Alþýðublaðið - 02.03.1966, Side 9

Alþýðublaðið - 02.03.1966, Side 9
Siómenn burfa að samein- ast í einu sambandi ítalskt ullargarn i Höfum fyrirliggjandi frá Lanar-verhsmiöjunum > í Mílanó ullargarn á spóíum „ADDA'* 2/25000 fyrir i prónastefur og heimilisiönaff. ELDORADO Hallveigarstíg 10 — Reykjavík — Simi 23400. AÐALFUNDUR Sjómannafé- lags Reykjavíkur var haldinn sunnudaginn 20. þ. m. í húsi fé- lagsins að Lindargötu 9. — Á fundinum voru gerðar eftirfarandi ályktanir: 1. Kveðjur og þakkir til Slysa- varnafélags íslands. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 sendir Slysa- varnafélagi íslands kveðjur sínar og þakkar því frábær störf i þágu örýggismála sjófarenda. Jafn- framt skorar fundurinn á alla landsmenn að standa þétt að baki Slysavarnafélaginu í forystuhlut- verki þess í bættri umferðarmenn- ingu og vörnum gegn válegum um- ferðarslysum.” 2. Um aukið eftirlit með öryggis- tækjum í skipum. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 minnir á f.vrri samþykktir félagsins um áskorun þess efnis að í samráði við sjó- mannasamtökin verði ráðnir í það minnsta tveir menn til skipaeftir- litsins er hafi það verkefni að framkvæma skyndiathuganir í ski'pum og þá sérstaklega með það í huga að hafa eftirlit með því, að öll öryggistæki séu í því lagi er lög og reglur mæla fyrir um. Fundurinn viðurkennir og þakkar jafnframt, að ríkisstjórnin hefur að nokkru orðið við áskorun- um félagsins í þessu efni með því, að fyrrverandi skipstjóri hef- ur verið ráðinn til eftirlits, — en skoðun félagsins hefur verið sú, að nauðsynlegt sé að minnst tveir menn séu ráðnir til þessa sérstaka eftirlitsr Fundurinn skorar því liér með á viðkomandi ráðuneyti að sjá svo um, að annar maður til viðbótar verði þegar í stað ráðinn til þessa eftirlits og þá helzt maður með þekkingu á vélum. í. trausti þess að verði orðið við þessum tilmælum og áskorun- um, bendir fundurinn á, að til þess að eftirlitið verði að notum, verði fjárveiting til skipaeftirlitsins að vera það rífieg að báðum þessum mönnum sé fengin bifreið til nauð- synlegra ferðaiaga.” 3. Um sjómannastojur. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 beinir ~þeim til- mælum til borgaryfirvaldanna í Reykjavík, að þau beiti sér fyrir byggingu sjómannastofu og verka- mannaskýlis á athafna-svæði hinn- ar nýju Sundahafnar í Reykjavík, og framkvæmdir hefjist það fljótt að hún geti tekið til starfa um leið og höfnin verði tekin i notkun. Þá skorar fundurinn á Sjómanna- samband íslands og Farmanna- og fiskimannasamband íslands, að stuðla að því sameiginlega að komið verði upp sjómannastofum í stærstu síldarmóttökustöðvunum á Austurlandi svo og Vestmanna- eyjum og víðar, þar sem mörg skip landa afla og eða hafa við- legu.” 4. Áskorun á sjómenn o. fl. „Um leið og aðalfundur S.R. 20. febrúar 1966 skorar á reykvízka sjómenn að gerast fullgildir meðlimir í félagi sínu, og vinna ötullega að því, að ófé- lagsbundnir sjómenn séu ekki til, bendir fundurinn á eftirtalin rétt- indi sem fullgildir meðlimir Sjó- mannafélags Reykjavíkur búa við: Aðild að atvinnuleysistrygging- um, forgangsrétt til starfa á skip- um, sem skráð eru í Reykjavík, •ooooooooooooooo< | Ályktanir | | aðalfundar | I Sjómannafélagsf | Reykjavíkur f >000000000000000 rétt til dagpeninga og styrks úr sjúkra- og styrktarsjóði félagsins, dagpeninga ef félagsmenn eiga í verkfaili, sjötíu og fimm þúsund króna viðbótarláns frá Húsnæðis- málastjórn ríkisins, ef efnalítili fé- lagsmaður byggir sér íbúð, for- gangsrétt til íbúðarkaupa á hag- kvæmustu kjörum skv. samningi ríkisstjórnarinnar við verkalýðs- hreyfinguna á sl. sumri auk vernd- ar og ýmis konar fyrirgreiðslu félagsins. í í'ramhaldi af samþykkt síð- asta aðalfundar um stofnun bygg- ingarfélags samþykkir fundurinn að fresta aðgerðum i því máli, en felur stjórninni að gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna, er hafin verður úthlutun þeirra íbúða, sem byggðar eru eftir framkvæmdaá- ætiuninni sem samið var um á sl. sumri rnilli ríkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinnar.” 