Vísir - 07.10.1968, Qupperneq 13
V í SIR . Mánudagur 7. október 1968.
13
Laxness —
f§—>- 8. síðu.
tekizt að finna púðrið í henni,
en það er dálítið ankanalegt
að gera sér leik að þvi að rang
túlka tvær setningar eftir
Schopenhauer og Nietzsche (sá
fyrmefndi er kallaður skugga-
svemn, einn af jesúsum Þýzkn-
lands, og sá siöari Ketill skræk-
ur, skósvein hans). Hvemig lagt
er út af þessum setningum er al-
gert rugl, og virðist vera svo-
lítið vanhugsað, eins og raunar
fleira f sfðari hluta bókarinnar.
Sennilega er ekki stætt á því,
að bera Halldóri Laxness flaust
ursleg vinnubrögð á brýn, en
allavega hefði vel mátt yfirfara
síðari hlutann svo sem einu
sinni enn.
Það athyglisverðasta við
þessa bók er, að með henni sýn
ir Laxness, að hann býr yfir
þeirri náðargáfu sniliingsins að
vera síungur. Hann lætur sér
ekki nægja að fylgjast með tím-
anurn, heldur verður hann að
vera f broddi fylkingar.
„Kristnihald undir Jökli“ er
verk meistara, en kannski ekki
meistaraverk. En það er hverj-
um manni hoilt að fara á smá-
vegis kennderí f þessari nýju
bók Halldórs Laxness.
Þráinn.
Vinsælastir —-
M-+ 3. síðu.
Úti á landi vom auk þessa
tilnefnd Sonja Haraldsen, sem
nú er gift Haraldi krónprinsi
Norðmanna, og bandariski grín-
leikarinn Jerry Lewis.
Að sjálfsögðu segir það sína
sögu, hverjir eru oftast nefndir
f þessari skoðanakönnun, en
það er lfka merkiiegt að velta
þvf fyrir sér, hverjir af frægum
mönnum em ekki nefndir og og
hvers vegna. Fólk, sem fréttir
snúast mikið um, er að sjálf-
aögðu líklegra til að vera nefnt
á nafn, heldur en þeir, sem
minna fer fyrir. Þvf er það all
athyglisvert t.d. að enginn hinna
þriggja frambjóðenda til for-
setaembættis í Bandaríkjunum
skuli komast á blað. Aftur á
móti er McCarthy nefndur, en
honum mistókst sem kunnugt er
tilraun sfn til að verða fyrir val-
inu, sem forsetaefni.
Enginn sovézkra ráðamanna
er nefndur á nafn, og enginn er-
lendur kommúnistaleiðtogi yfir-
leitt, nema Ieiðtogar tékknesku
þjóðarinnar. Erlendir rithöfund-
ar, listamenn eða vísindamenn
em ekk' nefndir, og þeir sem
atkvæði hljóta era frá eftir-
töldum löndum: Tékkóslóvakiu,
Bandaríkjunum, Frakklandi,
Burma, Vestur-Þýzkalandi, Dan-
mörku, Noregi og Englandi.
Eflaust eiga margir fleiri
menn innlendir og erlendir,
heita aðdáendur. og eflaust eiga
einhverjir þeirra sem nefndir eru
eftir að sjá á bak vinsældum sín-
um — en svona er vinsældalist-
inn á Islandi á ofanverðu því
herrans ári 1968.
Hagkvæmt er heimanám
Bréfaskóli SÍS og ASl annast kennslu í 39 námsgreinum
nú þegar, en nokkrar nýjar námsgreinar eru í undirbúningi.
Eftirfarandi gi-einargerð ber fjölbreytninni vitni.
I. ATVINNULÍFIÐ
1. Landbúnaöur.
Búvélar. 6 bréf. Kennari Gunnar Gunnarsson, búfræðikand.
Námsgjald kr. 500,00.
Búrelkningar. 7 bréf og eyðublöð. Eru nú í endursamningu.
