Vísir


Vísir - 09.11.1968, Qupperneq 9

Vísir - 09.11.1968, Qupperneq 9
í YÍQIR . Laugardagur 9. nóv^mber 1968. VIÐTAL DAGSINS er v/ð Birgi Sigurðsson, nýjan mann / hópi Ijóðskálda „Hröð er íörin örskömm dvöl á áningarstað verum því hljóð hver snerting er kveðja í hinzta sinni“ • Svona yrkir Birgir Sigurðs- son, nýtt ljóðskáld, sem hefur nú fengið útgefna fyrstu bðk sína — Réttu mér fána. — Það eru tómar mellur, sem vinna á blöðum, segir Birgir. — Kannski ekki vísvitandi, en mellur samt. Ég var einu sinni blaöamaður, þá hafði maður lag á því að gera samvizku blaðsins að eigin samvizku. Blöð kunna að gera andrúmsloftiö einkar spennandi, og þá á maður ekki sérlega erfitt með aö glata sam- vizkunni. Aðalhlutverk blaða er að telja almenningi trú um, að eitthvað sé að gerast. — Svo hætti ég í blaða- mennsku og fór að kenna. Kennslan er mitt sumarfrí. Ekki sumarfrí til að skoða blóm, heldur til að skoða sjálfan mig, og til að hafa tíma fyrir sjálfan mig, en það leyfist manni ekki á þessum tímum, þegar allt krefst þess, að þú eyðileggir sjálfan þig og verðir eitthvað annað. — Þetta er þjóðfélag fram- leiðslueiningarinnar og þjóðfé- lagið lifir á kostnað mannsins. Það verður æ erfiðara að vera maður í þjóðfélagi, sem leitast við að afnema mannleg verð- mæti. Kannski er verið að fram- leiða einhver verðmæti, þau gera a.m.k. manni kleift að fá í vömbina. — Það er rétt, að svangur maður biður um brauð en ekki ljóð, en brauðið er honum ljóð, því að hann hefur það ekki. Nú þurfum við ljóð, því að allur á- róður í dag miöast við fram- leiðslueininguna. Það er ekki miðað við, hvers virðj maður er öðrum einstaklingum, því að áróðurinn stefnir að því að gera þig að hlut meðal hlutanna. • Birgir er um þrítugt, í útliti ekki ósvipaður bróður sín- um, Inglmar Erlendi Sigurðs syni, sem margir kannast við t.d. fyrir bækumar „Borgarlíf“ og „Islands- vísa“. Hann talar hægt, og þagnar stundum inni i miðj- um setningum: — Öll þjóðfélög vinna aö því að drepa sálina. Ef þjóðfélagið á að verða samferða manninum, verður það að skiljast, að þaö er til vegna hans, en ekki hann vegna þess. — Við höfum skapað hug- sjónir, sem eru óendanlega miklu stærri en við sjálfir. Við höfum skapað kerfi út frá þess- um hugsjónum, sem eru óend- anlega miklu minni en hugsjón- imar. Við höfum skapað hug- sjónir, sem menn hafa nærzt á. Viö höfum skapaö kerfi, sem hafa nærzt á mönnum. Og viö höfum verið að upplifa þann makalausa hlut, að hugsjónir verða kerfisbundinn glæpur. — En í raun og veru sýnir þetta aðeins ófullkomleika mannsins, og undirstrikar nauð- syn hugsjónanna. Og i þessum heimi, þar sem hver kynslóð virðist eiga þaö eitt erindi að fullkomna glæpi liðinna kyn- slóða, veröur þaö æ nauðsyn- legra að trúa á hugsjónina í manninum, en afneita kerfinu f hugsjóninni. Birgir Sigurðsson. eins konar hundahald, sem heitir hjónaband. — Hvort konan mín sé sama sinnis? Tja, hún veit a.m.k. mínar skoðanir, og ég held, að þær hafi almennt gildi. 