Vísir - 17.10.1968, Page 2
2
V í S IR . Fimmtudagur 17. október 1968.
fTHOMAS SMITH er lík-
lega fljótasti maður heims
í dag. í nótt (að ísl. tíma)
hljóp hann 200 metrana á
19.8 sek., sem er eitt frá-
bærasta afrek frjálsra í-
þrótta og nýtt heimsmet í
greininni.
Úrslitakeppnin i 200 metrunum
var ákaflega spennandi. Ástraliu-
maðurinn Peter Norman reyndi
hvað hann gat að sigra Smith,
Kenya-sigri fagnaö. Keino, hinum fræga hlaupara Kenya, hlekkt-
ist iila á hvað eftir annað í 10 km hlaupinu, en hér fagnar hann
landa sínum, Temu, sem vann „f hans stað“.
hljóp síðustu metrana með trölls-
legum skrefum, en ekkert gat
sigrað hinn hraða blökkumann, sem
auk þess að hlaupa 200 metrana á
þessum frábæra tíma, hefur hiaup-
ið í 100 metrana á 9.9 sekúndum.
Norman tókst að fara fram úr
landa Smiths, John Carlos, og var
sjónarmun á undan í markið.
Carlos hljóp 200 metrana í South
Lake Tahoe á 20,7 sek., eins og
menn muna, en skór hans voru
ekki löglegir, voru með of mörg-
um göddum.
Tími Normans og Carlos var
20.0 sekúndur.
Tommie Smith — fijótastur í
heimi?
Sigurinn kom i siðasta kasti
H'eimsmethafinn í spjótkasti,
Jan Lusis gerði það sem ekki
allir heimsmeistarar geta. Hann
sigraði f sinni grein á Ólympíu-
leikunum í gærkvöldi og setti
nýtt Ólympiumet, en fyrra met-
ið var komið til ára sinna og átti
Norðmaðurinn Danielsen það
frá Melbourneleikunum 1956,
| Lusis tókst þetta þó ekki fyrr en
| í síðasta kasti sínu, fram til þess
tíma leit einna helzt út fyrir að
hann mundi ekki verða ÓL-meist-
ari, sem hann þó átti sannarlega
skilið. Kast hans var frábært, og
þegar spjótið klauf loftið, gátu
menn séð að þetta var lengsta og
i
bezta kast dagsins, — það reynd-
ist vera 90.10.
Allir úrslitamennimir köstuðu
yfir 80 metra. Ungverjinn Kulczar
hafði haft forystu fram að síðasta
kasti Lusis með 87.06, en hann
varð þriðji, Jorma Kinnunaen,
Finnlandi. annar með 88.58 metra
I kast.
HG og FH leika í kvöld
Það er í kvöld sem iþróttaunn-
endum gefst tækifæri til að sjá það
bezta í dönskum og íslenzkum
handknattleik, F.H., íslandsmeistar-
ar utanhúss mæta H.G.,' Danmerk-
urmeisturunum innanhúss og hefst
leikurinn ki. 8.30 e.h. i Laugar-
dalshöllinni.
Án efa verður spennandi að sjá
þessi lið eigast við, en rétt er að
geta þess að ekkert islenzkt lið
hefur staðið sig eins vel gegn er-
lendum liðum og einmitt F.H.
H.G. verður samt ekkert lamb
að leika sc. við. Þeir hafa orðið 11
sinnum Danmerkurmeistarar í
handknattleik innanhúss, þ:r af nú
í þrjú ár f röð. Geir Hallsteinsson
liðsmaður í F.H. og einn okkar
vinsælasti og bezti handknattleik-
I maður segir að þetta lið sé tví-
1 mælalaust eitt sterkasta lið á
Norðurlöndum og er þó af mörgu
góðu að taka. Við trúum' einhuga
á getu F.H. i kvöld. Þeir hafa í>fl
áður sannað að af þeim er íftTs
góðs að vænta þegar við mjög
sterkt lið er að eiga.
Spurningin er þó: Höfum við
sigrast á hinum svokallaða Dana-
komplex t eitt skipti fyrir öll, þá
er við sigruðum danska landsliðiö
síðastliðiö haust? Þessari spurn-
in0u verður svarað að einhverju
leyti í kvöld og næstu kvöld.
Fölk er bent á að höllin tekur
aðeins um 2,600 manns, svo að
vissara _er fyrir fólk að tryggja
sér miða á forsölu í Bókaverzlun-
um Lárusai Blöndal. Oft hefur
( verið þröngt á þingi í höllinni þeg-
ar um stórleiki er að ræða, eins
og nú, og oftast uppselt.
Hér er tvímælalaust um mjög
skemmtilegan og spennandi leik að
ræða sem fæstir ættu að láta fara
fram hjá sér.
ENN EINN KENYA-HLAUPARI
FÉKK GULLVERÐLAUN í MEXÍKÓ
„Auðvitað vinn ég", sagði Biwett fyrir
sigurhlaupið i 3000 metra hindrunarhlaupini
★ , Kenyamenn unnu önnur
gullverðlaun sín á Ólympíu-
leikunum í gær. Það var rúm-
lega tvítugur stúdent, Biwett,
sem sigrrði öllum gjörsam-
Iega á óvart í 3000 metra
hindrunarhlaupinu. Er lofts-
lagið f Mexíkóborg greinilega
hagstætt Kenyamönnunum.
Annar maður í hlaupinu var
einnifr Kenvamaður og sá
briðji var Bandaríkjamaður-
inn Young.
Sjálfur var Biwett ekki í
minnsta vafa um hvað hann
gæti í Mexíkó og þegar hann
var spurður um það hvort hann
gæti sjgrað þar, sagði hann:
„Að sjáifsögðu vinn ég“.- Og
það gerði hann svo sannarlega
og bætir þar með glæsilegum
kapitula við hlaupasögu Kenya-
manna.
Tími sigurvegarans var
8.51.0. Benjamin Tog, Kenya
fékk tímann 8.51.6 og var
keppnin því hörð, þvt að Banda-
rikjamaðurinn hljóp á 8.51.8
sek. í fjórða sæti kom Roelants,
en vegna trufiana f sendingu
náðist tíminn ekki. Arne Risa
frá Noregi varð í 8. sæti í hlaup-
inu.
17.10
— nýt.t heimsmet
i hristökki
Það sem mesta athyglina
vai.ti í Mexíkó í gær var árang-
ur ítalans Giuseppe Gentile f
þrístökkinu, en undankeppnin
fór fram í gaer. ítalinn setti
nýtt heimsmet, stökk 17.10
metra.
Sií frsinskci vann
ú endasprettinum
Franska stúlkan Colette Bessan
vann óvæntan sigur á Mexíkó-
leikunum f gær, þegar hún með
glæsilegum endaspretti flaug fram
úr brezku stúlkunni Lillian Bard
og vann á 52.0 sek., sem er jafnt
ÓL-meti Betty Cuthberts frá
Ástralíu.
Franska stúlkan var á eftir þeirri
brezku og sovézku stúlkunni
Pesjenkina lengst af, en enda-
spretturinn tryggði henni sigur,
fyrsta sigur Frakka í frjálsum
íþróttum til þessa á leikunum.
SMITH SETTI HEIMSMET í 200
METRUNUM, - Í9.8 SEKÚNDUR