Vísir - 18.10.1968, Side 6
6
V í S IR . Föstudagur 18. október 1968.
NYJA BIO
HER
NAMS!
ARIN
SÉIHHl HUTI
j—Listir -Bækur -Menningarmál-
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Verðlaunagetraun
Hver er maðurinn?
Verðlaun 17 daga Sunnuferð til
Mallorca fyrir tvo.
Hækkað verð.
HÁSKÓLABÍÓ
Fram til orrustu
(Lost army)
Stórfengleg kvikmynd gerð af
Film Polski eftir kvikmyndar-
handriti Aleksanders Scibor-
Rilskys, samkvæmt skáldsögu
eftir Stefan Zeromski. Leik-
stjóri Andzej Wajda.
f 'enzkur texti.
Aðalhlutverk:
Daniel Olbry
Beata Tyszkiewicz
Pola Raksa
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Austan Edens
Hin heimsfræga amerlska verð-
launamynd i litum.
Islenzkur texti.
James Dean
Julie Harris.
Sýnd kl. 5.og 9.
5®
ÞJÓDLEIKHÚSID
'lslandsklukkan
Sýning 1 kvöid kl. 20
Puntila og Matti
Sýning laugardag kl. 20
Vér morðingjar
Sýning sunnudag kl. 20
Aðgöngumiöasalan opin frá kl.
13.15 til kí. 20. Sími 11200
011
LEYNIMELUR 13 í kvöld
MAÐUR OG KONA laugard.
Uppselt.
HEDDA GABLER sunnudag
Fáar sýníngar eftir.
MAÐUR OG KONA miðvikud.
Aðgöngumiöasalan i Iðnó er op
in frá kL 14. Slmi 13191.
Jón Hjartarson skrifan
Lengjum skólatímann
j^'iöurstöðurnar úr þeim skoð-
anakönnunum, sem gerðar
hafa verið varöandi áriega lengd
skólatímans, eru æði merkileg-
ar. Skoðanakönnun, sem gerð
var nýlega meðal kennara, leiddi
í ljós að mikill meirihluti kenn-
ara virðist vera á móti því að
skólatíminn sé iengdur. Skoðana
könnun Vísis meðal almennings
nú á dögum leiðir hið sama í
ljós. Sumum finnst jafnvel nóg
um lengd skóiatímans eins og
hann er nú.
Hvernig er þessu þá varið
með okkur íslendinga, erum við
svona miklu gáfaðri en aðrar
þjóðir, að við þurfum ekki að
sitja nándar nærri eins Iengi á
.skólabékk og aðrir til þess að
læra jafnmikið? Ellegar þykj-
umst við hafa svona mikinn
tima fvrir okkur, að við höfum
efni á því að sitja viö nám langt
fram á fullorðinsár?
Skólatími okkar er einum til
tveimur mánuðum styttri en
gengur og gerist í nágrannalönd-
um okkar. Helztu rökin fyrir
þessu er íslenzka sumarið, þörf
bama fyrir útivist og frelsi
þessa fáu sólskinsmánuði og svo
sumarvinna nemenda. Sam-
kvæmt áðurgreindu á nemandi
I nágrannalöndum okkar að baki
sér jafnlanga skólagöngu átján
ára og íslenzkur nemandi tví-
tugur. íslenzkir menntaskólar
útskrifa tvítuga stúdenta, tveim-
ur árum eldri en skólar flestra
nágrannalandanna. Tvö ár, það
er að vísu ekki langur tími,
segja þeir sem komnir eru til
ára sinna. En tvö ár er óratími
í augum tvftugs manns. Og
einmitt á þessum tveimur árum
er framtfðin oft á tíðum ráðin.
Þess eru mörg dæmi að fólk
festi ráð sitt áður en það klárar
undirbúningsmenntun, svo sem
stúdentspróf, eignast böm og
heimili og gefur allt frekara
nám á bátinn. Jú, þetta er ágæt
menntun, segja menn, og ráða
sig í banka við hliðina á gagn-
fræðaprófsfólki f stað þess að
fara í háskóla og læra eitthvað
nýtilegt. — Það er algengt hér
á landi að háskólaborgarar séu
þegar í fyrri hluta námsins orðn-
ir foreldrar margra bama. Við
getum séð fyrir okkur ungan
tveggja bama föður, nemanda f
fyrsta hluta læknisfræða. Nám
hans truflast af bamagargi,
heimiliserjum, — auk þess sem
hann verður að hafa áhyggjur
af framfærslu fjölskyldunnar.
