Vísir - 17.10.1968, Side 8
8
VIS IR . Fimmtudagur 17. október 1968.
VISIR
Otgefandi; Reykjaprent h.t.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Augiýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: I nugavegi 178. Simi 11660 (5 iinur)
Áskriftargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Visis — Edda h.f.
Ný ráðuneyti
Ýmsar athyglisverðar nýjungar í skipulagi Stjórnar-
ráðs íslands eru boðaðar í frumvarpi, sem ríkisstjóm- l(
in hefur lagt fyrir Alþingi. Frumvarpið er í samræmi
við samstarfsyfirlýsinguna, sem stjómarflokkamir
gáfu á sínum tíma, en þar var m. a. gert ráð fyrir end-
urskoðun stjórnarráðsins.
Einnig var sagt í yfirlýsingunni, að endurskoða
þyrfti kosningalögin og kanna, hvort ekki væri heppi-
legra, að Alþingi væri ein málstofa í stað tveggja.
Um það mál hefur verið fremur hljótt, en ekki er
ósennilegt, að stjórnmálaflokkarnir muni bráðum
skipa nefnd til að kanna það sérstaklega.
í nýja frumvarpinu er gert ráð fyrir, að eitt ráðu- /
neyti verði lagt niður og fjögur ný verði mynduð. .
Deildir verði klofnar frá dómsmálaráðuneytinu og
félagsmálaráðuneytinu og myndað úr deildunum nýtt '
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Þetta er orðið (
svo viðamikið svið í þjónustu hins opinbera, að tíma- (
bært er orðið að fjalla um það í sérstöku ráðuneyti. /
Þá er gert ráð fyrir, að atvinnumálaráðuneytið verði
lagt niður, en í staðinn komi þrjú ráðuneyti, sjávar-
útvegsráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti og iðnaðar-
ráðuneyti, þ. e. aðskilin ráðuneyti fyrir hvern hinna
þriggja höfuðatvinnuvega þjóðarinnar. Þessi ný-
breytni á að bæta þjónustu ríkisins við þessa at- /
vinnuvegi. ,
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að hvert ráðuneyti sé
lagt óskipt til eins og sama ráðherra. Verður þá kom- '
ið í veg fyrir glundroðann, sem fylgir því, er ráðuneyti y
heyrir undir tvo og jafnvel fleiri ráðherra, eins og J,
tíðkazt hefur hér á landi. Þessi endurbót á skipu- \
laginu er afar mikilvæg.
Athyglisverðasta nýbreytnin í frumvarpinu er 16.
greinin, þar sem segir, að ráðherra sé heimilt að
kveðja sér til aðstoðar mann utan ráðuneytis, sem
starfi þar sem deildarstjóri meðan ráðherrann gegnir
embættinu, en hvérfi síðan úr starfi.
Þetta fyrirkomulag þekkist víða érlendis. Það á að
auðvelda nýjum ráðherrum að taka við embætti. Oft
tekur langan tíma að mynda traust milli ráðherra og
embættismanna, og má líta svo á, að þessir sérstöku
trúnaðarmenn ráðherra eigi að brúa þetta bil. Trún-
aðarmaðurinn kemur og fer með ráðherranum og nýr
trúnaðarmaður kemur með nýjum ráðherra.
Stjórnarráðið er orðið 64 ára gamalt. Voru ráðu-
neytin fyrst þrjú, en eru nú tíu. í nýja frumvarpinu
er gert ráð fyrir, að þau verði þrettán. Þannig hefur
stjórnarráðið þróazt hægfara með breyttum tíma.
Mönnum hefur stundum sýnzt, að skipulag og starfs-
hættir þess væru nokkuð á eftir tímanum. Hið nýja
frumvarp miðar að því að færa þessi atriði í horf, sem
hæfir nútíma aðstæðum.
BYLTiNGINímÚ
gyltingar hafa verið gerðar í
Perú og Panama. 1 báðum
löndunum er það mark þeirra,
sem völdum náðu, að efla og
treysta sjálfstæði, — og þar
með verða efnahagslega óháðari
Bandaríkjunum.
Byltingar hafa löngum verið
tíðar í Mið- og Suður-Ameríku-
löndum. í þessum löndum mik-
illa náttúruauðæfa er bilið breitt
milli auðugra og snauðra. Al-
þýða manna býr víöast við
fremur bág kjör, stundum við
mikla fátækt, og ef marka má
ýmsar fregnir var það til þess
að gera Perú óháðara Banda-
ríkjunum, að þar var gerð bylt-
ing, en við byltinguna þar
missa bandarísk olíufélög þá
aðstöðu til gróða og stjómmála-
, legra afskipta, sem þau áður
höfðu.
Hinn nýi forseti i Perú er
Juan Velasco Alvarado ,58 ára.
Stjóm sú, er hann myndaði náði
fljótt algeru valdi á öllu í
landinu.
Nicholas Katzenbach.
