Vísir - 17.10.1968, Síða 6

Vísir - 17.10.1968, Síða 6
6 V í S IR . Fimmtudagur 17. október 1968. NYJA BIO HER NAMS RIN SEIHHI BIDTI Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuö yngri en 16 ára. Verðlaunagetraun Hver er maöurinn? Verölaun 17 daga Sunnuferö tii Mallorca fyrir tvo. Hækkað verð. mm 41985 Hörkuspennandi og vel gerö ný, frönsk sakamálamynd. Vima Lisi Dominique Parturel Sýnd kl. 5.15 og 9. Bönnuö bömum. Hinir dæmdu hafa enga von Amerísk stórmynd. Endursýnd kl. 5, 7 og ö. fslenzkur textl. í )j BjB WÓÐLEIKHÚSIÐ Vér morðingjar Sýning í kvöld kl. 20. * Islandsklukkan Sýning föstudag kl. 20 Puntila og Matti Sýning laugardag kl. 2Q Aögöngumiöasalan opin frá kl. 13.15 til kl. 20. Sími 11200. WKjAyfirf HEDDA GABLER í 'kvöld LEYNIMELUR 13 föstudag MAÐUR OG KONA laugardag AðgÖngumiðasaJan I Iðnó er op in frá kl. 14. Slmi 13191. STJÖRNUBÍÓ HYERNIG VALDARAN SKAL FRAMKVÆMT Á ÍSLANDI Stefnuskrá nýja Alþýðubandalagsins j deiglunni □ Mér hafa borizt í hendur drög að nýrri stefnuskrá fyrir Alþýðu- bandalagið. Þau verða lögð fram í vetur á flokksstofnunarþingi bandalagsins að ein hverju eða öllu leyti. Höfundurinn er einn af yngri „hugmynda- fræðingum“ kommún- ista, Jóhann Páll Árnason, en hann hefur verið allmörg ár við heimspekinám í Tékkóslóvakíu. Plaggið er almenn áætlun um valdatöku kommúnista á íslandi. f fljótu bragði er tvennt at- hyglisverðast viö þessa stefnu skrá. í henni er varaö við óraun- hæfum fyrirmyndum í byltingar • starfi kommúnistaflokkanna austantjalds, Marx-Lenin-(Stal- in)ismanum afneitað í vissum þýðingarmiklum tilvikum. Þá er það fróðlegt hversu fátt af þvf, sem höfundur leggur fram sem nýlundu, er raunverulega nýtt í stefnuskrá kommúnista. Hin „nýja“ áætlun Jóhanns °áls er í stuttu máli að barátt- an gegn ríkjandi þjóðfélagskerfi á fslandi „hlýtur að miöast við ákveðna áfanga, en á hinn bóg inn krefst hún einnig miklu rót- tækara inntaks en áður, ákveön ari hugmynda um sögulegt hlut- verk sósíalismans." Stefnt að valdaráni ef ekki er um annað að ræða Og hann heldur áfram og segir: Sósfalísk stjórnmálahreyf ing „hlýtur fyrst og fremst að berjast fyrir þeim umbótum, sem skapað geta forsendur fyr ir breytingu þjóðfélagsins í sósfalska átt, þ.e. umbótum, sem á einhvem hátt auka þjóðfé- lagslegt vald og frumkvæði al- þýðustéttanna og fela i sér sjón- armið andstæð hinum kapital- ísku lögmálum. Enda þótt slík ar umbætur séu nauðsynlegur áfangi, geta þær þó aldrei kom- ið í stað lokastigsins, hinnar eiginlegu þjóðfélagsbyltingar. Hvort sem hún fer friðsamlega fram eða ekki verður hún aldrei bútuð niður f smærri landvinn- inga.“ Þessu til skýringar segir Jó- hann: „Á fyrsta stigi málsins getur því hin sósfalíska hreyf- ing smátt'og smátt byggt upp stofnanir og aflað sér valdaað- stöðu, sem gerir henni kleift að takmarka og skilyrðisbinda á ýmsan hátt verkanir hinna kapi talfsku lögmála, en þegar hún kemst svo langt að geta f veru- legum mæli sett sín eigin sjón- armið og viðmiðunargildi í stað hinna borgaralegu verður hún líka að vera búin til að stíga skrefið til fulls og ná úr hönd- um borgarastéttarinnar helztu valdamiðstöðvum þjóðfélags- ins.