Vísir - 09.11.1968, Qupperneq 10
í
io____________________________
m& —
)»» >■ 2. síðu.
munar þeirra. Ennfremur er
ekki^ gefið, að færa þurfti alla
toirá á hráefnum, vélum og
orkugjöfum til iðnaðarins i núll
til aö skapa honum jafna sam-
keppnisaðstöðu.
Væntanlega yrði einnig að
lagfæra fjáröflunartolla, þótt
þær vörur falli ekki undir
EFTA-samninginn eða gangi á
einn eða annan hátt inn í inn-
lenda iðnaðarframleiöslu. Þetta
gæti verið nauðsynlegt til að
draga úr óeðlilegu misræmi á
verðlagi milli vörutegunda og
til að draga úr ólöglegum inn-
flutningi til tjóns fyrir ríkissjóð
og innlenda verzlun. Til mála
kæmi, að hugsanlegt tap ríkis-
sjóðs þessa vegna, yrði bætt
upp með að hækka tolla á
nokkrum þýðingarmiklum toll-
lágum vörutegundum svo sem
komvörum, kaffi og sykri.
Ekki einokun EFTA
í verndarvöruflokknum eru
um fjórir fimmtu númera yfir
10% og skapa þvi verulegan
aðstöðumun fyrir þátttökuríki
Islands I fríverzlun. Sá aðstöðu-
muhur, ef hann héldist óbreytt-
ur, myndi að sjálfsögðu færa
þessi viöskipti að verulegu
leyti yfir á EFTA-löndin, þar
sem þau hafa á góðum sam-
keppnisgrundvelli á boðstólum
allar vörur, sem ísland þarfnast.
Um þriðjungur innflutnings
verndarvaranna kom árið
1967 frá Efnahagsbandalaginu
og Bandarikjunum og um 8 —
9% hans kom frá löndum Aust-
ur-Evrópu. Að svo miklu leyti
sem þessi innflutningur yröi
enn háður núverandi hátollum
myndj hann því væntanlega
hverfa við það að ísland hefði
gengið í EFTA.
Nú er það hins vegar ekki
æskilegt að hæð slíks „ytri“
tolls verndarvaranna verði slík,
að EFTA-þjóðum verði tryggð
algjör einokunaraðstaða á á-
kveðnum vöruteg. íslenzkir
kaupendur kunna vafalaust að
telja það æskilegt að kaupa á-
kveðnar vörur frá löndum utan
EFTA, þótt nokkur tollamunur
sé, en sá munur má þá ekki
vera óhóflegur. Þá getur slíkur
munur i tollakjörum haft óhag-
stæð áhrif á jafnkeypisviöskipin
við Austur-Evrópu.
Innflutningshöft á land-
búnaðarvörum
Verulegur hluti þeirra vara,
sem innflutningur er ekki frjáls
á, eru landbúnaðarvörur, sem frí
verzlunarákvæðin ná ekki til
og sem mætti því beita inn-
flutningshöftum, þótt ísland
væri aðili að samtökunum.
Af þeim vörum, sem innflutn-
ingur er ekki frjáls á hér, en
fríverzlunarákvæðin ná til, er
langstærsti vöruflokkurinn olíur
og bensín, Nauðsynlegt er taliö
að halda því fyrirkomulagi á-
fram vegn- viðskipta viö Sovét-
ríkin. Um þetta atriði verð-
ur að semja sérstaklega
við EFTA. Aðrir vöruflokkar,
sem háðir eru leyfum og falla
undir fríverzlunarákvæöin, eru
yfirleitt ekki þýðingarmiklir
fyrir austur-viðskiptin. Má í
þessu sambandi minna á eftir-
taldar vörur, sem fluttar eru
inn frá Austur-Evrópu, en falla
ekki undir EFTA-ákvæðin: syk-
ur, rúgmjöl, kartöflumjöl,
sikkorírætur, humall og malt.
Mjög fáar iðnaðarvörur, sem
hér eru framleiddar, eru ennþá
háðar leyfum, en þeirra á meðal
eru húsgögn, kvensokkar,
burstar, tunnur, gosdrykkir,
sælgæti og sement.
Aukning framleiðslu og
umbætur
Rannsókn á málefnum iðnað
arins og einstökum greinum
hans er meginverkefni, sem
bíður úrlausnar. Þátttaka í
EFTA mundi að sjálfsögðu gera
úrlausn verkefnisins brýnni.
