Vísir - 14.12.1968, Page 8
N
8
V1SIR . Laugardagur 14. desember 1968.
VISIR
Otgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aöalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiösla: Aöalstræti 8. Slmi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuöi innanlands
1 lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Frumhlaup
J>að er gömul saga og ný, að margir ungir menn taka
stórt upp í sig þegar þefr byrja að láta að sér kveða
í þjóðmálum. Þeir hafa jafnan margt og mikið við
gerðir hinna eldri að athuga og telja sig oft vita bet-
ur og sjá lengra fram í tímann. Síðar sjá margir þess-
ir menn, að þeír muni í ýmsum tilvikum hafa farið
full geyst af stað, ög með aukinni reynslu og ábyrgð-
artilfinningu stillast þeir og átta sig á því, að þjóð-
málin eru oft flóknari og erfiðari úrlausnar en þeir
héldu í fyrstu.
Allir stjörnmálaflokkar vilja laða að sér æskuna
'Og beita til þess ýmsum ráðum, minnugir orða skálds-
ins: „Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ert þú
á framtíðarvegi“. Enginn flokkur verður langlífur í
Iandinu, nema æskan veiti honum b’rautargengi á
hverjum tíma, en af því leiðir, að hún verður að fá að
láta til sín heyra og koma hugmyndum sínum og
gagnrýni á framfæri við þjóðina. En of mikið af öllu
má þó gera. Því verða að vera takmörk sett, hvað
ungir menn mega láta út úr sér; annars er hætt við
að þeir skjóti yfir markið og enginn rómur sé gerð-
ur að orðum þeirra.
Þetta sannaðist átakanlega í útvarpsumræðunum
frá Alþingi, þegar framsóknarmaðurinn ungi, Tóm-
as Karísson, kom að hljóðnemanum. Þvílíkur æsingur,
yfirlæti, órökstuddar fullyrðingar og rangtúlkun á
staðreyndum! Þetta vakti undrun margra áheyrenda.
Þessi ungi maður kvaðst vera mjög reiður og svo væri
um marga á sínu reki. Hann virtist ekki eiga nógu
sterk orð til þess að lýsa því, hve núverandi stjórn-
arvöld landsins hefðu leikið kynslóð hans grátt, m. a.
lagt á hana „drápsklyfiar“ með erlendum lántökum,
sem hún mundi vart fá risið undir. Ekki hirti þessi
ungi maður um að geta þess, hvaða verðmæti og at-
vinnutæki þjóðin hefur eignazt fyrir þetta lánsfé.
Þvert á móti talaði hann eins og því hefði öllu verið
eytt í óþarfa.
Það spáir ekki góðu, ef ungir menn, sem eru að
leggja út á stjórnmálabrautina, temja sér svona mál-
flutning. Sú kynslóð, sem þessi maður er að vorkenna,
hefur alizt upp við betri lífskjör, meira frjálsræði og
fjölbreyttari menntunarskilyrði en nokkur á undan
henni. Það má segja að flest hafi verið lagt upp í hend-
urnar á henni og hún hafi í rauninni aldrei kynnzt
því, hvað það er að þurfa að hafa eitthvað fyrir lífinu.
Nú er að koma að því, að hún fær að sýna, hvað í henni
býr. Það hefur verið búið vel í haginn fyrir hana, þótt
mikla erfiðleika hafi nú borið að höndum í bili. Og
skili hún ekki lakara ævistarfi en sú, sem hún er að
taka við af, má hún vel við una. Hún ætti að vera
þakklát fyrir arfinn, en ekki reið og vanþakklát. Og
hún aetti að láta frumhlaup þessa unga manns verða
sér víti til vamaðar. Það hefur líka heyrzt, að full-
yrðingar hans og gífuryrði hafi gengið fram af
mörgu ungu fólki, sem á hann hlustaði.
í
i.
:
Hugmyndasamkeppni Frjálsrar verzlunar:
Framleiðsla á víni úr
■ Úrslit voru kunngjörð í
gær í hugmyndasamkeppni
tímaritsins Frjálsrar verzlun-
ar. Heitið var 30. þús. kr. verö
launum þeim sem kæmi með
beztu tillöguna um hvemig
auka mætti fjölbreytni í at-
vinnuháttum hér á landi.
Sex hugmyndir bárust. Sér-
stök dómnefnd taldi ekki á-
stæðu til að gera upp á milli
þeirra 4 hugmynda, sem verðar
þóttu viðurkenningar. Var því
ákveðið að veita 5 þús. krónur
hverjum, þeim Eggerti Hauks-
syni, Hauki Ragnari Haukssyni,
Leó Eiríki Löve og Ólari Krist-
jánssyni. Þær 10 þús. krónur
sem eftir eru veröa stofn aö
nýrri samkeppni af sama tagi.
