Alþýðublaðið - 15.02.1966, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 15.02.1966, Blaðsíða 9
\ Börnin læra að fleyta sér á örskömmuni tíma. Synda fimm mánaða gömul SUNDKENNARAR halda fram þeirri skoðun, að kenna eigi börn- um sund í frumbernsku. Á þeim aldri hafi þau engan ótta af vatni og þeim veitist auðveldara að halda sér á floti og synda heldur en að ganga. Belgískur sundkennari, sem heldur fast fram þessari skoðun, velti því fyrir sér hversu snemma væri hægt að kenna barni að synda. Hann áleit; að fimm mán uðii’ væru nægur aldur — ef hann aðeins fengi foreldrana til sam- vinnu. Honum gjkst að lokum að fá ung hjónaefni, sem hann þekkti vel, til að samþykkja, að hann fengi að reyna kenningu sína á fyrsta barni þeirra. Þegar svo frumburðurinn, Stephane, varð fimm mán. fékk sundkennarinn Pelseneer tækifær- ið, og það kom á daginn, að hann hafði á réttu að standa. — í dag syndir Stephane, sem er tæplega ársgamall, auðveldlega eina sund- laugarlengd, hvort sem er á yfir- borðinu eða í kafi. Tvö börn að auki hafa verið sett í læri hjá Pelseneer. Hann segir, að barnið tileinki sér mjög fljótlega rétta öndun, og það taki aðeins fáeinar kennslu- stundir, sem séu aðeins nokkrar mínútur í senn, að kenna barn- inu að fljóta á bakinu. Því næst veitir það því eftirtekt, að með því að sprikla færist það úr stað og eftir það veitist allt létt. Allir, sem hafa baðað ungbörn hafa veitt því athygli, að þau njóta þess að sprikla og hamast í vatn- inu. En sennilega láta nú flestar mæður sér nægja að taka orð Pelseneers trúarleg heldur en að gera tilraun. Michel (8 mánaða og Vincent (7 mánaða) Jœra sundtökin hjá foreldrum sínum. RITARI Ritari óskast í Rannsóknastofu Háskólans við Baróns- stíg. — Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist forstöðumanni Rannsóknarstofunnar sem fyrst, eða í síðasta lagi 20. þ.m. Nánavi upplýsingar um starfið veittar í síma 19506. 4ra herbergja íbúö óskast Opinber stofnun óskar eftir að taka á leigu hér í borg- inni 4ra herbergja íbúð, ca. 100 — 110 m^, ásamt eld- ’húsi og baði frá 1. marz n.k. eða sem fyrst. Tilboð- um óskast skilað til afgreiðslu blaðsins fyrir 19. febrú- ar n.K., merktum „Opinber stofnun — 1. marz 1966“. ‘ TEIKNIVINNA Opinber stofnu'n óskar að ráða fólk til starfa 'við teikningar, kortagerð og Ijósprentun. Laun skv,- 7. — 13. launaflokki. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist blaðinu merkt ,,Teiknistof'a“. REKSTRAREFTIRLIT Loftleiðir h.f. óska að ráða í þjónustu sína starfsmann. til að annast rekstrareftirlit með ýmsum þáttum starf- semi félagsins innanlands og utan. Umsækjendur skulu hafa fullkomna bókhaldsþekkingu og vera færir um að vinna sjlálfstætt að eftirlitinu og helzt hafa tekið próf í einhverri eftirtalinna greina: ENDURSKOÐUN, LÖGFRÆÐI, REKSTRARHAGFRÆÐI, VIÐSKIPTAFRÆÐI, eða hafi að'ra sambærilega menntun eða reynslu á sviði rekstrareftirllts^ endurskoðunar og fjáFmálaeftirlitS'. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Lækjar- götu 2 og aðalskrifstofunni, Reykjavíkurflugvelli. Umsóknir skulu hafa borizt ráðningarstjóra félagsins fyrir 1. marz n.k. ALÞÝÐUBLAÐiÐ ]5. febrúar 1966 Q

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.