Vísir


Vísir - 17.10.1968, Qupperneq 9

Vísir - 17.10.1968, Qupperneq 9
VISIR . F1mmtuQoBur oktðoer 9 Athyglisverðir liðir fjár- laga i aðgengilegu formi Fjárlög fyrir árið 1969 hafá nú verið lögð fram. Niðurstöðutölur eru um sex og hálfur milljarður, sem mönnum finnst að sjálfsögðu gífurleg upp- hæð. Almenningur í landinu vill fá upplýsingar um, hvernig fé þessu er varið, sem hann verður að inna af hendi með skattgreiðslum. Þá ræða menn stöð- ugt sín á milli um fjárveitingar ríkisins til ýmissa mála, án þess að hafa haldgóðar upplýsingar um fjárhæð. Hér á eftir er getið ýmissa punkta úr fjá'r- lögunum, og helzt minnzt á það, sem þjóðina mun fýsa að kynna sér. Hér er bæði um að ræða háar tölur og aðrar, sem eru tiltölulega lágar í saman- burði. Forsetaembættið og Alþingi Mönnum mun leika hugur á að kynna sér hver kostnaður er við æðstu stjðm ríkisins. Þetta mál ur. Þannig lækkar framlag til Fiskveiðasjóðs um 30 milljónir og til Aflatryggingarsjóðs um 11 milljónir. Þessi framlög höfðu verið lækkuð fyrr á árinu með sérstökum lögum. Menn gera margt annað skemmtilegra á síðustu stundu að umflýja örlög sín. en að borga skattana sína, og margir reyna fram 570 milljónirí niðurgreiðslur — 270 milljónir í útflutningsuppbætur á búvörur — og litlar bar mjög á góma við forseta- kosningamar í sumar. Til embættis forseta íslands eru veittar 3,8 milljónir króna, þar af 1,8 milljónir í laun og 1,5 milljónir í önnur rekstrar- gjöld. Á launum hjá embætt- inu eru meðal annars ráðskona bókari, bifreiðarstjóri og vinnu maður. Þingfarakaup alþingismanna nemur 17.9 milljónum króna, en þingmenn eru 60. Skrifstofu og alþingiskostnaður er 14,8 millj- ónir. Laun ráðherra em sam- tals 2.6 milljónir, en ráöherrar eru 7. í heild er heldur minna fé varið til æðstu stjórnar en áöur var. Landbúnaður. — 270 milljónir í útflutnings- bætur. Framlög ríkisins til fyrirtækja í landbúnaði eru áætluð 404 milljónir króna. Þar af eru 270 milljónir uppbætur á útfluttar landbúnaöarafurðir. Ennfremur eru 50 milljónir sem jarðrækt- arframlög og 30 milljónir til framræslu. Uppbæturnar hækka um 22 milljónir og síöamefndir styrkir um samtals 10 milljónir króna. Til Búnaöarfélags íslands fer um 21 milljón og 22 millj- ónir til Landnáms ríkisins. Ým- is annar stuðningur er veittur landbúnaðinum. Hin gífurlega upphæð, sem veitt er í útflutn- ingsuppbætur á landbúnaðaraf- urðir, sýnir offramleiðslu af- urðanna, þar sem þær munu vart samkeppnisfærar um verð á erlendum mörkuðum. SjávarútvBgur. — Lækk un frp-mlaga til út- vegsmála. TU fvrirtækja siávarútvegs- ins fara 40 milljónir króna i framlögum og aðrar 25.5 milljón ir í Aflatryggingarsjóð. Ýmsir aðrir sjóðir sjávarútvegsins og stofnanir, svo sem Fiskveiða- sjóður fá minni framlög en áð- í heild lækka framlög til út- vegsmála um 57 milljónir frá síöustu fjárlögum, og er einnig um að ræða raunverulega lækk un, þótt lögin fyrr á þessu ári séu tekin til samanburðar. Mest ur hlutinn stafar af lækkun ráð stafaðra tekjustofna, þ.e. síldar gjalds, ferskfisksmatsgjalds og hluta útflutningsgjalds. — Hitt er svo annað mál, aö einmitt á þessum liðum er að vænta hækk unar, ef svo fer, sem horfir, um ráðstafanir til lausnar efnahags- vandans nú í vetur. Iðnaður. — Lítið um framlög. Iðnaðurinn ber minnst úr být- um af höfuð atvinnuvegunum, sé