Af hugmyndum þeim, sem viö-
urkenningu hafa hlotið, fjallaði
ein um stofnun hveitimyllu á
íslandi til framleiðslu á korn-
vöru fyrir heimamarkaöinn,
önnur um framleiðslu á papp-
írsvörum o. fl. tengdum jóla-
sveininum á íslandi, hin þriðja
um ræktun blóma til útflutn-
ings og hin fjórða um fram-
Ritstjóri Stefán Guðjohnsen
Eftir 15. umferð í æfinga-
keppni Bridgesambands íslands
er staðan þessi:
1. Ámi Þorvaldsson og Sævar
Magnússon 180
2. Jón Ásbjömsson og Kari Sig
urhjartarson 176
3. Símon Símonarson og Þor-
geir Sigurðsson 175
4. Eggert Benónýsson og Stefán
Guðjohnsen 169
5. Ásmundur Pálsson og Hjalti
Elíasson 169
6. Gisli Hafliðason og Gylfi
Baldursson 169.
I kvepnaflokki er staðan
þessi:
1. Halla Bergþórsdóttir og
Kristjana Steingrímsd. 105
2. Ósk Kristjánsdóttir og Magn-
ea Kjartansdóttir 94
3. Hugborg Hjartardóttir og
Vigdís Guðjónsdóttir 89.
4. Guðríöur Guðmundsdóttir og
' Kristín Þorsteinsd. 89.
Næsta umferð verður spiluð
14. janúar og hefst kl. 19.30.
♦
Rúbertukeppni Bridgefélags
Reykjavíkur var spiluð s.l. mið
vikudagskvöld. Sextán pör hófu
keppnina, sem var útsláttar-
keppni. Til úrslita spiluðu að
lokum Einar Þorfinnsson og
Jakob Ármannsson gegn Eggerti
Benónýssyni og Stefáni Guð-
johnsen. Spiluð voru átta spil
og er sjö þeirra var lokið áttu
báðir bút og Einar og Jakob
game að auki. Hins vegar áttu
Stefán og Eggert 680 fyrir
ofan strik, Einar og Jakob
áttu 80 í bút og þurftu
því aðeins að vinna einhverja
sögn til þess aö vinna keppnina.
Áttunda spilið var þannig:
Stefán.
* Á-7-6-2
V K-9-7
* 6-5-3
* K-D-7
Jakob Einar
A K-9 * G-10-5-4-3
V 8-6-5 V Á-D-G
* G-10-9-8-2 ♦ Á-D
A Á-8-5 * 10-6-3
Eggert
D-8
V 10-4-3-2
+ K-7-4
* G-9-4-2
Vestur gaf og jsagði pass,
norður sagði 1 grand, austur
dobl, suður 2 lauf, vestur tvo
tígla, norður þrjú lauf, austur
3 spaða og allir pass. Einhverj-
um kann að þykja sögn Einars
ógætileg, en hafa verður í huga
að annaö hvort verður hann aö
dobla í þeirri von aö ná n-s 700
niður, eða að reyna að vinna
einhverja sögn. Eins og sést, var
auðvelt að vinna spilið, því sagn
hafi sér að suður verður ná-
kvæmlega að eiga D-x í spaða
QiíiiftJOtMJ
WBSSs PBl
A ö venju mun Taflfélag
Reykjavíkur halda árlegt
jólahraðskákmót. Hefst mótið
sunnudaginn 29. desember kl.
14. Verður þátttakendum skipt
í 15 manna riðla og komast 5
efstu úr hverjum riöli í úrslit.
Úrslitakeppnin fer fram mánu-.
daginn 30. desember og verður
teflt .1 einum riðli.
Skákþing Reykjavíkur hefst
sunnudaginn 12. janúar kl. 14.
Meistaraflokki verður skipt í
7 — 10 manna riöla og tefla
tveir efstu menn úr hverjum
riðli til úrslita um titilinn
„Skákmeistari Reykjavíkúr
1969“.
Á síðustu árum hefur engin
skákbyrjun notið jafnmikilla
vinsælda og Sikileyjarleikurinh
Hann leiðir oftast til skemmti-
legar sviptinga og er tilvalinn
til að forðast litlausar jafntefl-
isskákir. 1 eftirfarandi skák,
sem tefld var á skákþingi
Júgóslavíu 1968, kemur hvítur
með athyglisverða nýjung í
gamalkunnu afbrigði.
