Vísir - 06.11.1968, Blaðsíða 3
'VÍSIR . Miðvikudagur 6. nóvember 1968.
J
ungu stuðningsmanna repúblikan-
ans í fylkinu Oregon. Hlýtt handtak frambjóð andans er fastur liður í bandarískum kosn
Ameríka kaus í gær. Fólk um
allan heim hefur fylgzt með
miklum áhuga með kosningun-
um, þar sem úrslit þeirra hafa
víðtæk áhrif á líf nánast hvers
einasta manns á jörðinni.
Þrír frambjóðendur komu til
greina sem sigurvegarar. Hub-
ert Humphrey, varaforseti
Bandarikjanna, átti lengst af
erfitt uppdráttar vegna tengsla
við hina umdeildu stefnu John-
sons forseta. Smám saman safn
aðist þó á hann fylgi úr röðum
frjálslyndari hluta þjóðarinnar,
og hann tók að vinna á.
Richard Nixon, frambjóöandi
republikana, hafði yfirburði
lengst af í kosningabaráttunni.
Hann er maður, sem Bandaríkja
menn kalla „loser", sá, er tap-
ar, en slíkir menn eru 'ekki
sérstaklega virtir þar í landi.
Samt sýndu kannanir, að hann
var langfcrstur frambjóðenda í
baráttunffl, hafði mest fylgi,
unz degi fyrir kosningarnar, er
Humphrey var talinn standa
honum jafnt.
Frambjóðandi öháðra var
George Wallace, fyrrum ríkis-
stjóri og Suðurrikjamaður.
Hann hefur skírskotað til
þeirra Bandarikjamanna, sem
telja hvíta kynstofninn öðrum
fremri og vilja sem mest sjálf-
ræði einstakra ríkja innan
Bandaríkjanna. Fylgi hans hrak
aði fremur, er kosningar nálg-
uðust, en virtist þó allverulegt,
jafnvel svo, að úrslituin kynni
að ráða.
I heild virtist almenningur
ekki hafa sérstakar mætur á
seðilinn í póstkassa við Walter Reed hersjúkrahúsið í Wash-
ington, þar sem eiginmaðurinn hefur legið um hrið. Með
frúnni er Delores Moaney, vinnukona hjá fjölskyldunni.
AMERÍKA KÝS!
neinum þessara frambjóðenda.
Þeir Robert Kennedy, Nelson
Rockefeller og McCarthy 'virt-
ust litrikari menn, sem örvuðu
frekar til stuðnings eða andúð-
ar kjósenda. Þó urðu menr\ að
taka afstöðu. Línurnar skýrð-
ust í baráttunni, — Nú eru kosn
ingarnar afstaðnar, og eins og
alltaf í kosningum, má deila um,
hvort kjósendur hafi kosið
,,rétt“. I lýðræðisriki er það
þjóöarviljinn, sem úrslitum ræð
ur, og reynslan ein getur skorið
úr.
Án orða lýsir þessi unga
stúlka aðdáun sinni á Hubert
Horatio Humphrey. Með
mynd af frambjóðandanum
að baki tekur hún sig vel
út í „Humphrey-kjól“, sem
myndar stafinn H, og á hatt-
inum eru stafirnir HHH allt
í kring.
1