Reynsla annarra þjóða hefur
verið ótvíræð um, aö lækkun
tolla og afnám hafta leiði til
örari hagnýtingar á tæknilegum
umbótum og nýjungum, meiri
aukningar í framleiðni og betri
nýtingar framleiðsluþáttanna al-
mennt en ella. Slíkt aðhald í sam
keppni myndi koma í stáðþeirra
næsta handahófskenndu vernd-
arstefnu, sem hér hefur ríkt og
á engan hátt tryggt, að upp risu
fyrirtæki, sem þjóöhagslega
væru hagkvæm. Hins vegar er
engin ástæða til aö gera lítið úr
þeim erfiðleikum, sem eru sam-
fara framkvæmd slíkrar stefnu
á íslandi og að ganga út frá, að
frjáls aðgangur að stórum
markaði, samfara samkeppni
utan frá leysi öll vandamál.
Aðild að fríverzlun yrði því
opinbera sá hvati, sem til þarf
að móta þá alhliða stefnu í iðn-
aðarmálum, sem nauðsynleg er,
og því einnig að þessu leyti
iðnaðinum til mestrar hagsbót-
ar.
Innilega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vinarhug
og sæmd á 75 ára afmæli mínu, þann 29. okt. síðastl.,
með gjöfum, kveðjum, heimsóknum og á annan hátt,
Minnist ég þess með mikilli gleði og þakklátum huga.
Kristján Jóh. Kristjánsson.
Öllum þeim sem glödtíu mig á 75 ára afmæli mínu
þann 12. október, sendi ég mínar hjartanlegustu þakk-
ir.
Páll isólfsson.
Hugheilar hjartans þakkir færi ég hinum fjölmenna
hópi einstaklinga, kórum, hljóðfæraleikurum, ein-
söngvurum, og Ríkisútvarpi fyrir þá ómetanlegu sam-
- úð og hlýhug, sem mér var sýnd við andlát og jarðarför
eiginmanns míns
■
SIGURÐAR ÞÓRÐARSONAR TONSKÁLDS
Hver hugsun hlý, nvert ástríkt orð
oss æðri fylling ljær.
Sem fljót er vex og fríkkar mest
þá færist hafi nær. — s. j.
Áslaug Sveinsdóttir.
Hugsanlegt afnám tolla
á fiskafurðum.
Á undanfömum árum hefur
oft veriö rætt um hversu brýnt
mál sé að sjávarafli íslendinga
verði frekar fullunninn til út-
flutnings til aukningar gjald-
eyristekna og atvinnu. Ein að-
alástæðan fyrir því, að slíkar
greinar sem niðursuða og niður-
lagning sjávarafurða hafa átt
erfitt uppdráttar hér á landi, er
að þær hafa ekki haft frjálsan
aðgang aö stóru markaössvæöi.
Að sjálfsögðu verður ekki
sagt fyrir með neinni vissu,
hver áhrif aðildar að EFTA yrðu
á framléiðslu og útflutning
slikra afuröa og því veröur ekki
heldur metið talnalega hver
hugsanlegur ávinningur það yrði
útflutningi íslenzkra sjávaraf-
urða að njóta þess tollfrelsis,
sem EFTA hefur komiö á. Vera
kynni einnig, að Island yrði
einhvers megnugt að fá tolla
afnumda á sjávarafurðum.
Lítil áhrif í landbúnaði
Af framleiðsluvörum íslenzks
landbúnaðar taka fríverzlunar-
ákvæði EFTA aöeins til ullar
og skinna og vara, sem unnar
eru úr þeim.
Aö öðru leyti veröur ekki séð,
að EFTA-ákvæðin sem slík
myndu hafa áhrif á stöðu ís-
lenzka landbúnaðarins. íslenzk-
ar búvörur, kjöt og kjötvörur,
mjólk og mjólkurafurðir og
garöávextir, eru undanþegnar
ákvæðum EFTA um fríverzlun.
Nokkur athygli hefur beinzt
að atvinnurekstrarákvæðum
EFTA. Ljóst er, að með löggjöf
mætti bægja útlendingum frá ís-
lenzku atvinnulífi ef það væri
talið æskilegt, án þess að sann-
anlegt væri að það bryti í bága
við að EFTA-borgurum yrðu
ekki veitt á takmörkuðu sviði
lakari kjör en eigin borgurum,
sem spillj fyrir þeim hagsbót-
um, sem búizt er við að leiði af
fríverzlun.
SínBf öBd —
8. slðu.
yfir % þeirra fæddir jí Banda-
ríkjunum og Kanada, hinir á Is-
landi, en af þeim féllu í orr-
ustu tæplega 150, en yfir 200
særðust.