5. Um síldarverksmiðjur. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 telur, að eins og sakir standa, miðað við stærð síldveiðiflota okkar íslendinga, sé síldarverksmiðjukostur á Norður- og Austurlandi nægur, þar sem sameiginleg afkastageta verk- smiðja á þessu svæði er rúmlega 71. þús. mál á sólarhring og gert ráð fyrir mjög auknu þróarrými frá því sem var á sl. ári og ræður því fundurinn eindregið frá því að leyft verði að byggja allar þær síldarverksmiðjur á Seyðisfirði og eíðar, sem heyrzt hefur að ráð- gerðar séu. Fundurinn telur að hina svokölluðu „veiðitoppa” eigi að leysa með auknum flutningum síldar, sem góð reynzla hefur feng- izt af, svo og með auknu geymslu- plássi síldar. Fundurinn lýsir sig fylgjandi ábendingum varðandi þetta mál, er fram komu í bréfum. Sjómannasambandsins og Far- manna- og fiskimannasambandsins til sjávarútvegsmálaráðherra og skorar á ríkisstjórnina að taka þær ábendingar til greina.” 6. Um sameiningu sjómannafé- laga í eitt samband. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 harmar, að Sjó- mannasambandi íslands hafi enn ekki tekizt að virkja innan sinna vébanda öll sjómannafélög í land- inu. En þegar Ijóst er orðið, að hörðustu andstæðingar þess, að slík sambönd yrðu til, hafa gjör- breytt um skoðun, vill fundurinn skora á stjórn S.S.Í. að gera nú þegar tilraun til slíkrar samein- íngar. Beinir fundurinn því til næsta þings Sjómannasambands íslands, að gera nauðsynlegar og sanngjarnar lagabrejdingar á lög- um sambandsins til þess að svo geti orðið.” 7. Lífeyrissjóð fyrir alla sjómenn. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 mótmælir harð- lega allri skerðingu hins opin- bera á réttindum þeirra sjómanna, sem aðild eiga að Lífeyrissjóði togarasjómanna og undirmanna á farskipum, bendir fundurinn á þá þróun, sem orðið hefur á undan- förnum árum, að fiskimönnum fækkar stöðugt, þó aflamagn til hráefnisvinnslu stóraukist Varar fundurinn við þeirri hættu, að ekki verði hægt að manna þau fiskiskip, sem afla þess hráefnis, sem hinn þýðingarmikli fiskiðn- aður okkar þarfnast. Til að ráða bót á þessu bendir fundurinn m. a. á nauðsyn hækkaðs fiskverðs, betri nýtingar landhelginnar og félagslegar umbætur fyrir fiski- menn okkar. Bendir fundurinn sérstaklega á lífeyrissjóð fyrir alla sjómenn og fyrirgreiðslu í lánamálum til íbúðabygginga úr slíkum eigin sjóði.“ S. Um aðstöðu við höfnina. „Aðalfundur S.R. haldinn 20. febrúar 1966 skorar á útgerð- armenn og eða hafnarstjórn Reykjavíkur að efna nú þegar til reksturs afgreiðslufyrirtækis fyr- ir bátaflotann á svipuðum grund- velli og togaraafgreiðslan er rek- in. — Bendir fundurinn á nauð- Framhald á 15. síðu. HEIMIUSHJÁLPIN í Kópavogi óskar eftir að ráða konu til starfa, Vinnutími 9—14 daglega. Allar nánari upplýsingar í síxna 18394. milli kl. 16 — 18 dag hvern. Bæjarstjóri. Til sölu Á bifrciðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla 14 er til sýniö og sölu Taunus 17M station bifreið, 2ja dyra, árgerð 1960. Upplýsingar á staðnum. Tilboð 'sendist Skúla Sveins- syni, varðstjóra, fyrir 10. þ.m. , LögTCglustjórinn í Reykjavíkf 1. marz 1966. Húsasmíðameistarar AÐALFUNDUR meistarafélags húsasmiða verður haldinn laugardaginn 5 marz kl. 2 e.h. í Skipholti 70. Dagskrá samkvæmt félagslögum. , Stjórnin. GLERULL - TREFJAPLAST GleruUareinangrun í mottum og glerullarhólkar ýmsar stærðir. Trefjnplast á þök, gólf og veggi, einnig til iðnað- ar fyrirliggjandi. Höfum litlau'st gólflakk á harðvið og dúka, afar mikið slitþol og þolir mi'kinn hita. IÐNFRAMI S.F., Hverfisgötu 61, sími 21364, Reykjavík. Trésmíðafélag Reykjavíktir Állsherjar atkvæðagreiðsla um menn í stjórn og aðrar trúnaðarstöður í félaginu fyrir árið 1966, fer fram iaugardaginn 5. marz kl. 14 — 22 og sunnudagmn 6. marz kl. 13 — 22. Kosið verður á skrifstofu félagsins að Laufásvegi 8. Kjörstjórnin. ALÞÝÐUBLAÐID - 2. marz 1966 $

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.