“ Ekki nýlunda Ef við berum þessar kiausur saman við skilgreiningu Einars Olgeirssonar á hlutverki Sósíal- istaflokksins sjáum við að hér er naumast nýmæli á ferð og að kommúnistar hyggjast aðeins skipta um nafn á flokki sínum og breyta orðalagi stefnuskrár- innar f nútímalegra horf. Einar ritaði fyrir tveimur árum: „Ann- ars vegar er það hlutverk Sósfal istaflokksins að hafa forystu fyrir stéttabaráttu verkalýðsins, leiða hana inn á sósfalistiskar brautir, búa vinnandi stéttir heila og handa undir það að taka forustu þjóðfélagsþróunar- innar og ríkisvaldið f sínar hend- ur og koma sósfalismanum á.“ „Hins vegar er það verkefni Sósíalistaflokksins að taka þátt í allri þeirri baráttu til sóknar og varnar, sem háð er meðan auðvaldsskipulagið stendur og hafa eftir mætti áhrif á þróun þess þjóðfélags." Munurinn er sem sagt ekki mjög mikill og má þó telja nokkum veginn full- víst að Jóhann Páll Ámason sé f hópi þeirra mörgu kommún- GAMLA BÍÓ I WINNER QF 6 ACADEMY AWARDSI MEIRóGOUWKNMAYER lonan ACAHOPONHPRQOUCHON DAVID LEANS FILM OF BORlS PASIERNAKS DOCTOR ZHIlAGO '"mtbooSÍV"" Sýnd kl. 5 og 8.30. Sala hefst kl. 3. HAFNARBÍÓ Fjársjóðsleitin Afar fjömg og skemmtileg am- erfsk gamanmynd í litum með Hayley Mills. íslenzkur texti. Endursýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ / syndafjötrum (Verdamt zur Siinde) Ný, þýzk úrvalsmynd með ensku tali, eftir metsölubók Hennry Jagers (Die festing). Aðalhlutverk: Martin Held Hildegard Knef Else Knott Christa Linder Sýnd kl. 9 — Bönnuð börnum innan 16 ára. — Miðasala frá td. 7. ista, sem segja að Einar hafi verið að spila gamla og slitna plötu í áróðri sínum undanfar- in ár. Frumkvöðlar og nýir spámenn Fullyrðingar eins og þær í plaggi Jóhanns að það sé orðin „fjarstæða að skipta sósíalist- iskri hreyfingu í flokka eftir því hvort hún er fyigjandi um- bótum eða byltingu" eru ekki viðurkenndur Lenin-Stalinismi. Þaö er greinilegt af plagginu að Jóhann hefur Tékkóslóvakíu f huga þegar hann er aö semja þessa „nýju“ valdaránsáætlun. Hann sagði í Þjóðviljanum 21. marz sl. „Valdaeinokun komm- únistaflokksins og skipulagning bæöi hans og þjóðfélagskerfisins eftir sovézkri fvrirmynd verður meö engu móti réttlætt og tékk- neskar aðstæður kröföust allt annarra úrræða.“ í lok inngangs að stefnu- skránni er beinlinis hvatt til þess að íslenzkir kommúnistar sniðgangi kunnar baráttuaðferö- ir erlendra kommúnistaflokka. „Þetta hefur leitt til þess að forsendur fyrir þjóðfélagsbylt- ing'u urðu fyrst til í þeim lönd- um, þar sem allan grundvöll skorti fyrir uppbyggingu sósíal- isks þjóðféíags. Sósíaliskar hreyfingar sem’ til valda komu við þessi skilyröi, urðu því að snúa sér að þvf að skapa þenn- an grundvöll, en beittu til