Vísir - 09.11.1968, Síða 6
V1SIR . Laugardagur 9. nóvember 1968.
TÓNABBÓ
1“—Listir -Bækur -Menoingarmág - —— —I
? Loftur Guðmundsson skrifar leildistareaenrvni: HBiBiiH!
Víðfræg og snilldar vel gerö,
ný, amerfsk gamanmynd. —
Myndin er gerð af hinum
heimsfræga leikstjóra Billy
Wilder Walther Matthau fékk
„Oskars-verðlaunin" fyrir leik
sinn í þessari mynd.
Jack Lemmon
Walther Matthau.
Sýnd kl. 5 og 9.
=T=
NYJA BIO
4. vika
HER
NAMS!
SEIÉl
.... ómetanleg heimild . . stór
kostlega skemmtileg. ... Mbl.
... Beztu atriði myndarinnar
sýna "iureign hersins við
grimmdarstórleik náttúrunnar
f landinu. ... Þjóöviljinn.
Verðlaunagetraun
Hver er maðurinn?
Verðlaun 17 daga Sunnuferð til
Mallorca fyrir tvo.
Bönnuö yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
HAFNARBÍÓ
Demantaránið mikla
Hörkuspennandi, ný litmynd
um ný ævintýri lögreglumanns
ins Jerry Colton, með
George Nader
Silvie Solar
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAftUA BÍÓ
Leikfélag Reykjavikur:
Yvonne
eftir Witold Gombrowicz
Þýðing: Magnús Jónsson
Leikstjóri: Sveinn Einarsson
~p|g hef oft furöað mig á því
að þeir myndlistarmenn,
sem aöhyllast abstraktstíl í verk
um sínum, eru allir snillingar,
eða svo gott sem ,ef marka má
gagnrýnina. Það gildir einu þótt
viðkomandi listamaöur eigi ör-
skamman námsferil að baki —
ef hann aðeins málar eða mót-
ar abstrakt, nær hann samstund
is, ef marka má gagnrýnendur,
þeirri fullkomnun sem aðrir
listamenn ná fæstir, og þá ekki
fyrr en eftir langa og stranga
baráttu. SviDað er að segja um
þá er semja ljóð, sögur eða leik-
rit f hliðstæöum dúr við abstrakt
myndlistina, þeir eru allir viður-
kenndir snillingar tafarlaust. Sér
hver sæmlega skvnsamur mað-
ur hlýtur að sjá að það er eitt
hvað bogið við þá gagnrýni.
Stfll eða stefna getur ekki
skapað snilli. Þama hljóta að
vera að verki allmargir meðal-
menn i listinni, nokkrir fúskar-
ar og — örfáir útvaldir, sem
berjast við viðfangsefnin af
einlægni og festu, og ná mikl-
um árangri eftir haröa baráttu.
Þessi hugsun hefur oft ásótt
mig þegar ég hef lesið skrif ým-
issa gagnrýnenda. Hún ásótti
mig líka nokkuð, þegar ég var
viðstaddur frumsýningu Leikfé-
lags Reykjavíkur á sjónleiknum
„Yvonne" eftir pólska rithöfund
inn Witold Gombrowicz f Iðnó
sl. miövikudagskvöld. 1 leikskrá
og í viðtölum, sem birzt hafa
í dagblööum er fyllilega gefið
í skyn, að þama sé á ferðinni
snilldarverk. Ég hef lesið all-
mörg leikrit, sem samin em í
svipuðum stíl, og séð nokkur
flutt á sviði. Að mínum dómi
hafa þau verið misjöfn að gæð-
um eins og leikrit, sem samin
em f öðmm stíl, einstaka mjög
góð, mörg skemmtilegar tilraun-
ir, en önnur misheppnaðar til-
raunir. En þau hafa undantekn-
ingarlaust átt það sammerkt að
þeim hefur verið fylgt úr hlaöi
sem snilldarverkum. Þama
skjöplast þvf annaðhvort mér
eöa þeim, sem gáfu verkum
þessum hina glæsilegustu eink-
unn. Eins þegar ég tel að „Yv-
onne“ sé fyrst og fremst
skemmtileg tiíraun höfundarins
innan ramma hins ákveðna
forms, skemmtileg tilraun höf-
undar, sem býr yfir svo miklum
hæfileikum og hefur náð þeim
þroska í list sinni, að hann læt-
ur ekkert lélegt frá sér fara og
kastar ekki höndum til neins.