Kennari verður Ketill Hannesson, ráðunautur. Búnféi. Isl.
2. Sjávarútvegur.
Siglingafræði. 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðsson, skóiastjöri
Stýrimannaskólans. Námsgjald kr. 650,00.
Mótorfræði I. 6 bréf. Um bensínvélar. Kennari Andrés
Guðjónsson, tæknifræðingur. Námsgjald kr. 650,00.
Mótorfræði II. 6 bré.. Um dieselvélar. Sami kennari. Náms-
gjald kr. 650,00.
3. Viðskipti og verzlun.
Bókfærsla I. 7 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstjóri
F. R. Fræðslubækur og eyðublöð fylgja. Námsgj. kr. 650.00
Bókfærsla II. 6 bréf. Sami kennari. Færslubækur og eyðu-
blöð fylgja. Námsgjald kr. 650,00.
Auglýsingateikning. 4 bréf ásamt nauðsynlegum áhöldum.
Kennari Hörður Haraldsson, viðskiptafræðingur. Náms-
gjald 300,00.
Skipulag og starfshættir samvinnufélaga. 5 bréf. Kennari
er Eiríkur Pálsson, lögfræðingur. Námsgjald kr. 200,00.
Almenn búðarstörf. Kennslubók ásamt 5 leiðbeininga- og
spurningabréfum. Kennari Höskuldur G. Karlsson sam-
vinnuskólakennari. Námsgjald kr. 400,00.
Kjörbúðin. 4 bréf. Kennari Húnbogi Þorsteinsson sveitar-
stjóri. Námsgjald kr. 300,00.
Betri verzlunarstjórn I. 7 bréf. Kennari Húnbogi Þorsteins-
son sveitarstjóri. Námsgjald kr. 600,00. Eyðublöð fylgja.
II. ERLEND MÁL
Danska *. 5 bróf og Litla dönskubókin. Kennari Ágúst Sig-
urðsson, skólastjóri. Námsgjald kr. 500,00.
Danska II. 8 bréf og Kennslubók í dönsku I. Sami kennari.
Námsgjald kr. 600,00.
Danska III. 7 bréf og Kennslubók í dönsku III., lesbók,
orðabók og stílahefti. Sami kennari. Námsgjald 700,00.
Enska I. 7 bréf og ensk lesbók. Kennari Eysteinn Sigurðs-
son cand. mag. Námsgjald kr. 650,00.
Enska II. 7 bréf, ensk lesbók, orðabók og málfræði I. og
II. Sami kennari. Nimsgjald kr. 650,00.
Ensk verziunarbréf. 8 bréf og fleiri væntanleg. Kennari
Snorri Þorsteinsson yfirkennari. Námsgjald kr. 700,00.
Þýzka. 5 bréf. Kennari Ingvar G. Brynjólfsson, yfirkennari.
Námsgjald kr. 650,00.
Franska. 10 bréf. Kennari Magnús G. Jónsson dósent.
Námsgjald kr. 700,00.
Spænska. lO.bréf og spænskt sagnahefti. Kennari Magnús
G. Jónsson, dósent. Námsgjald kr. 700,00.
Esperanto. 8 bréf, lesbók og framburðarhefti. Kennari Ól-
afur S. Magnússon. Námsgjald kr. 400,00. Orðabækur fyrir-
liggjandi. Framburðarkennsla er gegnum ríkisútvarpið í
öllum erlendu málunum yfir vetrarmánuðina.
ni. ALMENN FRÆÐI
íslenzk málfræði. 6 bréf og kennslubók H. H. Kennari
Heimir Pálsson, stud. mag. Námsgjald kr. 650,00.
íslenzk réttritun. 6 bréf. Kennari Sveinbjörn Sigurjónsson,
skólastjóri. Namsgjald kr. 650,00.
íslenzk ' ragf-æði. 3 bréf og kennslubók. Kennari Svein-
björn Sigurjónsson, skólastjóri. Námgjald kr. 350,00.
