Vísir - 04.12.1968, Page 4
/
Á snekkjunni „Christina" var
mikið um íburð. Hin nýgiftu
Jackie og Aristoteles Onassis
skorti ekkert, sem hugurinn girnt
ist. Það er forvitnilegt að skoða
aðstæður á þessu lystiskipi, sem
gefa til kynna, hvernig fyrrver-
1 einkaherbergjum Onassis eru
helgimyndir.
Ungir menn í sviðsljósi
Nú þykir ekki lengur nógu
gott að helðra góða menn meö
fálkaorðu, og því hafa stúdent-
ar tekið upp á því að veita
stúdentastjörnu, en sú viður-
kenning var veitt í fyrsta sinn
1. desember. Vonandi tekst bet-
ur til með veitingu þessarar
nýju viðv.rkenningar, heldur en
í mi^rgum tilfellum að bvi er
varðar fálkaorðuna, en veiting
hennar hefur þótt oft á tíðum
i meira lagi handahófskennd.
Annars er stofnun hinnar nýju
akademíu stúdentanna dálítið
kómiskt fyrirbrigði, ekki sízt
fyrir það, að þessi „nefnd“ á
að veita hina nýju orðu, undir
kjörorðinu „Enginn verður ó-
barinn biskup.‘‘ Hins vegar er
ekki aö sjá, að stúdentar muni
yfirleitt á þvi aö láta berja sig
yfirleitt til biskups í almennri
merkingu þess orðatiltækis, því
allar helztu kröfur þeirra bein-
ast : ð því, að þeir fái aö ala
sig upp sjálfir. Mcðal annars
gera þeir þá kröfu nú að fá að
taka þátt í kosningu rektors.
Annars eru þessi tilþrif stú-
denta vafalaust ágæt, þó ætla
megi, að hér sé fremur um
tízkufyrirbrigði að ræða, þar
sem stúdentar hafa svo mjög
látið að sér kveða, nálega um
allan heim. Er ágætt þegar at-
hafnasemi þeirra beinist inn á
jákvæðar brautir.
Neikvæðari eru tiltektir skóla
nema i menntaskólanum við
Hamrahlíð, sem eru þó varla til
að gera moldviðri af eins og
gert hefur verið, bví slíkar til-
tektir baldinna stráka, eins og
skrif þeirra í skólablaðið bera
með sér, virðast einungis vera
til að valda hneykslun og
tii að láta á sér bera. Og það
hefur svo sannarlega tekizt. Það
er athyglisvert hve ungu fólki
þykir „f£nt“ að vera uppreisn-
argjamt, en slík árátta flæðir
yfir öll lönd nú á meðal ungs
menntafólks.
Öllu alvarlegri er athafnasemi
ungs fólks á hinum myrkari
sviðum þjóðfélagsins, en þáttur
ungra manna í innbrotum og of
beldisverkum nú á síðustu vik-
um þykir mjög alvarlegt um-
hugsunarefni. Vonandi er hér að
eins um tímabundiö skammdegi
að ræða.
Þrándur í Götu.
J&íffub&iGöúi
andi forsetafrú Bandaríkjanna
mun lifa næstu árin í vellysting-
um praktuglega. Margur kann að
öfunda frúna, en sumir munu
kæra sig kollótta. Eitt er víst,
Jackie Onassis mun ekki þola
bjargarskort.
Svona
Jackie
á hveiti-
brauðs-
dögunum
i