Vísir - 04.12.1968, Side 7
VÍSIR . Miðvikudagur 4. desember 1968.
ja ........ í-.i nrwi«iwwnwmnmirTrr*Ti>
7
fauui
Hvað vill vngri kvnslóðin lesa?
isíenzkar
Sögur úr sveit og borg — eftir
Margréti Jónsdóttur. Margrét er
einn kunnasti bamabókahöfundur
hér á landi og hefur komið út
eftir hana fjöldi bóka — Útg. Leift-
ur. 148 bls. Verö 180.
Dýrin í dalnum — eftir Lilju Kristj
ánsdóttur — Endurminningar höf-
undar um dýrin, sem hún ólst upp
með f æsku. Útg. Leiftur. 90 bls.
Verð 135 kr.
Mús og kisa — eftir Öm Snorra-
son. Bók fyrir yngstu lesenduma.
Útg. Leiftur. 56 bls. Verð 60 kr.
Anna Heiða í skóla — eftir Rúnu
Gísladóttur. Höfundurinn hefur
samið fleiri sögur fyrir stúlkur.
í>essi bók er ætluð telpum á fefm-
ingaraldri. Útg. Setberg. 103 bls.
Verð 160 kr.
Óli og Steini gera garðinn frægan
— drengjabók eftir Axel Guð-
mundsson. Ætluð drengjum á
bamaskólaaldri. Útg. Setberg. 125
bls. Verð 160 kr.
Kári litli og Lappi — eftir Stefán
Júlíusson. Bamabók, sem margur
kannast við, enda er þetta sjöunda
útgáfa hennar. Útg. Setberg 112
bls Verð 130 kr.
Benni og Svenni finna gullskipið.
— eftir Hafstein Snæland. Þetta er
fyrsta bók höfundarins, spennandi
drengja og unglingabók. Útg. Grá-
gás. 160 bls. Verð 220 kr.
Smalastúlkan og önnur ævintýri.
— eftir Axel Thorsteinson. Endur-
samið úr ensku. Sögurnar komu
flestar í Lesbók Vísis á sínum
tíma og einnig hafa þær tvívegis
komið út í bókaformi áður. —
Ætlað yngstu iesendunum. Útg.
Rökkur. 148 tíls. Verð 135 kr.
Jólin koma — eftir Jóhannes úr
Kötlum. Kvæði fyrir börn. Útg.
Heimskringla. Bókina kannast
margir við, enda hefur hún kom-
ið út áður og er löngu uppseld. 32
bls.
Strandið í ánni — eftir Björn
Danjelsson. Bókin er ætluð börn-
um, sem eru að byrja að lesa,
svipuð og „Puti í kexinu“, sem
út kom hjá sama forlagi. Útg.
Iðunn. 32 bls. Verð 50 kr.
Katla kveður — eftir Ragnheiði
Jónsdóttur. Þetta er síöasta bókin
í bókaflokknum um Kötlu. — Útg.
ísafold. Verð 185 kr.
Stúlka með ljósa lokka — eftir
Jennu og Hreiðar Stefánsson. Fram-
hald bókarinnar. „Stelpur í stuttum
pilsum", sem út kom i fyrra. —
Útg. Bókaforlag Odds Bjömssonar.
Verð 170 kr.
Dularfulli njósnarinn — drengja-
saga eftir ÓÍöfu Jónsdóttur. Fjallar
um tvo reykvíska stráka og ævin-
týri þeirra. 180 kr.
Óli og Maggi finna gullskipið —
saga handa börnum og unglingum
eftir Ármann Kr. Einarsson. Þetta
er 23. bamabók Ármanns. Auk
þess hafa komið út eftir hann fjór-
ar aðrar bækur. f þessari sögu læt-
ur hann Ola og Magga finna Ind-
landsfar, sem eitt ‘sias strandaði á
Skeiðarársandi. — Útgefandi Bóka-
forlag o’dds Björnssonar. 165 bls.
220 kr.
