Alþýðublaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 8. janúar 1966 - 46. árg. - 5. tbl. - VERÐ 5 KR. MALEFNASIGUR ALÞYÐUFLOKKSINS I BORGARSTJORN Íþréfta maður ársins í gær voru kunn gerð úrslit í kosn ingu íþróttaíi étta manna um íþrótta mann ársins 1965. Valbjörn Þorláks- son, Norðurlanda meistari í tugþraut var kjörinn með yfirburðum. Á myndinni sést Sig urður Sigurðsson formaður í Sam tökum iþrótta fréttamanna af fienda Valbirni hin glæsilegu verðlaun fem keppt er um. Sjá frásögn á í þróttasíðu bls. 11. Reykjavík, EG ALÞÝÐUFLOKKURINN vann mikinn málefnalegan sigur á borgarstjórnarfundinum í fyrrinótt, er melirihluti borgarstjórnar -yjíkti efnislega þjá tillögu Óajkars Hallgrímssonar bo.rgar- fulltrúa Alþýðuflokksins, að Reykjavíkurborg taki upp gerð heild arframkvæmdaáætlunar. Einnig var á fundinum samþykkt önnur tillaga frá Óskari um heimild til lækkunar gatnagerðargjaíds af raðhúsum af vissri stærð og er frá henni skýrt á öðrum stað í blaðinu. Voru þetta einu tillögurnar. sem samþykktar voru frá minnihlutanum í borgarstjóiln. Ó.-kar Hallgrímsson flutjti til lögu um það á borgarstjórnar fundi Reykjavíkur 2. des. sl. að tek inn yrði upp sá háttur að semja framkvæmdaáætlun til fjögurra ára fyrir Reykjavíkurborg. Tvisv ar áður á þessu kjörtímabili hafði Óskar flutt þessa tillögu, en í. hvorugt skiptið náði hún fram að ganga. í fyrra skiptið var henni vísað frá með rökstuddri dagskrá þess efnis, að það væri stefna bargarstjórnarinnar að gera að eins áætlanir um framkvæmdir í einstökum málaflokkum, svo sem kkar 17% gatnagerð og hitaveituframkvæmd um, svo nokkuð sé nefnt. Borgarstjórnavmeirihlutinn sá sér að vísu ekki fært að samþykkja tillögu Óskars óbreytta, þótt efnis atriðum sé í litlu eða engu raskað' Tillagan, sem samþykkt var um þetta kom frá borgar tjóra sem breytingartillaga við tillögu Ósk ars og er svohljóðandi: „Borgarstjárn Reykjavíkur er ljóst gildi þess að fylgt sé fyrir fram gerðum áætlunum um allar meiri háttar framkvæmdir í borg inni og stofnana hennar. Samþykkir borgar=t.iórn að taka sérstaklega til umræðu og með ferðar í marz n.k áætlun þá um framkv. borgarinnar og stofnana hennar og fjárþörf þeirra árin 1966 og 1967, sem nú er unnið að á vegum borgarinnar í samráði við Efnahagsstofniinina og ríkis> stiórn, enda 1610,” borgard iórnin rétt að slík áætlun verði áætlun ’P’ríimVi ** Klc Reykjavík GO. YFIRNEFNI) Verðlagrsráðs sjávarútvegsins náði uin það sam komulagi í fyrrinótt að ferskfiskverð skuli hækka um 17% að með altali á árinu 1966, fiskkaupendur skuli greiða 25 aura uppbót á hvert kíló línufisks til viðbótar þeim 25 aurum sem gTeiddir eru úr ríkissjóði or ennfremur eru fierðar ýmsar aðrar breyt- infiar á núverandi fyrirkomulagi. Samkomulafi þet-ta var einróma, að' öðru leyti en því aö Tryggvi Helgason greiddi ejkki atkvæði veglna andstöðu við e'inn lið þess, en lýsti sig samþykkan að öðru Icyti. Fréttatilkynning yfirnefndarinnar fer hér á eftir: Samkomulag um verð á bolfiski á vetrarvertíð 1966 náðist ekki í Verðlagsráði sjávarútvegsins og var verðákvörðun vísað til yfir- nefndar þann 10. des. Hefur nefnd- in leitazt við að finna grundvöll fyrir verðákvörðun, er bætt gæti Verulega rekstrarafkomu báta á þorskveiðum, og gæti jafnframt bætt kjör sjómanna á þessum bát- um til samræmis við breytingar á kjörum annarra stétta. Af hálfu fiskkaupenda hefur komið fram, að vegna erl. verðhækkana og umbóta í rekstri sjái vinnslustöðv ar sér fært að hækka fiskverðið verulega þrátt fyrir hækkun fram leiðslukostnaðar innanlands. Þessi hækkun er þó ekki það mikil, að nefndin telji, að með henni væri þessum útvegi tryggt eðlileg rekstr arskilyrði né sjómönnum á þessum bátum eðlileg lífskjör samanbor ið við aðra. Hefur nefndin því leit- að að öðrum leiðurn til að þetta markmið gæti náðst. Fékk nefndin leyfi sjávarútvegsmálaráðlierra til þess að fresta verðákvörðun um nokkra daga í því skyni að gera frekari athuganir á þessum leiðum. Hefur nefndin i þessu sambandi einkum kannað hugsanlega breyt- ingu á útflutningsgjaldi, er gæti gert það kleift að hækka fiskverð- ið. Þá hefur oddamaður nefndar- innar átt viðræður við ríkisstjórn- ina um aðrar hugsanlegar aðgerð- ir af liennar hálfu, er gæti haft áhrif í sömu átt. Niðurstaðan, hefur nú orðið sú, Framhald á 15. síðu. „MIKILVÆGT AÐ EINING NÁÐÍST" Alþýðublaðið sneri sér í gær til Eggerts G. Þorsteinssonar sjávarútvegsmálaráðherra og spurði hann álits á samkomulagi því sem gert var í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins um verð á bolfiski á árinu, sem nú er nýbyrjað. Ráðherrann hafði þetta að segja um málið: „Að minu áliti er það mikilvægast við þetta samkomulag, að það er einróma gert af fulltrúum allra aðila. Þá er það mikilvægt, að meginhluti þeirra umbóta, sem í samkomulag- inu felast koma til góða þeim hluta bátaflotans, sem verst er staddur, þ.e a.s. þeim sem annaðhvort geta ekki stundað síld- veiðar, eða geta ekki stundað þær á veturna og verða að ein- beita sér að öðrum veiðiaðferðum að öllu eða einhverju leyti. Vil ég að lokum sérstaklega þakka öllum þeim aðilum, sem áttu hlut að því að samkomulag þetta náðist og vona að í kjölfar þess hefji flotinn veiðar nú þegar. m--... — ■■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.