Námið sækist seint. Hann verð-
ur sffellt að vera að hlaupa frá
námi til þess að vinna fyrir sér
og sfnum. Hann getur gert sér
vonir um að útskrifast einhvem
tfma á fertugsaldri, ef hann gefst
þá ekki upp, — og gerist úr-
illur kennari, sem verður fram
á efri ár að borga námsskuldir.
Tveggja ára forskot hefði verið
þessum manni mikils viröi.
pólk rekur upp ramakvein,
þegar minnzt er á að lengia
skólatímann og taka sumarið
frá blessuðum börnunum. Fólk
talar um sveitavistina, sem á að
vera svo holl fyrir bömin, hvaö
það sé mikil synd að loka þau
inni þessar fáu stundir, sem þau
geti nú virkilega notið útivistar.
Til dæmis finnst mörgum skól-
amir nú standa allt of lengi
fram eftir á vorin. Það er nú
það. Hér finnst mér miklu van-
trausti lýst á fslenzka skóla-
menn og kennara. Að réttu lagi
ætti kennsla að fara að allmiklu
leyti fram utan dyra, þegar kem
ur fram á vorið, könnunarferðir,
náttúmskoðun, grasasöfnun o. s.
frv. í stað þess að eyða tfman-
um f þvflíkt og annað eins, er
í íslenzkum skólum keppzt við
að troða fróðleik inn í hausana
á nemendum 'af bókum, með
þeim afleiðingum að margir fá
ævilanga skömm á faginu, (t. d.
grasafræðinni). Það er enginn
tími til þess að stússa f útiferð-
um. Slíku og þvílfku hafa kenn-
arar ekki vanizt hér. Það væri
ef til vill tími til slíks, ef skóla-
tíminn væri einum til tveimur
mánuðum lengri. Þaö væri þá
hægt að skipuleggja námið eftir
árstíðum. Kenna náttúrufræðin
til dæmis á Iffrænan hátt.
JJvað aðhafast börnin í þétt-
býlinu yfir sumartímann?
— Þau eru f skóla. Ekki í sfn-
um raunverulega skóla, heldur
öðrum skóla, vinnuskóla, sem
er búinn til, vegna þess að fólk
er f vandræðum með bömin á
sumrin, af því að það kemur
þeim ekki í sveit. Því ekki að
steypa þessu undir einn hatt.
Af hverju að vera að búa til
einhverjar sérstofnanir fyrir
bömin á sumrin. Aðeins litill
hluti skólabarna hér í þéttbýl-
inu á þess kost að dveljast f
sveit á sumrin. — Auk þess
kann þaö að vera vafasön holl-
usta, að slíta böm á viökvæm-
um aldri þannig gjörsamlega frá
umhverfi sínu og senda þau ein
sömul út í sveit til ókunnugs
fólks, þar sem þau mega dúsa
sumarlangt hvort sem þeim lík-
ar betur eða verr. — Það er
ekki nein aödróttun að sveita-
fólki, þó að sagt sé að margur
Islendingurinn hafi beðið óbæt-
anlegt tjón á sálu sinni við sum
ardvöl í sveit á unga aldri.
Hins vegar væri hugsanlegt
að hafa nemendaskipti milli
sveita og bæja á sumrin ef
skólatíminn yröi lengdur fram
á sumarið. — Til dæmis þann-
ig að kennarar færu með nem-
endum sínum til stuttrar dvalar
í heimavistarskóla úti í sveit,
en sveitabömin fengju í staðinn
að skreppa í bæinn. — Þetta
kann að reynast ógjöming-
ur í framkvæmdinni, en væri þó
athugandi.
171 skólarnir störfuðu fram á
sumar og tækju til starfa
snemma á haustin, væri hægt aö
reka ýmiss konar sérstarf innan
skólanna, sem einungis væri
miöað við sumarið. Mætti þar
auk kynnisferða og náttúru-
skoðunar, sem áður var nefnt,
nefna garörækt. Það væri hæg-
urinn hjá að láta nemendur
setja niður í garða á vorin og
hiröa þá og reyta, áöur en skóli
væri úti. Fyrsta verk þeirra
á haustin yrði þá að huga að
uppskerunni. — í hinum stærri
bæjum ætti ekki að vera nein
frágangssök að halda úti skóla
skipum. Þaö er furðulegt hvem-
ig tilraunir sem gerðar hafa ver
ið hér með skólaskip m. a. á
vegum Æskulýðsráðs hafa mnn
ið út í sandinn. — Mikla hreyf-
ingu yrði að hafa á skólastarf-
inu yfir sumartímann, efna til
gróöursetningaferða, fjallaferða,
berjaferða o.s.frv. — Unga fólk
ið lægi ekki í óráðsíu á meðan.
