Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 16
 Náttúran hefur gefið mann- inum hæfileikann til að samhryggjast, en hins veg- ar sárafáum hæfileikann til að samgleðjast. Jói naut spældi kennara- blókina heldur betur um dag inn. Kennarinn sagði við hann: Þú verður að læra að telja, Jói, þetta getur ekki gengið lengur. — Síðan rétti hann upp fjóra fingur — og spurði: Hvað er þetta mik- ið, Jói? Og Jói naut svaraði um hæl: Eittþúsund—eitt- hundrað-og-ellefu .... ÞAR HEYRAST EKKI VÍXLARNIR FALLA. Fyrirsögn í Mogga. MIKLIR SPEKINGAR eru Kanadamenn. Nú hafa þarlendir forn- leifafræðingar fundið kofarústir norður við yzta haf á þeim stað, sem Steinn Steinarr bar beinin í einu af kvæðum sínum fyrir svo sem eins og tuttugu árum. Kanadískir vaða greinilega í villu og svíma, þegar þeir lialda því blákalt fram að kofarústir þessar séu síðan á fjórtándu eða fimmtándu öld. Við Baksíðumenn getum sannað með stuðningi eins af virtustu prófessorum Háskólans í Reykjavík, að liér er um tuttug- ustu r.ldar rústir að ræða. Á miðri tuttugustu öld yrkir Steinn svohljóðandi kvæði um reyrichi sína af búsetu við Hudsonflóa : Ég byggði mér hús við hafið og hafið sagði OK. Hér er ég og ég heiti Hudson Bay. í kvöldsins liægláta húmi heyrði ég bylgjunnar sog. Þannig er þessi heimur —• það er og. Niðurlagserindið, sem í rauninni er aðalatriði málsins, hljóðar svo: í nótt mun ég krókna úr kulda í kofa við Hudson Bay. Þú mikli eilífi andi. OK. Kvæðið bendir ótvírætt til þess að Steinn Iiafi siglt vestur um haf að sumri og byggt sér þennan margumtalaða kofa á Ungava skaga nyrzt á Labrador, þar sem áður hét Markland. Hann hefur ætlað sér nokkur umsvif, hlaðið stíflu í ársprænu til að verða sér úti um lax og yfirleitt litið framtíðina í rósrauðu laxlíki. En svo skellur veturinn yfir og í kvæði sínu króknar Steinn úr kulda í kofaræksni þessu, en hinn mikli andi Indíána og Eskimóa lætur séi fátt um finnast. Segir ekki annað en OK. Samkvæmt upplýsingum prófessorsins er svæði þetta með öllu óbyggjlegt og kemur það heim við reynslu skáldsins. Nú megum við að vísu ekki taka orð skáldsins í bókstaflegri merkingu. Skáld lifa og deyja í ljóðum sínum, en engu að síöui virðist okkur Baksíðumönnum full ástæða til að kanadískir forn- leifafræðingar endurskoði fund sinn í Ijósi þeirra upplýsinga, sem við höfum hér með komið á framfæri. ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.