Vísir - 18.10.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 18.10.1968, Blaðsíða 5
IfllllK FRAMLEIÐENDUR: TIELSA, VESTUR-ÞÝZK GÆÐAVARA OG JÓN PÉTURSSON HÚSGAGNA‘ FRAMLEIÐAND! EBtalalaláElIaEEsíalHEaEsSIátaSaSIsla ÍELDHÚS- EölEáláEaEalalaEalaEaEalalálala lálálá % KAUPIÐ A FOSTU VERBI % STAÐLAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI OG ÖLL TÆKI FYLGJA % HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILAAÁLAR ODDUR HR UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN KiRKJUHVOLI SÍMI 21718 og 42137 V í SIR . Föstudagur 18. október 1968. FULLKOMIÐ SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI VELJUM ÍSLENZKT- ÍSLENZKAN IÐNAÐ SNÆPLAST Fyrirliggjandi HARÐPLAST, plastlagðar SPÓNAPLÖTUR og plastlagt MASONITT SPÓNN H/F Skeifan 13. Simi 35780. HAGSÝN HÚSMÓÐIR NOTAR Kaupum hreinar léreftstuskur VISIR Jónína og nokkrir glermunanna hennar. Mér finnst glerið mest spennandi44 — segir Jónina Guðnadóttir, sem heldur fyrstu einkasýninguna á glermunum á Islandi lermunasýningar eru fátíöar á íslandi og enn fátíðara, aö íslendingar fáist við listiðnað úr gleri. Jónína Guðnadóttir brýtur brautina á þessu sviði með sýn- ingu sinni, sem stendur yfir í Unuhúsi núna og lýkur á sunnu- dagskvöld. Sýning hennar er fyrsta einkasýningin á glermun- um á íslandi. Stór gólfvasi úr steinleir. Jónína hefur stundað nám í myndlist hér heima og á Konst- fack í Svíþjóð. Hún hefur tekiö þátt í sýningum eriendis og munir voru eftir hana á sýningu Norræna hússins í sumar. í sýningarskránni stendur að munirnir séu úr steinleir, postu- líni og gleri. „Hver er munurinn á þessum efnum og hvað er steinleir?" „Steinleir er ein tegund stein- taus. Munurinn á milli efnisteg- undanna er sá, að glerið er í fljótandi formi, alveg glóandi, þegar unnið er úr þv£. Postulínið er seigara og feitara en leirinn og yfirleitt erfitt í vinnu. Það er öllu fínni áferð á postulíni og það er þyngra í sér en stein- leirinn og dýrara. Steinleirinn ifkist meira þeim leir, sem fólk kannast við.“ „Hvaða efni finnst þér skemmtilegast að vinna úr?“ „Mér finnst glerið mest spenn- andi. Það er óvenjulegt efni hér og færri, sem vinna með það.“ „Hefurðu sótt þér fyrirmyndir einhvers staðar frá við vinnuna á þessum efnum?“ „Ég hef reynt að vinna sjálf- stætt. Efnið segir alltaf til sín en samt getur maður farið sín- ar eigin leiðir í formsköpun. Ég hef reynt að brjóta niður vana- bundnar hefðir, fara í gegnutn tradisjónina. Áður fyrr var t. d. gleriö blásið í tréform, svo allt varð eins, núna eru mótin unn- in í vír og ég bý trl mín eigin mót.“ „Vakir eitthvað annað fyrir þér með sköpun formanna á veggnum, en t. d. vasanna?" „Ég lít á marga þessa hluti og þeirra á meðal þá, sem eru á veggnum, ekki sem brúkshluti, heldur reyni ég að túlka mig á einhvern hátt með þeim.‘‘ „En til hverra nota eru hhit- imir, sem þú ætlar sem stíka?“ „Það er hér mikið af vösum, bökkum og kertastjökum, svo eru náttúrlega glerflöskurnar, sem hægt er að nota fyrir blóm.“ Blávambi héitir þessi gripur sem er meira til skrauts en nota. „Viltu útskýra nánar hvemig þú vinnur hlutina?" „Tradisjónin er að renna hhiti. Viss hluti þess, sem ég er með er renndur, en þó hef ég horfið meira og meira frá því og byggi þá upp. Ég bý trl lausa hluti úr efninu, sem ég set aftur ut- an um einhvern kjama, sem ég er búin aö búa til. T. d. em margir vasanna búnir tiL þann- ig.“ „Hvernig feröu meö hráefnin £ •vinnslu?" „Ég hef búið tiil minn gler- ung sjálf og brennt hann við lifandi eld, gas eða oliu en ekki rafmagn. Það þekkist ekki hér á landi en er sem sagt gamla hefðin. Við það fæst fallegfi brennsla. Við litagerðina nota ég þau hráefni, sem ttí em t. d. kopar og rnangan." „Það er þvf hægt að segja að þessir hlutir séu £ bókstaflegri merkingu handunnir?“ „Jú, það má segja svo.“ Steinleir og postulín saman. Áferöin á postulíninu er meira gljáandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.