Þetta átti að verða styrjöldin,
sem átti að binda enda á styrj-
aldir, „the war to end war“.
Ofbeldið var stöðvað, að vísu,
en stjórnmálamennirnir gátu
ekki leyst vandann við samninga
borðin, og sagan endurtók sig.
Og nú er enn óvissu- og spilling-
artímabil, eins og milli fyrri og
síðari heimsstyi-jaldar, enn er
beitt ofbeldi, enn eru styrjaldir
háðar, þótt eigi kallist heims-
styrjaldir, — og margir eiga um
sárt að binda, loft er lævi bland-
ið og vá fyrir dyrum — og
talað um frið, eins og ávallt,
og sem örlitið d^emi um það,
er þessi klausa úr Vísi fyrir
50 árum:
„Vilhjálmi keisara fórust svo
orð einu sinni í fyrra (1913).
Ég þakka guði fyrir að ég get
Iitið með ánægju yfir 25 síðast
liðin erfiðisár og á höpp þau
hin miklu, er á þeim tíma hafa
fallið föðurlandinu í skaut, Sér
í lagi gleður það mig, að þetta
hefir orðið undir frjóvgandi
geislum friöarsólarinnar.
Afl þeirra hefir þannig sigri
hrósandi hrakið burt hverja ó-
friðarbliku, er dregið hefir á
loft. Þannig hefir innilegasta
ósk min ræst.“ Og í þessum
dúr er enn talað, en orð og
atferli er sitt hvað!
A. Th.
VlSIR .
SBcók —
-»»)- > 9. síðu.
lítt upp á ráð Pachmans kom-
inn og velur aðra leið.
5. Rf3 d5 6. Bb3 dxe.
Eftir 6 . . d4 7. Re2 d3 8. Rxf
hefur hvitur betri stöðu.
7. Rxe Rd5 Hótunin 8. Reg5
var yfirvofandi.
8. De2 Be7 9. c4 Rc7 10. d4
0—0 11. Bxf Re6 12. Be3 Bb4?f
Svartur á þegar við örðugleika
að etja og biskupsskákin eykur
á erfiðleika hans. Betra var 12 ..
Rd7.
13. Kf2! Rd7 14. c5! Rf6 15.
RxRf DxR '3. Hhfl Rf4 17.
BxR DxB 18. g3 Dh6 19. Kgl
Bh3.
Hér var 19 .. . Be6 nauðsyn-
legur leikur. En svartur er með
ranga áætlun í huga og heldur
henni ótrauður áfram.
20. Re5! BxH. Enn var 20.. .
Be6 nauðsynlegt.
21. HxB Bd2 22. Hf3! Svartur
hótaði 22 .. . De3f
22... Had8 23. Rxf HxR 24.
De7! Gefið.
Jóhann Sigurjónsson.
FERMINGARBÖRN
Hallgrímskirkja. Fermingarbörn
næsta árs (vor og haustfermingar
börn) komi til skrásetningar í
Hallgrímskirkju: Fermingarböm
dr. Jakobs Jónssonar n.k. mánu-
dag kl. 5. Fermingarböm séra
Ragnars Fjalars Lárussonar n.k.
mánudag kl. 6.
Grensásprestakall Fermingar-
börh næsta árs komi til viðtals
í Hvassaleitissköla miðvikudaginn
13. nóvember. Stúlkur kl. 6, —
drengir kl. 6.30. Felix Ólafsson.
Langh -ltsprestakall. Fermingar
börn ársins 1969 eru beðin að
koma til viðtals í safnaðarheim-
ilinu miðvikudaginn 13. nóv. kl. 6.
Séra Árelíus Níelsson. Séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson.
Fermingarbörn í Laugarnessókn
sem fermast eiga í vor eða næsta
haust eru beðin að koma til við-
tals í Laugarneskirkju n.k. þriðju-
dag 12. þ.m. kl. 6 e.h. Séra Garðar
Svavarsson.
Bústaöaprestakall. Væntanleg
fermingarbörn eru beðin aö mæta
í sal Réttarholtssköla n.k. mánu-
dag 11 nóv. kl. 5.30. Séra Ólafur
Skúlason
Fríkirkjan í Reykjavík. Væntan
leg fermingarbörn Fríkirkjunnar
næsta ár, eru beðin að koma í
kirkjuna n.k. þriðjudag kl, 6.30.
Þorsteinn Björnsson.
