Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 07.10.1968, Blaðsíða 2
Ves tmannae yingar bikarmeistarar — en KR-heppnin virðist hafa skipt um félag, þvi oð b-lið KR átti mun meira i leiknum, en Eyjamenn heppnir Sjaldan eða aldrei hefur gamla KR-heppnin, sem svo oft hefur veriB orðuð við KR af dagblöðum borgarinnar og öðrum, svikið KR eins eftirminnilega og í úrslitaleik bikarkeppninnar, sem fram föi í blíðskaparveðri á Melavellinum á iaugardaginn. Ef hún nokkurn tíma hefur verið innrituð í KR, er það víst að hún hefur verið þurrkuð út af meðlimaskiánni eftir þennan leik. Og hvert hennar nýja félag er fór ekki fram hjá þeim, sem sáu þennan spennandi leik „þvf það heitir ÍBV“ og er frá Vestmanna- eyjum og var mótherji KR í þetta sinn. Mest bar á henni við mark ÍBV og sérstöku ástfóstri tók hún við Pál Pálmason markvörð Eyja manna, sem varði oft meistaraiega f þessum leik, og þar af nokkr- um sinnum sýniiega með frábærri aðstoð þessa nýja meðlimar. Fyrir utan að eiga leikinn, að kalla, ógrynni marktækifæra og markskota þar af þriggja sem stang imar í marki ÍBV björguöu, voru „B-liðsmenn“ KR áberandi betri í leiknum og sýndu knattspyrnuna, sem sást f þessum leik. t>eir tóku leikinn f sínar hendur, og sóttu stíft en komu ekki knettinum í netið, Jón Sigurðsson átti m.a. „dauða- færi“, aleinn á markteig, en skaut þrumuskoti framhjá. Vestmanna- eyingar, komust ekki nálægt marki fyrr en á 25 mín. er þeim var dæmd aukaspyma, fyrir utan víta- teig, sem Sigmar Páimason tók. Úr þessari aukaspyrnu kom svo fyrsta mark ÍBV, sem var heldur „loðið" því einn sóknarmanna ÍBV var rsmgstæður, þegar spyman var 'tekin, (hljóp of fljótt inn fyrir). Boltinn fór fyrir markið, og þar hoppaði hann upp í höndina á Þor- geiri Guðmundssyni sem ekkert sá fyrir sólinni, sem skein beint i aug- un. Dómarinn Grétar Norðfjörð dæmdi réttilega vítaspyrnu (úr þvi sem komið var) og skoraöi Sigmar Pálmason auðveldlega úr henni. Rétt fyrir háifleikslok, átti „hand knattleiksmaðurinn hættulegi" úr KR, Hilmar Björnsson tækifæri er hann skaut, frá markteig í tómt markið, en hitti innan á stöngina, og þaðan rúllaði boltinn út. B-lið KR hélt áfram stórsókn sinni, í byrjun síðari hálfleiks, en þrátt fyrir tækifærin voru það Eyjaskeggjar, sem skoruðu aftur. Sigmar Pálmason, tók góða horn spymu, sem Valur Andersen hinn hávaxni leikmaður ÍBV notaði sér meistaralega, með því að skalla óverjandi i netið. Þarna var Magnús markvörður KR illa á verði, því að hann stóð kyrr í markinu, í staðinn fyrir að hlaupa út og handsama boltann, er hann kom fyrir markið. Eftir markið dró örlítið af KR- ingum, og IBV átti nokkur tækifæri en vörn KR stóð vel fyrir sínu, og smátt og smátt tóku þeir aftur leikinn í sínar hendur. Á 39 mín. sendir Guðmundur Sagt eftir lcikinn Haraldsson boltann út til Jóhanns Reynissonar, sem skaut háum bolta að marki. Páll markvörður var í þetta sinn of framarlega og boltinn sveif í boga yfir hann í netið, 2:1. Síðustu 6 mfn sótti B-lið KR af öllum mætti en tókst ekki að skora, og sigur ÍBV var þar með innsiglaður. Sigur sem enginn hefði búizt við í vor af nýliöunum í 1. deild, Eins og áöur segir, voru KR- ingar betri aðilinn í þessum leik, en heppnin var ekki með þeim. Knattspyrnulega voru þeir betri, létu boltann ganga á milli manna, og spiluðu oft ágætlega upp að marki, en þar brást bogalistin, — og heppnin. Ekki er annað hægt að segja, en að frammistaða „VARALIÐS-KR“ í þessari keppni hafi verið frábær. Ekkert annað félag en KR hefur slíka breidd að það geti sent 11 menn í keppni á móti 1 deildar- liðunum, og sigrað þau, og það leikmenn, sem EKKI komast í aðallið félagsins. Mótherjar þeirra voru heldur ekki af verri endanum því að þeir hafa slegið út, ekki lélegri lið, en aðallið KR, (íslands- meistaranna). Akranes sigurvegara 2. deildar og Vals-liðið. Þar fyrir utan sló liðið út B-lið Vikings, Völsunga og ísafjörð. Þetta má fyrst og fremst þakka hinum ágæta þjálfara KR, Walther Pfeiffer, en hann hefur náð ótrúlég um árangri