Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 3
I DIMMUM BRUNNUM vögguþulu þeirra Magnúsar, jafnvel Blóðbrullaupið sjálft þeg- ar það var leikið hér í Þjóðleik- húsinu fyrir nokkrum árum. Ó- neitanlega var Garcia Lorca fyrst og fremst ljóðskáld, einnig þegar hann orti fyrir leikhúsið — og það þótt „öll þróunin í leikritum hans stefni að því að sníða af ljóðrænu greinarnai' ” eins og haft er eftir bróður skáldsins í leikskrá. Hús Bernö-?>n Alba mun almennt tal- \ ið fuliknmnasta leikrit Garcia i Lorca oe sjálfsagt er það rétt, að þar só minna um ljóðrænuflúr ] og útúrdú>-a en í öðrum leikjum hans. Þa’’ fvrir er gerð og allur andi leiksins ljóðrænn. Atburða- rásin er ofureinföld og gæti hæg- lega veri^ sniðin eftir þjóðkvæð- um þó mér sé það ekki kunnugt; örlaaac'öCT”r sem þessi eru al- kunnar þar. Og persónulýsingar eru allar kvrrstæðar, statískar; leikurinn lvsir engri þróun en breeðnr unn einni heilli mynd; sálfræði hans, söguatvikin eru ekki áhueaverð sjálfra sín vegna en sem miðill Ijóðrænnar lífsýnar verksins . f dimmum brunnum vaka eitursnákar, og nóttin aumkv- ast vfír hínum rústum,” kvað ann- að skáld sem einnig orti leikljóð um ástina, ástríðuna og dauðann; j og þessi orð lýsa mætavel hug- j blænum f Húsi Bemörðu Alba; ! það er meira að segja merkileg líking með myndmáli Jóhanns Sigurjón'sonar í þessu kvæði og Garcia Lorca í leiknum. Leikur- inn lýsir dimmum brunnum mann- legrar sálar, bruna blóðsins, af- vegaleiddum, sjúklegum tilfinn- , ingum; hann er harmljóð um ó- fuli”-"”* ’-r cpm eygist { sínum Inga Þórðardóttir, Regína Þórðardóttir og Sigríður Hagalín. eigin funa. Ljóðið talar sínu eigin máli. Áhorfendur eiga það undir sjálfum sér hvort þeir játa eða neita þessari lífsýn, hvort hún vekur þeim áhuga eða andúð, eða lætur þá ósnortna. Þetta virtist fullljóst af svið- setningu Helga Skúlasonar í Iðnó. Það er allt kyrrt á yfirborðinu í húsi Bernörðu Alba, meira að segja rúm fyrir dálítinn gáska, skop, en jafnan skammt ofan á glóð; stígandi leiksins er síhitn- andi ástríðan sem inni fyrir brennur og bálar upp annað veif- ið. Ef til vill var full-lítið lagt upp úr þessari stígandi, áherzla sýningarinnar full-einhliða á á- stríðu leiksins, allt frá öndverðu, ofsa hans; en sá skilningur er einnig í góðu gildi. Og myndræn- ar uppstillingar kvennanna á sviðinu imdirstrikuðu jafnvægið á yfirborðinu, kyrrstöðu leiksins. Sviðsmynd úr fyrsta þætti. Þetta er enginn raunsæisleikur,' engin þjóðlífslýsing, en stilfærðf uppmálun sálarlífs sem spillist og ranghverfist undir oki hefðar og vana. I.eikinn má, ef vill, taka sem útlistun á átökum yfir- og undirvitundar í mannlegri sál, undirokaðrar ástríðu og rangsnú- innar skynsemi. Bernarða Alba er sannfærð um það að í húsi sinu sé ekkert háð tilviljun, allt á hennar eigin valdi, allt og allir lúti hennar forsjá og vilja. Vilji hennar er hið illa afl leiksins, krabbameinið, sem tærir hús hennar, lýsing hennar sjálfrar þungamiðja leiksins. Og í sýningu Leikfélagsins bar hæst þessa kvenlýsingu Regínu Þórðar- dóttur. Bemarða liennar er sjúk kona, tærð af sínum eigin vilja sem ekki getur látið undan; stund- urn er engu líkara en kraftar hennar ætli að bresta fyrir ofríki tilfinninganna. Þess vegna verður lýsing hennar mannlegri, geðfelld- ari en ef hún væri heilbrigð . og , með fullu valdí á gerðum sínum. Með Bernörðu hefur Regína Þórð- ( ardóttir aukið enn einni svip-, sterkri konumynd við fyrri kven-1 lýsingar sínar, öfgaminni en kven skrattar Diirrenmatts voru sem , skammt er að minnast, og ef til v vill að því skapi átakanlegri. Dæt- ur Bernörðu, fimm talsins, eru, þær Sigríður Ilagalín, Guðrún Stephensen, Margrét Ólafsdóttir,, Helga Bachmann og Kristín Anna Þórarinsdóttir. Af þeim var Mar- tirio Helgu Bachmann líklega skýrlegast mótuð, bækluð á sál og líkama, .ógæfan uppmáluð;, ep Sigríður Hagalín lýsti einníg Framhald á síðu fi. Leikfélag Reykjavíkur: HÚS BERNÖRÐU ALBA Sjónleikur í þremur þáttum eftir Federico Garcia Lorca. Þýðing: Einar Bragi Sigurðsson. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Leikstjóri Helgi Skúlason. Leikfélag Reykjavíkur liefur um þessar mundir miklu og góðu kvennaliði á að skipa; þetta sann- ast eftirminnilega á sýningu fé- lagsins á Húsi Bernörðu Alba eft- ir Garcia Lorca. 24 konur taka þátt í leiknum. þar af víst einar níu í veigamiklum hlutverkum, Og virðist hvert eitt hlutverk full- vel skipað eftir því sem hér er að vænta, og sum ágætlega. Mér virlist leikstjórn Helga Skúlason- ar skynsamleg og smekkvísleg, og einföld leikmynd Steinþórs Sig- úrðssonar, sem er orðinn óbrigð- ull listamaður í leikhúsinu, miðl- aði leiknum réttum hug- og stað- arblæ. Þetta var að öllu saman- lögðu áhrifamikil sýning. Engu að síður hlýt ég að játa að Hús Berri- örðu Alba hrífur mig ekki, verkið vekur ekki nema takmarkaðan á- liuga. En það er að sönnu viðbúið að þetta sé ljóður á mínu ráði en ekki leiksins eða sýningar- innar. Federico Garcia Lorca hefur lengi verið nafnkunnur maður hér á landi vegna vögguþulunnar úr Blóðbrullaupi sem Magnús Ás- geirsson þýddi, og vegna dauða síns. Fyrir mörgum mun hann Iiafa orðið ímvnd hins frjálsa Spánar í heliargreipum fasism- ans. Og það er varla ofsagt, að þau verk hans sem hingað hafa borizt hafi fio<ri horfíð í skugga 23- janúar .1966 - AIÞYÐUBLAÐIÐ. .~K1 R_j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.