Ógnir Einidals — eftir Guðjón
Sveinsson. Þetta er önnur unglinga-
bók höfundar. Áður kom út „Njósn-
ir að næturþeli". — Útgefandi
'Bókaforlag Odds Bjömssonar. 173
bls. 220 kr.
Gaukur keppir að marki — drengja-
saga eftir Hannes J. Magnússon
fyrrverandi skólastjóra. Þriðja bók-
in um Gauk og félaga hans.
Útgef. Æskan. 152 bls. 185 kr.
Eygló og ókunni maðúrinn, eftir
hjónin Rúnu Gísladóttur og Þóri S.
Guðbergsson — Skáldsaga fyrir ung
ar stúlkur.
Útgef Æskan 83 bls. 163,50 kr.
Hrólfur hinn hrausti — víkingasaga
eftir ungan höfund austan úr Múla
sýslu, Einar Björgvin. Einar er að-
eins 19 ára gamall og þetta er
fyrsta bók hans.
Útgef Æskan 76 bls. 142 kr.
Fimm ævintýri — eftir Jóhönnu
Brynjólfsdóttur með fimmtán teikn
ingum eftir bókarhöfund.
Útgef. Æskan 36 bls. 50 kr.
Krummahöllin — Ævintýri eftir
Björn Daníelssón skólastjóra.
Útgef. Æskan 23 bls. 40 kr.
Þýddar
Nancy og fiauelsgríman — eftir
Carolyn Keene. Stúlknabók. Gunn-
ar. Sigurjónsson þýddi. Útg. Leift-
ur. 110 bls. Verð 135 kr.
Kim missir minnið -»■ eftir Jens K.
Holm. Framhald af Kimbókunum,
sem eru drengjabókaflokkúr. Þýö-
andi Knútur Kfistinsson. Útg.
Leiftur. 108 bls. Verð 125 kr.
Hrói höttur og hinir kátu kappar
hans — Ný útgáfa af sögunni um
þann fræga kappa. Þýðandi er Gísli
Ásmundsson. Útg. Leiftur.
Dóra flyzt í miðdeild — eftir Dor-
itu F. Bruce. Þriöja bókin í bóka-
flokknum um Dóru. Gísli Ásmunds
son þýddi. Útg. Leiftur. 142 bls.
Verð 135 kr.
Sonur perluveiðarans. — Segir
frá flakki hans og ævintýrum. Sig-
urður Helgason þýddi. — Útg.
Leiftur. 142 bs. Verö 180 kr.
Refsing gula skuggans. — eftir
Henri Vernes. Sextánda bókin í
bókaflokknum um Bob Moran. —
Magnús Jochumsson þýddi. Útg.
Leiftur 110 bls. Verð 135 kr.
Skýfaxi, saga um hest — eftir
Helen Griffiths, en hún var aðeins
sextán ára þegar hún skrifaði sög-
una. Hún fjallar um lífið á argen-
tínsku sléttunum, hestana og fólk-
ið. Þýöandi Baldur Hólmgeirsson.
Útg. Grágás. 120 bls. Verð 150 kr.
Sá hlær bezt, sem síðast hlær —
eftir Jens K. Hólm. Ein af bókun-
um í Kim-bókaflokknum. Þýðandi
er Knútur Kristinsson. Útg. Leift-
ur. <110 bls. Verð 125 kr.
Jóna bjargar vinum sínum. — eft-
ir Magna Toft. Sagan segir frá æv-
intýrum Jónu í Austuriöndum. —
Knútur Kristinsson þýddi. Útg.
Leiftur. 128 bls. 135 kr.
Matti strýkur úr skóla. — eftir
Peter Matthews. Bók fyrir börn á
aldrinum 8—12 ára. Gísli Ás-
mundsson þýddi. Útg. Leiftur. 118
bls. Verö 125 kr.
Sally Baxter á baðströnd — eftir
Silvíu Edwards. Bók fyrir stúlkur
á aldrinum 13—16 ára. Útg. Set-
berg. 136 bls. Verð 175 kr.