með KR i sumar. En þvi miður verða þeir, og íslenzk knattspyma, að sjá af honum i þetta sinn, þvi að hann heldur til síns heima nú í þessari viku. Beztur KR-inganna í þessum leik var Jón Sigurðsson, sem var á- berandi beztur á veilinum, einnig voru þeir góðir Jóhann Reynisson og Þorgeir. Valur Andersen var áberandi beztur Eyjamanna, sívinnandi og ákveðinn, en i framlinunni bar ekki á neinum sérstköum. Dómari í leiknum var Grétar Norðfjörð og dæmdi ágætlega, en þó vantaði stundum samræmi í dóma hans. — klp— VESTMANNAEYINGAR - bikarmeistarar. GUNNLAUGUR I „GAMLA HAM" SÍNUM ÍR vann Þrótt 15:12. ÍR náði góðri forystu í fyrri hálfleik áður en Þróttarar vöknuðu. I hálfleik var staðan 11:3, e.. leiknum lauk með ÍR sigri 15:12. Ellert Schram formaöur knatt- spymudeildar KR: „Spennandi leikur. B-liöið stóð sig með sóma, og lék betri knatt- spymu. Ánægjulegt fyrir Vest- mannaeyinga, að hafa sigrað, og ég óska þeim til hamingju meö það“. Stefán Runólfsson, formaður ÍBV. „Mjög ánægður með leikinn og úrslitin. Sanngjarn sigur okkar manna. KR átti meira í fyrri hálf- leiknum en við allan siðari hálf- leikinn." —klp,— og þvi tókst Fram að sigra Viking naumlega 15:14 • Fram vann Vfking meö einu marki í spennandi leik liðanna í gærkvöldi í Revkjavíkurmótinu í handknattleik. Gunnlaugur skor- aði helming marka Fram, þar af 5 úr uppstökkum, eins og hann var vanur að gera hér áö- ur fyrr. Er grein!’ ;t að Gunn- laugur verður nýtur einstakling- ur í vetur og án efa einnig góður „liðsmaður“ fyrir Fram. Fram vann með 15:14, en þetta er sam- Fl - SAS 2:1: 5AS TAPAÐI NÚ LOKSINS Flugfélag íslands lék viö SAS hér í Reykjavík á laugardaginn að lokn um leiknum milli Vestmannaeyinga og KR. SAS hafði baö mikla verk- efni í teikmim aö veria sinin'eöno" ' sína í sumar, en heir töniiö" nú ! sínum fvrsta og eina ieik í sumar. 11’ deildakeppni firmaliða vann SAS beztu deildina, vann 13 lciki geröi tvisvar jafntefli. r'iugfé'ag tslands skoraði 2 mörk en SAS eitt, Margir áhorfendur á fyrri leiknum horfðu einnig á bann síðari. F.inn áhorfendanna sagði að sér fyndist knattspyrna f leik firm: ''■’nna tveggja mun gæfulegri en sú, sem bikarúrslitin veittu mönnum. kvæmt formúlunni Fram á æv- iniega erfitt með Víking. Þá vann KR Ármann auðveldlega með 18:9. 1 meistaraflokki kvenna gerðu Valur og Víkingur jafntefli 6:6 en Fram vann Ármann 9:3. Vorum að fá í sölu Hárgreiðslustofa í fullri starfrækslu er til sölu. Eina hárgreiðslustofan í hverfinu. 2ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi við Ljós- heima. 3ja herb. kjallaraíbúð við Skipasund. Sér hitaveita. Útborgun 300 þús. Má skiptast. 3ja herb. íbúð á 3. hæð vefstu) við Hring- braut (Vesturbær). 5 herb. neðri hæð viö Rauðalæk. Sér- hitaveita. Útb.: 750 þús. 5 herb. tæplega fullgerð efri hæð við Holtagerði í Kópavogi. Væg útborgun. Hafsteinn Guðmundsson, formað ur landsliðsnefndar KSÍ: „Skemmtilegur og fjörugur leik- ur, en kmattspyrnan ekkert sér- stök að gæðum. Úrslitin ósanngjörn ÍBV átti mest skilið jafntefli, ekki sigur.“ Walter Pfeiffer þjálfari KR: „Betra liðið tapaði, við vorum óheppnir og keppnisskapið ekki eins gott og í síðustu leikjum, 3:1 fyrir okkur hefði verið sanngjarnt. En ég er ánægður með árangur liðsins, hvað er hægt að ætlast til meira af varaliði á móti 1 deild- arliði” Hreiðar Ársælsson þjálfari ÍBV: „KR-ingarnir voru betri, sérstak ■lega í fyrri hálfleik, en við áttum þó kafla í þeim sfðari en taugamar ’voru ekki í lagi hjá okkur í þess- um leik. Við vorun heppnir að vinna, og ég er ánægður með úrslit- in. Þetta var ekkert venjulegt B-lið sem við mættum'*. Viktor Helgason. leikmaður hjá fBV. (lék ekki með vegna meiðsla): „Ég er mjög ánægður með leik- inn og úrslitin. Við vorum „nervös- ir”, því að við þekktum ekki getu mótherjans. Ég vii ekkert segja hvort úrslitin hafa verið sann- gjöm." Þörólfur Beck, leikmaöur aðaliiðs KR: „Óheppni! ÓheppnL. Betra liðið tapaði, KR spilaði mun betri knatt spymu."

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.