Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 10
1 umferð umferð umferð umferð umferð jr A grænu Ijósi VAFALAUST er margt, sem laga þarf í lögum og reglugerð- um hér á landi um umferðar- mál. Ekki skal hér gerð nein tilraun til að telja allt það upp sem lagfæra mætti, heldur að- eins benda á nokkur atriði, sem áreiðanlega væri til bóta að breyta- ★ Sjálfsagt er að liækka allar sektir gegn umferðarlaga- brotum að miklum mun. Eins og er í dag, finna menn með góð laun næsta lítið fyrir að greiða jafnvel hæstu sektir. ★ Stefna ætti að því að beita ökuleyfissviptingum í rík- ara mæli en gert hefur verið, og jafnframt að rjúfa þá hefð, sem myndazt hefur, að ævi- löng ökuleyfissvipting táknar í flestum tilfellum þriggja ára réttindamissi. ★ Breyta þyrfti reglum um skoðun bifreiða, þannig að bif- reiðir yngri en fimm ára séu skoðaðar einu sinni á ári, en all- ar bifreiðir eldri en fimm ára að minnsta kosti tvisvar á ári. ★ Gera ætti þá kröfu til Bifreiðaeftirlits ríkisins, að það láti prófa ýmsar nýjungar í ör- yggismálum að því er varðar bifreiðar. Ef ekki þykir tiltæki- legt að gera þetta af fjárhags- ástæðum, mætti bifreiðaeftir- litið gjarnan kynna hér niður- stöður rannsókna bifreiðaeftir- litsins í Noregi, sem oft eru mjög athyglisverðar. Minna má á, að mörg ár liðu, áður en op- inberir aðilar létu frá sér heyra um snjódekkin og enn hefur Eftirlitið ekki sagt orð opinber- lega um öryggisbeltin. ★ Koma þarf á fót full- komnum ökuskólum og skapa samræmingu í allri ökukennslu. Er ekki fráleitt að hugsa sér að akstur, meðferð bifreiða og umferðarreglur verði föst náms grein í framhaldsskólum, þar sem eru nemendur 17 ára og eldri. ★ Herða þarf eftirlit með ljósabúnaði bifreiða. Það er ekki nóg að athuga við skoðun það eitt hvort kviknar ljós eða ekki. ★ Auka þarf stórlega og bæta akreinamerkingar og fjölga umferðarmerkjum af ýmsu tagi. Koma þarf einnig skipulagi á „hringavitleysuna” á hringtorgunum, sem nú eru meðal þeirra staða, þar sem langflest umferðaróhöpp verða. Píi^- .5"- iO - --20 fljO 23. janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ VARLEGA! Samkvæmt 49. gr. umferð- arlaganna hvílir sérstök skylda á ökumanni að aka hægt og sýna ítrustu ' var- kárni: a. í þéttbýli. b. Þegar skuggsýnt er eða skyggni lélegt. c. Við vegamót. d. í beygjum. e. Við hæðarbrúnir. f. Þar sem útsýn er tak- takmörkuð að öðru leyti. g. Þar sem hætta er á að ljós blindi ökumann. h. Þegar mæta þarf öku- tæki á mjóum vegi eða brú, eða þegar farmur stendur út af ökutæki. i. Þegar hált er. j. Við gangbrautir. k. Þar sem almenningsvagn hefur numið staðar eða er um það bil að stöðvast við biðstöð. l. Þar sem börn eru á eða við veg eða gera má ráð fyrir, að börn séu að leik. m. Þar sem búfé hætta af umf. ökutækja. n. Þar sem unnið er að gerð. o. Þegar ökutæki dregur annað ökutæki. Þegar bleyta er á vegum skal aka þannig, að endur verði ekki fyrir slettum að óþörfu. HAPPDRÆTTI ALÞÝÐUBLAÐSINS DREGIÐ VAR { happdrættinu 24. des. seinni dráttur 1965. Vinningar komu á eftirtalin númer: ★ 22699 VOLKSWAGEN-BIFREBE) ★ 25024 VOLKSWAGEN-BIFREEÐ ★ 11384 landrover-bifreið Vinninganna sé vitjað á skrifatofu tiappdrættisins Hverfisg. 