Vísir - 04.11.1968, Blaðsíða 2
VALUR varB Reykjavíkurmeistarí
VALSMENN eru Reykja
víkurmeistarar í hand-
knattleik 1968. — Þeir
unnu Fram öðru sinni í
gærdag í sérlega
skemmtilegum og snörp
um úrslitaleik mótsins.
Loks nú var eins og
handknattleiksunnendur
tækju við sér, þeir fjöl-
Gylfi Hjálmarsson er kominn inn á línuna og skorar fyrir Fram,
— það dugði þó ekki til.
16870 - 24645
Nóvember söluskróin
er komin út. Komið eða hringið og við sendurn yður
hana í pósti endurgjaldslaust.
Vorum að fá i sölu:
4ra herb. endaíbúð á 2. hæð við Kleppsveg.‘Sér-
þvottaherbergi á hæðinni, suðursvalir. Tvöfalt gler.
Teppalögð. íbúðin er í mjög góðu ástandi. — Verð:
1250 þús. Útb. 600 þús., má skiptea.
Raðhús við Smyrluhraun í Hafnarfirði, tilbúið undir
tréverk. Húsið er á 2 hæðum, um 70 ferm. hvor.
Skipti á 4ra herb. íbúö möguleg.
Austurstræti 17 (Silli & Valdi), 3. hæð
Síniar 16870 & 24645 Hvöldsími 3 0587
Stefán J. Richter sölum. Ragnar Tómasson hd/.
Hér eru Valsmenn, Reykjavíkurmeistararnir í ár, ásamt þjálfara sínum, Reyni Ólafssyni.
menntu, einkum ákafir
Valsaðdáendur, sem
hrópuðu taktfast með
liði sínu og voru ómet-
anlegur stuðningur fyr-
ir liðið.
Valsmenn byrjuðu vel og
skoruðu tvö fyrstu mörkin. Þar
voru þeir að verki, Bjarni Jóns
son og Jón Karlsson, en Ingólf-
ur og Gylfi Hjálmarsson jöfn-
uðu þetta.
Hermann Gunnarsson kom
skömmu síðar inn á og byrjaði
sannarlega vel, skoraði 3 mörk
í röð og staðan varð því 5:2
fyrir Val, en tvö síðustu mörk
in fyrir leikhlé skoraði Gylfi
Jóhannsson fyrir Fram, staðan
var því 5:4 í hálfleik.
rýfur Valur sigurgöngu Fram-
ara.
Þetta Valslið, sem þama barð
ist svo vel ætti sannarlega að
vera i hópi hinna „stóru“ í
handknattleiknum í vetur. Er
ótrúlegt annað en að Valur
blandi sér í toppstríðið. Það
sem er ekki svo lítið atriði er
það að Jón Breiðfjörð markvörð
ur þeirra er geysigóður, vörnin
er góð og í framlinunni eru
margir ,beittir‘ leikmenn og leik
menn sem kunna að taka lífinu
meö ró, þegar á þarf að halda,
t.d. Jón Ágústsson. Þess vegna
ætti Reykjavikurtitillinn aðeins
að verða viðkomustaður að öðru
og stærra takmarki hjá Val.
Framararnir voru greinilega
mjög taugaóstyrkir fyrir átök-
in gegn þessum nýja „óvini“.
Þorsteinn varði vel í markinu,
m.a. tvö vítaskot. Hins vegar
fannst mér leikur Fram ein-
hvern veginn bera vott um
stöðnun í liðinu. Það var eins og
allt hugmyndaflug vantaði í leik
liðsins. Eru öll kerfin ekki far-
in að gera menn leiða og
þreytta? Ég bara kasta þessari
spurningu fram, Gunnlaugur
reyndi aldrei að skjóta gegnum
vörnina, hafði þó mörg tæki-
færi til þess. Féll það ekki
inn í kerfið?
^PRESSULIÐIÐ
Seinni hálfleikurinn var ó-
venjuskemmtilegur og spenn-
andi. Einu sinni tókst Fram að
ja'fna metin. Þeir voru yfirleitt
marki undir, en þegar tæpar
tvær minútur voru til leiksloka
jafnaði Amar fyrir Fram af
línu 10:10. Valur átti betri til-
raunir það sem eftir var og
Jóni Karlssyni tókst að skora
sigurmarkið þegar nokkrar sek-
úndur voru eftir af leiknum.
Framarar hafa undanfarin 8
ár verið svo til einir um hituna
í Reykjavikurmótinu. Fyrir 3
árum tókst KR að vinna mótið
en síðan Fram tvivegis og nú
VALIÐ
® Pressuliðið var valið í gær, en
það á að leika við landsliðið annað
kvöld í Laugardalshöllinni. Blaða
menn völdu eftirtalda menn í lið
sitt:
Hjalti Einarsson, FH, Kristinn
Pedersen, Ármanni, Jón Karlsson,
Val, Gunnlaugur Hjálmarsson,
Fram, fyrirliði, Guðjón Jónsson,
Fram, Þórður Sigurösson, Hauk-
um, Jón Ágústsson, Val, Vilhjálmur
í GÆR
Sigurgeirsson, ÍR, Þórarinn Ölafs- ,
son, Víking, Sigurður Óskarsson,
KR, Stefán Jónsson, Haukum og '
Brynjólfur Markússon, IR.
Leikurinn hefst kl. 20.15. ,
Kenyamenn vilja
halda ©L
árið 1976
Ti/wttás
Glæsilegustu og vönduðustu
svefnherbergissettin fóst hjá okkur
Munið einkunnarorð okkar:
Úrval, gæði og þjónusta
Kenya mun reyna að fá að halda
Ölympiuleik-na 1976. Var tilkynnt
um ákvörðun þessi í Narobi á föstu
daginn af ráðherra þeim sem fer
með málefni íþróttafólks við komu
Ólympíufara landsins.
Fari svo að Kenya fái leikana,
verður það í fyrsta skipti sem leik
arnir verða háðir á meginlandi
Afríku. Sú ákvörðun mundi einnig
færa fram vandamál í sambandi við
háfjallaloftslag eins og í Mexíkó
nú. Nairobi er nefnilega, í 1660
metra hæð yfir siávarmSli.
Fimm af keppendum Kenya á
ÓL í Mexíkó hafa fengið tilboð
um styrki í Bandarikjunum í vetur
en Kenyaliðið vakti stórkostlega
athygli fyrir afrek sín á leikunum.
Næstu Ólympíuleikar verða
haldnir í Múnchen í V-Þýzkalandi
1972.
íaamrmKmmw-ia'u
.__33t~