Vísir - 04.11.1968, Síða 7
V1SIR . Mánudagur 4. nðvember IMS.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd 1 morgun
útlönd
Forsetakjör í Bandaríkjunum á morgun
Humphrey og Nixon birtu yfirlýsingar i gær
varhandi samkomulagsumleitanir um frið
i Vietnam
□ Forsetakjör fer fram í
ilandaríkjunum á morgun.
díkia athygli hefur vakið
Humphrey.
afstaða forsetaefnanna
Humphreys og Nixons
varðandi samkomulagsum
leitanirnar um frið í Víet-
nam.
Humphrey sagöi í rœöu, sem hann
flutti i Washington í gær, að hann
væri viss um, að stjórnin í Suður-
Víetnam myndi að lokum fallast á
að senda nefnd manna á Víetnam-
ráðstefnuna í París. Hann kvaðst
ekki vera þeirrar skoðunar, að um-
mælti van Thieu forseta myndu
verða til hnekkis viðleitni Banda-
ríkjastjórnar, að binda endi á styrj
öldina I Víetnam.
í Washington er litið svo á, aö
Humphrey hafi í ræðu sinni túlkað
sjónarmið stjómarinnar, en hún líti
svo á, að yfirlýsingar van Thieu
séu fram komnar til þess að ganga
ekki í berhögg við þá menn í Suð-
ur-Víetnam sem vilja að styrjöild-
inni verði haldið áfram.
Nixon sagði í gær, aö ef hann
yrði kjörinn forseti byðist hann til
þess að fara þegar í stað til Parísar
á vegum Johnsons forseta til þess
að gera tilraun til að hraða sam-
komulagsumleitunum um frið í Ví-
etnam.
Hann kvaö svo að oröi, að ef
repúblikanar og demokratar hefðu
samstöðu í málinu, myndi það auka
líkurnar fyrir, að samkomulag gæti
náðst um frið.
Nixon lagði áherzlu á, að John-
son forseti og Dean Rusk utanríkis-
ráðherra veröi að taka ákvörðun
um það — veröi hann kjörinn for-
seti hvaða hlutverk hann hafi með
höndum þar til eftir áramótin er
hinn nýi forseti tekur við.
New York í morgun: í Banda-
ríkjunum óttast menn svo jöfn úr-
slit í forsetakosningunum, sem
fram fara á morgun, að endanlegt
vard forsetakjörs lendi hjá fulltrúa
deildinni.
Nixon forsetaefni republikana
hefir lýst yfir, að sá eigi að sjálf-
sögðu að verða forseti, sem flest
fær kjörmannaatkvæðin. I-Iann
kveöst undir engum kringumstæð-
um eiga nein kaup við George
Wallace, hinn óháða frambjóðanda.
Johnson Bandaríkjaforseti hefir
haldið ræðu, og er líklegt, að hann
hafi í henni flutt seinustu hvatn-
ingu sína til þjóðarinnar, að greiða
þeim Humphrey og Muskie atkvæði
I-Iann bar mikið lof á þá sem hæfa
til hlutverksins og kvað þá menn,
sem ekki myndu bregöast.
NTB
Úrslit seinustu skoðanakannana
í Bandaríkjunum um fylgi forseta-
efnanna sýna, að Humphrey er nú
alveg á hælum Nixons, sem fékk
42 af hundraði atkvæöa og Hump-
hrey 40, Wallace fékk 14 af hundr-
aði í skoðanakönnun Gallupstofn-
unarinnar og 12 hjá Louis-Harris
stofnuninni. Úrslitin hjá Nixon og
Humphrey hafa ekki fyrr verið
jafnlík hjá báðum stofnununum.
Hjá Gallup voru 5% ekki búin að
ákveða sig og 6 af hundraði hjá
Louis Harris.
Þeir, sem reyna að gera sér grein
fyrir kosningunum á grundvelli ein-
stakra ríkja og kjörmannatölu
Nixon.
þeirra og leggja saman kjörmanna-
tölur þeirra allra, benda á að þótt
repúblíkanar og demókratar fái
jafna tölu kjósenda-atkvæða, bendi
allt til að Nixon geti „skrapað
saman“ eins og það er orðað, nægi-
lega mörg kjörmanna-atkvæði til
að sigra, eða 270.