Þegar byltingin var gerö
vofði yfir allsherjarverkfall, en
í stað þess að fara út í verk-
fall, gerði verkalýðssambandið
hemaðarl. stjóminni skriflega
grein fyrir kröfum sínum. Var
litið á það sem sönnun þess, að
það vildi semja, og þótti nú
líklegt, að friður myndi haldast
milli verkalýðshreyfingarinnar
og hemaðarlegu stjómarinnar.
Til smávægilegra árekstra
kom, er byltingin var gerð, en
andspyman hjaðnaði fljótt nið-
ur.
í frétt frá Lima til Los
Angeles Tlmes segir um bylt-
inguna:
„Það er óhjákvæmilegt aö
gera samanburð á byltingimum
f Perú og Argentínu (fyrir 27
mánuðum), en þar komst þá
Juan Carlos Ongania til valda.
Talsmaður stjómar Velasco
Alvarados sagði um þetta:
Byltingin í Perú er óskyld bylt-
ingunni í Argentínu, — engin
næringarefni voru dregin úr
þeim jarðvegi, og hann fuliyrti,
að það væri ekki tilgangurinn
að banna stjómmálaflokka,
og ekki yrði hróflað við réttar-
farsreglum.
Hins vegar er búizt við, svo
sem áður var getið, að reynt
yröi að gera landið óháðara
Bandaríkjunum og veita Evrópu
þjóðunum mjög aukin skilyrði
þar til viðskipta, eins og Ong-
ania hefir gert í Argeptínu.
Juan Velasco Alvarado heifir
heimsótt Bandarikin og stund-
aö nám í bandarískum her-
skólum, en hann er mikill að-
dáandi de Gaulle Frakklands-
forseta og stefnu hans.
Talsmaðurinn hafnaði þeirri
skoðun Belaunde, hins útlæga
forseta, að hann hefði verið
hrakinn frá völdum vegna ótt-
ans við að stærsti flokkur lands-
ins, APRA, myndi vinna sigur
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða í kosningum að ári.
APRA var uppmnalega bylt-
ingarhreyfing, en hefir á sein-
ustu 20 ámm og einkum hin
síðari ár orðið miðfiokkur sem
hallast til vinstri, en leiðtogar
hersins hafa aldrei borið traust
til þessa flokks.
„Herinn tók völdin“, sagði
talsmaður hemaðarlegu stjóm-
arinnar, vegna ríkjandj öng-
þveitis á sviði efnahags, stjóm-
og félagsmála, og vegna sam-
komulags, sem stjóm Belaunde
gerði nýlega viö bandarískt olíu
félag (Intemational Petroleinn
Corporation), sem er dótturfé-
lag Standard Oil.
Byltingarstjómin lét það
Juan Velasco Alvarado.
verða sitt fyrsta verk að segja
upp þessum samningi, en f á-
kvæðum hans var tekið fram
með hvaða skilyrðum IPC af-
salaði sér í hendur rikisins
þeim forréttindum, sem laga-
lega vom afnumin með þing-
samþykkt í júlí 1967.
Dr. Kiesinger.
Katzenbach ræðir varnir Evrópu
í París, Brussel og Belgrad
Bandaríkjastjóm Iítur á árás
á Vestur-Þýzkaland eins og á-
rás á Bandaríkin sjálf. Þetta
var tekið fram í bréfi, sem Clark
Clifford landvamaráöherra
Bandaríkjanna, afhenti dr. Kies-
inger kanzlara nýlega í Bonn,
eða þegar landvarnaráðherrar
Norður-Atlantshafsbandalags-
ins vom f Bonn til þess að ræða
um hvenær mætti grípa til
kjarnorkuvopna.
En þetta er ekki það eina,
sem heyrzt hefir frá Johnson
og stjóm hans nýlega, vegna
hins nýja viðhorfs í álfunni
(sem er til komið vegna her-
námsins í Tékkóslóvakíu).
Johnson forseti hefir líka
lýst yfir, að hann láti sig miklu
varða Júgóslavíu, sjálfstæði
hennar, og boðaði, að hann
sendi þangað sérlegan sendi-
mann til viðræðna við Tito for-
seta, að loknum viðræðu mhans
í París og Briissel (þar sem
höfuðstöðvar Nato em).
Og í gær var sérlegur sendi-
maður Johnson forseta, Nichol-
as Katzenbach aðstoðar-utan-
ríkisráðherra, kominn til við-
ræðna í París. Þessar viðræður
em allar tengdar vömum
Norður-Atlantshafsbandalags-
ins, sem em veikari eftir að
Frakkland sleit við það hern-
aðarlegu samstarfi. í Banda-
ríkjunum ríkir óánægja yfir
deyfð þeirri, sem er yfir Nato-
ríkjunum, og bandarísk þing-
nefnd minnti á, að Bandaríkin
hefðu enn 300.000 manna lið í
Evrópu, þrátt íyrir styrjöldina
í Víetnam, og hvatti nefndin
til að Evrópulöndin ykju fram-
lag sitt.
A. Th.