Hvitt: Ivanovic.
Svart: Messing.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd
4. Rxd Rf6 5. Rc3 a6
Najdorf afbrigðið, sem staðið
hefur af sér marga árásina.
6. Bc4 e6 7. Bb3 b5 8. f3
Hér er venjulega leikið 8. f4.
Hvítur fer sér að engu óðslega
og valdar e-peðið áður en hann
ræðst til atlögu.
8. ... Be7 9. Be3 0-0 10. Dd2
Bb7 11. g4 Rc6 12. 0-0-0 Ra5
13. h4 RxBt
Hér var betra 13. ... Rc4
14. BxR bxB og reyna að ná
rabarbara?
leiðslu á víni úr innlendum
rabarbara til heimaneyzlu og út-
flutnings.
Hinar hugmyndirnar tvær
voru að ýmsu leyti athyglis-
verðar og vel unnar, en fjölluðu
aðallega um útfærslu á atvinnu-
rekstri, sem þegar er til í land-
inu. Fjallaði önnur þeirra um
sameiningu flugfélaganna
tveggja og sameiginlegt átak
þeirra til eflingar ferðamanna-
starfsemi, en hin um byggingu
nýrra stúdentagaröa, er notaðir
yröu sem hótel á sumrum.
ef spilið á að vinnast. Það
var einmitt fyrir hendi og Ein
ar og Jakob voru þar með úr-
skurðaðir spilaheppnustu menn
Bridgefélags Reykjavíkur í ár.
*
Sveitakeppni Bridgedeildar
Breiðfirðingafélagsins lauk
þriðjudaginn 10. des. með sigri
sveitar Gissurar Guðmundsson-
ar. Sýndi sveitin mjög trausta
spilamennsku og vann alla sína
leiki. I sveitinni eru auk Gissur-
ar Guðmundssonar, ívar Ander-
sen, Ámundi ísfeld, Ólafur Gutt-
ormsson og hjónin Bjöm Péturs
son og EJísabet Sigurðardóttir.
Endanleg röð sveitanna varð
þessi:
1. sveit Gissurar Guðmundsson
ar 58 st (799:542)
2. sveit Þórarins Alexanders-
sonar 54 st. (840:557)
3. sveit Ingibjargar Hafldóra-
dóttur 46 st (859:604)
4. sveit Olgeirs Sigurðssonar
43 st. (787:647)
5. sveit Kristínar Kristjánsdótt-
ur 32 st. (806:749)
6. sveit Aðalsteins Snæbjöros-
sonar 31 st. (658:756)
7. sveit Tryggva Gislasonar 27
st. (731:875)
8. sveit Gísla Tryggvasonar 25
st. (659:874)
9. sveit Kristins Vilhjálmssonar
24 st. (631:767)
10. sveit Þorsteins Jóhannsson-
ar 20 st. (559:948)
Tvímenningskeppni B.D.B.
hefst þriðjudaginn 7. janúar
1969 og.veitir sú keppni rétt til
keppni í íslands- og Reykjavíkur
móti. Þátttaka tilkynnist for-
manni, Magnúsi Bjömssyni í
síma 18269 eða gjaldkera Þor-
steini Jóhannssyni í síma 19179.
sókn á b-línunni. Eins og skák-
in teflist gerir svartur lítið ann-
að en verjast.
14. axR HcS
Eftir 14. ... d5 15. e5 Rd7
16. f4 hefði sókn hvíts verið
illverjandi.
15. h5 Dc7 16. g5 b4 17. Ra4
Rd7 18. g6! Bf6 19. h6! hxg
20. hxg Bxg 21. Dh2
Ef 21. Bh6 BxR 22. BxH
Be3! og vinnur.
21. ... Hfe8 22. Bh6 Bf6 23.
Kbl d5?
Hér hefði /23. ... Rf8 veitt
meiri vöm.
24. Bf4 e5
Ef 24. ... Be5 25. exd Bxd
26. Hdel og hvítur vinnur.
Eáa 24. ... Dd8 25. Dh7t Kf8
26. Bd6t
25. Rf5! gxR
Eða 25. ... exB 26. Dh7t Kf8
27. Dh8t BxD 28. HxB mát.
26. Dh6 Rf8 27. DxB Rg6
28. Hegl og svartur gafst upp.
Hann er mát eftir 28. ... KÍS
29. Hh8t RxH 30. Bh6.
Jóhann Sigurjónsson.
■■■■■■■; - -:á—