En mér er ekki unnt að undir-
rita það, að þarna sé á ferð-
inni stórbrotið snilldarverk.
Efni leikritsins hefur áöur
verið nokkuð rakið f dagblöð
um, eins ferill listamannsins, og
verður það ekki endurtekið hér.
Magnús Jónsson hefur þýtt leik-
ritiö á íslenzku og nær víða
prýöilegum sprettum á lifandi
máli, en á stundum er sem votti
fyrir hnökrum, og má það kall-
ast vel sloppið. Annars er þaö
fjarstæöa að ætla sér að fella
nokkum dóm um þýðingu eftir
að hafa eingöngu heyrt hana
flutta einu sinni á leiksviði, og
hafa ekki kynnt sér neitt frek
ar í sambandi við verkið. Mér
finnst að vísu, að það hljóti aö
hafa verið erfitt að snúa þessu
leiksviðsverki á fslenzku, og að
þýöingin sé vel unnin, með til-
liti til þess. Sveinn Einarsson
annast leikstjórn, en Una Coll-
ins hefur teiknað búningana og
séð svo um, að sýningin veröur
hin litríkasta innan ramma
hinnar fábrotnu en stílhreinu
leikmyndar Steinþórs Sigurös-
sonar. Leikstjórinn veit fyllilega
hvað hann er að gera, þegar
hann sviðsetur verkið sem eins
konar brúðuleik — í óeiginlegri
merkingu að vísu — breytir vel
flestum leikendum í hugsun-
arlausar og viljavana glysbrúð-
ur f höndum örlaganna, sprikl-
Frá vinstri, Þórunn Sigurðardóttir (Yvonne), Pétur Einars-
son (Cyril), og Borgar Garðarsson (prinsinn).
andi, háværar og annarlegar f
nístandi mótsögn við „herfuna"
hina þöglu, óvirku andstæðu,
sem þó er einnig sínum örlög-
um háð.
Þórunn Sigurðardóttir, nýliöi
á sviði að kalla, leikur hið
vandmeðfama hlutverk „herf-
unnar", Yvonne, og enda þótt
það sé ærið einhliða frumraun,
leysir hún hana þannig af hendi,
að áhorfendum hlýtur að veröa
hún minnistæö. Ef til vill f og
með vegna þess hve hlutverkið
er einhliða, hvaö túlkunar-
máta snertir — án orða að
heita, má, án sjálfstæðra hreyf-
inga, aðeins svipbrigði og
augnaráð. Hins vegar veitir það
Þórunni ekki tækifæri til að
sýna hvað í henni kann að búa
til fjölþættari túlkunar, en
þama tekst henni svo vel, þrátt
fyrir hinn þrönga stakk, aö ekki
hafa margir betur af stað farið.
Af ásettu ráði, eins og áður
er getið, steypir leikstjórinn
leik flestra hinna í sama mðt-
ið, ef svo má að orði komast.
Þar er yfirdrepsskapurinn, lífs-
lygin og falsið til öndvegis leitt
f glæstu yfirborðsskarti og sker
sig enginn frá öörum í hirö-
mennskunni við hégómann.
Kannski er höfundurinn í og
með að tefla veruleikanum
gegn þeirri hirðmennsku, aö
„herfan“ Yvonne sé tákn þess
hvemig hann hljóti að líta út
í augum þeirrar hiröar — hann
lætur allt laust og bundið um
það, hvað hann sé aö fara. Þarna
eru Jóh Sigurbjömsson og Sig-
ríður Hagalín kóngur og drottn-
ing af Búrgund; Borgar Gáröars-
son prins, Jón Aðils hirðstjóri,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og
Helga Kristín Hjörvar, hirð-
meyjar; Guðmundur Erlendsson
og Jón Hjartarson fyrirmenn;
Pétur Einarsson og Sigurður
Karlsson og Helga Jónsdóttir
eitthvað áhangandi hirðinni —
og allt dregur þetta fólk dám
hvert af öðru. Þær Emilfa Jón-
asdóttir og Þóra Borg eru á
eins konar millibili blekkingar-
innar og raunveruleikans, —
frænkur Yvonne — og sama er
að segja um aödáanda hennar,
Innocenty, leikinn af Kjartani
Ragnarssyni; nafnið segir nokk-
uð til um persónugerðina, og
Daníel Williamsson leikur betl-
ara, en Harald G. Haraldsson
þjón, hvort tveggja lftil hlut-
verk.