Stálhákarlamir — eftir Henri
Vernes, er sautjánda bókin
um Bob Moran. Þýðandi Magnús
Jochumsson. Útg. Leiftur. 110 bls.
Verð 135.
Róbinson Krúsó — eftir Daniel De-
foe Ný útgáfa af þessari vinsælu
sögu, sem Steingrímur skáld Thor-
steinsson þýddi. Útg. Leiftur. 112
bls. Verö 125 kr.
Pétur Most — eftir Walter Christ-
man. Þetta er 2. bók um Pétur
stýrimann eftir þennan vinsæla
unglingabókahöfund. Útg. Leiftur.
168 bls. Verð 135 kr.
Frank og Jói og leyndarmál gömlu
myllunnar — strákabók eftir
Franklin W. Dixon. Gísli Ásmunds
son þýddi. Útg. Leiftur. 130 bls.
Verö 135 kr.
Frank og Jói og húsið á klettinum
— eftir Franklin W. Dixon Gísli
Ásmundsson þýddi. Útg. Leiftur.
188 bis. Verð 135 kr.
Mary Poppins í lystigarðinum —
eftir P.L. Travers. Hallur Hermanns
son þýddi. 150 bls. Verð 150 kr.
Kusa í stofunni — eftir Anne-
Cath Vestly, höfund bókanna um
Óla Alexander Fílí-bomm-bomm.
Stefán Sigurðsson þýddi. Útg. Ið-
unn. 107 bls. Verð 160 kr.
Beverly Gray í öðrum bekk —
eftir Clarie Blank. Segir frá vist
Beverly í heimavistarskóla og
ævintýrum, sem þar henda. Krist-
mundur Bjarnason þýddi. Útg. Iö-
unn. 186 bls. Verð 220 kr.
Baldintáta kemur aftur — eftir
Enid Blyton, hinn kunna enska
barnabókahöfund. Segir frá dvöl
í heimavistarskóla. Hallbergur Hall-
mundsson þýddi. — Útg. Iðunn.
176 bs. 150 kr.
Fimm á Hulinsheiði — eftir Enid
Blyton. Þrettánda bókin um félag-
ana fimm. Kristmundur Bjarnason
þýddi. Iðunn — 152 bli. Verð 170
kr.
BÓKASKRÁ I.
Skrá yfir barna og unglingabækur 1968
Nancy og myndastyttan — eftir
Carolyn Keene Telpnabók. Þýð-
andi Gunnar Sigurjónsson. Útg.
Leiftur. 106 bls. Verð 135 kr.
Grímur og asninn — saga fyrir
drengi eftir Richmal Cromton. Guð-
rún Guðmundsdóttir þýddi. Útg.
Setberg. 112 bls. Verð 140 kr.
Dularfulla prinshvarfið — *fíir
Enid Blyton. Ein af „Dularfullu
bókunum“, sem er bókaflokkur
með leynilögreglusögum fyrir ungl-
inga. Þýöandi er Andrés Kristjáns-
son. — Útg. Iðunn. 146 bls. — Verð
170 kr.
Hilda í kvennaskóla — eftir
Mörthu Sandwall Bergström. Þetta
er fjóröa bókin um Hildu frá Hóli
og segir frá skólavist hennar í
kvennaskóla. Kristmundur Bjarna-
son þýddi. — Útg. Iðunn. 152 bls.
Verð 170 kr.
Doddi og leikfangalestin — eftir
Enid Blyton, með myndum og vís-
um. Bók fyrir yngstu bömin. —
Útg. Myndabókaútgáfan. 20 bls.
Verð 50 kr.
Pípuhattur galdrakarlsins (ævintýri
múmíuálfanna) — eftir Tove Jan-
son. — Höfundurinn er búinn að
semja margar bækur um ævintýri
múmíuálfanna, sem eru hans eigin
hugarfóstur, en ekki arfur þjóð-
trúar né gamalla sagna. — Stein-
unn Briem þýddi bókina. — Útg.
Örn og Örlygur. 160 bls. Verð
198 kr.
