Alþýðublaðið - 02.03.1966, Page 8

Alþýðublaðið - 02.03.1966, Page 8
Jón Ásgeirsson í kjallaranum á Hótel Sögu er bað- og nuddstofa Jóns Ásgeirs- sonar, fysiotherapeut. Stofan er sú eina sinnar tegundar hér á landi, þar sem að Jón Ásgeirsson er sá eini hér, sem hefur þessa menntun og jafnframt rekur sjálf stæða stofu. Til þess að forvitn- ast aðeins um fyrirtækið lögðum við leið okkar þangað einn dag- inn. Jón Ásgeirsson tók á móti okkur og svaraði vinsamlega nokkrum spurningum. — Margir hafa vafalaust áhuga á að vita, hvað orðið fysiotherapy þýðir? — Orðið er samsett úr fysio- logi, sem þýðin lífeðUsfræði og hins vegar úr therapy, sem þýð|- lækningafræði. Samkvæmt því þýðir orðið fysiotherapy, lífeðlis- leg lækningafræði. — Vildirðu ekki segja okkur eitthvað um starfsemina hérna? — Hér er gufubað eða hitabað. Hér er einnig sjúkraleikfimi og 'Sjúkra'iþjálfun. Einnig ýmis æf- ingatæki til að auka þol og þrek, t.d. lyftingatæki og hjól. Hingað kemur fólk líka í nudd, stuttbylgj- ur, hljóðbylgjur og ýmsar tegund ir af hitalömpum. Sem sagt, hér Jón með hlóðbylgjutækið. miðar allt að heilsubót, bæði fyrir sjúka og heilbrigða. —Eru ekki margir, sem aðeins koma í gufubaðið? — Margir fara fyrst í gufubað og þá gjarnan í nudd á eftir. Síð an geta menn hvílzt, annað hvort í sérstökum hvíldarstólum eða leg ið og sofið inni í sérklefum, þar mega menn sofa allt frá 10 mínút um upp í tíu tíma, eftir því sem hver vill. — Er ekki ákaflega hollt að fara í gufúbað? -r- Jú, það er, ef svo má að orði komast, þreytufjarlægjandi og örvar blóðrásina. Fyrir kyrr- setumenn er mikil hætta á því að blóðið setjist of mikið í gang- limina, ef ekkert er að gert, og eru því gufuböð og ýmsar líkamsæfing ar nauðsynlegar fyrir þá. íþróttamenn koma líka hingað yfirleitt, áður en þeir eiga að leika stórleiki, og fá sér gufubað. Gufubaðið orsakar það, að þreyta hverfur og þeir verða bet- ur hæifir til leiks. Þeim hættir síður ýið meiðslum og hafa betra úthaldíí leiknum. — Hvað getur fólk verið lengi í einují gufubaði? — ila, fólk verður að finna það sjálft. Eins lengi og því líður vel, mundi ég segja. Annars verða þeir, sem þjást af hjartasjúkdómum að gæta sér- stakrar varúðar með gufuböð. — Svo er hér ýmislegt fleira, sjúkraleikfimi og þess háttar? — Já, flestir koma hingað sam- kvæmt læknisráði. T.d. eru hljóð bylgjur notaðar til að lækna ýmsa vöðva- og taugakvilla, sömuleiðis stuttbylgjur. Svo er hér sjúkranudd og ýms- ar tegundir af hitalömpum. — Hvað vinna margir hér á stofunni? — Hér starfa 8 manns, þar af fjórir, sem annast nudd, finnsk hjón, ein íslenzk stúlka og ein dönsk. Allt þetta fólk hefur lok- ið tilskildum prófum í starfsgrein sinni. — Er ekki stofan opin á hverj- um degi? — Jú, hún er opin alla daga nema sunnudaga frá kl. 9—21, þar af hef ég sérstakan viðtals- tíma frá kl. 9 — 12. g 2. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Rétt aðferð við tyfiingar. Ekki er sama hvernig lyftingar eru fram~ kvænidar. Á mynainni sést, hvernig lyjta á þannig að auðveldast sé. £ Í!|||||||Í v x- Samkvæmt því sem vísir menn segja, hafa íslendingar i dag lítið þol. Á myndinni scst hjól, sem menn geta notað til að auka með þol sitt og þrótt. . -\

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.