Fermingarbörn séra Jóns Auð-
uns komi til viðtals mánudaginn
11 nóv. kl. 6 síðd. Fermingarbörn
séra Óskar J. Þorlákssonar komi
til viðtals I Dómkirkjunni þriðju-
daginn 12. nóv. kl. 6.
Langheltssöfnuöur. Sunnudag-
inn 10. nóv. verður í safnaðar-
heimilinu Óskastund barnanna kl.
4. Kynningar- og spilakvöld kl.
8.30. Kvikmyndir og upplestur
verða fyrir börnin og þá sem
ekki spila.
Háteigskirkja. Fermingarbörn
næsta árs (vor og haust) eru
beðin að koma til viðtals í Há-
teigskirkju sem hér segir: Ferm
ingarbörn séra Jóns Þorvarðsson
ar mánudaginn 4. nóv. kl. 6 s.d.
Fermingarbörn séra Arngríms
Tónssonar miðvikudaginn 13. nóv.
kl. 6 s.d.
Nesprestakall. Börn sem ferm-
ast eiga hjá séra Frank M. Hall-
dórssyni næsta vor og háust,
komi til viðtals í Neskirkiu. —
Stúlkur þriðiudaginn n.k. kl. 6.
Drengir miðvikudag kl. 6. —
Börn sem eiga að mæta hiá mér
til fermingar næsta vor og haust,
komi til viðtals í Neskirkju sem
hér segir: stúlkur þriðjudags-
kvöld n.k. kl. 8, og drengir n.k.
miðvikudagskvöld kl. 8 Börnin
hafi með sér ritföng. Séra Jón
Thorarensen.
Laugardagur 9. nóvember 1968.
— Mér fannst kvikmyndin
skemmtilegust, þegar ég sofnaði.
MESSUR
Elliheimiliö Grund. Guðsþjön-
usta kl. 10 f.h. Séra Lárus Hall-
dórsson messar. Heimilisprestur.
Grensásprestakall. Bamasam-
koma í Breiðagerðisskóla kl.
10.30. Messa kl. 2. Séra Felix Ól-
afsson.
Langholtsprestakall. Barnasam
koma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl.
2. (Bindindisdagur) Séra Árelius
Níelsson.
Hallgrímskirkja. Fjölskylduguðs
þjónusta kl. 10.30. Dr. Jakob Jóns
son og svstir Unnur Halldórsdótt
ir. Messa kl. 2. Séra Ragnar Fjal
ar Lárusson.
Hafnaríjarðarkirkja. Messa kl.
2. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11.
Séra Garðar Þorsteinsson.
Bústaðaprestakall. Bamasam-
koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Ólafur
Skúlason.
Neskirkja. Barnasamkoma kl.
10. Messa kl. 11. Séra Jón Thor-
arensen.
Mýrarhúsaskóli. Barnasam-
koma kl. 10. Séra Frank M. Hall
dórsson.
Laugarneskirkja. Mess.a kl. 2
e.h. Herra biskupinn helgar nýtt
altari sem þá verður tekið í notk
un, altarisganga. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10 f.h. Séra Garöar Svav
arsson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. —
Séra Jón Auðuns. Altarisganga
fyrir fermingarbörn og aðra
kirkjugesti.
Háteigskirkja. Barnasamkoma
kl. 10.30. Séra Arngrímur Jóns-
son. Messa kl. 2. Séra Jón Þor-
varðsson
TILKYNNINGAR
Kvenfélag Bústaöasóknar. —
Aðalfundur félagsins er í Réttar
holtsskóla á mánudagskvöld 11.
nóv. kl. 8.30.
Kirkjunefnd Dómkirkjunnar,
(kvenna). i Kl. 2.30 hefur kirkju-
nefnd kvenna basar og kaffisölu í
Tjarnarbúð (Oddfellowhúsið).
Kvenfélag Bústaðasóknar hefur
hafið fótaaðgerðir fyrir aldraða,
í Safnaðarheimili Langholtssókn-
ar, alla fimmtudaga frá kl. 8.30
til 11.30 f.h. Pantanir teknar í
síma 12924.
Áfengisvarnarnefnd Hafnar-
fjarðar efnir til samkomu í Hafn
arfjaröarkirkju sunnudaginn 10.
nóvember kl. 17, í tilefni bind-
indisdagsins. Séra Björn Jónsson
flytur ræðu, séra Garðar Þor-
steinsson flytur ávarp og ritning
arorð, Þórunn Ólafsdóttir syngur
einsöng, Páll Kr. Pálsson leikur
á orgel og kirkjukórinn syngur.