Alþýðublaðið - 15.02.1966, Síða 10
^ RitstiórTÖrn Eidsson
fsland skoraði 5 síðustu mörkin
og sigraði Pólland - 23 gegn 21
ÍSLENDINGAR unnu kærkominn sigur yfir Pólverjum í lands
leiknum í handknattleik á sunnudag, sem fram fór í íþrótta-
höllinni I Laugardal, skoruðu 23 mörk gegn 21, í jöfnum og spenn
.andi leik. Staðan í hiéi var 12:11 fyrir ísland. Danir hafa nó 4
stig eftir þrjá leiki I D-riðli. Pólverjar eru einnig með 4 stig, en
;hafa lokið sínum leikjum, ísland er með 2 stig og á eftir að leika
'við' Dani hér heima. Til þess að hafa einhverja möguleika á að
komast í úrslitakeppnina í Sviþjóð næsta vetur, þurfa íslendingar
,að sigra Dani með 9 mörkum.
★ ísland komst í 4-1.
Pólverjar byrjuðu með boltann,
þeir áttu fljótlega gott tækifæri,
en Hjalti varði af prýði. Fyrsta
jr.
_mark leíksins! skoraði Cholewu
Á beint úr fríkasti, sem Pólverjar
y útfæröu mjög skemmtilega. Ing
yl ólfur jafnaði úr vítakasti. Voru nú
} 6 mínútur liðnar af leik.
Mörkin fóru að koma örar, Karl
“ skoraði með snöggu skoti, og Sig
í urfíur bætti öðru marki við og
yloks varð það Gunnlaugur, sem
/ færði íslandi þriggja marka for
sjsot, 4-1 með stórglæsilegu skoti.
•»
f; ★ Póiverjar sækja sig.
y Þetta átti eftir að breytast á
næstu mínútum. Cholewa skoraði
annað mark Póllands úr vítkasti
K en Ingólfur svarar með öðru víta
:. kastsmarki. Nú kom dálítið slæm
ur kafli fyrir ísland, Pólverjar
"♦ iskoruðu hvorki meira né
en 6 mörk gegn 1 og þegar 20
mínúturi eru liðnar af leik, er stað
an 8-6 fyrir Pólland. Mörk Pól-
verja gerðu Weglarz og Czichy tvö
hvor og Fraszchak og Mieleszcuk
\jeitt hvor. Fyrir ísland skoraði Guð
«jón Jónsson. Annars var það dálít
ið undarlegt, þegar staðan var
4-1 að taka Gunnlaug útaf, lang
bezta mann íslenzka liðsins. Hjalti
Einarsson stóð sig mjög vel í mark
inu á þessu tímabili og ekki var
hægt að kenna honum um mörk
in, m.a. varði hann eitt vítakast.
★ ísland nær1 aftur yfirhönd-
inni.
íslenzka liðið rétti hlut sinn
fljótlega aftur, þó að norskj dóm
arinn gerði slæmar skyssur, sem
ko tuðu íslenzka liðið amk. tvö
mörk. Guðjón Jónsson skoraði sjö
unda mark íslands og Gunnlaugur
síðan tvö, þannig, að aftur náði ís
land yfifihöndinni, 9-8. Aftur skor
uðu Pólverjar beint úr fríkasti,
og enn var það Cholewa. Ingólfur
skoraði tíunda mark íslands mjög
skemmtilega á 25 mínútu og Karl
það ellefta úr vítakasti. Pólverjum
var dæmt vítakast, sem Mieleszcu
zuk skoraðj úp. Síðustu mörk hálf
ieiksins gerðu Karl og Klosek,
þannig að staðan varð 11-9 fyrir
ísland. Á síðustu mínútu var Gunn
laugi ví~að út af leikvelli í 2
mínútur og var það vægast sagt
vafasamuji dómur.
★ Harður og spennandi síðari
hálfleikur.