50 til 60 prósent af giftu fólki heldur fram hjá — hina langar til að gera það. I raun og veru heldur fólk ekki fram hjá hvort öðru, heldur þjóðfélaginu, þvi að hjónaband er þjóðfélagsstofnun til að tryggja sjálft þjóðfélagið í séssi. — Allar þær stofnanir, sem þjóðfélagið hefur byggt inn í manninn, eru eyðileggjandi. Hjónabandiö er eitt af þessum stofnunum. Hjónabandið var gott á hellastiginu, meðan það var eina athvarf mannsins í fjandsamlegu umhverfi. — Síðan hefur þetta breytzt allmikið. Nú er það svo margt, sem heimtar tilfinningar manns — bækur, músik, kvikmyndir — allt þetta úrkynjar ást þfna til einstaklings. — Og ef þetta frelsi, sem flóttinn, framhjáhaldið, gefur, er í mótsögn við gamla þjóð- félagslega drauga, þá svíkjum við þá og hættum aö vera myrk- fælnir. • Heldur þú fram hjá kon- unni þinnl? — Það er ekki fyrir lesendur. Ef ég held fram hjá konunni minni, þá er það fyrir mig sjálfan. — Ég held, að maöurinn eigi ekki að reyna að vera góður. „HJÓNABANDIÐ ER EINS KONAR HUNDAHALD — Ástæðan er einfaldlega sú, að hugsjónin leitast við að end- umýja sjálfan sig eins og lifið sjálft gerir. En kerfið leitast aðeins við að viöhalda sjálfu sér. \ — Og allt sem leitast við að viöhalda sjálfu sér óbreyttu er á kostnað lífsins, því að Hfið er breyting. • Hann keðjureykir og horf- ir út um gluggann. Hann er órakaður með mikið og úfið hár. Hann drepur í stubbnum og kveikir í nýrri, og heldur áfram:- — Ef til vill er ekki hægt að lifa án kerfis. En um leið og kerfið er farið að há okkur, og viö erum byrjaðir að ljúga að því, svíkja það, og komast und- an klóm þess, þá er það okkur hættulegt, því að viö erum lífið, en kerfið ekki. — Ég er ekki að reyna að svíkjast undan kerfinu, ekki ef ég nota tíma minn til aö ráðast á það. — Mannlegt frelsi brýtur í bága viö framleiðslueiningar- áróöurinn. Maðurinn krefst meira en er þar I fólgið. Maður- inn er ekki grasbítur. • Hann færist í aukana. — Ég trúi þvi, aö sósíalismi sé eini siðferðisgrundvöllurinn til að byggja á sitt þjóðfélags- kerfi. Fyrir mér eða í mínum augum hefur sósíalisminn aldrei verið tilraun til að skapa efna- JW-saBWBÐSCSí ^thygli skákunnenda beinist nú að Ólympíuskákmótinu í Sviss. Þar hafa Sovétríkin unniö einn sigurinn enn, en þau hafa ávallt sigrað á þessum vett vangi frá því þau hófu þátttöku 1952. Að þessu sinni er sigur inn óvenjumikill, en Bandarfkin hafa ekki náð þeim árangri sem þau náðu á Ólympíumótinu 1966, og reyndar var búizt við nú. Veldur því mest furðuleg hegðun Fischers, sem hvarf á braut frá Sviss, eftir að hafa kvartað undan keppnisskilyrð- um. Er Fischer hinn erfiðasti í öllum samskiptum og hið mesta happdrætti að bjóða hon- um yfirleitt til keppni á skák- mótum. M. Botvinnik lét í ljós álit sitt á Fischer fyrir nokkru og dáði mjög hæfileika hans sem skákmanns. En að þroska telur hann Fischer vera á stigi 14—15 ára barns. Hann taki oft fljót- færnislegar ákvarðanir, er skaði jafnt Fischer sjálfan, sem hróð- ur skáklistarinnar. Og á Ólym- píumótinu í Lugano virðist Fischer því miður hafa látið und an bámalegum duttlungum sín- um. Um hæfileika Fischers við skákborðið efast hins vegar enginn og fyrir skömmu vann hann stórsigur á vel mönnuðu skákmóti í Júgóslavíu. Fékk Fischer 11 vinninga af 13 mögu legum og tapaði engri skák. í 2.—3. sæti urðu Matulovic og Hort með 9 vinninga og 4. Gheo rghiu 814 vinning. Gegn Minic, Júgóslavíu kom Fischer á óvart með því aö beita kóngsbragði, en sú byrjun er nú að mestu horfin af sjónar- sviði alvarlegra kapptefla. Hvítt: Fischer. Svart: Minic Kóngsbragð. 