4. Hjá rannsóknarlögreglunni í Reykjavík og Sakadómaraembætt inu hefur verið tekinn saman all mikill tölfræðilegur fróðleikur um umferðarslys í Reykjavík og or sakir þeirx-a. Hefur Guðlaugur Jónsson lögreglumaður annazt þetta verk. Alþýðublaðið fékk. fyr ir nokkru að glugga í skýrslur' og töflur Guðlaugs og þar er meðal annars eftirfarandi fróðleik að finna: 1964 fékk lögreglan í Reykjavík 2955 umferðarslys og óhöpp til meðferðar. Aðild að slysum áttu 5601 farartæki. Stærsti hópurinn eru einkafólksbílar 3789, þar næst , koma svo leigubílar 500 talsins og síðan sendiferðabílar 461 talsins. Strætisvagnar voru viðriðnir 124 umferðaróhöpp. Fjölgun umferð aróhappa milli ára 1963 og 1964 var 469. Um orsakir umferðarslysanna er m.a. þetta að segja fyrir 1964: í 1397 tilf. var um óvarlegan akst- ur eða óvarkárni að ræða, í 988 tilf. brot á umferðarreglum, ; 55 tilfell um bilun á ökutæki, í 95 tilfell um ölvun, í 148 tilfellum urðu slys vegna þrengsla, hálku, ófærð ar eða óveðurs. Árið 1963 urðu 11 slys vegna skurða í götum en ekkert á árinu 1964. Ef athugaðir eru algengustu tjóna- og siysavaldarnir kemur m. a. í ljós a, 1964 voru biðskyldu brot þar efst á lista 672, 419 sinn um var ekið aftan á, 247 sinnum ekið utan í kyrrstæða bíla og 150 sinnum ekið út í umferð án nægilegrar aðgæzlu. Við athugun á því hverjir það eru sem fyrir slysunum verða í umferðinni, kemur í ljós, sem eng um þarf raunar að koma á óvart að þeir sem virðast í mestri hættu akandi eru einkabílstjórar og far þegar þeirra, en 1964 slösuðust farþegar 127 sinnum og bílstjór ar 90 sinnum- Alls urðu 477 menn fyrir bílum eða slösuðust í bíl slysum þetta ár og þar af voru gangandi vegfarendur 163. 380 þeirra sem slösuðust voru því úr þrem ofangreindum flokkum. Einn vörubílstjóri slasaðist og tveir far þegar í vörubílum. Tveir leigubíl stjórar slösuðust og þrír farþeg ar í leigubílum. Fjórir strætis vagnafarþegar slösuðust og einn bílstjóri og tölurnar fyrir stórar langferðabifreiðir eru þær sömu. Aldur hinna slösuðu er þannig. að langflestir eru á aldrinum 16 — 20 ára eða 81. Næst stærsti hópurinn eru svo börn 6—10 ára. Af börnum 5 ára og yngri slös uðust 50, 11-15 ára 47, 21-25 ára 40, 26—30 ára 22, 31—35 ára 15, 36-40 ára 26, 66-70 ára 19 og 71 árs og eldri 10. Sjá nánar línurit. Árið 1964 urðu flest slvs og ó höpp í umferðinni í de-ember, eða alls 288. Næstur kom október með 279 og þá nóvember með 278. Flest urðu slys á fólki í janúar 40 talsins, en fæst í desember 19 þrátt fyrir þá staðreynd, að þá voru umferðaróhöppin einmitt flest. Dauðsföll af völdum umferð ar urðu flest þrjú á einum mán uði, og var það í janúar. Alls lentu 477 manns í 360 um ferðarslysum, sem komu við sögu lögreglunnar 1964, og aðild að þessum slysum áttu 508 bílar. Eink^bílar voru þar langflestir eða 318. Næstir komu svo sendi ferðabílar 39. Vitað var um aldur 412 af þess um bílstjórum og voru 99 þeirra effa tæplega fjórðnngur 17—20 ára. 21—25 ára voru 68. en 71 — 75 ára voru 3. Sjá annars línurit. Fróðlegar tölur

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.