Mikil harka var í síðari hálfleik
og tii að by,rija með vegnaði íslend
ingum betur, Karl skoraði fyrsta
markið úr vítakasti, en Czichy svar
aði fyrir Pólland með ágætu marki
Hermann Gunnarsson, sem litið
hafði bo.rið á í leiknum skoraði
mjög fallegt mark og enn stillir
Karl sér upp við vítakastmerkið
og pólski markvörðurinn átti enga
möguleika á að verja. Þó að Chzi
chy væri nú vísað af leikvelli í
2 mínútur sóttu Pólverjar og fjór
um sinnum varð Hjalti að sækja
boltann í netið, en pólski mark
vörðurinn aðeins einu sinni og þeg
ar 10 minútur eru liðnar af t'íð
ari hálfleik, var jafnt 16-16. Mörk
Pólverja gerðu Mieleszczuk tvö
og Czichy og Zawada eitt hvor.
Mark íslendinga skoraði Karl úr
vítakasti.
★ Æsandi augnablik.
Pólverjar sóttu af mikilli
grimmd næstu 10 mínúturnar og
náðu forystu, munurinn var þetta
eitt til þrjú mörk. Mileszczuk skor
aði og Weglarz, en Gunnlauguri
svarar fyrir ísland. Pólverjum var
dæmt vítakast, sem Mieleszczuk
framkvæmdi af öryggi, en síðan
fékk ísland vítakast og Karl hin
mikla vítakastskytta leiksins send
ir boltann í netið. Um þetta leyti
er Mieleszcuzuk vísað af leikvelli
í 2 mínúturi. Pólverjar verjast vel
á meðan, en Mieleszczuk var ekki
fyrr kominn inn á en að hann skor
ar, og aldursforseti pólska liðsins,
Rermann Gunnarsson skorar mark, aj línu. — Mynd: JV.
Frasczak bætir öðru marki við —
staðan er 21-18 fyrdr Pólland og
vonir um íslenziían sigur næsta
litlar aðeins tæpar tíu mínútur
til leiksloka.
endasprettur íslenzka liðsins verð
skuldar vissulega þennan kær-
komna sigur.
★ Liðin.
Landslið íslands og Póllands áður en ieikurinn hófst á sunnudaginn.
★ Ágætur endasprettur — og
sigur.
Endasprettur íslenzka liðsins
vari glæsilegur og áhorfendur tóku
þátt í honum af lífi og sál. Gunn
laugur skoraði nítjánda mark ís
lands og Karl það tuttugasta úr
vítakasti. Síðan jafnaði Hermann
með ágætu marki af línu, 21-21
og aðeins fjórar mínútur til leiks
loka. Þorsteini Bjö"in''syni sem
kominn var í markið fyrir Hjalta
var nú vísað af leikvelli í 2 mín.
íslenzku leikmennirnir voru taugaó
styrkir mjög, það var helzt Guð
jón Jónson, sem sýndi jafnvægi
og óvænt sendi hann boltann lag
lega í netið. Pólver.iar fengu tæki
færi til að jafna. Það mistókst
og aftur er Guðión í skotfæri og
skoraði við gífurlég faenaðarlæti
hinna þrjú þúsund áhorfenda, því
að sigurinn var nú trvggður.
Leikurinn var í heild miög jafn
og segja verður, að eftir gangi
hans hefði sigurinn alveg eins
getað orðið Pólve.rja, en frábær
í heild átti íslenzka liðið ágætan
leik, en beztu menn liðsins voru
Gunnllíugur sem aldroi bregst,
Hjalti í markinu, Karl Jóhanns
son, Guðjón Jónsson og Hermnnn
Gunnarsson, nýliðinn í landslið
inu.
Gunnlaugur var sívinnandi all
an leikinn og það var greinilegt
á pólsku leikmönnunum, að þeim
var ekki sama, þegar hann nálg
aSist markteiginn. Línumennirnir
Sigunður Einar-son og Stefán Sand
holt áttu ekki öfundsverðan dag,
þeir voru meðhöndlaðir hörkulega
af pólsku vörninni enda voru ts
landi dæmd 9 vítaköst. Ingólfur
Óskarsson, sem kom frá Svíþjóð
til að leika, stóð '■ig vel, en þó
ekki eins og vonasf var til. Það
sem helzt sko-tir híá 'slenzka lið
inu ,er meiri hraði í unphlaupin
og svo er stundum eins og liðið
°é ekki nógu örugpt í ag útfæra
leikaðferð snm nnta á.
Pólveriarnir eru g-einilega í
mjög góðri hiáifim hnír eru fljótir
Framhald á 11. síðu.
| 10 15- febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