Houston:Johnson sagði í morgun,
er hann ávarpaði kjósendur, að
kynþáttahatur mvndi magnast og
efnahagsleg ókyrrð, ef Humphrey
næði ekki kosningu.
Feikna fíóð
á Norður-ltalíu
hiklegt, að á annað hundrað manns hafi farizt
Enn engar l'ikur til, að
stjórn S-Vietnam og jb/óð-
frelsishreyfingin taki jbdtt í
Parísarráðstefnunni
Mikil flóð hafa orðið á Norðar-
taKU og er óttazt, að á annað
hundrað matms hafi farizt.
Á laugardag fór vatn aö flæða
inn í bæi og þorp að undan-
genginni feikna mikilli tveggja sól-
arhringa úrkomu. Vatnið æddi nið-
ur dal, eftir að fyrirhleðsla brast og
sópaði með sér brúm og símastaur-
um og eyðilagði vegi. Mest er
tjónið í Vercellihéraði. — f her-
tjórnarstöðinni í Torino var sagt,
'ið 40 manns hafi farizt f Vallem-
isse-dalnum.
I Feneyjum var vatnið orðið einn
og hálfur metri á dýpt, er það
byrjaði að sjatna dálítið I gær.
Herlið hefur verið sent á vett-
vang og björgunarþyrlur.
^á segir, að yfir 40 slasaðir menn
hafi verið fluttir af flóðasvæðinu.
Gistihús og önnur hús eru um-
flotin vatni og hefst fólk við á
efri hæðum húsanna, þar sem flætt
hefir inn í kjallara og grunnhæðir.
Biella, Ítalíu: Unnið er af kappi
að björgunarstarfi. Kunnugt er, að
70—100 manns hafa farizt á flóða-
svæðunum, en öll kurl munu hvergi
nærri komin til grafar.
lítför Papandreou
Hernaðarstjórninni
sýnd andúð
Útför Georgs Papandreou fyrir
verandi forsætisráðherra Grikk-
lands fór fram í gær og er taliö
að 250.000 manns hafi safnazt sam-
an í Aþenu til þess að votta minn-
ingu hans virðingu.
Mikill fjöldi blómsveiga barst, m.
a. frá hernaðarlegu stjórninni, en
mannfjöldinn sýndi henni mikla
andúð, og hrópaði mannfjöldinn:
Lifi lýðræðið og Niöur með hern-
aðarstjórnina.
Til átaka kom við lögregluna og
voru 15 menn handteknir.
London í morgun: Stjórnmála-
fréttaritarar ræða hina augljósu
andúð, sem hernaðarlegu stjórninni
var sýnd af 250.000 manns í Aþenu,
við útför, er menn m. a. hrópuðu:
Niður með fasistana. Telja stjórn-
málafréttaritarar andúöina augljós-
an vott um óvinsældir stjórnarinn-
ar og ögrun við hana.
Um 40 menn voru handteknir í
átökum viö lögregluna.
Landskjólfti í
Montenegro
Belgrad í gær: Mikill landskjálfti
varð í gær i Montenegro og hlauzt
af mikið tjón í þorpinu Pistula og
víðar i suðurhluta landsins.
1 Pistula var kirkja meðal bygg-
inga sem hrundu. Öldruð kona
beið bana og fimm skyldmenni
hennar slösuðust.
Upptök eru talin 330 km. fyrir
sunnan Belgrnd í grennd við Skad-
arim-vatn í Albaníu.
Olíuskip ferst við
Spdn — Einn
maður komst lífs af
London í gær: Fregnir hafa bor-
izt u..i að 13.000 lcsta grískt olíu-
skip Spyros Lemos, skrásett í
Liberíu, hafi farizt við Spánarstrend
ur.
Einn maður komst lífs af. Eftir
honum er haft að skipið hafi klofn-
að í tvennt og aðrir af áhöfninni
farizt, er afturhluti skipsins sökk.
París í gær: Ekki er enn vitað,
hvort fulltrúar þjóðfreisishreyfing-
arinnar sitja venjulegan miðviku-
dagsfund Víetnamráðstefnunnar nú
í vikunni. þar sem engar líkur eru
fyrir því eins og stendur, að stjórn
Suður-Víetnams sitji fundinn. Leið-
togar S.-V. hafa hamrað á því, að
stjórnin sitji ekki fundinn, þar sem
hún viðurkenni þjóðfrelsishreyfing-
una.