miðað við ríkisstyrki. Til fyr- irtækja og atvinnuvega í iðnaði fara um 12 milljónir, þar af 10 milljónir til Iðnlánasjóðs. Iðn- aðarmálastofnunin fær nokkuð, svo og fleiri þættir iönaðarins. Hér er um hverfandi upphæðir að ræöa. Skólarnir. — 14,1% til fræðslumála. Framlög til fræöslumála hækka um 86,5 milljónir króna frá síðustu fjárlöigum. Vegna framkvæmdar breytingar hinna nýju skólakostnaöarlaga verður sú breyting, aö viss rekstrar- kostnaður, sem ríkissjóður hef- ur greitt eftir á, kemur nú til greiðslu jafnóðum og veldur þetta 34.5 milljóna útgjaldaaukn ingu 1 eitt skipti fyrir öll. Kostn aður við barnafræðslu eykst um 33 milljónir og við gagnfræða- menntun um 8 milljónir. Sökum mikillar stækkunar og aukins nemendafjölda hækkar kostnaður viö menntaskólana og Kennaraskólann um samtals 9 milljónir. Fjárveiting til Há- skólans eykst um 3 milljónir, meðal annars vegna þess, að hafin verður kennsla í náttúru- fræði við verkfræðideild. Fram lög til lánasjóðs íslenzkra náms manna hækka um 3.4 milljónir vegna verðhækkana og fjölgunar námsmanná. Háskóli íslands hlýtur um 45 milljónir. Hæstur af mennta skólunum er Menntaskólinn við Hamrahlíð með um 24 milljón ir. Hinn menntaskólinn í höf- uðborginni, Menntaskólinn I Reykjavík fær um 23 milljónir, Menntaskólinn á Akureyri 18 milljónir og Menntaskólinn á Laugarvatni 12,5 milljónir. 14,1% heildarútgjalda ríkissjóðs fara til fræðslumála. — 30 milljónir til sjón- varpsins. Framlög til ríkisútvarpsins, sjónvarps. hækka um 10 milljón ir vegna hækkunar aðflutnings- gjalda á sjónvarpstækjum, er renna til útbreiðslu sjónvarps- kerfisins. Er framlag til sjón- varps áætlaö 30 millj. króna. — Framlög til lista almennt nema 15 milljónum. Þjóðleikhúsið fæf 14 milliónir. 9 milliónum er var ið til íþróttamála. Hér er ekki um verulega hækkun að ræða. dýrast. Mikið hefur verið rætt um lækkun kostnaðar við sendiráö okkar erlendis á undanförnum árum. Hefur komið til greina að leggja einhver þeirra niður. Það mun enn vaka fyrir forráða mönnum okkar að gera einhverj ar tilraunir í þessa átt. Dýrasta sendiráðið samkvæmt fjárlög- um er sendiráðiö í París meö 4.6 milljónir. Á eftir fylgja sendi ráðið í Washington með 4.4 milljónir og sendiráðið í Moskvu meö 4,2 milljónir. Sendinefnd Is- lands hjá Sameinuöu þjóðunum kostar 4,7 milljónir króna. — Kostnaður við sendiráðin í heild lækkar um 4 milljónir. Til embættis lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli fara um 19 milljónir króna. Varnarmála- deild tekur til sín 3 milljónir. 34.6 milljcnir í kostnað við hægri breytinguna. Á fjárlögum kemur fram lækk un á kostnaði við dómgæzlu og lögreglumál sem nemur 36 milljónum. Þessir liðir höfðu þó fyrr á árinu verið lækkaðir sem nemur um' þaö bil þeirri upp- hæð. Kostnaöur við breytingu í H- umferð var áætlaður 34.6 millj- ónir króna í fjárlögum 1968. Á móti voru tekjur af sérstökum bifreiðaskatti áætlaðar 16.2 milljónir, en ákveðið var að fjár magna mismuninn 18.4 miflfónir meö lántöku. Gert ef ráð fyrir, að sórstnkur bifreiðasVattur 17 milljónir, gangi til endur- greiöslu á láninu. »-> 13. síða. Áfengis- og tóbaksverzlunin skilar yfir 700 milljóna hagnaði á ári, sem er vel yfir tíundi hluti heildartekna ríkisins. Sendiráðið í París 02

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.