Hvað þá um sumarvinnuna? —
Það er alkunna að efnalitlir nem
endur vinna fyrir skólagöngu
sinni í sumarfríum. — Þaö get-
ur þó brugðiö til beggja vona
með sumarvinnu skólafólks,
eins og sannaðist bezt í sumar.
BÆJARBIO
. METRO-GOIDWYN MAVER ™«i>
ACAkOPONllFROOUCICN
DAVID LEAN'S FILM
OF BORIS PASIERNAKS
ÐOCTOR
ZHiVAGO 'N MEfflOCcíoA**10
Sýnd kl. 5 og 8.30.
Sala hefst kl. 3.
HAFNARBIO
Fjársjóðsleitin
Afar fjörug og skemmtileg am-
erfsk gamanmvnd i litum með
Haiyley Mills.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl 5, 7 og 9.
I syndafjötrum
(Verdamt zur SUnde)
Ný, pýzk úrvalsmynd meö
ensku tali, eftir metsölubók
Hennry Jagers (Die festing).
Aðalhlutverk:
Martin Ileld
Hildegard Knef
Else Knott
Christa Linder
Sýnd kl. 9 — Bönnuð börnum
innan 16 ára. — Miðasala frá
kl. 7.
icóPAVooseló
ST JORNUBIO
Ég er forvitin blá
Ný sænsk kvikmynd.
Stranglega bönnuð innan 16
ára.
Hörkuspennandí og ve! gerð
ný. frönsk lakamáíamynd.
Virna Lisi
Dominique Parturel
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuö bömum.
Fjöldi nemenda úr framhalds-
skólunum gekk atvinnulaus í
sumar. — Lengingu skólatíma
framhaldsskólanna yrði > að
fylgja fullkomið námsstyrkja-
kerfi, þar sem tekið yrði tillit
til aðstæðna nemendanna. Til
dæmis yrði að taka sérstakt til
lit til nemenda utan af landi,
sem verða að kosta miklu fé í
uppihald fjarri heimilum sínum.
Varðandi sumargróða nemenda
má einnig benda á það sem
margir góðir hafa sagt um fjár
ráð unglinga. Unglingi sem
kemur í bæinn að hausti með
sumarhýruna í vasanum, kann
aö þykja freistingar skemmt-
analífsins sætar.
Kennarar hafa löngum nælt
sér í drjúga launauppbót á
sumrum. Og mörgum þykir sum
arfríið höfuðkostur starfsins. —
En það hlýtur að vera vafasam-
ur þjóöhagslegur gróði að láta
sérmenntaða menn vinna tals-
verðan tíma úr sumrinu við
byggingarvinnu, skurðgröft,
eða löggæzlustörf. Væri ekki
nær að nýta þetta fólk betur í
sínu fagi og borga því þá aðeins
meira kaup.
jþaö er allt of útbreidd skoðun
að menntun sé bara lúxus.
Vitrir menn hafa sagt að mennt
un væri bezta fjárfesting þjóð-
félagsins. Erum við ekki að sóa
þessari fjárfestingu meö þess-
um rassaköstum. Þetta
langa sumarfrí slítur allt sam
hengi milli skólaáranna.
Of mikið af orku nemenda
og kennara fer I puð, sem á ekk
ert skylt við námið eða kennsl
una. — Styrkir til skólanema
og hækkun á launum kennara
myndu trúlega borga sig nokk-
um veginn, ef með lengingu
skólatímans væri hægt að stytta
námið um tvö ár. Þar gildir
sama lögmál og um verklegar
framkvæmdir. Þeim mun styttri
tíma sem tekur að ljúka verkinu,
þeim mun hagkvæmara.
En breytingar á skólakerfinu
verða að sjálfsögðu ekki gerðar
á einni svipan. Það er hins veg
ar sýnt hvert stefnir. Skóli yngri
bama hefur veriö lengdur smátt
og smátt. Þannig ætti að halda
áfram upp eftir skólakerfinu,
unz enginn skóli hefur lengra
sumarfri en tvo mánuði.
LAUGARASBIO
Dulmálið
Spennandi amerísk njósna-
mynd í litum og Cinemascope
með '-lenzkum texta.
Sophia Loren og
Gregory Peck.
Endursýnd kl. 5 og 9.
TÓNABÍÓ
Islenzkur texti.
Goldfinger
Heimsfræg ensk sakamála-
mynd 1 litum.
Sean Connery.
Endursýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.