Vísir - 03.12.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Þriðjudagur 3. desember 1968.
morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun
útlönd
ÓEIRÐIRNAR í EGYPTALANDI AL-
VARLEGRI EN ÁÐUR VAR VITAÐ
Nasser kennir um erlendum áróðri
■ Óelrðirnar í Egyptalandi voru
enn alvarlegri en vitað var.
Kom það fram á fundi stjórnar-
flokksins í gærkvöldi
■ Egypzkur ráðherra sagði í
gærkvöldi á fundi stjórnar-
flokksins, að í stúdentaóeirðun-
um í Alexandríu á dögunum
hefðu 460 menn verið handtekn-
ir og væri mikill hluti þeirra enn
í haldi eða 182. — Sextán menn
biðu bana í óeirðunum og hundr-
uð manna meiddust, þeirra með-
al 240 lögregluþjónar.
Ráöherrann sagöi, að viö mörg
vandamál væri aö glíma og mörg-
um umbótum þyrfti að koma fram,
en sitja yröi fyrir öllu, að búa her-
inn undir að frelsa herteknu svæð-
i|i og efla þyrfti herinn til dáða.
NASSER FORSETI
Egyptalands flutti ræðu í gær á
þessum sama fundi stjórnarflokks-
ins sem er eini flokkur landsins
og kenndi öflum erlendis, fjand-
samlegum Egyptalandi, um að hafa
æst stúdenta upp til mótþróa gegn
yfirvöldunum og væri þetta orsök
uppþotanna og ókyrrðarinnar und-
angengnar tvær til þrjár vikur í
háskólum landsins, og leitt til lok-
unar þeirra.
Israelskur hefni-leiðangur
Dayan ræðir herteknu svæðin
í fréttum frá israel segir, að
ísraelskir árásarflokkar hafi farið
langt inn í Jórdaníu og sprengt í
loft upp tvær brýr á leiðinni milli
Amraan og Akabaflóa.
Segir í tilkynningu um þetta, að
leiðangurinn hafi verið farinn í
hefndarskyni fyrir mörg hermdar-
verka Araba í ísrael.
Árásarflokkarnir eru sagðir
komnir heim heilu og höldnu.
Dayan landvamaráðherra ísraels
hefir hvatt til traustari efnahags-
legri tengsla herteknu svæðanna og
ísraels. Hann kvaðst ekki hafa
aukin stjórnmálaleg tengsl í huga
eða fólk á þessu svæði fengi ísra-
elskan þegnrétt
Dayan kvað hér vera um sínar
eigin skoðanir aö ræða og væri
ágreiningur nokkur um þessj mál
innan stjórnarinnar.
Dayan sagði, að ekki kæmi til
mála, að ísraelsmenn hörfuðu frá
vopnahléslínunni, er samið var um
fyrr en friðafsamnihgar hefðu veriö
geröir.
Dean Rusk skorar á sovétstjórnina
að beita sér fyrir friði í Víetnam
Dean Rusk utanríkisráðherra
Bandaríkjanna flutti sjónvarpsræðu
í fyrradag.
Hann hvatti stjóm Sövétríkjanna
til þess að gera allt, sem í hennar
valdi stæði, til þess að samkomulag
gæti náðst um frið í Víetnam.
Hann lét í ljós þá von, að þegar
Richard Nixon tæki við forseta-
embættinu í næsta mánuði, hefðu
horfur á að samkomulag um frið
í Víetnam næðist fljótlega, batnað
að mun.
Averill Harriman, sérlegur samn-
ingamaður Bandaríkjanna á Víet-
namráðstefnunni í Paris, er nú á
leið til Washington til þess að gefa
Joþnson forseta skýrslu.
Harriman sagði fyrir burtförina
frá París, að hann ýæri sannfærður
um, að Nixon myndi skipa sina
eigin samninganefnd, er hann tæki
við.
Rís verkfallaalda í Frakklandi?
• París í gær: Um 33.000
verkamenn í Renault-verk-
smiðjunum í París áforma að
gera 5 klukkustunda verkfall á
fimmtudag til þess að mótmæla
hinum nýju ákvörðunum stjórn-
arinnar gjaldmiðlinum til vernd-
ar. Renault-verksmiðjurnar eru
ríkiseign.
Um 90 af hundraöi verkamanna í
Tékkneskir leiðtogar kvarta
undan sovézkum áróðri
Tékkneska stjómin gerir um
þessar mundir tilraunir til þess að
fá sovézkn hemámsyfirvöldin til
þess að baftna fréttablað, sem dreift
er meðal almennings. Blað þetta er
prentað í Austur-Þýzkalandi.
Tékkneskir leiðtogar hafa áður
borið fram umkvartanir vegna á-
sakana í þeirra garð í blaðinu.
Blaðiö hefir einnig verið gagnrýnt
í þjóðþinginu. Dreifing þess er ó-
lögleg, en fyrri umkvartanir hafa
ekki borið árangur. — Þaö var einn
af vara-forsætisráðherrum Tékkó-
slóvakíu sem bar fram þessi sein-
ustu tilmæli um að banna blaðiö.
Ayub Khan lofar umbótum
Ayub Khan forseti Pakistan heíir
haldið sjónvarpsræðu og boðað um-
bætur til þess að koma til móts
við kröfur stúdenta varðandi
menntun og mannréttindi.
