Alþýðublaðið - 08.01.1966, Qupperneq 4
Kitstjörar: Gylfi Gröndal (áb.) og Bencdikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
tröl: Eiður Guðnason. - SímaK 14900- 14903 - Auglýsingasími: 14906.
ABsetur: AlþýðuhúsiS vlB Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðslns. — Askriftargjald kr. 80.00. - I lausasölu kr. 5.00 elutakiB.
tJtgef&ncli: Alþýðuflokkurinn.
Skipaforstjóri sirandar
ÞESS MUNU engin dæmi, að forstjóri ríkisfyr
irtækis hafi samvinnu við stjórnarandstæðinga og
leggi í hendur þeirra bréf og upplýsingar til að ráð
ast á þann ráðherra, sem ber ábyrgð á viðkomandi
fyrirtæki. Svo ólíklegur atburður hefur þó gerzt.
Fyrir hátíðar tóku forstjóri Skipaútgerðar ríkis-
'iins, Gúðjón Teitsson, og fr'amsóknarmenn í fjár-
j veitinganefnd Alþingis sig saman um að gera árás
já Emil Jónsson fyrir sölu ríkisins á olíuskipinu
jÞyrli. Átti að þyrla upp moldviðri og kalla
„hneyksli", beina athygli almennings frá hinum
hörmulega rekstri Skipaútgerðarinnar, en kenna
Emil Jónssyni um öll vandræði hennar.
Emil Jónsson er þjóðkunnur isem heiðarlegur
iog varkár maður í öllum embættisverkum. Hann
|er seinþreyttur til vandræða og stendur því ekki oft
|í blaðaskrifum. En svo 'blöskraði honum framkoma
ÍGuðjóns Teitssonar, að hann tók saman grein um
jmálið, sem Alþýðublaðið birti í gær.
Það er mál þeirra, sem greinina lesa, að sjald
an hafi óhygginn embættismaður verið skorinn nið
ur við trog sem Guðjón Teitsson í þeirri grein. Þó
Ibeitir Emil Jónsson aðeins einu vopni, bréfum, sem
Guðjón hafði sjálfur skrifað ráðuneyti sínu varð-
ándi rekstur og hugsanlega sölu olíuskipsins Þyrils.
jLengra þurfti Emil ekki að leita. Bréfin kippa grund
yelli undan þeim málsflutningi, sem Guðjón lokk-
aði flokksbræður sína, fyamsóknarmenn á Alþingi,
til að viðhafa, Má búast við, að Helgi Bergs og fé-
iagar hans kunni Guðjóni litlar þakkir fyrir þetta
frumhlaup. Reyndari þingmenn Framsóknarflokks
ins hefðu vitað fyrirfram, að erfitt mundi að sanna
embættisafglöp á Emil Jónsson, og því tekið Guðjóni
Teitssyni með varúð, er hann þóttist benda þeim á
höggstað.
En Guðjón Teitsson og Skipaútgerð ríkisins eru
sitt hvað, eins og Emil benti á í grein sinni. Eng-
um er eins Ijóst og Alþýðuflokknum, að Skipaút-
gerðin veitir fólki umhverfis allt land lífsnauðsyn-
lega þjónustu. Varl'a er hugsanlegt .að veita þessa
þjónustu með því móti, að hún standi fjárhagslega
undir sér, enda er ekkert eðlilegra en að samfélagið
taki þátt í kostnaði við góðar samgöngur, svo sem
gert er í flestum löndum.
Þegar núverandi floti stra'ndferðaskipa var
keyptur fyrir tveim áratugum, gerðist það í ágætu
samstarfi þáverandi forstjóra Skipaútgerðarinnar,
og þáverandi samgöngumálaráðherra, Emils Jóns-
sonar. Hins vegar hefur hallað undan fæti fyrir út-
gerðinni í tíð Guðjóns Teitssonar, og hefur hallinn
n^lgazt hundrað þúsund krónur á dag. Sú stjórn
vekur hvorki traust né hrifningu.
CRC - rakavarvtarefnið
ATH.: að CRC rakavarnarefnið smýgur undir rakann og
þurrkar rafkerfið.
FYRIR BIFREIÐINA:
Þurrkar og rakaver rafkerfið. — Ver fyrir tæringu. —
Ver krómið. — Vinnur á frosti í læsingum o. fl.
CRC leysir flesfan vanda:
SJÓNVARPSSTANGIR: Sprautið CRC á sjónvarpsstöngina, það
varnar útleiðslu vegna sjávarseltu og bætir þar með móttöku-
skilyrðin.
Fæst í bifreiðaverzlunum og benzínsölum.
Heildsöíubirgðir:
Pétur 0„ Nikulásson Vesturgötu 39, sími 20110
I
íuCiiP
UTANBÆJARBÍLSTJÓRI send
ic Bifreiðastjóri skrifar um næturþjónustu í Reykjavík.
it ÁstandiÖ er óþolandi.
it Umferðastöðin nýja.
Á Ævintýrið og syndafallið.
ir mér þessar línur: „Ég þakka
þér og bréfritara þínum, er minnt
ist á. það vandræðaástand sem er
í Reykjavík, að þar skuli vera lok
að fyrir alla benzínafgreiðslu um
11 á kvöldin og til morguns, og
að ekki er hægt að fá vott né
þurrt um nætur. Þaö er líkast til
rétt, sem sagt var í pistli þínum,
að þetta ástand er látið standa
svona vegna þess, að ráðamenn
halda að engir aðrir séu á ferli
um nætur en óreglufólk, sem ekki
þurfi að vera að siuna á neinn
hátt.
ÉG TEK UNDIR það, sem sagt
var, að þannig er þetta alls ekki.
Fólk vinnur við ýms störf um næt
ur og þarf á þjónustu að halda
Hvernig halda menn til dæmis,
að ástandið yrði, ef öll bifreiða
þjónusta væri lögð niður um næt
ur. Þá er þess að gæta, að mörg
skip koma til hafnarinnar að
nóttu til og einnig önnur farar-
og flutningatæki.
ÉG HEF ETTHVAÐ heyrt um
það, að í hinni nýju Umferðamið
stöð borgarinnar eigi að vera veit
ingastaður, sem opinn verði um
nætur. Ég vona að þetta sé rétt,
en þá vil ég líka mælast til þesS,
að benzínafgreiðsla verði einnig
opin þarna og á þessum tíma.
Hún þarf að vera opin fyrir alla
en ekki aðeins okkur lagferða-
bifreiðastjórana, sem höfum af-
greiðslu á Umferðarmiðstöðinni.“
ALLTAF DREGUR Ævintýri á
gönguför að sér athygli almenn
ings. Það var enn sýnt fyrir fullu
húsi í Iðnó á miðvikudagskvöld.
Nú munu vera liðin 68 ár síðan
þetta gamanleikrit var fyrst sýnt
en það mun fyr-t hafa verið sýnt
á Eyrarbakka 1897, og enn er sá
sem lék annan stúdentinn, lifandi
Guðmundur Guðmundsson, en
hann varð níræður á fimmtudag.
ÉG HEF OFT SÉÐ Ævintýrl
á gönguför og það var eiginlega
til þess að rifja upp gamlar minn
ingar, að ég fór að sjá það á
miðvikudag''kvöldið. Vitanlega
skemmti ég mér við að rifja þetta
Framhald á 10. síðu.
"4 8. janöar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