þess mjög ósósíaliskum aðferðum, sem af hafa sfðan sprottið djúp- stæðar þjóðfélagslegar mótsagn- ir. Þau þjóðfélög, sem þannig eru til orðin, eru því hvorki fyrir- mynd að framkvæmd sósfalisma, né heldur sósfaliskt þjóðfélag' á bemskuskeiði, sem þróazt geti samfellt og átakalaust tii meiri fullkomnunar, heldur hlýtur frekari framþróun þess að fela í sér átök andstæðra þjóðfélags afla og róttækar breytingar á mörgum sviðum." Blekkingavefur Gottwalds Það á m. ö. o. að reyna valda- rán á Islandi eftir nýjum leiðum, með nýjum aðferðum. íslenzka kommúnista dreymir um að ger- ast frumkvöðlar í kommúnista- hreyfingunni. Nýir spámenn eru komnir fram meöal kommúnista heimsins og okkar allra. En ef betur er aö gáð hefur ýmislegt síazt með heimspeki inni inn í vitund Jóhanns Páls Ámasonar í Tékkóslóvakíu. Hér eru nefnilega á ferðinni gylling ar Gottwalds heitins, leiðtogans f valdaráninu f Tékkóslóvakíu 1948. Vegna sterkrar lýðræðis- legrar heföar urðu kommúnistar að fara sér rólega í Tékkóslóva kíu eftir 1945. Gottwald sótti há tíðarmessur hjá hinum trúuðu Slóvökum. Kommúnistar minnt- ust ekki á þjóðnýtingaráform sín, nema mjög takmarkað fyrr en þeir gátu boöiö andstæðing- um sínum birginn 1947 — 8. Gottwald talaði á meðan um „hina sérstöku leið Tékkósló- vakíu til sósíalisma" sem lá ekki „gegnum einræði öreiganna og sovétanna“ heldur átti að birtast f stjórnkerfi af sérstakri aljjjörlega tékkóslóvakiskri gerð“ og þaö átti að mótast „með friðsamri þróun til sósfal- isma án frekari byltinga." Þessu öllu var af Gottwald lýst sem Marxisma „undir nýjum kring- umstæðum." Þetta var „bylting þjóðl. og lýðræðislegs eölis, ekki sósíalisk bylting." Með þessu virtist Marx-Leninismanum hafn að. Seinna, f hreinsununum í Tékkóslóvakfu voru ýmsir for- ingjar kommúnista líflátnir fyrir að hafa reynt að sanna „sér- stöðu ástandsins í Tékkóslóvak- íu og fyrir að hafa mótað kenn ingu um sjálfstæða og sérstæða leið Tékkóslóvakíu til sósíal- isma.“ Gottwald stóð fyrir þess- um ákærum og hreinsunum, eftir að hafa áöur gert fyrr- greind ummæli sín að engu með valdaráni kommúnistaflokksins f Tékkóslóvakíu. Austan Edens Hin heimsfræga ameríska verð- í launamynd litum. tslenzkur texti. James Dean Julie Harris. Sýnd kl. 5 og 9. HÁSKOLABÍÓ AUGLÝSIÐ í VISI Lestarrániö mikla (The great St. Trinians train Robbery) Galsafenpnasta, brezk gaman- mvnd f lit.im. sem hér hefur lengi sézt. Tslenzkur trxti. \ðalh!utverk: Frankie Howerd Dora Bryan Sýnd kl. 5, 7 og 9. LAUGARASBIO Dulmálið Spennandi amerísk njósna- mynd f litum og Cinemascöpe með fslenzkum texta. Sophia Loren og Gregory Peck. Endursýnd kl. 5 og 9. TÓNABÍÓ íslenzkur texti. Goldfinger Heimsfræg ensk sakamála- mynd í litisn. Sean Connery. Endursýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára. Allur ágóði af 9 sýningu renn- ur f nýstofnaðan styrktarsjóð til hjálpar heyrnardaufum 1 börnum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.