Reikningur. 10 bréf. Kennari Þorleifur ÞÖrðarson, forstjóri
F.R. Námsgjald kr. 700,00. Má skiþta í tvö námskeið.
Algebra. 5 bréf. Kennari Þóroddur Oddsson, yfirkennari.
Námsgjald kr. 550,00.
Eðlisfræði. 6 bréf og kennslubók J. Á. B. Kennari Sigurður
Ingimundarson efnafræðingur. Námsgjald kr. 500,00.
Starfsfræðsla. Bókin „Starfsval" ásamt eyðublöðum. Ólaf-
ur Gunnarsson sérfræðingur svarar spumingum og gefur
leiðbeiningar um stöðuval.
IV. FÉLAGSFRÆÐI
Saga samvinnuhreyfingarinnar. 8 bréf og þrjár fræðslu-
bækur. Kennari Guðmundur Sveinsson, Samvinnuskóla-
stjóri Námsgjald kr. 500,00.
Fundarstjóm og fundarreglur. 3 bréf. Kennari Eirikur
Pálsson lögfræðingur. Námsgjald kr. 400,00.
Bókhald verkalýðsfélaga. 4 bréf ásamt nauðsynl. fræðslu-
bókum og eyðublöðum. Kennari Guðmundur Ágústsson
A.S.Í. Námsgjald kr. 300.00.
Hagræðing og vinnurannsóknir. 5 bréf. Samningu og
kennslu annast Hagræðingardéild A.S.I. Námsgj. kr. 400.00
Nýtt námskeið.
Staða kvenna í heimili og þjóðfélagi. 4 bréf Kennari Sigrið-
ur Thorlacius, ritstjóri. Námsgjald kr. 400.00 Nýtt nám-
skeið.
Sálar- og uppeldisfræði. 4 bréf. Kennari Valborg Sigurðar-
dóttir, skólastjóri. Námsgjald kr. 400.00.
Áfengismái I. 3 bréf um áfengismál frá fræðilegu sjónar-
miði. Kennari Baldur Johnsen læknir. Námsgjald kr. 200.00.
V. TÓMSTUNDASTÖRF.
Skák I. 5 bréf. Kennari Sveinn Kristinsson, skákmeistari.
Námsgjald kr. 400.00.
Skák II. 4 bréf. Sami kennari. Námsgjald kr. 400.00.
Gitarskólinn. 8 bréf upplýsingar og lög á nótum. Kennari
Ólafur Gaukur, tónlistarmacur. Námsgjald kr. 500.00.
TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli SÍS og ASÍ veitir öllum tæki-
færi til að afla sér í frístundum fróðleiks, sem þeir hafa
gagn af. Með bréfaskólanámi getið þér aukið á möguleika
yðar til að komast áfram í lífinu og m.a. búið yðtn- undir
nám vió aðra skóla. Þér getið gerzt nemandi hvenær sem
er, og ráðið námshraða að mestu leyti sjálf. — Skólintn
starfar allt árið.
Bréfaskóli SlS og ASÍ býður yður velkomin.
Undirritaður óskar að gerast nem. í eftirt. námsgr.:
□ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu.
□ GreiðiJa hjálögð kr...........
04afn)
(Heimilisfang)
Klíppið auglýsinguna úr blaðinu og geymið
Bréfaskóli SÍS & ASÍ
Sambandshúsinu, Sölvhólsgötu, Reykjavík.
Sturtugír
óskust
Óska eftir að kaupa sturtu-
gír í 5 gira kassa fyrir Mercedes
Benz 1418. Vinsamlega hringið í
síma 33041.
ÁLFTAMÝRI 7
ÚSBfi
simi 83070
Blómin meðhöndluð at
fagmanni
TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNINGAR
FUÓT CXÍ VÖNDUÐ VINNA
Orval af Aklæðum
UUSAVCatl-SlMMMll HtlMAS’WIMMt
BÖLSTRUN
Svefnbekkir í úrvali á verkstæðisverði