Forsetinn kvaðst harma, að nauð-
synlegt hefði verið að kýrrsetja
menn, en það hefði verið gert vegna
þess að þeir hefðu hvatt til verkn-
aða hættulegra öryggi landsins
Talið er, að hann hafj átt við
Bhutlo, fyrrv. utanríkisráðherra og
fylgismenn hans,
Þá sagði Ayub Khan KHan for-
seti, að fara yrði löglegar leiðir til
þess að koma fram máum.
Næstu kosningar eig^vað fara
fram í Pakistan 1970.
Billapcourt-verksmiðjunum greiddu
atkvæði meö verkfalli. Verkamenn
halda því fram, að það hafi verið
of mikill seinagangur á hjá verk-
smiðjustjórninni, að láta koma til
framkvremda umbætur þær, sem
samkomulag varð um eftir verkföll-
in í maí og júní.
Blað kommúnista, L’humanité, tel
ur líklegt, að verkamenn í Citroen-
verksmiðjunum fari að dæmi félaga
sinna í Renault-verksmiðjunum.
Óeirðir í
háskólanum
i Madríd
Fjölmennt lögreglulið er enn á
verði í háskólanum í Madrid, þar
sem 150 stúdentar voru handteknir
í sfðastliðinni viku, og miklar
skemnidir urðu af völdum elds á
einni háskólabyggingunni.
Biskupinþ í Santander hefir mót-
mælt handtöku 40 rómv. kaþólskra
verkamanna.
, í framhaldsfréttum segir, að eng-
in kennsla fari fram í þremur há-
skóladeildum.
Nasser kvað einn af aðalfor-
sprökkunum hafa verið handtekinn
og væri hann egypzkur maður, sem
reynzt hefði vera áróðursmaður fyr-
ir I'srael.
ABBA EBAN
utanríkisráðherra ísraels er kom-
inn tiI Kýpur og hefur átt þar viö-
ræður við Gunnar Jarring sérlegan
samningamann Sameinuðu þjóð-
anna í deilurr fsraels og Araba-
þjóðanna.
Eban ræddi einnig viö Makaríos
erkibiskup forseta Kýpur og Kypri-
ano utanríkisráðherra.
Eban sagði við fréttamenn, að
Nasser.
nauðsynlegt væri að
þannig, að varanlegur
ist.
leysa
friður
málin
héld-
Framkoma Chicago-lög
reglunnar var ögrandi
og ofbeldi beitt
Birt hefir verið opinber skýrsla
um framkomu Iögregunnar í Chic-
ago, er flokksþing demókrata var
háð þar í sumar
Er lögreglan sökuð um ofbeldi og
hrottaskap og m.a. bent á, að í borg
inni hafi verið 24.000 lögreglumenn.
og þjóðvaröliðsmenn, en mótmæl-
endur aðeins um 1000. Framkoma
lögreglunnar hafði verið ögrandi og
ofbeldisleg og hafði það bitnað á
friðsömu fólki og ekki sízt á frétta-
mönnnum sjónvarps, útvarps og
þlaða, sem henni var einkum upp-
sigað við, og hlutu margir meiðsl.
— Daley borgarstjóri hefir gengiö
fram fyrir skjöldu lögreglunni til
varnar. Kvaðst hann vera stoltur
af flestum þeirra.
• Búizt er við að það muni enn
dragast í viku tíma að minnsta
kosti, að hafnar verði víötækari
samkomulagsumleitanir á Parísar-
ráðstefnunni um Víetnamstyrjöd-
ina.
9 Ekki hefir enn verið hafin í
Suður-Víetnam sókn Víetcong, sem
i fréttum í vikunni sem leið var
talin vera yfirvofandi, en bandarísk
ar sprení'iuflugvélar hafa gert árás-
ir á staði, þar sem liðssamdráttur
átti sér staö, í um 30 km. fjarlægð
frá höfuðborginni og nálægt landa
mærum Kambódíu.
• Til óeiröa kom um helgina i
Armagh á Noröur-írlandi og voru
5 menn handteknir fyrir ólöglegan
vopnaburð.
® Eban utanríkisráðherra ísrael
fer til Kýpur bráðlega til viðræðna
við Jarring samningamann Samein
uðu þjóðanna. Eban mun einnig
ræöa við Makarios forseta og Kypri
ano utanríkisráöherra K4pur.
• Miklir skógareldar geisa ná-
lægt Sidney í Ástralíu um 200
manns hafa hlotið brunasár og á
annað hundrað íbúðarhúsa hafa
brunniö. Tjónið er þegar orðið mik
ið — áætlað um 130 millj. ísl. kr.
íbúðir
til sölu
2ja herb. íbúð við Óðinsgötu.
3ja herb. fbúö í Kópavogi útb.
kr. 200 þús.
3ja herb. íbúö við Lokastíg f
steinhúsi, mjög góð íbúð.
3ja herb. fbúð f Laugames-
nverfi góðir greiösluskilmálar.
Ný 3ja herb. íbúö á jarðhæð
við Skólagerði, mjög falleg íbúö.
Ný 4ra herb. íbúð í Kópavogi.
Ný't glæsilegt einbýlishús í !
Árbæjarhverfi, skipti á minni j
íbúð koma til greina.
Fokhelt einbýlishús með 2 bíl-
skúrum í Arnarnesi, húsið selst
í því ástandi sem kaupandi ósk-
ar.
Fokheld 6 herb. sérhæö með
bílskúr í Kópavogi, útb. kr. ^00
þús. i
Hef ávallt íbúðir sem sklpti |
koma til greina með.
Fasteigna*
miðstöðin
Æusturstræti 12
Simar 20424 - 14120
hen.. 83974.