Washington: Framtíð Suður-Ví-
etnam verður ekki rædd á fundin-
um í París á miðvikudag, en haft
er eftir Averill Ilarriman, að það
séu ýmis atriði, sem unnt sé að
ræða, svo sem hversu draga megi
frekar úr hernaðaraðgerðum.
Moskva: 1 tilkynningu, sem Tass-
fréttastofan hefur birt, er sagt í
fyrsta sinn frá undirtektum sovét-
stjórnarinnar varðandi stöðvun á-
rásanna á Norður-Víetnam. Segir
þar, aö sá skilningur, sem náðst
hafi á Parísarráðstefnunni sé mik-
ilvægt skref í áttina til friðsam-
leerar lausnar.
Saigon: Þrátt fyrir tilmæli John-
sons Bandaríkjaforseta um að gera
ekki árásir á þéttbyggð svæöi skutu
Víetcongliðar af sprengjuvörpum og
fallbyssum á einn mikilvægasta bæ
inn á Mekongósasvæðinu.
Af bandarískri hálfu í Saígon var
ekki tekið hart á þessu í umsögn og
var gefiö í skyn, að ýmsir herflokk-
ar Víetcong væru ekki búnir að fá
tilkynningu um tilmælin, en her-
stjórn myndi vafalaust gefa þeim
sín fyrirmæli á grundvelli þess, sem
gerzt hefði og miðaði í friðarátt.
Viðræður fara fram í Parfs milli
fulltrúa Bandaríkjanna og Norður-
Víetnatn um þau atriði, sem unnt
er að ræða þrátt fyrir fjarveru þjóö
frelsishreyfingarinnar og stjórnar
Suður-Víetnam.
Saígon í morgun: Barizt er á-
fram í Suður-Víetnam. Árásum á
Norður-Víetnam hefur verið hætt,
en Bandaríkjamenn hafa hert loft
árásir á stöðvar á valdi Víetcong
og Noröur-Víetnama í Suður- Víet-
nam, og á flutningaleiðir þeirra, og
einnig loftárásir á hina svonefndu
Ho Chi Minh-leiö í Laos. — Vfet-
congliðar hafa skotið af sprengju-
vörpum og fallbyssum á tvo bæi á
Mekongósasvæðinu.
í Saígon hallast ýmsir nú að
þeirri skoðun, að stjómin kunni að
senda menn á Víetnam-ráöstefnuna
seinna, þótt hún geri það ekki i
bili. Fulltrúar stjórnarinnar neit-
uðu að láta hafa neitt eftir sér,
er þeir voru spurðir nema að að
opinber talsmaður sagði, að það
„væri næstum því öruggt", aö
stjórnin sendi ekki fulltrúa til Par-
ísar fyrir fundinn á miðvikudag.
Sextan þúsund
lesta skip rekur
stjornlaust d
N-Atlandshafi
Norska skipið „Étnafjell“ frá
Oslo, ,16.000 lesta skip með 34
manna áhöfn var á reki í gærkvöldi
á Norður-Atlantshafi.
I frétt um þetta frá New York
var sagt, að sjógangur væri mik
ill og öldur fimm metra háar. Eldur
mun hafa komið upp í skipinu, en
verið slökktur. Vél skipsins var
ekki í gangi og bendir það til, að
eldurinn hafi komið upp í vélar
rúminu.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar og sendiferðabifreið
er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðviku-
daginn 6. nóvember kl. 12—3.
Tilboðin verða opnuð kl. 5.
Sölunefnd vamarliðseigna.
ÍBÚÐ
Óska eftir 2—3 herbergja íbúð. Upplýsingar
í síma 24109 eftir kl. 4.
Kjarakaup
Gólfteppabútar úr 100% ull á aðeins hálfvirði.
Teppi á herbergi, ganga og stiga. - Mottur, litlar og
stórar, margir litir.
Ennfremur vegghúsgögn . fl. á góðu verði.
VÖRUÞJQNUSTAN
VIÐ STAKKHOLT . SÍMI 22959