
lýsinguna voru: Alexander Svo-
I boda ríkisforseti, Cernik forsætis-
; ráðherra og Josef Smirkorsky
i forseti þjóðþingsins.
f yfirlýsingunni voru mennta- og
visindamenn, og aðrir, sem útlagar
eru um þessár mundir. beönir að
hverfa hei.n. og var þeim heitið
persónulegu öryggi.
Ýmsir athugenda hafa vakið
athvgli á. aö Cernik skrifaði undir
yfirlýsinguna aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að hann kom
heim frá Moskvu, þar sem hann og
Kosygin undirrituðu efnahagssátt-
mála.
I’ yfirlýsingunni var tekiö fram,
að engum yrði hegnt fyrir annað
en brot á lögum landsins.
Misheppnuðtilraun
til flugvélarráns
Bandarískur biökkumaður gerði i
; gær tiiraun til þess að knýja flug-
j mann í kanadiskri flugvél til þess
j að breyta um stefnu og fljúga til
Kúbu, en- þegar þetta gerðist var
flugvélin á Ieið frá New Brunswick
til Toronto.
Flugmanninum tókst að sannfæra
hinn vopnaða ofbeldismann um, að
hann yrði að lenda í Montreal til
"þess að taka bensín, og leyföi þá
ræninginn ferrþegum og flugþernum
að fara út úr flugvélinni.
Eftir 3 klukkustundir tókst flug-
mönnunum með atbeina lögreglunn-
ar að fá manninn ti! þess að gefast
upp. .
Bandaríska rannsóknarlögreglan
segir, að maöurinn sé grunaður um
að hafa framið bankarán, og hafi
hans verið leitað.