Alþýðublaðið - 15.02.1966, Blaðsíða 7
MOLAR
□ Á FLUGSÝNINGUNNI
í París í fyrra sýndu Rúss-
ar mikinn áhuga fyrir bandarísk-
um vélum, tóku ógrynni af mynd
um og gerðu teikningar. — Þeir
spurðu einnig bandaríska sérfræð-
inga um ýmislegt varðandi tækni-
leg atriði, flughraða og fleira.
Bandarískum sérfræðingum var
leyft að skoða sovézku vélarnar
eftir að búið var að taka mótor-
hlífarnar burtu, gegn því sama að
Sjálfsögðu, og einn þeirra sagði,
að það væri engin furða, þótt
Rússarnir hefðu áhuga. — Tækni
þeirra væri frá 1958.
☆
□ BRITISH AIRCRAFT
Corporation og Sud Avia-
tion vilja stækka hina fyrirhuguðu
Concordevél enn meira, þannig, að
hún taki 150 farþega. Concorde
er sem kunnugt er farþegaflugvél
sem á að ferðast hraðan en hljóð-
ið. Félögin verða að fá leyfi til
þessa frá báðum ríkisstjórnunum.
□ 1 FYRRA dó maður að
nafni Carl Norden, í Ziir-
ich í Sviss. Lát hans vakti ekki
athygli nema tiltölulega fárra
manna, en líklega er óhætt að
fullyrða, að meðal þeirra hafi ver-
ið allir þeir, sem flugu banda-
rískum sprengjuflugvélum í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Norden
fann upp hið fræga sprengjumið,
sem kennt var við nafn hans, en
það gerði mögulegt að varpa
sprengjum með mikilli nákvæmni
úr mikill hæð að degi til. Þetta
spreng j usigti (viðmiðunaráhald)
var eitt af bezt varðveittu hern-
aðarleyndarmálum styrjaldarinn-
ar síðari.
☆
Q NÚ ER farið að nota
Laser-geisla sem liæðar-
mæli í flugvélar, og líklega er
það nákvæmasti hæðarmælir sem
til er í heiminum. Geislanum er
skotið til jarðar með myndavélar-
linsu og með sérstakri tíma-
klukku skeikar, í hæsta lagi
örfáum sentimetrum á gefinni
flughæð.
☆
□ BANDARÍKJAMENN
urðu mjög gramir de
Gaulle um áramótin. Orsökin var
sú að fyrir nokkrum árum seldu
þeir Frökkum fimmtíu Skyraider
flugvélar. Sú tegund hefur nú
reynzt mjög vel í Vietnam og buð-
ust því Bandaríkjamenn til þess
að kaupa allar vélarnar aftur. —
Frakkar neituðu á þeim forsend-
um að þeir gætu ekki misst þær.
En nokkru síðar gáfu þeir tíu
slíkar vélar til Kambódíu og eru
því nokkrar líkur á því að þær
verði notaðar gegn bandarískum
flugvélum. Kambódía hefur oft
ásakað bandarískar vélar um að
hafa gert árásir á þorp innan við
landamæri þeirra, og Bandaríkja
menn hafa ásakað Kambódiu um
að vera hæli fyrir hermenn Viet-
kong.
Sjónvarpsstöðin i Vietnam
Nú eru þeir búnir að fá bandarískt sjónvarp í Vietnam, og' svona lítur sjónvarpsstöðin þeirra út.
Vél þessi er af Super Constellation gerð, og kunnvií mörguin íslendingum sem hafa heyrt kvalafullt
hljóðið í hreyflum liennar, en hún er mjög yfirhlaðin af allskonar tækjum þegar liún er notuð
sem „Early Warning Line“.
Þýzk æfingastöð
Vestur-Þýzkaland hefur nú í
undirbúningi mikla æfingastöð fyr
ir flugher sinn, í Bandar.íkjunum,
líklega í Sheppard í Texas. Þýzki
varnarmálaráðherrann hefur pant
að fjörutíu og sex T-37 „byrjun
ar-æfinga“vélairi hjá Cessna, fjöru
tíu og sjö T-38 æfingavélar frá
Northrop og þx-játíu og þrjár Star
fightervélar frá Lockheed, sem
notaðairi verða til orrustu þjálfun
ar. Einnig verða keyptar sex stór
ar flutningavélar frá Lockheed,
til flutninga á flugmönnum og
öði'u, milli Þýzkalands og Texas.
Allur kostnaður við þetta verððr
greiddur af Þjóðve-jum sjálfum.
Ekki stærsta vél í heimi
Hinn fimmtánda júní í fyrra
var haldin alþjóöleg flugsýning
í París sem Rússar m.a. tóku þátt
í. Það var augljóst mál að þeir
höfðu hugsað sér að „stela sen
unni“ enda tókst þeim svo vel upp
að Bláu englarnir voru þeir einu
sem gátu dregið athygli áhorf-
enda almennilega frá í-ússnesku
vélunum. Það vari einkum tvennt
hjá Rússum sem athygli vakti:
risaþyrlurnar og skrímslið Anton
ov An-22 sem þeir sögðu vera
stærstu flugvél í heimi. Og áhorf
endum hefur ái’eiðanlega ekki kom
ið til hugar að dxiaga það í efa.
Vélin var svo óskaplega stór að
það lá við að allar aðrar flugvélar
á vellinuum kæmust undir væng
hennar. Oleg Antonov, sá sem
teiknaði vélina sagði, að liún kæmi
til með að lækka flugfargjöld veru
lega, því að hún gæti borið 720
fai þega. Gat hann þess að vestræn
ir kaupendur gætu fengið af-
greiðslu eftir ca. tvö ár. Vestræn
ir flugsérfræðingar voru þó ekk
ei’t séxstaklega hrifnir, þeir töldu
vélina of hægfleyga og „frum-
stæða“ til þess að hægt sé að
nota hana i farþegaflug. An-22 hef
ur eldsneyti til 6800 mílna flugs,
og hraðinn er rúmar 400 mílur
á klukkustund. Lengd er 187 fet
vænghaf 210 fet og vöi’ugeymslu
rýmið exl 14x105 fet. Hreyflai’nir
eru fjórir, 15000 hestöfl hveri með
tvöfalda röð af skrxxfublöðum, sem
snúast hvor á móti annarri. Og
á nefinu er að sjálfsögðu hið
óopinbera einkenní xússneskra
flugvéla, gluggar fyrir sprengju-
miðara. Rússar voru að sjálfsögðu
mjög ánægðir með þetta bákn,
og áhorfendui’ voru fjarska undr
andi. En það var eitt sem var
ranghei-mt. Þetta er ekki stærsta
flugvél sem byggð hefur verið í
heiminum. Fyrixi sautján árum síð
an notuðu Bandai’íkjamenn flutn
inga flugvél sem var töluvert
stærx-i. Það var „vöi’uflutninga-
útgáfa" af B-36 sprengjuflugvél.
Hún vaxl í notkun í þrjú ár en var
þá lagt þar sem fullkomnari og
hraðfleygari vélar komu til sög
unnar. Flughraði hennar var rúm
ar 300 milur, og langdrægni rúm
ar 8000 mílur .
An-22 hefur voldugan hjólaúthúnað.
Risavélin An-22. Maðurinn sem örin bendir á er Oleg Antonov sá sem teiknaði véliua, og er hann þarny. i
hópi vestrænna fréttaritara.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. febrúar 1966 j 7