Fortíðarvélin — eftir Tom Swift.
— Höfundurinn er kunnur af mörg-
um ævintýrabókum, sem út hafa
komið eftir hann hér á landi. —
Útg. Snæfell. 168 bls. Verð 130 kr.
Dagfinnur dýralæknir í langferðum
— eftir Hugh Lofting. Framhald af
Dagfinni dýralækni í apalandi.
Höfundurinn hefur hlotið sérstaka
viðurkenningu fyrir þessa bók.
Andrés Kristjánsson þýddi. 208 bls.
Verð 198 kr.
Kata í Ameríku — eftir Astrid
Lindgren. Sagan lýsir ástarævin-
týrum sænskrar stúlku f Ameríku-
ferð, — Jónína Steinþórsdóttir
þýddi. — Útg. Fróði. 124 bls. Verð
135 kr.
15 ævintýri Litla og Stóra. — Upp-
haf að nýjum myndasö.guflokki um
þá félaga.
Útgef. Æskan. 45 kr. 31 bls.
Jói í Ólátagarði — Bamasaga eftir
Astrid Lindgren. Prentuð í fimm
litum með Iesmáli fyrir hverja
mynd. Eirikur Sigurðsson þýddi. —
Útg. Fróði. 30 bls. Verð 140 kr.
Pipp fer á sjó — eftir Sid Roland
— ævintýrasaga fyrir börn. — Út£.
Fróði. 127 bls. Verö 125 kr.
Haukur í hættu — eftir Eric Ley-
land og T. E. Scott. — áður hafa
komið út nokkrar bækur um Hauk
flugkappa og ævintýri hans. Skúli
Jensson þýddi. — Útg. Hörpuút-
gáfan. 126 bls. Verð 125 kr.
í sumarsól — eftir Margit Ravn.
Þetta er fjórða bók höfundar, og
kemur hér út í nýrri útgáfu. —
Helga Valtýsdóttir þýddi. — Útg.
Hildur. 190 bls. Verð 170 kr.
Valsauga og Minnatonka — Indí-
ánasaga eftir Ulf Uller. Sigurður
Gunnarsson þýddi. — Útgefandi
Bókaforlag Odds Bjömssonar. 124
bls. 180 kr.
Bláklædda stúlkan eftir sænsku
skáldkonuna Lisu Eurén-Bemer —
Guðjón Guðjónsson fyrrverandi
skólastjóri þýddi.
Útgef. Æskan 124 bls. 148 kr.
Á leið yfir úthafið — fyrsta bók í
nýjum bókaflokki. Frumbyggjabæk
urnar. Höfundur er Elmar Holm,
en þýðingu gerði Eiríkur Sigurös-
s_on fyrrverandi skólastjóri.
Útgef Æskan 145 kr. 112 bls.
Tamar og Tóta. — eftir norsku
skáldkonuna Berit Brænne, Sig-
urður Gunnarsson, skólastjóri
þýddi.
Útgef. Æskan 165 kr. 123 bls.
Sögur fyrir börn — þrettán mynd-
skreyttar smásögur eftir Leo Tol-
stoj hinn kunna rússneska rithöf-
und. — Halldór Jónsson ritstjóri
þýddi.
Útgef Æskan 50 kr. 43 bls.
Nýjar
bækur Æskunnar 1968
Án söluskatts kr.:
Bláklædda stúlkan.................... 148.00
Öldufall áranna .................... 410.00
Gaukur keppir að marki............... 185.00
Litli og Stóri ....................... 45.00
Yfir úthafið ........................ 145.00
Tamar og Tóta ................:...... 165.00
Krummahöllin.......................... 40.00
Skaðaveður 1897—1901 ...........:.... 220.00
Hrólfur hinn hrausti ................ 142.00
Eygló og ókunni maðurinn ............ 163.50
Sögur fyrir börn (Tolstoj)............ 50.00
Fimm ævintýri ........................ 50.00
Úrvalsljóð Sigurðar Júl. Jóhannessonar 149.00
BÓKABÚÍ rivUNNAR