1. e4 e5 2. f4 exf 3. Bc4. Á skákmóti Bandaríkjanna 1964 beitti Fischer einnig þessu afbrigðj kóngsbragösins gegn L. Evans. Evans lék hér 3 . .. Dh4t 4.Kfl d6? 5. Rc3 Be6 6. De2 c6 7. Rf3 De7 8. d4 BxB 9. DxB g5 10. e5 d5(?) 11. Dd3 og hvft- ur vann i tæpum 40 leikjum. Framhald Bogoljubows, 3 ... Rf6 4. Rc3 c6 er talið bezta svar svarts í þessu afbrigði. Minic velur hins vegar ó- veniulegt og vafasamt fram- hald. 3. .. Re7 4. Rc3 c6. í þessari stöðu mælir Pach- man með 5. De2. En Fischer er m-+ 10. síða. hagsveruleika. Heldur tilraun, sem miðar aö því aö gera mann- inn að frjálsum einstaklingi. — Sósíalisminn er gamall, en hann hefur aldrei verið hugsað- ur sem sagnfræöi, heldur veru- leiki í því lífi, sem skapast frá degi til dags. Og ef hann ekki fylgir þessu sífellda lögmáli breytingarinnar, verður hann nátttröll, eins konar rannsókn- arréttur eða galdrabrenna. — Ég á ekki við framkvæmd sósíalismans eins og við þekkj- um hana. Ég á við þann sósíal- isma, sem getur lifað af sér kerfi — jafnvel sfn eigin. — Það er áreiöanlega stað- reynd, að ef hægt værj að frelsa manninn á einum degi eða einu ári, þá væri löngu búiö að því. — Frelsa hann frá hverju segirðu. Frá óhugnaði, sjálfs- tortímingu, sem hann hefur skap að með kerfum sínum, vegna þess aö hann hefur hætt að trúa á þróun sjálfs sín og byrjað að trúa á óforgengileik kerfanna. .— Hann hefur meö öörum orð- um hætt að trúa því, aö hann sé hluti af þessum síbreytilega veruleika, lífinu, hann trúir að hann sé það kerfi, sem hann býr til. • Sígarettubirgðir eru endur- nýjaðar, og talið beinist að öðrum hlutum. Birgir heldur áfram: — Ég ér uppalinn upp við öskutunnur í bakportum í Reykjavík. Þar fékk ég mína kynferðisfræðslu, sem hefur reynzt mér haldgóö. Þar lærði ég að vera vondi strákurinn í námunda við tunnurnar, og gott barn heima. Síðan hef ég haldið mig við öskutunnumar, — Þar lærði ég sennilega, að ástin er líka forgengileg. Hún hættir að vera ást og verður Þaö er fordild, ffkn í áritaöan passa til himnarfkis. Ég held, að maðurinn eigi að reyna að vera sannur og drýgja sfnar syndir fullkomlega út í yztu æsar. Hálfsyndir eru verstar. • Eigum við ekki að tala um skáldskap? — Ég get sagt þér eitt. Ég hef aldrei lesiö bók á ævi minni, vegna þess að hún tilheyrði bók- menntum, heldur aðeins vegna þess að hún er lff, hluti af þvf lífi, sem ég lifi. Og ég trúi þvf, að sú bók, sem ekki er líf, sé dauö, og eigi að vera dauð. • Hvers veKna gefurðu út ljóð in þfn? — Því að ég trúi því einfald lega, að skáldskapur sé fyrir menn og vegna manna. Ég þekki engar formúlur, hvorki L’art pour I’art né hina Listina fyrir lífið. En ég trúi því ein- faldlega, að skáldskapur sé hluti af lífinu og eigi að upplifast þannig. • Hvað finnst þér um skrif bróður íns? r- 1 skáldskap er maður ekki bróðir neins. Það væri í mesta lagi. að maður’ væri bróðir sjálfs sín. Annars skrifa ég verkin hans og hann mfn. — Ég segi þér þetta í algjör- ur trúnaði. O Hvað um ádeiluskáldskap? 1— Það var einu sinni hæna. Hún fór út í sólskiniö, og maður nokkur kom og dró utan um hana hring. Hún hringsólaöi f honum, þangað til hún dó. — Þessi hæna hafði raunveru lega ætlað sér að skoða sól- skinið, en hún var bara þann- ig af guði gerð, að hún lenti inni í þessum hring. Þráinn. WKdi

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.