Alþýðublaðið - 04.03.1966, Síða 1
Föstudagur 4. marz 1966 - 46. árg. - 2. tbl. - VERÐ: 5 KR.
OOOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖ
‘ GERT VIÐ GULLFOSS
Gullfoss kom í gær á venjulegum áætlunartíma, en skipiS
lenti í áreksiri viö Málmeyjarferjuna í síðustu ferð sinni, eins
og kunnugt er. Þegar Gullfoss var lagstur að bryggju l Reykjw-
vík var þegar hafin viðgerð á stefni skipsins og myndin er ein-
mitt tekin a.f nokkrum viðgerðarmönnum við vinnu síiia l
gær. — Mynd: J. V.
Memhlutmn v/ð sama heygarðshornið:
Reykjavík, EG ►
Tillagch \Öiskia,rs Hallgrímissonar borgarfulltriia Alþýðuflökksins
um byggingu fimmtiu lítilla og hagkvæmra leiguíbúða fyrir ung
hjón, sem eru að byrja búskap var á ný til umræðu á fundi borgar-
stjórnar í gærkveldi.
Ekki treysti meirihluti Sjálfstæðismanna sér til að samþykkja til-
löguna. heldur var henni vísað til borgarráðs ásamt tillögu frá Sjálf-
stæðis:nönnum, sem talin var fela i sér nýmæli, en reyndist þegar til
kom að mestu vera gamall grautur á nýjum diskum.
Forseti Guineu
styður Nkrumah
Núverandi borgarstjórnarmeiri
hluti hefur haft allt þetta kjör
timabil til að gera Það upp við
sig, hvað gera skal til að hjálpa
ungu fólki í húsnaeðisvandræðum,
en enn er tregðast við að taka á-
kvörðun eða gera yfirleitt nokk
urn skapaðan hlut. í byrjun þessa
kjörtímabils árið 1962 flutti Ósk
ar Hallgrímsson tillögu um að
byggðar yrðu leiguíbúðir fyrir
ungt fólk. Ári síðar flutti Björg
vin Guðmundsson tillögu um að
framkvæmd yrði athugun á hús
Litsjónvarp
í Bretlandi
London, 3. 3. (NTB -Reuter.)
Litsjónvarpi verður komið á fót
í Bretlandi næsta haust sagði Anth
ony Wedgevvood Benn, póstmála
ráðherra í Neðri máistofunni í
dag. Bretar ætla að nota vestur-
þýzka Pal-kerfið, en ef mælt verð
ur með öðru kerfi á alþjóðlegu sjón
varpsráðstefnunni í Osló í sumar
mun brezka stjómin taka það til
athugunar.
Útsendingartími nýja litsjón-
varpsins verður fjórar stundir í
fyrstu en á einu ári verður hann
aukinn í tíu stundir.
næðísmálum ungs fólks í borg
inni. Var sú tillaga hans samþykkt
en síðan ekkert aðhafst í málinu.
Á siðasta borgarstjórnarfundi lof
aði borgarstjóri, að niðurstöður
athugunarinnar mundu liggja fyr
ir í þessum mánuði, og vonandi
fyrir fundinn í gær. Var umræð
um urn tillögu Óskars þá m.a.
frestað á þeim forsendum. Engar
niðurstöður voru þó lagðar fyrir
fundinn í gæi\ heldur gripið enn
eitt tækifæri til að fresta málinu
og tillögu Óskars vísað til borgar
ráðs. Er því sýnt að áhugi borgar
stjórnarmeirihlutans í Reykjavík
á því að ráða bót á húsnæðisvanda
málum unga fólksins er ekki ákaf
lega mikill, þótt sýndartillögur
séu fluttar er styttist til kosninga.
Á fundinum í gær mælti Gísli
Halldórsson fyrir tillögu borgar
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem
vera skal einskonar áætlun um
byggingarmál borgarinnar á næst
unni. Kom í ljós, er að var gáð
að þar var m. a. fjallað urn mál
sem búið var að afgreiða í borgar
stjórn og reynt að láta svo líta út
í tillögunni, sem þar væri um nýj
ar samþykktir að, ræða. Tillaga
Sjálfstæðismanna gerir ráð fyrir
að byggðar verði 100 íbúðir fyr-
ir aldrað fólk, cn áður er búið að
gera samþykkt um byggingu íbúða
fyrir gamla fólkið. Þá gerir tillag
an ráð fyrir að byggðar verði 200
litlar íbúðir til að leigja efna-
Framh. á 5. bls.
Accra og Addis Abeba,
3. marz (NTB-Reuter)
Forseti Guineu, Sekou Touré,
hefur boðið Kwame Nkrumah, fyrr
um forseta Ghana, að sitja með
honum í forsetastóli í Guineu, að
því er sérlegur sendiherra Guineu-
stjórnar, Diallo Abdoulay sagði í
Addis Abeba í kvöld.
Touré sagði meðal annars á
fjöldafundi í Conarky í gærkvöldi
að sögn Guineu-útvarpsins: Sá
maður, sem upp frá þessu talar
máli Guineu á ráðstefnum þjóð-
höfðingja er enginn annar en fé-
lagi okkar og bróðir, Kwame
Nkrumah. Sjálfur sagði Nkrumah
er liann kom til Guineu, að hann
Væri á leið til Ghana.
Abdoulay sendiherra sagði á
blaðamannafundi í Addis Abeba,
að Touré forseti hefði einnig boð-
ið Nkrumah að gerast ritari Þjóð-
flokks Guineu. Hann sagði, að To-
uré hefði gert Nkrumah þetta boð
til að sýna fram á vináttu og stuðn
ing Guineuþjóðarinnar við Nkru-
mah. Sendiherrann greindi ekkx
nánara frá tilboði Tourés.
í Addis Abeba hefur skapazt
alvarlegt ástand á ráðherrafundi
Einingarsamtaka Afríku (OAU)
sökum ástandsins í Ghana. Fulltrú
ar Guineu, Mali og Tanzaníu hafa
Framhald á 15. síðn.
NKRUMAH
Skemmdarverk vegrta brúð-
kaups Hollandsprinsessu
Haag, 3. 3. — NTB-Reuter.
HIÐ fyrirhugaða brúðkaup
þeirra Beatrix krónprinsessu
og hins fyrrverandi veslur-
þýzka diplomats Claus Von
Amsberg hefur vakið mikla
reiði í Hollandi, og það jafn
vei svo að gripið hefur verið
til skemmdarverka
Flaggstengur hafa verið
brotnar í Amsterdam og á hús
veggjum hafa blasað við app
elsínurauðir hakakrossar og níð
vísur um Þjóðverja. í Haag
fengu margir fjölrituð visna
blöð með morgunpóstinum þar
sem m.a. eru ýmsar óskemmti
Framhald á 15. síðu
TREGÐAST VIÐ AÐ LEYSA
VANDAMÁL UNGA FÖLKSINS