Leiknum var mjög vel tekiö,
enda átti hann og allir, sem að
honum stóðu, það fyllilega skil-
ið. Gott leikrit, samið í absúrd-
stfl, ef endilega þarf að draga
sérhvert verk f einhvem stfl-
dilk, stendur að sjálfsögðu jafn-
fætis sérhverju öðru góðu leik-
sviðsverki, sem samiö er í aö-
gengilegri stfltegund, hvorki
betra né verra og að mínum
dómi er þetta gott leikrit;
skemmtileg tilraun með form og
stíl, sem telja mátti nýstárlegt
þegar það var samið. Það er
annars dálítið merkilegt hve
pólskum leikritahöfundum læt-
ur vel svipaður stíll — kannski
er hann þrautalending þeirra,
sem ekki kjósa að leggjast við
hafnarbakka pólitiskrar rit-
skoðunar; kærkomið tækifæri
tií að segja undan og ofan af
meiningu sinni án þess á verði
haft. En hvað um það — slfkri
leikritun fylgir alltaf sams kon-
ar hætta, eins og abstrakt
myndlist og atómkveðskap, að
gagnrýnin taki eitthvaö svipaða'
afstööu til þeirra og hirðmenn-
irnir forðum til nýju fatanna
keisarans.
41UUb
1
WINNER OF 6 ACADEMY AWARDSl
MHROGOiOWYN MAYEfi "
ACAfilO PONTI PROtXJCTON
DAVID LEAN'S FILM
Of BORIS PASTERNAKS
Bocroi*
ZHilAGO IN mentbvoIc?oraí’°
Sýnd kl. 4 og 8.30.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Dulbúnir njósnarar
Mjög spennaná, og skemmti-
leg frönsk kvikmynd. Dansk-
ur texti.
Lissó Ventura
Sýnd kl, 5 og 9..
Bönnuð bömum innan 12 ára.
Eg er kona II
Ovenju djörf og spennandi, ný
dc isk litmvnd gerð eftir sam-
nefndri sög. Siv Holms.
Sýnd 1 5.15 og 9
Bönnuö bömum innan 16 ára.
HÁSKÓLABÍð STJÖRNUBÍÓ
Endalaus barátta (The long duel) Stórbrotin og vel leikin lit- mynd frá Rank. Myndin ger- ist á Indlandi, byggð á skáld- Harðskeytti ofurstinn fslenzkur texti , Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára.
sögu eftir Ranveer Singh. Aöalhlutverk: Yul Brynner BÆJARBÍÓ
Trevor Howard Harry Andrews íslenzkur texti. Sýnd kl. 5 og 9, Bönnuð innan 16 ára. Heimsfræg mynd í sérflokki. Sigurvegararnir Stórfengleg, ensk amerísk stór mynd frá heimsstyrjöldinni síð ari, eftir sögu Alexander Bar- on. — Aðalhlutverk:
George Hamilton George Peppard Melina Mercouri Sýnd kl. 9. — Bönnuð börnum innan 14 ára.
YVONNE í kvöld, önnur sýn ing. MAÐUR OG KONA, sunnud. Aðgöngumiðasalan i lönó er opin frá ki 14. Sfmi 13191. Blóðrefillinn Afar spennandi ensk ameriak þardagamynd. Sýnd kl. 5. Bönnuð börnum innan 12 ára.
LAUGARÁSBIO
Vesalings kýrin
(Poor Cow)
Hörkuspennandi ný, ensk úr-
valsmynd . litum.
Terence Stamp og
Carol 'T/hite.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
mw
sísni.'b
þjóðleTkhúsið
Puntila og Matti
Sýning f kvöld kl. 20:
Hunangsilmur
Sýning sunnudag kl. 20.
Aðgöngumiðasaian oþin frá kl.
13.15 til 20. Sími 1-1200.
/